Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 6
Helgarblað 4.–7. apríl 20146 Fréttir
Tekist á um dæturnar
Lokað þinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur um framtíð dætra Hjördísar og Kims
H
éraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur nú til meðferðar mál sem
snýst um þrjár dætur þeirra
Hjördísar Svan Aðalheiðar-
dóttur og Kims Grams Laursen.
Málið var tekið fyrir í héraðsdómi á
föstudaginn í síðustu viku. Deilt er
um hvort og þá hvernig dæturnar
eigi að fara aftur til föður síns í Dan-
mörku en hann er með fullt forræði
yfir þeim.
Lögmaður Kims Grams, Lára V.
Júlíusdóttir, sagði í samtali við DV í
þar síðustu viku að til stæði að höfða
slíkt dómsmál til að skera úr um
hvað yrði um stúlkurnar. Hvort þær
yrðu sendar aftur til föður síns eða
dveldu áfram á Íslandi.
Hjördís er sem kunnugt er í fang-
elsi í Horsens á Jótlandi eftir að hafa
numið dætur sínar á brott frá Dan-
mörku í leyfisleysi á seinni hluta síð-
asta árs. Hún er grunuð um meint
mannrán. Kim Gram reynir nú að fá
dæturnar aftur til sín.
Samkvæmt heimildum DV ligg-
ur ekki fyrir hvenær dómarinn í mál-
inu mun kveða upp niðurstöðu í því.
Þinghaldið í Héraðsdómi Reykjavík-
ur var lokað og málsaðilar og lög-
menn þeirra eru bundnir þagnar-
skyldu sökum þess að um er að ræða
forræðismál. Niðurstaðan í málinu
mun ráða því hvort Kim Gram fær
dætur sínar til sín eða ekki. n
ingi@dv.is
Einkaaðilar á bak við
frumvarp um spilavíti
Frumvarp Willums að hluta byggt á vinnu Lúðvíks Bergvinssonar sem einkaðilar kostuðu
W
illum Þór Þórsson, þing-
maður Framsóknar-
flokksins sem lagði fram
frumvarp um spilahallir
í byrjun vikunnar, seg-
ir að hann hafi fengið ábendingu
um málið frá Arnari Gunnlaugs-
syni knattspyrnu manni og í kjölfarið
lagst í vinnu við frumvarpsgerðina.
„Ég get alveg sagt þér aðkomu mína
að þessu máli. Arnar Gunnlaugsson
var duglegur að hitta þingmenn og
kom að máli við mig út af þessu og ég
fékk áhuga á málinu. Ég var í námi í
Danmörku á sínum tíma þegar fyrsta
spilahöllin var opnuð þar í landi
og hafði kynnst þessu þar. Þá fékk
ég í hendur skýrslu sem hafði verið
unnin 2009 og frumvarpsdrög sem
voru þýðing á þessum dönsku lög-
um. Þetta rímaði ágætlega við mín-
ar hugmyndir þannig að ég sá að ég
gæti gert mér mat úr þessu,“ segir
Willum aðspurður um aðdraganda
þess að frumvarpið var unnið.
Frumvarp Willums er sögulegt
fyrir þær sakir að það felur í sér lög-
leiðingu á fjárspilum, að gefnum
nokkuð stífum skilyrðum og leyfis-
veitingu frá hinu opinbera.
Að sögn Willums Þórs þá tók
hann við málinu frá Arnari en hann
og bróðir hans, Bjarki Gunnlaugs-
son, hafi lengi verið talsmenn þess
að lögleiða fjárhættuspil á Íslandi.
Árið 2009 leituðu þeir til lögmanns,
Lúðvíks Bergvinssonar, fyrrverandi
þingmanns Samfylkingarinnar, og
vann hann fyrir þá skýrsluna um lög-
leiðingu fjárhættuspila sem Willum
fékk í hendur. Málið hefur hins vegar
verið á ís síðan þá en líkt og Willum
segir þá ræddi Arnar við fleiri þing-
menn. Willum var hins vegar sá sem
tók málið lengra og vann umrætt
frumvarp um spilahallir.
Leitaði til Lúðvíks
„Eftir að ég fékk skýrsluna í hendur
komst ég að því að Lúðvík Bergvins-
son hefði unnið hana. Ég þekki Lúð-
vík mjög vel úr boltanum og ég leit-
aði til hans og við fórum yfir þetta
saman og hann aðstoðaði mig við
þessa vinnu. Svo fór ég bara með
þetta á nefndasvið Alþingis og þar
var málið unnið og klárað. Þetta var
mikil vinna en frumvinnan lá fyrir
frá 2009. Ég er búinn að vera sveittur
með þetta mál í vetur,“ segir Willum
Þór.
Þingmaðurinn segir að Lúðvík
hafi ekki tekið neina þóknun fyrir
þá aðstoð. „Ég borgaði honum ekki
krónu fyrir, það er ljóst. Svo fá þing-
menn mjög góða aðstoð á nefnda-
sviðinu.“
Willum Þór segist ekki hafa unnið
frumvarpið með hjálp neinna einka-
aðila en hann var inntur eftir því
hvort flugfélagið Icelandair hefði
komið að frumvarpsvinnunni með
einhverjum hætti.
Unnið sumarið 2009
Lúðvík segir aðspurður að hann hafi
skrifað umrædda skýrslu að beiðni
þeirra Arnars og Bjarka um sumar-
ið 2009, nokkrum mánuðum eftir
að hann hætti á þingi. „Ég hjálpaði
Willum aðeins með þetta núna. Ég
skrifaði þetta fyrir tvíburana [Arnar
og Bjarka] fljótlega eftir að ég hætti
á þingi, líklega sumarið 2009. Þeir
gerðu þetta mjög vel; létu skreyta
skýrsluna með myndum og annað
slíkt. Þetta var mjög fagmannlega
gert,“ segir Lúðvík.
Lúðvík segir að þeir bræður hafi
verið einu einkaaðilarnir á bak við
frumvarpið.
Í samstarfi við Icelandair
Í ársbyrjun 2010 lagði Icelandair inn
beiðni til dómsmálaráðuneytisins
um að fjárhættuspil yrðu lögleidd
á Íslandi. Flugfélagið hafði þá ver-
ið í samstarfi við þá Arnar og Bjarka
um opnun spilahallar. Á þeim tíma
sagði Fréttablaðið frá því að til stæði
að opna spilavíti á Hótel Nordica
á Suðurlandsbraut ef fjárhættuspil
yrðu lögleidd.
Í samtali við DV segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair
Group, að flugfélagið hafi verið í sam-
bandi við þá Arnar og Bjarka á þess-
um tíma. Hann segir að Icelandair
hafi talið lögleiðingu fjárhættuspila
vera „gott skref fyrir íslenska ferða-
þjónustu“. „Sérstaklega í ljósi þess
að það er verið að stunda slíka starf-
semi, að mér skilst, sem greiðir hvorki
skatta eða skyldur og svo er þetta opið
öllum á netinu og er hluti af ferða-
þjónustunni víða. Það var það sem
keyrði okkur áfram á þeim tíma. Sér-
staklega þar sem fyrir liggur vilji hjá
Reykjavíkurborg að borgin verði ráð-
stefnuborg.“ Málið hefur svo legið í
dvala í fjögur ár.
Aðspurður hvort Icelandair
hyggist opna spilahöll eða -hallir á
hótelum sínum, ef frumvarpið verði
að lögum, segir Björgólfur að engin
slík ákvörðun hafi verið tekin. „Þó
þetta sé komið fram þá er ekkert víst
að þetta verði að lögum og við höf-
um ekki viljað eyða orku í eitthvað
áður en það er orðið að veruleika. Al-
veg sama hver rekur þetta þá breytir
það ekki því að erum við enn þeirrar
skoðunar að þetta sé jákvætt fyrir fjöl-
breytnina í ferðaþjónustunni.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Á bak við frumvarpið Bræðurnir Arnar
og Bjarki Gunnlaugssynir létu vinna skýrslu
um lögleiðingu fjárhættuspila árið 2009 og
kynntu málið fyrir Willum Þór í fyrra.
„Arnar
Gunnlaugsson
var duglegur að hitta
þingmenn og kom
að máli við mig út
af þessu og ég fékk
áhuga á málinu
Lögleiðing
fjárhættuspila Ef
frumvarp Willums
Þórs verður að lögum
felur það í sér lög-
leiðingu á fjárhættu-
spilum á Íslandi.
Styðja undir-
menn á Herjólfi
Kennarasamband Íslands lýsir
yfir fullum stuðningi við undir-
menn á Herjólfi í yfirstandandi
kjarabaráttu þeirra. Um þetta var
ályktað á 6. þingi Kennarasam-
bands Íslands á fimmtudag. Þá
var lagasetning stjórnvalda gegn
verkfalli undirmanna fordæmd.
„Slík lagasetning á löglega boð-
aða verkstöðvun er óásættan-
leg og kemur í veg fyrir að raun-
veruleg lausn fáist með frjálsum
samningum hagsmunaaðila,“
segir í ályktuninni.
Gripin glóð-
volg eftir
þjófnað
Hasar á Selfossi
Lögreglumenn á Selfossi hand-
tóku tvo karlmenn og eina konu
um níu leytið á fimmtudags-
morgun vegna gruns um þau
hefðu stolið tösku með fartölvu
og spjaldtölvu að verðmæti um
þrjú hundruð þúsunda krónur.
Fólkið kom inn í verslun Sam-
kaupa við Tryggvagötu á Selfossi
þegar sást til þeirra grípa töskuna
og yfirgefa verslunina. Lögreglu
var þegar í stað tilkynnt um at-
vikið. Um leið og fólkið sá til lög-
reglubíls hljóp hvert í sína átt.
Til karlmannanna náðist en þeir
voru ekki með þýfið, að því er
lögregla segir í tilkynningu.
Skömmu síðar sáu lögreglu-
menn á ómerktum bíl til kon-
unnar og óku upp að henni. Hún
var gripin glóðvolg með tölvu-
töskuna. Þannig endurheimtust
tölvurnar og komust óskemmdar
í hendur eiganda síns. Eftir hand-
töku fólksins fundust yfir tíu
grömm af hvítu efni sem að lík-
indum er amfetamín. Þremenn-
ingarnir gista fangageymslur á
Selfossi og voru yfirheyrðir eftir
hádegi á fimmtudag. Annar karl-
maðurinn var eftirlýstur þar sem
hann á að taka út vararefsingu
vegna óuppgerðrar sektar.
Dómsmál um dæturnar Héraðs-
dómur Reykjavíkur mun úrskurða um
hvort Kim Gram fái dætur hans og
Hjördísar Svan til sín eða ekki.