Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Page 29
Umræða | 29Helgarblað 9.–11. september 2011
Er sumarið búið?
„Já, örugglega.“
Dalma
27 ára starfsmaður í Hagkaupi
„Já, ekki spurning.“
Helga Birgisdóttir
30 ára í fæðingarorlofi
„Já, klárlega.“
Tanja Teresa Leifsdóttir
17 ára nemi
„Já, ekki spurning.“
Sigrún Líf Erlingsdóttir
17 ára nemi
„Nei, það kemur aftur um helgina.“
Kolfinna Hjálmarsdóttir
57 ára fótaaðgerðarfræðingur
Maður dagsins
Anna Björk Kristjánsdóttir
var á fimmtudaginn valin í fyrsta sinn í
íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu.
Hún er miðvörður Stjörnunnar sem í síðustu
viku batt enda á einokun Vals á Íslands-
meistaratitlinum þegar Garðabæjarstúlkur
urðu Íslandsmeistarar í fyrsta skipti í sögu
félagsins.
Hver er maðurinn? „Anna Björk
Kristjánsdóttir, knattspyrnukona og nemi.“
Hvar ert þú alin upp? „Í Vesturbænum.“
Hvað drífur þig áfram? „Að ná alltaf
lengra í dag en í gær. Að ná árangri og mark-
miðum mínum.“
Hver eru áhugamál þín? „Fótbolti
er númer eitt, en svo er tónlist líka mikið
áhugamál.“
Uppáhaldsmatur? „Kótelettur í raspi
og rabarbarasulta með að hætti pabba
gamla.“
Uppáhaldsdrykkur? „Það er algjörlega
Egilsappelsín.“
Hvert fórst þú síðast til útlanda og
hvernig var? „Ég fór til Bandaríkjanna í
febrúar og mars. Ég ferðaðist um Kaliforníu
í þrjár vikur með vinkonum mín og það var
sko ekki leiðinlegt.“
Hvernig er að vera komin í lands-
liðið? „Það er mjög gaman og líka sér-
staklega gaman að heyra að maður sé að
standa sig vel.“
Hvernig var tilfinningin að verða
Íslandsmeistari? „Hún var geðveik og
ég vona að það verði sem oftast. Maður fær
aldrei leið á þeirri tilfinningu. Það er ótrúlega
gaman að uppskera það sem maður hefur
sáð í vetur.“
Hlakkar þú ekki til að lyfta bik-
arnum? „Jú, er búin að bíða lengi eftir því
og hlakka mikið til.“
Hvert stefnir þú? „Ég stefni á að búa
í útlöndum hvort sem það er til að spila
fótbolta eða fara að læra eða vinna. Ég
stefni allavega á það en kannski ekki alveg
strax.“
Dómstóll götunnar
Myndin Napurt á Gróttu Þessir hjólreiðamenn máttu hafa sig alla við til að fara ekki á hliðina í roki síðdegis á fimmtudag. Kólnað hefur á landinu eftir því sem á vikuna
hefur liðið og von er á næturfrosti í flestum landshlutum. myND SiGTryGGUr Ari
Þ
að er þægilegt að lesa árs-
skýrslur og milliuppgjör fyr-
irtækja með því að lesa að-
eins eina línu í 55 blaðsíðna
skýrslu. Reikningshald og
reikningsskil eru flóknari en ein lína.
Til að einfalda lestur slíkra reikninga
er rétt að benda á það skjal í uppgjöri
sem oftar en ekki sýnir mestar og best-
ar upplýsingar en það er yfirlit um
sjóðstreymi. Til að fyrirtæki geti staðið
við skuldbindingar sínar þarf það að
„framleiða peninga“. Sjóðstreymi sýn-
ir slíkt. Í tilfelli lánastofnana eru tekjur
bæði reiknaðir og greiddir liðir.
Arion banki hf. hefur birt milliupp-
gjör sitt vegna rekstur á fyrra helmingi
þessa árs. Afkoma bankans sýnir 10
milljarða „hagnað“. Arion banki hf. er
stofnaður á rústum annars banka. Ar-
ion banki hf. tók yfir eignir á áætluðu
verði þar sem ríkti mikil óvissa um
raunverðmæti eignarinnar.
Framleiðir ekki peninga
Í tilfelli Arion banka hf. er bankinn
ekki „að framleiða peninga“ til að
standa undir rekstri. Til þess vantar
8 milljarða. Það sem gefur hagnað
bankans eru reiknaðir liðir, gengis-
og verðbreytingar á lánum og end-
urmat á eignum. U.þ.b. helmingur
af hagnaði Arion banka hf. stafar af
endurmati á þessum eignum og kem-
ur í raun rekstri fyrra helmings ársins
ekki við.
Ef einstakir liðir í uppgjöri bank-
ans eru skoðaðir er rétt að staldra við
nokkra þætti.
Þar er fyrst til skoða vaxtamun.
Vaxtamunur, þ.e. munur útláns- og
innlánsvaxta, hefur aukist um 0,4% á
milli ára. Hvor er að borga það lántaki
eða innistæðueigandi er ekki alveg
ljóst. Hagkvæmni banka kemur fram
í vaxtamun. Aukning á vaxtamun ger-
ir varla betur en að standa undir sér-
stökum bankaskatti.
Þóknanatekjur vaxa mjög mikið á
milli ára, rúmlega tvöfaldast. Þetta er
ekki hægt að skýra með endurmati. Í
fréttatilkynningu er þessi mikla aukn-
ing ekki skýrð, er þetta varanlegt eða
aðeins einu sinni? Má vera að þetta
skýrist af því að VALITOR/VISA kemur
inn sem hluti af samstæðu en var áður
hlutdeildarfyrirtæki.
Þá er einnig rétt að horfa til þess
að kostnaðarhlutfall hækkar, úr 50%
í 52,4%. Með kostnaðarhlutfalli er
átt við hve stór hluti vaxtamunar og
þóknanatekna fer í kostnað. Það er
markmið í bankarekstri að öðru jöfnu
að þetta hlutfall lækki en hækki ekki
eins og í tilfelli Arion banka hf.
Það er raunhæft að spyrja hvert er
markmið Arion banka hf. um kostn-
aðarhlutfall.
Villandi framsetning
Þá er einnig vert að spyrja um auk-
in fjölda starfsmanna, þar sem fram
kemur að innlán og útlán dragast
saman á árshelmingnum. Að vísu
fækkar starfsmönnum í bankanum
sjálfum en fjölgar í samstæðunni,
þannig að útlán og innlán eru ekki al-
veg sanngjarn mælikvarði. Og þó, því
bankakerfið er örugglega ofmannað.
Í fréttatilkynningu Arion banka hf.
er sagt að arðsemi eigin fjár sé 20,3%
á ársgrundvelli. Sú framsetning er
villandi þar sem stór hluti af hagn-
aði bankans kemur af endurmati á
yfirteknum eignum sem ekki koma
rekstri á árinu við.
Það er mjög alvarlegt mál ef rekstur
fjármálastofnana skilar ekki einhverri
arðsemi. Þjóðin er búin að reyna slík-
an rekstur. Það má ætla að næstu 2–3
ár verði rekstur íslenskra fjármála-
fyrirtækja litaður af forverum þeirra
og endurmati á yfirteknum eignum
þar sem um nákvæmt uppgjör milli
hins gjaldþrota Kaupþings hf. og Ar-
ion banka hf. getur ekki verið að ræða
næstu árin en myndin verður þó skýr-
ari með hverju ári. Í uppgjörinu kem-
ur fram að aðeins 42% af lánum bank-
ans eru í fullkomnu lagi borið saman
við 38% um áramót þannig að langt er
í land með að rekstur bankans komist
í eðlilegt horf.
Samanburður á afkomu Arion
banka hf. og Commerzbank AG. í
Þýskalandi er marklaus. Má vera að
afkoma Commerz sé lituð af skulda-
vanda í Evrópu. Ef Commerzbank er
með lakari afkomu en Arion banki
hf. þá eru veruleg hættumerki þar og
ástæðulaust að bera þá afkomu sam-
an við uppgjör Arion banka hf.
Það er ósk allra að rekstur fjár-
málafyrirtækja verði á traustum
grunni, með hæfilegum vaxtamun
og þóknanatekjum í samræmi við
vinnuframlag. Fjármálastofnanir eru
nauðsynlegur hluti af innviðum sam-
félagsins og rekstur þeirra þarf að vera
heilbrigður. Heilbrigður rekstur skilar
hóflegum hagnaði. Slíkt skilar sér í al-
mannahag.
Það er einnig æskilegt að umfjöll-
un um viðskiptalíf sé á hógværum
nótum, án þess að nokkrum þeim
sem ber ábyrgð sé hlíft. Nokkuð hefur
skort á það þegar uppgjör fjármála-
fyrirtækja hafa verið birt. Þar er að
nokkru að sakast við fyrirtækin sjálf,
en þau greina lítt á milli þess sem er
arfur þess gamla og rekstri ársins, en
það er hann sem skiptir máli.
Endurmat eigna skýrir hagnaðinn
„Heilbrigður rekst-
ur skilar hóflegum
hagnaði.
Vilhjálmur Bjarnason
lektor í viðskiptafræði við HÍ
Aðsent
Kótelettur
frá pabba í
uppáhaldi