Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 54
2 Guns, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, er sannkölluð stórmynd og hef- ur vakið mikla athygli frá því að hún var frumsýnd í Bandaríkjunum þann 30. júlí síð- astliðinn. Hún skaut stórmyndum á borð við Smurfs 2 og The Wolverine ref fyrir rass í miðasölu helgina sem hún var frumsýnd og halaði inn rúma þrjá milljarða í kassann en óhætt er að segja að þetta sé stærsta verkefni sem Baltasar hefur tekið sér fyrir hendur. Fær fína dóma Dómar gagnrýnenda hafa verið afar misjafnir en myndin hefur þó hlotið lof almennra bíógesta sem segja hana bæði skemmtilega og spennandi. Hún er nú með einkunn- ina 7,0 á kvikmyndagagnagrunnin- um IMDb en einkunnin hefur farið hækkandi undanfarna daga. Um er að ræða spennumynd með gamansömu ívafi sem byggir á sam- nefndum myndasögum sem gefnar eru út af myndasöguútgefandanum Boom! Hún fjallar um leynilögreglu- mennina Robert „Bobby“ Trench og Michael „Stig“ Stigman sem leikn- ir eru af stórleikurunum Denzel Washington og Mark Wahlberg. Bobby og Stig vita ekki að báðir eru á vegum yfirvalda og lenda í miklu klandri þegar tilraun til að uppræta eiturlyfja hring fer úrskeiðis. Frábær aðsókn Myndin kostaði um 61 milljón Banda- ríkjadala í framleiðslu, en það gerir rúma 7,2 milljarða íslenskra króna. Frá því að myndin var frumsýnd hefur hún skilað um 3,6 milljörðum króna í kassann en hún hefur enn sem kom- ið er aðeins verið frumsýnd í Banda- ríkjunum, Kanada, Tyrklandi og Sviss auk þess sem hún var frumsýnd hér- lendis í gærkvöldi. Íslenskir bíógestir fá þó ekki að njóta myndarinnar fyrr en hún fer í venjulega sýningu þann 14. ágúst næstkomandi. Þó má búast við góðri aðsókn hérlendis því tæplega 30 þúsund Íslendingar sáu síðustu Hollywood-mynd Baltasars, Contra- band, í bíó auk þess sem flestar af myndum hans hafa notið mikilla vin- sælda á meðal landsmanna, svo sem Mýrin, Hafið og Djúpið. Vaughn og Wilson komu til greina 2 Guns hefur verið í bígerð um nokkurra ára skeið en var tekin upp frá 11. júní til 14. ágúst í fyrra. Tökur fóru eingöngu fram í Bandaríkjunum, að mestu leyti í Nýju-Mexíkó. Það er framleiðslurisinn Universal Studios sem framleiðir myndina en fyrirtækið framleiddi einnig Contraband. Upprunalega stóð til að gaman- leikararnir Vince Vaughn og Owen Wilson færu með hlutverk þeirra Bobby og Stig en ljóst er að myndin hefði orðið talsvert öðruvísi í snið- um ef þeir félagar hefðu endað í hlut- verkum leynilögreglumannanna. Þá komu bæði Grey‘s Anatomy- stjarnan Ellen Pompeo og Marisa Tomei til greina fyrir hlutverk Deb sem hin fagra Paula Patton hlaut að lokum. Ekki stóð heldur alltaf til að fá Baltasar Kormák til að leikstýra myndinni því leikstjórarnir Doug Liman, Antoine Fuqua, Pierre Morel og Martin Campbell komu allir til greina fyrir myndina. Stór í sniðum Líkt og áður sagði er 2 Guns líklega stærsta verkefni sem Baltasar hefur tekið sér fyrir hendur enda skartar hún stórum nöfnum í aðalhlutverk- um auk þess sem framleiðslukostn- aður var langt því frá að vera lágur. Alls komu hátt í 600 manns að gerð myndarinnar en þar af eru rúmlega 30 leikarar. Framleiðendur, kvik- myndatökumenn, búningahönnuðir og aðrir telja því rúmlega 500 manns. Næsta verkefni Baltasars verður heldur ekki minna í sniðum því um er að ræða kvikmyndina Everest með stórleikarann Jake Gyllenhaal í aðal- hlutverki. Ekki er kominn útgáfudag- ur á myndina en ljóst er að hún mun fá harða samkeppni því að á næsta ári er væntanleg mynd sem ber sama heiti og fjallar einnig um göngugarp sem klífur Mount Everest. Með aðal- hlutverk í henni fer stórleikarinn og töffarinn Tom Hardy.n 46 Fólk 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað Suri heimsótti pabba sinn B andaríski leikarinn Tom Cruise fékk skemmtilegan gest í heim- sókn í vikunni þegar dóttir hans og Katie Holmes, Suri Cruise, flaug með einkaþotu föður síns til Bretlands þar sem Tom er við tökur á myndinni Edge of Tomorrow. Samkvæmt heimildum erlendra slúð- urmiðla gista feðginin saman á fimm stjörnu lúxushóteli í Hertfordshire en Suri verður hjá föður sínum í þrjár vikur á meðan Katie er sjálf við tökur á nýrri mynd í Ohio í Bandaríkjunum. Líkt og kunnugt er skildu Tom og Katie í júní í fyrra eftir sex ára hjóna- band en þau höfðu þá dvalist um stund á Íslandi og vakið mikla athygli íslenskra fjölmiðla. Katie hefur verið með forræði yfir dóttur þeirra síðast- liðið ár og eru þær mæðgur búsettar á Manhattan í New York þar sem Suri gengur í einkaskóla. Þá hefur hún vakið mikla athygli erlendra vefmiðla fyrir að klæðast hátískufatnaði – þótt það sé nú líklega einhver annar sem velji á hana fötin – þrátt fyrir að vera aðeins sjö ára. n Lokkalaus díva n Beyoncé er komin með drengja- koll eins og aðdáendur hennar tóku eftir á myndum sem hún birti á Instagram af nýju klipp- ingunni. Það má reikna með að hún muni skarta síðu hári á næst- unni því stjörnurnar eru duglegar að nota hárkollur í ýmsum út- færslum. Kannski eitthvað fyrir íslenskar konur að spá í til að breyta oftar til? Fann ástina í meðferð n Lindsay Lohan er sögð vera komin með kærasta ef marka má Radar Online. Sagan segir að hún hafi byrjað með 23 ára manni sem var í meðferð á sama tíma og hún. Heimildir herma að þau séu enn að hittast nú eftir meðferðina og nú er bara að fylgjast með hvort þetta sé sönn ást. Furðulegasta myndband Gaga? n Lady Gaga er þekkt fyrir að vera ansi frumleg en nýjasta verk- efni hennar verður að teljast það undarlegasta. Góðgerðasamtök Marinu Abramovic fengu Lady Gaga til þess að leiða herferð fyrir samtökin sem standa fyrir list og andlegum málefnum. Í mynd- bandinu er Lady Gaga nakin með bundið fyrir augun í alls kon- ar stellingum sem eiga að tákna tengingu hugar og líkama. Gefur barns- móður sinni hús n Simon Cowell keypti hús á rúman milljarð króna fyrir ástkonu sína og verðandi barnsmóður, Lauren Silverman. Mail Online greinir frá þessu og er ástæðan sögð vera sú að Simon vilji að barn hans búi nálægt svo hann geti tekið þátt í uppeldinu. Stjörnu fréttir Íris Björk Jónsdóttir Stærsta verkefni Baltasars hingað til n Yfir 500 manns komu að myndinni n Tom Cruise við tökur á Englandi Hörn Heiðarsdóttir blaðamaður skrifar horn@dv.is Aðrir komu til greina Wilson og Vaughn áttu upphaflega að fara með aðalhlutverk myndarinnar, en ekki Mark og Denzel. Dýr Myndin kostaði rúma 7,2 milljarða króna í framleiðslu. Náin Suri mun dveljast hjá föður sínum í þrjár vikur. MyND: BAuEr-GriFFiN LLC J ack Osbourne, sonur Black Sabbath-rokkarans Ozzy Os- bourne, og eiginkona hans, Lisa, eiga von á sínu öðru barni. Þetta tilkynntu hjónin á bloggsíðu Lisu fyrr í vikunni. Hún er nú komin rúma sex mánuði á leið og í blogg- færslunni segist hún reyna eftir bestu getu að borða ekki allt sem er í augsýn. Lisa og Jack eiga fyrir dótturina Pearl sem fæddist í apríl 2012 en parið gekk í það heilaga í október sama ár. Osbourne-hjónin eiga von á barni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.