Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Síða 56
Ætli hún
leggi í
kalkúna-
bátinn?
Bændakeppni
þingkonu
n Jóhanna María Sigmundsdóttir er
ekki bara þingkona Framsóknar
flokksins heldur líka formaður
Félags ungra bænda. Þingkonan
er nú í óðaönn að skipuleggja
keppnina Ungi bóndi ársins 2013.
„Sjálf hef ég tekið þátt í keppn
inni en nú sé ég um skipulagn
ingu, í félagi við unga bændur á
Suðurlandi,“ segir Jó
hanna sem lenti í
fjórða sæti síðast
þegar hún tók
þátt. Keppnin
verður haldin
í Reykholti í
Biskupstung
um þann 17.
ágúst næst
komandi.
Gjafmildur Venni
n Þegar þessi orð eru skrifuð hafa
738 manns halað niður íslenska
sjónvarpsþættinum Venni Páer. Í
stað þess að berjast við netverja
með lögsókn ákváðu rétthafar
þáttarins að fara þá nýstárlegu
leið að setja þættina sjálfir inn
á síðuna deildu.net. Í staðinn
vilja þeir að notendur, sem sækja
þættina, leggi 1.000 krónur inn á
barnaspítala Hringsins. Notend
um er í sjálfsvald sett hvort þeir
styrkja Hringinn eða hala niður
án þess að styrkja
en í skilaboð
um á síðunni
reynir Vern-
harð Þorleifs-
son sjálf
ur að höfða
til samvisku
niðurhalara og
hvetur þá til að
styrkja hið
verðuga
mál
efni.
Enginn glamúr í ár
n Stórstjarnan Páll Óskar Hjálmtýs-
son er einn þeirra sem taka þátt
í gleðigöngu Hinsegin daga sem
fram fer á laugardag. Páll Óskar
er þekktur fyrir mikinn glamúr,
glaum og glimmer í göngunni en
hann mun bregða út af vananum
þetta árið. Samkvæmt heimildum
DV verður atriði Páls Óskars í ár
ólíkt því sem hann hefur áður
gert og hyggst hann senda vissum
öflum tóninn með atriði sínu
sem er „pólitískt“ að sögn einnar
göngustýrunnar í ár.
A
lkunna er að öndum finnst
brauð gott. Sumar endur
sætta sig hins vegar ekki
við gömul andabrauð, sem
hægt er að fá í bakaríum og færu
annars í ruslið. Öndin á myndinni
lítur ekki við andabrauði en er
sólgin í Hlöllabáta. „Hún kom fyrst
fyrir sex eða sjö árum, vannærð og
sársvöng,“ segir Svavar Smárason,
starfsmaður Hlöllabáta við Ingólfs
torg, sem sá aumur á öndinni og
henti til hennar Hlöllabátsbita.
Eftir það varð ekki aftur snúið;
öndin fékk matarást á Hlöllabátum
Svavars og fór að venja komur sín
ar á staðinn. Nú kemur öndin að
minnsta kosti tvisvar á dag og bjó
sér heimili í nálægum garði ásamt
maka sínum, yngri stegg, og ung
um þeirra. Stundum tekur öndin
alla fjölskylduna með sér og þá
slær Svavar upp fjölskylduveislu.
„Hún var áður með stegg á sama
aldri, en yngdi upp fyrir fjórum eða
fimm árum. Þau eiga heima hérna
í grenndinni og manni er farið að
þykja vænt um þau.“
Hlöllabátsátið er hins vegar ekki
eintómur dans á rósum því köttur
eigenda verslunarinnar Gyllta katt
arins hrellir andafjölskylduna reglu
lega. „Þau eiga gamlan hvítan og
svartan fress sem lúrir hér heilu
dagana í þeirri von að klófesta anda
fjölskylduna. Svo tekur hann stund
um stökkið en endurnar ná alltaf að
komast í burtu; hann er ómöguleg
asti veiðiköttur í öllum heiminum.“
Að sögn Svavars er öndin stund
um helst til of frek. „Ef það er rign
ing og ég hef opið inn þá stekkur
hún upp á borð og kvakar. Hún er
fer ekkert fyrr en hún fær Hlöllann
sinn.“ n
Önd borðar Hlöllabáta
n Samlokustaður fæðir freka önd
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 9.–11. ágúSt 2013 88. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Sólgin í Hlölla Öndin kemur tvisvar á dag.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
ct
av
is
3
1
3
0
9
1
Göngum frá
verknum
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir okki lya sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við vægum
til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem fengið
hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða blæðingum í maga eða
smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalya, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar eða oftar, með alvarleg lifrar-,
nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar blæðingar (blæðingar í heila
meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdóma, arfgengan sjúkdóm sem
hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra maga- eða þarmasjúkdóma, truanir
á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdóma í öndunarvegi, blóðrásarkvilla í
slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyð. Meðganga/brjóstagjöf: Íbúprófen má ekki taka á síðustu 3
mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erðara með að verða þungaðar. Þessi áhrif ganga
til baka þegar hætt er að taka lyð. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yrleitt ekki að hætta meðan á skammtíma meðferð stendur. Ef lengri
tíma meðferð er áætluð, ætti að meta hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð uppköst (sár í meltingarvegi með
blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir, meltingartruanir, truanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og harðlí, sáramyndun í meltingarvegi
með eða án rofs, þarmabólga og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða stlar), smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta
leitt til blóðleysis, sára og bólgu í munni, höfuðverkur, sya, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12
ára (≥ 40 kg): 200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dagsskammtur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum
á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg, 1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks
skammtur er 800 mg á dag. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í samráði við lækni. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lynu. Mars 2013.
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk