Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 4.–7. apríl 201432 Fólk Viðtal
E
nglastyttur og logandi kerti á
svörtu borði.
Biblía og tuskuleikföng í
hillum.
Mynd af engli og kross á
veggjum.
Hún er svarthærð. Situr svart-
klædd í stól. Vel förðuð.
Gyða, sem er snyrtifræðingur,
stofnaði í fyrrahaust Sólargeislann.
Þar er tekið meðal annarra á móti
börnum, sem eru næm eða skyggn,
eða hvort tveggja, og foreldrum
þeirra.
Gyða segir að mörg börn séu
næm en næmleikinn dvíni hjá flest-
um þegar þau eldast. „Ég veit ekki af
hverju börn eru svona næm. Kannski
tengist það því að öll skilningarvit
eru opin þegar þau fæðast; þau eru
svo saklaus og ljósið er svo mikið.“
Gyða segir að næmleikinn geti
valdið því að börn sofi illa, þau séu
myrkfælin, óróleg, óhlýðin, leið,
kvíðin og jafnvel sorgmædd.
„Mér finnst að foreldrar eigi að
hlusta á börnin ef þau eru næm. Það
hjálpar þeim ekki þegar foreldrar
loka augum og eyrum fyrir þessu.
Foreldrar hjálpa börnunum með því
að hlusta á þau og leyfa þeim að út-
skýra hvað þau upplifa. Mörg börn,
sem eru næm, eiga ósýnilega vini;
einn strákurinn, sem kom hingað,
skellti hurðinni þegar hann kom af
því að hann nennti ekki að leika við
þennan ósýnilega vin því honum
fannst hann vera svo leiðinlegur. Það
er allt til.“
Svo var það einn lítill sem lýsti
árum miðlanna – sem könnuðust við
þær lýsingar. „Þú ert svo gul og þú
Hjálpar
skyggnum
Sumir sjá, heyra og skynja meira en aðrir. Næmleikinn
tengir þá við heiminn að handan og þá sem þar eru.
Nokkrir miðlar hjá Sólargeislanum taka á móti næm-
um börnum og foreldrum þeirra og aðstoða meðal
annars við að losa börnin við hræðslu sem getur fylgt
næmninni auk þess að minnka áreitið að handan.
gyða kristjánsdóttir er einn af miðlunum.
Hún þekkir þetta frá því hún var barn. Hún þekkir
hræðsluna. Henni fannst hún vera öðruvísi.
„
Við
heilum
barnið,
gefum
því hjúp
og vörn.
börnum
Miðlastarfið þroskandi
„Þetta er andleg næring og
ég er að þessu af hugsjón.
Miðlastarfið hefur þroskað
mig og sýnt mér að það er ekki
ókostur að vera næmur heldur
kostur.“ Myndir sigtryggur ari