Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 39
N
ýleg rannsókn á vegum
Háskólans á Akureyri
gefur til kynna að andleg
heilsa samkynhneigðra
unglinga sé verri en hjá
jafnöldrum þeirra. Niðurstað
an er sú að samkynhneigð ung
menni í tíunda bekk grunn
skóla eru 25 sinnum líklegri til
að hafa endurtekið reynt sjálfs
víg en jafnaldrar þeirra og er ein
elti stærsti áhrifaþáttur þess. Þá
kemur einnig fram að samkyn
hneigðum stúlkum líður almennt
verr en samkynhneigðum strák
um en um 40% samkynhneigðra
stúlkna höfðu reynt sjálfsvíg.
„Mér finnst þetta vísbending
um að það sé full ástæða til að
hafa áhyggjur,“ segir Anna Pála
Sverrisdóttir, formaður Samtak
anna ’78, en DV ræddi við hana
um þessar sláandi niðurstöður.
„Ef það er þannig, af einhverj
um ástæðum, að stelpunum líði
verr en strákunum og kannski
byrgi hluti meira inni þá er það
eitthvað sem við þurfum að taka
mjög alvarlega og vinna með af
því að það skiptir auðvitað mestu
máli að yngsta fólkinu okkar líði
vel með sig þegar það er að vaxa
og þroskast.“
Gagnkynhneigða normið
sterkt
„Kannski er stelpum að ein
hverju leyti ýtt meira inn í gagn
kynhneigða normið og eiga auð
veldara með að festast í því. Það
er eitthvað sem ég get tengt ágæt
lega við sjálf út frá minni reynslu
vegna þess að það að koma út úr
skápnum krefst þess að maður
stígi út fyrir þægindarammann
og spyrji sig áleitinna spurninga.
Hjá mér var það reyndar ekki
þannig að ég væri beinlínis með
vituð um það að ég væri örugg
lega lesbía heldur var ég bara
kannski ekki búin að spyrja mig
réttu spurninganna. Kynhneigð
er nefnilega ekki svarthvít.“
Anna segist hrifin af þeirri
kenningu að kynhneigð fólks sé á
rófi fremur en flokkaskipt.
„Ég held að fæst okkar séu al
veg úti í öðrum hvorum endan
um á rófinu. En það getur verið
mjög auðvelt að ganga inn í það
norm sem að samfélagið ýtir að
manni alls staðar því ef maður
horfir á þau skilaboð sem koma
frá kvikmyndum, sjónvarpsþátt
um og tónlistarmyndböndum þá
sér maður að gagnkynhneigða
normið er ennþá mjög sterkt.“
„Hinsegin fólk er alls konar“
Anna segir hinsegin persón
ur í sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum yfirleitt miklar
staðalímyndir sem eigi sér litla
stoð í raunveruleikanum.
„Það er oft þannig að ef það
er hinsegin fólk í kvikmyndum
eða þáttum þá eru það oft jaðar
karakterar sem eru hlægilegir og
í þeim dúr að fólk á kannski erfitt
með að samsama sig þeim,“ seg
ir hún og bætir við að gamlar
steríó týpur valdi því jafnvel að
sumu fólki finnist það þurfa
að breyta sér að einhverju leyti
eða að það telji það ekki passa
við sinn persónuleika að vera
hinsegin.
„Sem er náttúrlega bull af því
að hinsegin fólk er alls konar.
Fólk er alveg sama manneskjan,
sama hvaða kynhneigð það
hefur, og það að vera hinsegin
krefst þess ekki að þú klæðir þig á
sérstakan hátt eða sért einhvern
veginn öðruvísi en þig langar til
að vera.“
Anna telur gamlar staðal
ímyndir um hinsegin fólk mikið
vandamál sem sé þó að breytast
til hins betra með aukinni um
ræðu.
„Að uppræta þær er einmitt það
sem við þurfum að vinna að, ekki
bara það að fólk haldi að það þurfi
að detta inn í einhverja steríótýpu
til að geta verið almennilega út úr
skápnum heldur líka að uppræta
staðalímyndir kynjanna því þær
eru rótin að þessu öllu saman.“
Mikilvægt að fá stuðning
allt árið
Anna segir Gay Pride mikilvægan
dag fyrir hinsegin fólk.
„Gangan skiptir ofboðslega
miklu máli og hefur gert dásam
lega hluti fyrir íslenskt samfélag.
Þetta er leið almennings til að
sýna sinn stuðning í réttindabar
áttu hinsegin fólks, og hann er
ómetanlegur,“ segir hún og bætir
við að hún sé ánægð með að
gangan skuli kallast gleðiganga.
„Það er náttúrlega bara tóm
gleði sem fylgir því að átta sig á
sér og að geta verið sá sem mað
ur er og elskað þann sem maður
vill.“
Auk þess segir hún gönguna
eiga hvað stærstan þátt í að vekja
athygli á baráttu hinsegin fólks
undanfarin ár.
„Þetta er bæði uppskeru og
baráttuhátíð, því að baráttunni
er ekki lokið. Svo verðum við að
muna að það er ekki bara þenn
an eina laugardag á ári sem það
er mikilvægt að fá stuðning frá
almenningi heldur þurfa þetta að
vera 365 hinsegin dagar á ári.“ n
Fólk 31Helgarblað 9.–11. ágúst 2013
séu oft miklu tilfinninganæmari og
viðkvæmari. Þess vegna gæti þessi
reynsla verið þeim erfiðari en strák
um. Ég sjálf var mjög tvístígandi og
unglingsárin voru erfiður tími og
eru það almennt fyrir flesta – gagn
kynhneigða jafnt sem samkyn
hneigða. Þetta er akkúrat þessi ald
ur þar sem þú ert að uppgötva sjálfa
þig, allt í sambandi við kynlíf og allt
sem að því lýtur. Karlmenn og kon
ur eru mjög ólíkar verur. Ég er nátt
úrulega búin að vinna mikið með
körlum í gegnum tíðina. Þeir eru
yndislegir og allt það, en þeir hugsa
og gera hlutina öðruvísi en við.
Í þá daga sem ég var að horf
ast í augu við sjálfa mig voru miklir
fordómar í gangi. En í dag er þetta
allt annað líf, sem betur fer. Enda
á þetta ekki að vera eitthvert atriði.
Maður er bara eins og maður er.“
Þorði ekki að reyna við stelpur
Sigga varð skotin í stelpum á barns
og unglingsaldri en hélt því fyrir sig.
„Ég hugsaði alltaf: Ég verð að
vera í þessu normi. Maðurkona.
Allt annað er óeðlilegt! En ég varð
samt auðvitað skotin í stelpum. Ég
þorði aldrei að gera neitt í því. Ég
þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara
út fyrir normið.
Þegar ég var að verða kyn
þroska var umræða um samkyn
hneigð afar lítil og því skiljanlegt að
ég hafi hugsað á þennan máta. Ég
reyndi að passa inn í normið. Byrj
aði með strákum og svona en fann
fljótt að ég gat það ekki. Það pass
aði mér ekki og ég fann að ég þurfti
að viðurkenna þær tilfinningar sem
ég bar í brjósti. Mjög margir prófa
sig áfram með þessum hætti. Fikra
sig áfram í sátt við eigin tilfinningar.
Með opnari umræðu er þetta auð
veldara ferli og margar fyrirmyndir
að horfa upp til. Núna finnst mér
allt uppi á borðum og allt sjálfsagt.“
Foreldrarnir mæltu með
læknisaðstoð
Sigga ákvað að segja foreldrum sín
um frá kynhneigð sinni þegar hún
var tæplega tvítug. Viðbrögðin voru
í takt við tíðarandann. Miklir for
dómar voru gegn samkynhneigð á
áttunda og níunda áratugnum og
foreldrar hennar brugðust við eins
og þeir töldu að væri henni fyr
ir bestu og spurðu hana hvort það
væri ekki rétt að leita læknis.
„Ég var tæplega tvítug þegar ég
viðurkenndi samkynhneigð mína
fyrst fyrir öðrum. Ég fór fyrst til for
eldra minna. Þetta var ekki efst á
óskalistanum hjá þeim. Þau vildu
að ég eignaðist mann og börn.
Þetta var bara tíðarandinn þá og
þau fengu smá sjokk. Þau spurðu
mig hvort ég þyrfi ekki að leita
læknis og svona og þóttust halda að
það væri hægt að lækna þetta. Það
tók smá tíma fyrir þau að jafna sig.“
Sigga brosir og bætir því við að við
brögðin hafi ekki fengið mikið á sig.
Viðbrögð foreldranna skiptu minna
máli en það sem hafði verið að gerj
ast innra með henni árin áður og
henni tekist að öðlast sátt í því ferli.
Hrædd við höfnun
„Auðvitað var þetta erfitt. Þetta er
erfitt fyrir alla. Það sem er erfiðast
er að horfast í augu við sjálfan sig.
Viðurkenna fyrir sjálfum fyrir sér:
Svona er ég. Af því að fordómarnir
voru svo miklir.
Ég var hrædd við höfnun. Allir
eru það innst inni en óttinn magn
ast þegar þú þarft að vera á jaðrin
um þar sem þú veist að líkurnar á
höfnun eru meiri.
Ég vildi heldur ekki láta sérstak
lega bera á mér, var feimin og fannst
óþægilegt að skera mig svona úr
fjöldanum með því að vera öðru
vísi.“
Aldrei í feluleik
Sigga hefur aldrei falið kynhneigð
sína og eftir að hún horfðist í augu
við hana sjálf er hún bæði sátt og
stolt af sjálfri sér. Hún hefur hins
vegar kosið sjálf að ræða ekki um
einkalíf sitt við fjölmiðla og það hef
ur oft leitt af sér svæsnar kjaftasög
ur.
„Ég sá einhvers staðar herferð
gegn fordómum þar sem var búið
að snúa öllu við og gagnkynhneigð
ir látnir sæta sömu meðferð og
athygli og samkynhneigðir, það var
eiginlega stórkostlega fyndið.
Gagnkynhneigðu fólki finnst
stundum það eiga meiri heimtingu
á að vita meira um einkalíf okkar
en þeim sjálfum þætti eðlilegt,“ seg
ir hún og hlær. „Ekki er ég að spyrja
þig út í kynhneigð þína?“ skýtur
hún að gamni sínu.
„Ég hef kosið að halda mínu
einkalífi út af fyrir mig. Ég hef aldrei
falið kynhneigð mína en það er stutt
síðan ég tók þá ákvörðun að ræða
um hana á opinberum vettvangi.
Ég tók þá ákvörðun að halda
einkalífinu út af fyrir mig strax og
ég fór í þennan hljómsveitarbransa.
Ég skipti lífi mínu í tvennt. Það var
Sigga og svo bransaSigga. Þetta var
mér nauðsynlegt, ég þurfti frið til að
vera ég sjálf og andrými til að lifa.
Þetta þurfa allir, held ég. Ég er ekki
alltaf að spyrja hvað fólk sé að gera
og af hverju. Kannski var það vegna
þess hve ég hélt einkalífinu leyndu
að fólk varð enn forvitnara um mig
en marga aðra. Ég lenti stundum í
því að fólk var að kíkja ofan í mat
arkörfuna hjá mér þegar ég var að
kaupa í matinn,“ segir hún og fórn
ar höndum.
„Nú þegar ég er komin með
börn og fjölskyldu þá er það al
veg uppi á borðinu að við erum
tvær mæður með börnin okkar –
og það er ekkert meira eða minna
merkilegt en fjölskyldan í næsta
húsi þar sem eru mamma, pabbi
og börn. Öll lifum við þessu dag
lega lífi, kaupum í matinn, förum
á leikskóla og í vinnu og sinnum
okkar vinum, fjölskyldu og hugð
arefnum.“
Nagli en stundum
með lítið hjarta
Sigga hefur aldrei lent í fordómum
vegna samkynhneigðar sinnar.
„Aldrei nokkurn tímann hef ég lent
í nokkru sem gæti flokkast undir
fordóma. Bransinn er góður hvað
það varðar. Ég setti líka upp þessa
brynju, samkynhneigð mín var
aldrei eitthvað „issjú“ í vinnunni.
En það var auðvitað stundum
kallað á eftir manni, unglingar að
fíflast.“
Tekur hún það ekkert nærri sér?
„Tja, ég get verið nagli, þótt ég sé
stundum með lítið hjarta. Ég man
samt varla eftir atviki þar sem mér
leið illa yfir skoðunum annarra á
kynhneigð minni.“
Gay Pride-helgin framundan
Um helgina tekur Sigga og fjöl
skylda þátt í hátíðarhöldum Gay
Pride sem áhorfendur, en árið 2011
og árið 2012 var Sigga partur af dag
skrá hátíðarinnar á stóra sviðinu á
Arnarhóli. Í ár ætlar hún að fara á
opnunarhátíðina og gleðjast svo
með góðum vinum og fjölskyldu á
Gay Pridedaginn sjálfan. n
Reyndi að passa í normið„Þau
vildu
að ég eign-
aðist mann
og börn
Stelpum líður
verr en strákum
n „Ástæða til að hafa áhyggjur“
Hefur áhyggjur
Anna Pála segir
mikilvægt að upp-
ræta staðalímyndir
um hinsegin fólk.