Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 34
Helgarblað 4.–7. apríl 201434 Neytendur
Kaffihylki
umhverfis-
sóðaskapur
Einnota kaffihylki eru versta
leiðin til að fá sér kaffi sé tekið
tillit til umhverfissjónarmiða.
„Besta leiðin er stórir skammtar
af kaffi sem drukknir eru úr bolla
sem er þveginn og notaður þús-
und sinnum en kaffikorgurinn fer
í safnhaug eða svepparæktun,“
segir Martin Bourque forstöðu-
maður Ecolocy Center í Berkeley,
í Kaliforníu, í samtali við East Bay
Express.
Sala á kaffivélum sem hella upp á
einn bolla í einu úr einum púða
eða einu hylki hefur margfaldast
undanfarin ár. Samkvæmt frétt
á MarketWatch hefur hún meira
en þrefaldast í Bandaríkjunum
undanfarin þrjú ár og National
Coffee Association segir fjórð-
ung kaffibolla þar í landi koma úr
kaffihylkjum og slíkar vélar eru
meira að segja sagðar finnast á
Michelin-veitingahúsum.
Lánaðu
grannanum
Borvél, garðverkfæri og stiga er
nú er orðið auðveldara að fá lán-
að hjá nágrannanum því heima-
síðan streetbank.com var sett
upp einmitt til þess að auðvelda
nágrönnum að skiptast á verk-
færum, tækjum og leikföngum.
Þar er bæði í boði að auglýsa
hluti til láns og gefins og eins ef
fólk er tilbúið að aðstoða hvert
annað við eitthvað.
Hver sem er getur skráð sig
á síðuna og nokkur fjöldi Ís-
lendinga hefur þegar skráð sig,
skráningin er ókeypis en fólk
verður að vera tilbúið til að leggja
eitthvað til þegar það skráir sig.
Stofnandi síðunnar, Sam
Stevens, segir í myndbandi á
heimasíðunni að tilgangurinn
með henni sé að koma í veg fyr-
ir ofneyslu og sóun og þar með
minnka bæði sorp og útblástur.
Auglýst eftir
formanni
Stjórn Neytendasamtakanna
auglýsir eftir framboðum til for-
manns samtakanna vegna næsta
kjörtímabils, 2014–2016, en kosið
verður í stöðuna á þingi samtak-
anna næsta haust.
Í 14. grein laga samtakanna
segir svo um kjör formanns:
„Framboð til formanns skulu ber-
ast stjórn Neytendasamtakanna
eigi síðar en fyrir lok apríl þess
árs sem reglulegt þing er haldið.
Framboði til formanns skulu
fylgja meðmæli 25 skuldlausra fé-
lagsmanna hið fæsta en 50 skuld-
lausra félagsmanna hið flesta.“
Framboðum ásamt lista yfir
meðmælendur skal skilað á skrif-
stofu fyrir kl. 16.00 þann 30. apr-
íl 2014. Einnig er hægt að senda
framboð ásamt lista yfir með-
mælendur í pósti og má dagsetn-
ing póststimpils ekki fara fram
yfir 30. apríl 2014.
Ó
dýrast er í sund í Reykjanes-
bæ ef miðað er við fjögurra
manna fjölskyldu, tvö börn
og tvo fullorðna, af þeim
sundstöðum sem DV kann-
aði. Sundferðin fyrir fjölskylduna
kostar þar 800 kr. DV skoðaði verð-
lagningu sundstaða í Reykjavík, á
höfuðborgarsvæðinu og nokkrum
stöðum um landið. Ókeypis er
fyrir börn í sund í Reykjanesbæ en
börn þurfa heldur ekki að greiða
aðgangseyri í Árborg sem lenti í
þriðja sæti þar sem sundferð fjöl-
skyldunnar kostaði 1.200. Í Garða-
bæ kostar sundferðin 1.130. Dýr-
ust er sundferðin í Vesturbyggð og
Fjallabyggð á 1.800 kr.
Flestar sundlaugar rukka börn
undir grunnskólaaldri um að-
gangseyri en mjög misjafnt virðist
vera hvenær börn verða fullorðin.
Í sumum tilfellum er það við 12 ára
aldur, öðrum 16 ára og enn öðrum
18 ára.
Þurfi einn í fjölskyldunni að
auki að leigja sundföt og hand-
klæði er enn ódýrast að synda í
Reykjanesbæ á 1.400 í leigubol
en dýrast er að synda í leiguskýlu
í Fjallabyggð og kostar það meira
en tvöfalt meira, eða 3.000 krónur.
Eldri borgarar þurfa hvergi að
greiða fullt gjald í sund og öryrkj-
ar ekki heldur. Víðast hvar þurfa
öryrkjar þó að sýna skírteini frá
Tryggingastofnun ríkisins. Að-
gangseyrir lækkar fyrir eldri
borgara í sumum tilfellum við
67 ára aldur en í öðrum við 70
ár. Í nokkrum sveitarfélögum fá
einungis eldri borgarar sem bú-
settir eru í sveitarfélaginu lægra
verð. Mjög misjafnt er eftir sveitar-
félögum hvort eldri borgarar og
öryrkjar þurfi ekki að borga neitt
eða hvort þeir borga bara barna-
gjald. n
Þetta kostar í sund
Mikill munur á leigu sundfatnaðar
Sundstaður Fullorðnir Börn Eldri borgarar Handklæði Sundföt 10 miðar full.* 2 fullorðnir og 2 börn 2 fullorðnir og 2 börn*
Reykjanesbær 400 0 0 300 300 3.250 800 1.400
Garðabær 440 125 0 420 420 3.500 1.130 1.970
Árborg 600 0 0 650 650 3.500 1.200 1.850
Sundlaugar Hfj 500 120 0 650 650 3.500 1.240 1.640
Seltjarnarnes 550 120 - 400 350 3.500 1.340 2.090
Álftanes 550 125 0 420 420 3.500 1.350 2.190
Vestmannaeyjar 500 180 0 500 500 3.300 1.360 2.360
Snæfellsbær 500 200 0 350 350 3.000 1.400 2.100
Kópavogur 550 150 150 600 600 4.000 1.400 2.600
Mosfellsbær 570 145 0 620 830 3.500 1.430 2.880
Reykjavík 600 130 0 550 800 4.100 1.460 2.310
Borgarbyggd 525 220 220 550 550 4.200 1.490 2.590
Akureyri 550 200 200 550 550 4.400 1.300 2.250
Bolungarvík 500 250 - 500 500 4.500 1.500 2.500
Hveragerði 570 190 0 550 3.400 1.520 -
Fjarðabyggð 600 200 0 450 450 3.700 1.600 2.500
Kirkjubæjarklaustur 500 300 300 500 500 4.000 1.600 2.600
Fljótsdalshérað 550 250 0 500 500 3.800 1.600 2.600
Þelamörk 550 250 250 600 600 4.000 1.600 2.800
Ísafjarðarbær 550 280 280 265 265 4.400 1.660 2.190
Vesturbyggð 600 300 300 580 580 5.250 1.800 2.960
Fjallabyggð 600 300 300 600 600 4.500 1.800 3.000
Sund Sund er vinsæl fjölskyldu-
skemmtun. Mynd Hörður SvEinSSon
Í sumum tilfellum fá einungis eldri borgarar sveitarfélags lægra verð
Ódýrast í sund
í Reykjanesbæ
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
*10 miðar full.
tilboð: sund,
handklæði og
sundföt
*2 fullorðnir og tvö
börn, leiga á einu
handklæði og sund-
fatnaði