Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Síða 48
40 Bílar 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
BMW M4
á markað
Það þekkja flestir M-týpurnar
frá BMW sem eru best útbúnu
bílar hverrar boddítegundar og
M3- og M5-útgáfurnar þarf varla
að kynna fyrir Íslendingum. Ný-
verið kynnti BMW einnig M1-bíl
sinn sem er einn allra besti bíll
sem hægt er að fá í þeim verð-
flokki en þeir hafa ekki hugsað
sér að láta staðar numið þar. Nú
stendur til að framleiða M4-út-
gáfu sem mun eingöngu verða
fáanleg tvennra dyra. Þessi bíll
mun verða settur fram til þess að
keppa við Mercedes C63 AMG
og Audi RS5 og er hönnun hans
á fullu þessa dagana. Ráðgert er
að kynna bílinn 2015 og almenn
sala á honum mun að öllum lík-
indum hefjast í ársbyrjun 2016 og
þá bæði í keppnisútgáfu og sem
venjulegum götubíl.
Vinsælastur
Baráttan um hjörtu og veski
Bandaríkjamanna heldur áfram
á rafbílamarkaðnum og nú sýna
tölur júlímánaðar að Nissan hef-
ur betur í baráttunni við Gener-
al Motors. Nissan Leaf var mest
seldi rafbíllinn í júlí og sló út
Chevrolet Volt sem hafði betur í
sölunni í júní. Telsa kemur fast
á hæla risunum í sölutölum en
þeir hafa nú selt 10,401 bíl það
sem af er ári. Margir vilja þó telja
þennan samanburð ósanngjarn-
an þar sem Chevrolet Volt er
ekki eingöngu rafmagnsbíll eins
og Nissan Leaf. Volt er í raun og
veru hybrid-bíll þar sem hann
hefur einnig bensínmótor sem
hleður rafhlöður hans.
Stærsti
jeppi í
heimi?
Bentley-verksmiðjurnar hafa
nú gefið út að þær muni smíða
allra stærsta jeppann sem fá-
anlegur er á lúxusmarkaðnum í
dag og áætla þeir að sala á hon-
um hefjist 2016. Bíllinn mun,
eins og aðrir frá þessum eðal-
vagnaframleiðanda, eiga að
vera stærsti, besti og kraftmesti
valkosturinn fyrir kaupend-
ur. Volkswagen- verksmiðjurnar
sem eiga Bentley- vörumerkið
í dag munu þó kannski fara í
samkeppni við sjálfar sig nema
ef litið er á verðmiðann sem
væntanlega verður á þessu trölli
en grunnútgáfan mun verða
samkvæmt nýjustu upplýsing-
um á tæpar 48 milljónir.
Bílar
Björgvin Ólafsson
bilar@dv.is
Ford Fiesta
✘ Kostir: Útlit, eyðsla, staðalbúnaður, aksturseiginleikar og gott verð
✔ Gallar: Lítið útsýni aftur úr bílnum og óþarflega þreyttur upp brattar brekkur
Eyðsla: 4,3 l/100 (blandaður akstur)
Hestöfl: 65
Gírar/þrep: 5 gíra beinskipting
Árekstrarpróf: 79%
Verð: Frá 2.390 þús.
Sambærilegir bílar: Mazda 2, Hyundai
Accent, Chevrolet Spark, Toyota Yaris
Konubíll ársins
n Ford Fiesta einn allra besti smábíllinn n Frábær andlitslyfting
F
ord Fiesta er einn af vinsælustu
smábílum sögunnar og frá ár-
inu 1976 hefur Ford Fiesta ver-
ið seldur í meira en 13 milljón-
um eintaka. Í Bretlandi hefur
Ford Fiesta frá árinu 1990 verið níu
sinnum á toppi sölulistans á ári hverju
sem mest seldi fólksbíllinn þar í landi.
Vinsældir þessa bíls má auðveldlega
færa á bæði verðið, eldsneytisnotkun-
ina og svo frábæra aksturseiginleika
sem erfitt er að finna í öðrum bílum
af sömu stærð. Nýja Fiestan hefur nú
fengið glæsilega andlitslyftingu og er
nú búin nýja verðlaunamótornum frá
Ford sem er þriggja sýlindera og að-
eins 1000 cc. Hann hefur hlotið hver
verðlaunin á fætur öðrum og er í dag
talinn einn besti bílamótor í heimi.
Þennan mótor má fá frá 65 hestöflum
með eldsneytisnotkun frá 3,7 lítrum
og upp í 200 hestöfl frá samþykktum
breytingarfyrirtækjum. Kraftmesta
þriggja sýlindera útgáfan sem fáan-
leg er hér á landi er 100 hestöfl með
túrbínu en er samt sem áður gefin
upp með meðaleldsneytisnotkun upp
á 4,3 lítra á hundraðið.
Hljóðlátur og þéttur
Það fyrsta sem vekur eftirtekt þegar
inn í þennan bíl er komið er góð staða
ökumanns og gott stýri. Stýrishjólið
er ekki bara gripgott og fallegt held-
ur svarar bíllinn hreyfingum þess á
þann hátt sem maður á ekki að venjast
nema í mikið dýrari bílum.
Aksturseiginleikar þessa
smábíls eru eiginlega fárán-
lega góðir og þó þessi bíll
sem hér var ekið hafi ver-
ið með kraftminnstu vélar-
útgáfunni sem í boði er þá
gefur hann manni engu
að síður mikla ánægju í
akstri. Í beygjum hallast
hann sama sem ekki neitt
og er rásfastur sama hvort
ekið er á möl eða malbiki.
Þessi nýja útgáfa af Fiesta
er einnig með nýrri hljóð-
einangrun sem er einstak-
lega vel heppnuð því við
allar aðstæður sem prófað-
ar voru fékk maður aldrei
þá tilfinningu sem verðflokkur bílsins
ætti að öllu jöfnu að gefa til kynna, því
aldrei kemur sú upplifun að þú sért
að keyra í einhverri smádós. Bíllinn er
þéttur og góður og með betri aksturs-
bílum sem í boði eru í dag.
Frábær fjöðrun
Þótt bíllinn sé lítill og léttur er fjöðr-
unin alveg frábær og hún á svo
sannarlega hlut í heildarupplifun á
akstri þessa bíls. „Body roll“ er nán-
ast ekki til og þó ekið sé yfir hraða-
hindrun á fullum umferðarhraða þá
gleypir fjörðunin ójöfnurnar enda
MacPherson-fjöðrun að framan og
Twist Beam-útbúnaður að aftan. Út-
sýnið fyrir ökumann er mjög gott,
bæði á mæla sem og út úr bílnum
og pláss fyrir farþega er einnig ótrú-
lega gott í bíl af þessum stærðarflokki.
Hauspúðar eru fyrir alla fimm sem
bíllinn er skráður fyrir en taki mað-
ur hauspúðana upp í aftursætum,
svo fullorðnir geti notað þá, þá byrgja
þeir töluvert útsýnið aftur úr bílnum
fyrir ökumann. Þótt bíllinn sé bein-
skiptur er hann samt sem áður út-
búinn með „Start-stop“-búnaði og
drepur hann á sér í kyrrstöðu þegar
kúplað er til þess að minnka enn
fremur eldsneytisnotkunina. Þessi
búnaður er afar fljótvirkur
og bíllinn rýkur í gang
þegar byrjað er að slaka á
kúplingunni á ný. Staðal-
búnaður Ford Fiesta er
einnig aðdáunarverður og
þar má nefna forritanlegan
lykil (fyrir hámarkshraða
og hljómstyrk hljómtækja),
hita í sætum, rafmagn í öll-
um rúðum, ABS, spólvörn
og ESB-hemlajöfnun, still-
anleg sæti og stýri ásamt
USB- og AUX-tengi.
Besti smábíllinn
Ford hefur með þessum bíl
búið til einn allra besta smábílinn
sem fáanlegur er á markaðnum í dag.
Hann er nú framleiddur í níu lönd-
um sem gerir Ford kleift að bjóða bíl-
inn á góðu verði úti um allan heim
þrátt fyrir mikinn staðalbúnað í ekki
stærri bíl. Undirritaður er þess nokk-
uð fullviss að þessi bíll með öflugri
útgáfu af nýja mótornum hefði feng-
ið að sjá síðustu stjörnuna, í það
minnsta hálfa, sem í boði er af þeim
fimm sem gefnar eru hér og mælir
eindregið með því að þeir sem hafa
hug á því að kaupa sér nýjan smábíl
geri það ekki fyrr en þeir hafa prófað
Ford Fiesta. n
Glæsileg
hönnun
Ford Fiesta er
einstaklega
flottur smábíll.
Mynd BÓ
ný vél Hér er nýja þriggja sýlindera ECOnetic-verðlaunamótorinn frá Ford, ótrúlega spar-
neytinn og hægt á fá hann með túrbínu og upp í 200 hestöfl. Mynd BÓ
Aston Martin? Nei, lítill Ford Fiesta sem hefur svo sannarlega
fengið fallega andlitslyftingu. Mynd BÓ
Stjórnklefinn Einstaklega gott stýri og
stjórntæki öll vel aðgengileg. Útvarpinu
tekur þó smá stund að venjast. Mynd BÓ