Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 4.–7. apríl 201416 Fréttir G unnar svaraði fyrir sig í grein sem birtist í Frétta­ blaðinu á miðvikudags­ morgun og einnig á frétta­ síðunni Vísi. Þar undrast Gunnar hversu greitt aðgengi Guð­ mundar St. Ragnarssonar var inn í Kastljós og segir fréttamanninn Jó­ hannes Kr. Kristjánsson fara með getsakir á hendur sér. Jóhannes fjallaði hins vegar aðeins um beiðni stjórnar Krossgatna um opinbera rannsókn á fjármálum stofnunar­ innar á árunum 2008–2012. Segir Gunnar í greininni að þetta hafi ekki verið í fyrsta sinn sem Kastljós hafi farið í slíka vegferð gegn sér og vitnar þar til málsins sem varð til þess að hann hrökklaðist frá völd­ um árið 2012. Hann segir að bæði stjórn Krossgatna og Krossins sitji án umboðs, þar sem sú seinni hafi verið kjörin á fundi sem fór ekki fram samkvæmt lögum. Safnaðarpólitík Stefnt er að því að aðalfundur verði haldinn nú í apríl og í sam­ tali við DV segir Gunnar það aug­ ljóst að þessi beiðni um rann­ sókn sé hluti af „safnaðarpólitík.“ Stjórn Krossins óskaði einnig eftir rannsókn á fjármálum safnaðar­ ins í kjölfar málsins. „ Rannsóknin mun ekki ganga það hratt fyrir sig og verður ekki lokið áður en fund­ urinn verður haldinn. Það er því alveg ljóst í mínum huga að tíma­ setningin sýnir um hvað málið snýst,“ segir Gunnar. Hann segir þetta vera smjörklípu, hannaða til þess að koma höggi á sig fyrir kosn­ ingar til stjórnar. „Ég vil að fólkið sem vill starfa og hefur áhuga á þessum málum, að það fái brautargengi. Ég stýrði þessu samfélagi í 30 ár og aldrei voru deilur um þessa hluti. Núver­ andi leiðtogar, þeir hafa valið að skipta þessum öflum í fylkingar og takast á. Það verður þá bara að taka því,“ segir Gunnar. Þarf ekki að hreinsa Aðspurður hvort að rannsóknin sé í raun ekki af hinu góða, að hann verði þá hreinsaður af þess­ um ásökunum sé þetta partur af valdabaráttu. „Það þarf ekk­ ert að hreinsa, þetta er beiðni um rannsókn og málið þarf að hafa sína framvindu,“ segir Gunnar. Í greininni nefndi Gunnar þann möguleika að fara fram á opin­ bera rannsókn á stjórn Krossins, en sagðist ekki vilja gera slíkt þar sem það væri ekki réttur farvegur. „Frekar vil ég hvetja það fólk til að halda fund, koma fram með sín mál með lýðræðislegum hætti og klára þau. Ekki fara undan í endalaus­ um flæmingi með lagaklækjum og ósannindum. Það er ekki hægt í svona starfi, þau þurfa að girða sig í brók og gera það sem þeim ber skylda til,“ segir Gunnar sem segir þó ekki hver viðbrögð hans verða, fari svo að hann nái ekki kjöri á næsta fundi. Valdabarátta Stuðningsmenn Gunnar eru sam­ mála um að málið sé komið á slæman stað og að deilurnar hefðu aldrei þurft að verða jafn slæm­ ar og þær eru nú. Þeir eiga eiga erfitt með að meta möguleika Gunnars til endurkjörs á næsta að­ alfundi, en segja að hann hafi haft meirihluta á síðasta fundi áður en upp úr sauð. „Kannski hefur eitthvað breyst síðan þá, ég veit það ekki. Mað­ ur hefði viljað að þetta hefði far­ ið fram með eðlilegum hætti, hver svo sem niðurstaðan úr kosn­ ingunni svo verður,“ segir stuðn­ ingsmaður Gunnars sem vill ekki láta nafns síns getið. „Eins og þetta horfir við mér þá er þetta fyrst og fremst valdabarátta sem er þarna í gangi og henni er stýrt af Sigur­ björgu. Ég lít á þetta sem aðgerð til að koma í veg fyrir að hann eigi sér nokkurn tíma einhverja von um að koma þarna aftur. Hún vill halda þessum völdum, „no matter what.“ Henni finnst gaman að vera forstöðukona, það held ég að sé ástæðan,“ segir stuðningsmaður­ inn þegar blaðamaður spyr hverja hann telji vera ástæðu þess við­ snúnings sem Sigurbjörg tók í af­ stöðu sinni til föður síns. Hún varði hann þegar hann var sakaður um kynferðisbrot en talaði síðan gegn honum þegar hún sóttist sjálf eftir kjöri í stjórn Krossins. „Fjölskyldan er klofin og það er með ólíkindum að horfa á það sem gerst hefur. Þetta útspil er ákveðinn endapunktur og gerir að verkum að ekki verður hægt að ná sáttum innan fjölskyldunnar. Ég er hissa á því að svona langt sé geng­ ið,“ segir stuðningsmaðurinn. Fundur varð að sirkus „Það var haldinn fundur, ef fund skyldi kalla, hann breyttist náttúr­ lega í sirkus. Á þeim fundi var skýr meirihluti fyrir því að Gunnar yrði kosinn. Ég veit hins vegar ekki hvað gerist á næsta fundi en við gerðum okkur allt eins vonir um að hann yrði kosinn þá. Sjálfur myndi ég kjósa að hann kæmist að stjórnvelinum þarna, hann var þar í 30 ár giftusam­ lega og mér líst ekki á stöðuna eins og hún er þarna núna,“ segir Einar Ólafsson. Hann hefur ekki sótt nema örfáa fundi síðan Gunnar hrökklað­ ist frá völdum og segist ekki treysta sér til að vera í því andrúmslofti sem ríkir á safnaðarfundum. „Því miður þá eru menn búnir að stilla sér upp í fylkingar, það er svolítið sorglegt og þá sérstaklega í kirkjulegu sam­ hengi,“ segir Einar. Deilurnar á sandkassaplani Einar segir að beiðnin um rann­ sóknina hafi ekki komið honum á óvart. „Þetta er eðlilegur næsti leikur í þessi leikriti sem við erum að horfa á,“ segir Einar. „Ég vissi að það kæmi eitthvað, áður en að fundi kæmi. Á síðasta fundi gerð­ ust atburðir og fólk sýndi af sér hegðun, sem var með þeim hætti að hægt var að búast við hverju sem var. Ég bjóst eins við því að húsgögn færu að fljúga á síð­ asta fundi. Það set ég ekki endi­ lega í samhengi við raunveruleik­ ann, menn bara taka það næsta sem þeim dettur í hug og kasta því. Við erum á því plani, sandkassa­ planinu,“ segir Einar. „Þetta er fjöl­ skylduharmleikur, kristileg sápu­ ópera,“ segir Einar enn fremur. n Segja valdabaráttu stýrt af Sigurbjörgu Stuðningsmenn Gunnars líkja deilunum við sandkassaslag Samtaka Jónína og Gunnar hafa staðið saman í baráttu hans fyrir forstöðumannsstólnum. Sundruð Fjöl- skyldan sem eitt sinn stóð saman er nú sundruð. Rétt og skylt Guðmundur segir að stjórninni hafi verið skylt að senda málið til opinberra aðila þegar grunsemdir vöknuðu. www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.