Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 50
42 Afþreying 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
Þeldökkir laðast að 2 Guns
n Fjölmiðlar vestanhafs segja myndina hafa kramið Strumpana
K
vikmynd Baltasars Kor-
máks, 2 Guns, trónir á
toppnum yfir vinsælu-
stu kvikmyndir í Banda-
ríkjunum þessa dagana eins
og víða hefur komið fram. Það
segir þó ekki alla söguna því
þrátt fyrir það eru tekjurnar,
um 27 milljónir dollara eftir
fyrstu sýningarhelgina, eða 3,2
milljarðar króna, taldar vera
fremur lágar sögulega séð fyrir
mynd í efsta sæti vinsældalist-
ans. Framleiðendur myndar-
innar geta þó vel unað því
þeir spáðu myndinni ekki eins
góðu gengi og raunin hefur
orðið.
Til að auka velgengni kvik-
myndarinnar ákváðu framleið-
endur hennar að fara í sérstakt
átak til draga að bæði þeldökka
sem og spænskumælandi
Bandaríkjamenn. Í þeim til-
gangi var myndin sérstak-
lega auglýst á sjónvarpsstöðv-
um tengdum þessum hópum,
eins og Telemundo og Black
Entertainment Television.
Sömuleiðis lék Edward James
Olmos, sem leikur illmenni
myndarinnar, í fjölmörgum
auglýsingum sem sýndar voru
í Mexíkó.
Þessi áhersla virðist hafa
svínvirkað en könnun á kyn-
þætti bíógesta sýndi að 14 pró-
sent þeirra voru spænskumæl-
andi og 28 prósent voru
þeldökk. Það má því tvímæla-
laust segja að myndin höfði
sérstaklega til blökkumanna en
til samanburðar eru þeir um 12
prósent Bandaríkjamanna. n
Sjónvarpsdagskrá Föstudagur 9. ágúst
Stöð 2RÚV SkjárEinn Stöð 2 Sport
dv.is/gulapressan
Draumastaðan
Að tafli
Eins og komið hefur fram í pistl-
um Skáklandsins hafa fjölmargir
íslenskir skákmenn teflt erlendis
í sumar. Um þessar mundir eru
margir af sterkustu skákmönnum
landsins að tefla víðs vegar í
Evrópu. Henrik Daniselsen stóð
sig ágætlega á Politiken Cup
sem lauk nýlega í Kaupmanna-
höfn. Henrik lagði að velli alla
andstæðinga sinna sem voru
stigalægri og var nálægt því að fá
vinninga gegn þeim stigahærri og
var í raun óheppinn að ná því ekki.
Engu að síður traustur árangur og
hækkaði hann lítillega á stigum
fyrir árangurinn. Með honum í
för var fóstursonur hans Hilmir
Freyr Heimisson 12ára gamall. Hilmir teflir eftir tvo mánuði á EM ungmenna
í Svartfjallalandi og sýndi að hann er heldur betur tilbúinn í það verkefni.
Hilmir tefldi í öllum skákunum við mun stigahærri andstæðing en fékk engu
að síður fimm vinninga af tíu mögulegum og halaði inn 50stig sem er sannar-
lega glæsilegur andstæðingur.
Bræðurnir Bragi og Björn Þorfinnssynir tefla nú í Riga, heimaborgar Mikhaels
Tal heitins. Hafa þeir farið heldur rólega af stað. Guðmundur Kjartansson
heldur áfram mótahrinu sinni og teflir nú á Spáni. Guðmundur hefur farið
ágætlega af stað en teflt að mestu við nokkuð stigalægri andstæðinga.
Lenka Ptácníková lauk í vikunni þátttöku sinni á móti í Tékklandi. Lenka
var á pari og tapaði tveimur stigum. Maður er nefndur Lazlo Nagy, nei, ekki
vinstri handar skytta Ungverja, heldur fyrrum aðmíráll í sovéska hernum og
núverandi skákmógúll í Búdapestborg. Margir Íslendingar hafa teflt hjá Nagy
sem er afar litríkur maður. Hannes Hlífar teflir þar nú í stórmeistaraflokki og
er næst stigahæstur meðal keppanda. Hann hefur þegar þetta er skrifað þrjá
vinninga af fimm.
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
15.40 Ástareldur (Sturm der Liebe) e.
16.30 Ástareldur (Sturm der Liebe) e.
17.20 Sumar í Snædal (4:6) (Linus &
Friends)
17.47 Unnar og vinur (17:26) (Fanboy
& Chum Chum)
18.10 Smælki (4:26) (Small Potatoes)
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Tilraunin – Barnsheilinn
(1:3) (Eksperimentet) Í þessum
danska fræðsluþætti er fjallað
um áhrif viðmóts fólks á tilfinn-
inga- og málþroska barna. e.
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Gunnar á völlum Í þáttunum
Gunnar á völlum fara þeir
Gunnar Sigurðarson og Fannar
Sveinsson um víðan völl og
skoða það markverðasta sem er
að gerast í íslenskri knattspyrnu.
Þeir félagar eru oftar en ekki
mun uppteknari af því sem
gerist utan vallar og sökum þess
fjalla þættirnir því í raun ekkert
um knattspyrnu.
19.45 Dýralæknirinn (9:9) (Animal
Practice) Bandarísk gaman-
þáttaröð um dýralækninn
George Coleman sem þykir
afar vænt um dýrin en fyrirlítur
gæludýraeigendur. Meðal
leikenda eru Justin Kirk, JoAnna
Garcia Swisher og Bobby Lee.
20.10 Tólf í pakka 5,7 (Cheaper by
the Dozen) Íþróttaþjálfari reynir
að hafa hemil á börnunum
sínum tólf meðan konan hans
er í burtu. Meðal leikenda eru
Steve Martin, Bonnie Hunt,
Piper Perabo og Hilary Duff og
leikstjóri er Shawn Levy. Banda-
rísk gamanmynd frá 2003.
21.50 HM íslenska hestsins
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins fer að þessu sinni fram
í Berlín. Fjallað verður um alla
keppnisdaga mótsins í saman-
tektum á RÚV. Umsjónarmaður
er Samúel Örn Erlingsson.
22.05 Banks yfirfulltrúi – Sér
grefur gröf 7,8 (3:3) (DCI
Banks: Innocent Graves) Bresk
sakamálamynd. Alan Banks
lögreglufulltrúi rannsakar dular-
fullt sakamál. Meðal leikenda
eru Stephen Tompkinson,
Lorraine Burroughs, Samuel
Roukin og Colin Tierney. Atriði
í myndinni eru ekki við hæfi
barna.
23.40 Þráhyggja 4,7 (Obsessed)
Bankamaður sem hefur ný-
fengið stöðuhækkun er að rifna
úr hamingju. En þegar ritari á
vinnustað hans byrjar að hrella
hann er öllu sem hann hefur
unnið fyrir teflt í tvísýnu. Meðal
leikenda eru Idris Elba, Beyoncé
Knowles og Ali Larter og leik-
stjóri er Steve Shill. Bandarísk
mynd frá 2009. Atriði í myndinni
eru ekki við hæfi ungra barna.
01.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:10 Malcolm in the Middle (20:22)
08:30 Ellen (18:170)
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (39:175)
10:15 Fairly Legal (8:10)
11:00 Drop Dead Diva (4:13)
11:50 The Mentalist (12:22)
12:35 Nágrannar
13:00 Extreme Makeover: Home
Edition (2:26)
16:00 Ævintýri Tinna
16:25 Ellen (19:170)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan (12:22)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:06 Veður
19:15 Simpson-fjölskyldan (4:22)
19:40 Arrested Development (9:15)
Fjórða þáttaröðin um hina
stórskrýtnu en dásamlega
fyndnu Bluth-fjölskyldu.
Michael tók við fjölskyldufyr-
irtækinu eftir að faðir hans var
settur í fangelsi. En restin af
fjölskyldunni gerir honum lífið
leitt því þau eru ekki í tengslum
við raunveruleikann.
20:15 Bara grín (1:5) Sprenghlægi-
legur og stórskemmtilegur
gamanþáttur þar sem Björn
Bragi Arnarsson rifjar upp bestu
gamanþættina úr sögu Stöðvar
2 með myndbrotum og viðtöl-
um við þau sem komu að gerð
þáttana. Þær þáttaraðir sem
teknar verða til umfjöllunnar
eru Fóstbræður, Stelpurnar,
70 mínútur og Steindinn
okkar auk vakta-þáttaraðanna
svokölluðu; Næturvaktarinnar,
Dagvaktarinnar og Fangavakt-
arinnar.
20:45 The Extra Man
22:30 The Cold Light of Day
00:05 Sideways 7,6 Margrómuð
verðlaunuð gamanmynd með
hádramatískum undirtóni. Hún
fjallar um vínelskandi einmana
sálir í leit að hamingjunni,
hinni einu sönnu ást og hinu
eina sanna rauðvíni. Paul
Giamatti og Thomas Haden
Church fara á kostum í hlutverki
tveggja félaga sem skella sér í
vínsmökkunarferð á vínekrur í
Kaliforníu fáeinum dögum áður
en sá síðarnefndi, ólæknandi
kvennabósinn, gengur í það
heilaga. Ferðin á eftir að verða
örlagarík fyrir báða og sannar-
lega grátbrosleg. Myndin var
tilnefnd til 5 Óskarsverðlauna
og fékk verðlaunin fyrir besta
handritið byggt á öðru verki.
02:05 Cleaner 6,1 Hörkukrimmi með
Samuel L. Jackson, Ed Harris og
Evu Mendes í aðalhlutverkum.
03:30 Back-Up Plan (Varaáætlunin)
Rómantísk gamanmynd með
Jennifer Lopez og Alex O’Loug-
hlin. Zoe er harðákveðin í að
eignast barn sem allra fyrst og
þar sem hana vantar maka, gerir
hún áætlun um að bjarga sér
sjálf í þeim efnum. Um leið og
planið er tilbúið hittir hún Stan,
mann sem býr yfir mörgum
góðum kostum.
05:10 Fréttir og Ísland í dag
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Dr.Phil
08:45 Pepsi MAX tónlist
12:35 The Voice (7:13) Bandarískur
raunveruleikaþáttur þar sem
leitað er að hæfileikaríku tón-
listarfólki. Í stjörnum prýddan
hóp dómara hafa bæst Shakira
og Usher.
16:15 The Good Wife (14:22) Banda-
rísk þáttaröð með stórleikkon-
unni Julianna Margulies sem
slegið hefur rækilega í gegn.
Saksóknaraembættið með
Wendy Scott-Carr í forsvari
hefur málsmeðferð á hendur
Will og óæskileg athygli beinist
að Aliciu í kjölfarið. Á meðan
magnast rígurinn á milli Eli og
Stacie Hall.
17:00 The Office 8,7 (18:24)
Skrifstofustjórinn Michael Scott
er hættur störfum hjá Dunder
Mifflin en sá sem við tekur er
enn undarlegri en fyrirrennari
sinn. Það eru mannabreytingar
yfirvofandi á skrifstofunni enda
eru sumir starfsmennirnir sem
yfirmennirnnir þola afar illa.
17:25 Dr.Phil
18:10 Royal Pains (14:16) Bandarísk
þáttaröð sem fjallar um Hank
sem er einkalæknir ríka og
fræga fólksins í Hamptons.
18:55 Minute To Win It
19:40 Family Guy 8,4 (16:22) Ein
þekktasta fjölskylda teikni-
myndasögunnar snýr loks aftur
á SkjáEinn. Peter Griffin og fjöl-
skylda ásamt hundinum Brian
búa á Rhode Island og lenda í
ótrúlegum ævintýrum þar sem
kolsvartur húmor er aldrei langt
undan.
20:05 America’s Funniest Home
Videos (35:44) Bráðskemmti-
legur fjölskylduþáttur þar sem
sýnd eru fyndin myndbrot sem
venjulegar fjölskyldur hafa fest
á filmu.
20:30 The Biggest Loser (7:19)
Skemmtilegir þættir þar sem
fólk sem er orðið hættulega
þungt snýr við blaðinu og kemur
sér í form á ný.
22:00 The Karate Kid 7,1 Bandarísk
kvikmynd frá árinu 1984. Daniel
er nýfluttur til Kaliforníu ásamt
móður sinni. Hann er laminn
sundur og saman af föntunum
í hverfinu en ákveður að leita
hefnda þegar hr. Miagy bjargar
honum úr klóm þeirra.
00:05 Excused
00:30 Nurse Jackie (7:10)
01:00 Flashpoint (8:18)
01:50 Bachelor Pad (1:6)
03:20 Lost Girl (19:22)
04:05 Pepsi MAX tónlist
10:15 Pepsi mörkin 2013
11:30 HM íslenska hestsins 2013
13:30 HM íslenska hestsins 2013
14:45 HM íslenska hestsins 2013
15:20 Pepsi mörkin 2013
16:30 HM íslenska hestsins 2013
17:30 Pepsí-deild kvenna 2013
19:15 Meistaradeildin forkeppni
21:00 HM íslenska hestsins 2013
21:30 Samfélagsskjöldurinn
- upphitun
22:00 NBA 2012/2013 - Úrslitaleikir
23:50 HM íslenska hestsins 2013
07:00-20:00 Barnaefni (Lalli, Refur-
inn Pablo, Svampur Sveinsson,
Dóra könnuður, Strumparnir,
Mörgæsirnar frá Madagaskar,
Ofuröndin, Histeria!, Doddi litli
og Eyrnastór, Kai Lan o. fl.)
20:00 Það var lagið
21:05 Touch of Frost (3:4)
22:50 Monk (8:12)
23:35 It’s Always Sunny In
Philadelphia (7:7)
23:55 Það var lagið
01:00 Touch of Frost (3:4)
02:45 Monk (8:12)
03:30 It’s Always Sunny In
Philadelphia (7:7)
03:50 Tónlistarmyndbönd frá
Popptíví
06:00 ESPN America
08:45 PGA Championship 2013 (1:4)
14:45 PGA Tour - Highlights (24:45)
15:40 Champions Tour
- Highlights (16:25)
16:35 Inside the PGA Tour (31:47)
17:00 PGA Championship 2013 (2:4)
23:00 PGA Championship 2013 (2:4)
05:00 ESPN America
SkjárGolf
20:00 Hrafnaþing Heimastjórnin
21:00 Motoring Spyrnur, Röll,
mótoringfréttir og bílskúrsband
kvöldsins.
21:30 Eldað með Holta Grillupp-
skriftir Holta í matreiðslu Úlfars.
ÍNN
11:45 Our Family Wedding
13:25 Just Go With It
15:20 Last Night
16:50 Our Family Wedding
18:30 Last Night
20:05 Just Go With It
22:00 Hanna
01:10 This Means War
02:45 Hanna
Stöð 2 Bíó
17:00 Manstu
17:45 Enska úrvalsdeildin
(Reading - Fulham)
19:30 Goals of the Season
20:25 Premier League World
21:00 Samfélagsskjöldurinn
- upphitun
21:30 Season Highlights
22:25 PL Classic Matches
22:55 Club Friendly Football
Matches
Stöð 2 Sport 2
Stöð 2 Krakkar
Stöð 2 Gull
B
íó Paradís býður upp
á sýningar á klass-
ískum bíómyndum
sem unun er að fara
á í bíó. Um helgina geta
bíógestir gert sér klassík-
ina Taxi Driver að góðu í
kvikmyndahúsinu.
Travis Bickle er upp-
gjafahermaður úr
Víetnam stríðinu sem býr
í New York borg. Hann þjáist
af svefnleysi og eyðir nóttinni í
að aka leigubíl. Á daginn horf-
ir hann á klámmyndir í skítug-
um kvikmyndahúsum, á milli
þess sem hann hugsar um
hvernig heimurinn, og þá eink-
um New York-borg, er kominn
niður í svaðið. Hann er einfari
sem hefur sterkar skoðanir um
hvað er rétt og hvað er rangt hjá
mannkyninu. Eina ljósið sem
hann sér í lífinu í New York er
Betsy, en hún vinnur við kosn-
ingabaráttu þingmannsins
Charles Palantine. Hann verður
gagntekinn af henni. Eftir at-
vik með henni trúir hann því
að hann verði að gera allt sem
í hans valdi stendur til að gera
heiminn að betri stað. Eitt af
forgangsatriðum hans í líf-
inu er að vernda Iris, tólf ára
strokustúlku og vændiskonu,
sem hann trúir að vilji komast
úr vændinu og úr klóm mellu-
dólgsins og kærasta síns Matt-
hew. Sýnd sunnudaginn 11.
ágúst kl. 20.00, þriðjudaginn
13. ágúst kl. 22.00 og fimmtu-
daginn 15. ágúst kl. 18. Hægt er
að nálgast miða á midi.is. n
Taxi Driver í Bíó Paradís