Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 33
Hroða legt
fyrir fólk
Við erum ekki að
standa okkur vel
Hermann Ottósson um áfallastreitu vegna flugslyss. – DV Vilhjálmur Ari Arason um sýklalyfjaónæmisógn. – DV
Lög 21. aldarinnar
Spurningin
„Já ég ætla að mæta“
Unnsteinn Jóhannsson
27 ára framkvæmdastjóri
„Nei, ég verð farinn af landi“
Jörgen Ant
57 ára kennari
„Nei, ég ætla ekki að mæta“
Óli Sigdór Konráðsson
25 ára í atvinnuleit
„Já, ég ætla að reyna að mæta ef
ég verð í bænum“
Mary-Lou Price
64 ára ellilífeyrisþegi
„Ég ætla að fara og horfa“
Kristinn Már Jóhannesson
33 ára nemi
Ætlarðu á
Gay Pride?
1 Jóhannes Páll braust inn og laumaðist í sturtu Braust inn á
þrjú heimili og hafði uppi kyn ferðis lega
til burði.
2 „Ég var alltaf að reyna að kalla á hjálp“ Matthildur var
greind þunglynd en reyndist vera með
krabbamein.
3 „Ég grét og bað hann um að hætta“ Myndband frá Davenport
í Bandaríkjunum sýnir harkalegt
lögregluofbeldi.
4 Fengu arð upp á 250 milljónir Eigendaskipti á Urriðaholti í Garðabæ.
Arion banki stærsti eigandinn.
5 Ólafur segist hafa fengið furðuleg símtöl um pólitískan
frama Ónefndir aðilar höfðu
samband við Ólaf Stefánsson hand-
boltakappa um mögulegt framboð.
6 Stúlkurnar sem urðu fyrir sýruárás á Zanzibar Störfuðu sem
sjálfboðaliðar við kennslu á eyjunni og
komast ekki heim til Bretlands.
7 Glæsileg á frumsýningu Oprah Winfrey með risahárkollu á frumsýn-
ingu The Butler
Mest lesið á DV.is
Haninn sem stjórnaði heiminum
U
m daginn sá ég í ágætu blaði
nokkuð sem höfundur kallar Al
þingislimrur. Og var þar á ferð
hið versta hnoð sem ég hef séð á
prenti. Ég skrifaði um þetta hnoð, grein
sem ég kalla Alþingisambögur og birti
hana í sama blaði. Ég reyndi að vera
málefnalegur í umfjöllun minni; kom
meira að segja með fræðilega úttekt á
því fyrirbæri sem kallast limra, ef það
mætti verða til þess að leiðbeina þeim
sem hnoðinu olli.
Skemmst er frá því að segja, að grein
mín vakti hörð viðbrögð í netheimi og
var fólk ýmist að ráðast að mér og væna
mig um persónulegar árásir á höfund
Alþingislimra, eða láta þess getið að ég
ætti ekki að ráðleggja fólki um kveðskap,
þar eð ég hefði sjálfur fengið slæma
dóma fyrir einhver verka minna.
Ég hélt að aumingjaleikurinn í blogg
bullinu hefði náð sínum hæstu hæðum.
En sé nú, að alltaf má auðga þá flóru
illinda sem þar er hlúð að með ágætum.
Hvort ég hef ort vel eða illa, er ekki
aðalatriði í þeirri umræðu sem hér er
á ferð. Hvort ég hef fengið góða eða
slæma dóma fyrir verk mín, hefur ekki
heldur vægi í þessu samhengi. Það
sem skiptir máli, er það að ég gaf mitt
persónulega álit – að gefnu tilefni – og
bætti við nokkrum upplýsingum um
limruna sem bragarhátt. Ég segi það
satt, að það sem ég fjalla um í grein
minni, Alþingisambögur, er versta hnoð
sem ég hef lesið.
Sjálfur legg ég skrif mín í dóm
lesenda á degi hverjum og reikna alla
jafna með því að þau hljóti málefnalega
umfjöllun. En ekki get ég reiknað með
því að allir hafi sama smekkinn. Og ef
ég skoða hug minn allan, get ég eflaust
komist að þeirri niðurstöðu, að fyrstu
ljóðabækur mínar séu eitt það allra
versta sem út hefur verið gefið.
Auðvitað má ég, einsog aðrir menn,
eiga von á því að fólki lítist ekkert á það
sem ég skrifa. Ef ég óttaðist slíkt, myndi
ég hafa hætt að skrifa strax á uppvaxtar
árunum. Ef fólk vill gagnrýna grein
mína, er kannski rétt að inntak hennar
fái að njóta sín. Persónulegum árásum
í minn garð má ábyggilega finna rými á
öðrum vettvangi.
Segið mér hvað ég hef illt unnið með
grein minni, Alþingisambögur, og ég
mun að sjálfsögðu biðjast afsökunar …
ef ég verð fundinn sekur um óheiðar
legan eða óviðeigandi málflutning.
Netheimaskrifin sem ég minntist
á hér að framan; árásir beturvita, sem
virðast hafa það eitt að leiðarljósi að
misskilja allt, snúa öllu uppí moldviðri
og ata þá auri sem sýna einhverja mál
efnalega tilburði, minna mig á sögu sem
ég sagði sonum mínum á þeirra fyrstu
árum. Sagan sú arna er á þessa leið:
Eitt sinn kom hani úr eggi og þegar
hann náði, með tíð og tíma, að tengjast
þeim heimi sem hann lifði og hrærðist í,
þá galaði hann. En um leið og hann gal
aði, áttaði hann sig á því að sólin kom
upp. Hann hafði þann háttinn á að gala
á hverjum morgni og alltaf þegar hann
galaði, gerðist það að sólin kom upp. Og
þessi sól nýttist bændunum á þann hátt,
að hún lét kornið vaxa og ýtti yfirleitt af
stað allri grósku í heiminum. Og að mati
hanans var þetta allt honum að þakka;
hann galaði og alltaf þegar hann galaði
þá kom sólin upp.
Aldrei með hógværð og hiki
gat hani einn galað á priki;
meinlaus og dreyminn
hann misskildi heiminn,
hvern morgun og hélt sínu striki.
L
angflestir þjóðkjörnir fulltrúar
hérlendis sem erlendis hafa lít
inn skilning á því hvernig stafræn
samskipti ganga fyrir sig, eiga erfitt
með að skilja þá menningu sem hefur
þróast í netheimum eða hvernig verja
eigi okkar stafrænu mannréttindi. Ferl
ið í kringum lagasetningu hefur komið
mér verulega á óvart og það verður að
viðurkennast að eftir því sem ég kynnist
því ferli nánar, því minna traust ber ég
til að lög nái að viðhalda grundvallar
reglu samfélagsins. Það er engin ný
sköpun í lagasetningu þrátt fyrir að við
fangsefni laga og reglugerða verði sífellt
flóknara en sú háskalega þróun hefur
orðið að gagnsæi í kringum frumgerð
laga og aðkoma löggjafans hefur orðið
sífellt veigaminni. Þá virðast margir full
trúar á löggjafarþingum hafa gleymt því
að einn stafkrókur getur haft gríðarleg
áhrif á meginþorra landsmanna. Ein lítil
mistök geta breytt afkomu og lífsgæðum
margra. Því er það svo að við verðum að
velta því fyrir okkur hvernig við getum
uppfært lagasetningaferlið, þannig að
það endurspegli þann veruleika sem við
búum við og sé með sanni kerfi hannað
og þróað til að þjónusta alla sem í sam
félaginu okkar búa og greiða skatta til
að halda kerfinu gangandi. Eðlilegt væri
að við gætum t.d. séð hvernig skattpen
ingum okkar er varið, að við vitum hver
skrifar hvaða hluta nýrra laga um t.d.
bankakerfið. Best væri að þingið myndi
alfarið sjá um lagasetningu og að ráðu
neytunum yrði falið að framfylgja þeim
lögum sem Alþingi mótar. Með því að
færa löggjafarvaldið til þingsins er hægt
að tryggja fullkomið gagnsæi og mun
betri aðkomu almennings að ferlinu og
bæta aðhaldið sem svo sárlega vantar í
stjórnsýslu okkar. Tími þess löglega en
siðlausa á að vera löngu liðinn. En það
er ekki nóg að tala bara um einhverjar
innantómar siðareglur og breytingar á
ráðuneytum, nei breytingin verður að
vera þess eðlis að hið raunverulega full
trúalýðræði virki sem skyldi, þar sem
aðgengi almennings að sínum kjörnu
fulltrúum er bætt og fólk fái hvata til að
taka þátt í að móta samfélag sitt.
Kerfisuppfærslan og nýi ramminn
Lögin endurspegla kerfin sem við
búum til, og kerfin, hvort heldur það
eru mennta, banka, heilbrigðis, vel
ferðarkerfi, kalla á gagntæka uppfærslu.
Það er alveg sama hve gott og hæft fólk
við fáum til að stjórna kerfinu, það er
úrelt og ekki nóg með það heldur er
verið að reyna að troða nýjustu stýri
kerfisuppfærslunum í eldgamlar tölv
ur sem ráða hvorki við nýju stýrikerfin
né eru nægilega öflugar til að bregðast
við illa skrifuðum kóða sem þarf leið
réttingar við strax og vírusarnir láta á
sér kræla. Kannski er þessi uppsetning
á kerfinu okkar einn risastór vírus sem
á sér enga aðra framtíð en að þurfa að
vera þurrkaður út. Hvað gerir maður
þegar kemur í ljós að tölvan manns er
helsjúk af vírusum? Maður núllar hana
og setur inn nýtt kerfi eða maður fær sér
nýja. Við þurfum enga sértaka róttækni
til að sjá að þessi tímapunktur er löngu
kominn.
Þú!
Það hefur verið merkilegt ferli að fá að
sjá hvernig lög verða til, og ekki hægt að
segja að traust mitt á innviðum kerfis
ins hafi endilega eflst með betri skiln
ingi á því hvernig þetta gengur fyrir sig.
En ég fór þarna inn til að skilja og til að
koma með uppbyggilegar lausnir. Pírat
ar hugsa út fyrir ramman og eru að þróa
nýjan ramma utan um kerfin. Við ætl
um ekki að gera það ein, öllum er boðið
að taka þátt. Píratar eru núna að þróa
örugg og skilvirk kerfi til að taka þátt í
undirskriftasöfnun á netinu, þeir eru að
þróa öruggt tölvupóstkerfi sem tryggir
að hver sem er geti ekki lesið póstinn
okkar, Píratar eru líka að þróa kerfi sem
bjóða öllum að hafa áhrif á störf þing
manna, kalla eftir skýrslum, leggja fram
frumvörp eða ályktanir, það eina sem
vantar enn sem komið er, ert ÞÚ. Kíktu
á betraisland.is og taktu þátt í að hafa
áhrif á samfélag þitt. n
Regnbogafáninn Það verður mikið um dýrðir um helgina þegar hin árlega Gay Pride-hátíð fer fram. Hér sjástfimm regnbogafánar blakta við hún og tákna litirnir samfélag
samkynhneigðra. Fáninn var hannaður árið 1978 af Gilbert Baker. Mynd KRistinn MagnússonMyndin
Umræða 25Helgarblað 9.–11. ágúst 2013
Lífið er meira virði
en eitthvert hús
Eyjólfur Kristjánsson um tilveruna. – DV
Kjallari
Birgitta
Jónsdóttir
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson