Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Page 26
H
rönn Baldursdóttir, náms- og
starfsráðgjafi, segir tvö lykil-
atriði hjálpa námsmönnum
mest við að halda utan um
námið. Hún segir skipulag vera mik-
ilvægt sem og að halda vel utan um
glósurnar sínar.
Dagbók
„Það er mikilvægt að nota einhvers
konar dagbók og skipuleggja tíma
sinn vel. Finna dagbók sem hent-
ar hverjum og einum, hvort sem
hún er úr pappír eða rafræn,“ segir
Hrönn. „Það er gott að taka frá tíma
fyrir námið þegar maður er best upp-
lagður. Finna tíma dagsins sem hent-
ar manni best til að læra og tíma til
að taka frá fyrir tómstundir.“ Hrönn
segir mikilvægt fyrir nemendur að
nota dagbókina skipulega frá upphafi
skólaárs. „Það er mjög gott að setja
strax inn í dagbókina upplýsingar úr
námsáætlunum, til dæmis hvenær
eigi að skila verkefnum og hvenær
próf séu, þannig að það komi ekkert
á óvart.“
Glósur
„Það er mjög mikilvægt að skrifa eig-
in glósur eða minnispunkta,“ segir
Hrönn um annað lykilatriði í náms-
tækni. „Aðalmálið með glósur er að
rifja þær upp reglulega. Ekki bara
rétt fyrir próf. Þegar kemur að próf-
um er gott að vera búinn að gera út-
drátt úr glósunum. Það er líka gott að
hafa einhvern vissan upprifjunartíma
vikulega þar sem farið er yfir glós-
ur þannig að þegar kemur að próf-
unum þá sé maður ekki að lesa þær
í fyrsta skipti,“ segir hún. „Til þess að
læra eitthvað er upprifjunin lykilat-
riði,“ segir Hrönn og tekur fram að
það skipti ekki máli hvernig glósurnar
séu gerðar heldur bara að það henti
hverjum og einum, hvort sem þær séu
handskrifaðar eða á rafrænu formi. n
2 Aftur í skólann 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
Dagbók og glósur mikilvægust
n Námsráðgjafi segir mikilvægt að skipuleggja tíma sinn vel
Skipulag Mikilvægt
er að skipuleggja sig vel
í náminu til þess að ná
sem mestum árangri.
N
ú þegar hausta tekur og
skólafólk þyrstir í aukna
þekkingu er tilvalið að
skoða hvaða öpp eru í boði
fyrir fróðleiksfúsa náms-
menn. Ótal öpp eru í boði en blaða-
maður DV tók saman upplýsingar
um nokkur sem auðvelda nemend-
um að skipuleggja sig, auka þekk-
ingu sína í hinum ýmsu greinum og
undirbúa sig fyrir próf og eru auk
þess ókeypis.
Khan Academy
Khan Academy veitir þér aðgang að
yfir fjögur þúsund kennslumynd-
böndum á vegum fyrirtækisins.
Hægt er að læra grundvallaratriði
í hinum ýmsu greinum stærð-
fræðinnar sem og líffræði, eðlis-
fræði, efnafræði, viðskiptafræði,
sögu og félagsfræði svo eitthvað sé
nefnt en myndböndin eru útbúin af
sérfræðingum á hverju sviði. Hægt
er að sækja aðgang að myndbandi
og geyma það svo til að horfa á síðar
þegar þú ert ekki tengdur við netið.
SparkNotes
Hvaða námsmaður kannast ekki
við vefsíðuna SparkNotes? Þar má
nálgast allt sem þú þarft að vita
um helstu bókmenntaverk hins
enskumælandi heims, svo sem ævi-
ágrip höfundar, söguþráð verksins,
ítarlega samantekt úr hverjum kafla
bókarinnar og greiningu á helstu
persónum verksins svo eitthvað sé
nefnt. Þá geturðu tekið stutt próf úr
hverjum kafla til að athuga hversu
vel þú ert að þér í efninu. SparkNot-
es-appið er líka afar gott og fær góða
einkunn hjá notendum. Þar færðu
allar upplýsingarnar beint í símann
og ætti því að vera lítið mál að redda
sér fyrir enskupróf á síðustu stundu.
Scribd
Scribd er eitt stærsta bókasafn á
netinu en á því má finna milljónir
bóka og skjala til að skoða, lesa
og deila um allt á milli himins og
jarðar. Til dæmis geta notendur
nálgast ýmsar leiðbeiningar, upp-
skriftir, glósur, viðskiptaskjöl og
rannsóknarskýrslur frá þekktum
og virtum útgefendum. Notend-
ur appsins geta náð sér í skjöl og
geymt þannig að hægt sé að nálgast
þau þegar síminn er ekki nettengd-
ur. Þá er hægt að flokka skjölin að
eigin vild eftir umfjöllunarefni, deila
þeim með öðrum notendum og fá
daglegar ráðleggingar frá stjórnend-
um appsins um áhugaverða hluti
sem gaman er að fræðast um.
Evernote
Evernote- appið
er ein allra besta
leiðin til að
skipuleggja sig.
Notendur apps-
ins geta skrifað
niður allt sem þeir þurfa að gera,
tekið myndir, útbúið „to-do“-lista
og gert raddupptökur til að halda
utan um markmið, áætlanir og ver-
kefni dagsins. Þá er hægt að sam-
ræma allar glósur sem gerðar hafa
verið í öllum þeim tækjabúnaði sem
þú býrð yfir og auðveldað þannig
enn frekar að hafa yfirlit yfir allt
sem þarf að muna. Til að auðvelda
þér að halda utan um þær glósur og
verkefnalista sem þú útbjóst í app-
inu er hægt að flokka allt með því
að merkja það með viðeigandi um-
ræðuefni.
Mathway
Stærðfræði-appið Mathway er frá-
bær leið til að fá ókeypis lausn
á hinum ýmsu stærðfræðidæm-
um. Notendur sem eru í basli með
dæmi og vilja sjá hvort lausn þeirra
sé eitthvað á réttri leið geta slegið
það inn í appið og fengið lausnina
eftir aðeins augnablik. Þá er hægt er
að borga aukalega fyrir að fá einnig
að sjá hvernig dæmið er leyst skref
fyrir skref. Nú þegar eru lausnir við
tugi milljóna dæma í gagnagrunni
appsins en í boði er að fá lausnir á
dæmum í algebru, hornaföllum og
tölfræði svo eitthvað sé nefnt.
Science
Dictionary
Science Diction-
ary er eins konar
Wikipedia-síða
vísindanna því
um er að ræða
vísindaorðabók sem auðveldar þér
að stunda nám í líf-, eðlis-, efna-
og jarðfræði svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess að gefa notendum útskýr-
ingar á ótal fræðiheitum fylgir þeim
söguleg skýring en einnig má nálg-
ast fjölmargar greinar og blogg um
vísindi og fræðiheiti sem notuð eru
innan þeirra.
MyHomework
MyHomework er frábær leið til að
skipuleggja heimanámið. Skráðu
allt sem er sett fyrir í dagatal og
appið litar verkefnin sjálfkrafa í
mismunandi litum eftir því hvenær
á að skila þeim. Útbúðu verkefna-
lista fyrir daginn og láttu appið
minna þig á hvaða verkefnaskil eru
framundan svo þú getir nú örugg-
lega aldrei svikist undan heima-
námi. Þá er einnig hægt að setja
stundatöfluna inn í appið svo auð-
velt sé að fletta upp hvenær þú átt
að mæta í hvaða tíma. n
n Fáðu glósur, kennslumyndbönd og stærðfræðilausnir í símann
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Bestu öppin
fyrir námsmenn
Skipulag
Tæknin
getur komið
sér vel fyrir
fróðleiksfúsa
námsmenn.
Notum skóla-
töskuna rétt
Skólataskan leikur stórt hlutverk
í lífi barns sem stundar skóla.
Nauðsynlegt er að nemendur,
foreldrar og samfélagið í heild
sé meðvitað um áhrif rangrar
notkunar skólatöskunnar á lík-
amlega heilsu barna og ung-
menna þar sem stoðkerfisvandi
er vaxandi vandamál í nútíma-
samfélagi. Landlæknisembættið
tók saman nokkur haldgóð ráð
fyrir foreldra til þess að vernda
stoðkerfi barna sinna og í einni
setningu má taka ráðin saman:
Létta leiðin er rétta leiðin. En
hvað skiptir máli varðandi
skólatöskuna?
Að pakka/raða í skólatösku:
n Veljið rétta stærð af tösku fyrir
bak barnsins.
n Ekki er æskilegt að barn beri
tösku sem vegur meira en 10%
af líkamsþyngd.
n Setjið þyngstu hlutina sem
næst baki barnsins og raðið
þannig að hlutir séu stöðugir og
renni ekki til.
n Farið daglega yfir það sem
barnið ber með sér í og úr
skóla. Gætið þess að barnið beri
einungis þá hluti sem nauðsyn-
legir eru þann daginn.
n Þá daga sem taskan er yfir-
hlaðin getur barnið t.d. borið
íþróttatöskuna í fanginu; þá er
minna álag á bakið.
n Foreldrar geta aðstoðað börn
sín við að raða í töskuna og hjálp-
að til við að stilla hana; þá eru
minni líkur á álagseinkennum.
Að stilla skólatösku:
n Báðar axlarólar skulu ávallt
vera notaðar. Að bera töskuna
á annarri öxlinni getur valdið
því að hryggsúlan sveigist og
haft í fór með sér sársauka og
óþægindi.
n Veljið skólatösku með vel
bólstruðum axlarólum. Í öxlum
og hálsi eru margar æðar og
taugar. Ef mikill þrýstingur er
á þessi svæði getur það valdið
sársauka og dofa í hálsi, hand-
leggjum og höndum.
n Stillið axlarólar þannig að
taskan liggi þétt við bak barns-
ins. Brjóst- og mittisól á alltaf
að nota en þær dreifa þunga
töskunnar jafnt á líkamann og
tryggja að axlarólar sígi ekki nið-
ur af öxlum.
n Neðsti hluti töskunnar á að
hvíla við mjóbakið. Taskan á
aldrei að ná lengra en 10 cm
niður fyrir mitti. Taskan ætti
ekki að vera breiðari en efri hluti
baks til að hindra ekki eðlilegar
hreyfingar handleggja.