Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Qupperneq 40
Helgarblað 4.–7. apríl 201440 Sport KirKjugarður framherjanna? n Óvenju margir framherjar hafa átt erfitt með að aðlagast Chelsea Þ að verður seint sagt að fram- herjar enska úrvalsdeilarfé- lagsins Chelsea hafi verið á skotskónum í vetur. Fram- herjarnir Fernando Torres, Samuel Eto'o og Demba Ba hafa skor- að samtals 15 mörk í ensku úrvals- deildinni en til samanburðar hefur Yaya Toure, miðjumaður Manchester City, skorað 17 mörk. Þessir þrír framherjar hafa sam- tals leikið 2.918 mínútur í ensku úr- valsdeildinni í vetur og líða því að meðaltali 194 mínútur á milli marka hjá framherjum Chelsea. Eden Haz- ard er markahæsti leikmaður liðsins með 14 mörk í deildinni, en liðið er sem kunnugt er í harðri baráttu um enska meistaratitilinn við Manchest- er City og Liverpool. Hver veit nema Chelsea væri í betri stöðu ef liðið ætti 20 marka framherja? Það er svo sem ekkert nýtt að fram- herjar Chelsea skori ekki mörk. Frá árinu 2003, þegar Roman Abramovic keypti félagið, hefur ógrynni fram- herja leikið með liðinu en afar fáir náð sér á strik, ef einn leikmaður er undanskilinn, Didier Drogba. Eiður Smári Guðjohnsen og Jimmy Floyd Hasselbaink léku þó með Chelsea þegar Abramovic keypti félagið en þeir hurfu báðir á braut nokkru síðar; Hasselbaink árið 2004 og Eiður Smári árið 2006. DV tekur hér saman nokk- ur dæmi um þá framherja félagsins sem áttu í erfiðleikum með að aðlag- ast félaginu – mismiklum þó. Margir þessara leikmanna voru keyptir fyr- ir stórfé og höfðu átt ákaflega góðu gengi að fagna annars staðar. n 8 Daniel SturridgeKeyptur: 2009 Verð: 6 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 63 Mörk: 13 Mínútur milli marka: 220,3 n Sturridge til varnar má segja að hann var aldrei hugsaður sem fremsti maður hjá Chelsea enda var hann mikið notaður á vængnum, sérstaklega undir stjórn Andre Villas-Boas. Einhverra hluta vegna ákvað Chelsea að selja þennan magnaða leik- mann; sumum þótti hann of eigingjarn. Í dag er hann næstmarkahæstur í úrvals- deildinni og gæti vel farið svo að mörk hans fyrir Liverpool í vetur geri það að verkum að Chelsea missi af titlinum. 7 Nicolas AnelkaKeyptur: 2008 Verð: 15 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 125 Mörk: 38 Mínútur milli marka: 246,4 n Farandverkamaðurinn Nicolas Anelka skoraði og skoraði hjá Bolton sem varð til þess að Chelsea ákvað að festa kaup á honum. Hjá Chelsea þurfti hann að leysa aðra stöðu en hann var vanur þar sem Di- dier Drogba var notaður einn uppi á toppi. Anelka leysti það ágætlega og er líklega sá framherji, á eftir Drogba, sem næst hefur komist því að slá í gegn undanfarinn áratug eða svo. 6 Claudio PizarroKeyptur: 2007 Verð: Ókeypis (samningslaus) Úrvalsdeildarleikir: 21 Mörk: 2 Mínútur milli marka: 340,5 n Pizarro fór til Chelsea eftir að samningur hans við Bayern München rann út. Á sínu fyrsta og eina tímabili með Chelsea skoraði hann tvö mörk í deildinni – bæði gegn Birmingham. Hann náði sér einfaldlega aldrei á strik þrátt fyrir að hafa skorað ógrynni marka í Þýskalandi. Í dag er þessi 35 ára Perúmaður á kunnuglegum slóðum, á mála hjá besta félagsliði heims, Bayern München, þar sem hann fær reglulega tækifæri. 5 Salomon KalouKeyptur: 2006 Verð: 8 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 156 Mörk: 36 Mínútur milli marka: 240,7 n Kalou var keyptur frá Feyenoord í Hollandi þar sem honum hafði gengið ágætlega. Sumir stuðningsmenn voru ánægðir með framlag hans enda skoraði hann mikilvæg mörk með reglulegu millibili á meðan aðrir stuðningsmenn gagnrýndu hann fyrir að fara illa með færin sín. Munurinn á Kalou og hinum framherjunum sem hér eru taldir upp er sá að hann var oft nýttur úti á vængnum, ekki sem fremsti maður eins og hinir. 4 Andriy ShevchenkoKeyptur: 2006 Verð: 30,8 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 48 Mörk: 9 Mínútur milli marka: 284 n Shevchenko var keyptur dýrum dómum frá AC Milan enda var hann einn allra besti framherji heims á þessum tíma. Stuðnings- mönnum Chelsea var vel við Shevchenko enda var hann vinnusamur og skapaði oft pláss fyrir Didier Drogba. Shevchenko var þó gagnrýndur fyrir að skora ekki nógu mikið. Úkraínumaðurinn var lánaður til Milan árið 2008 áður en hann hélt heim 2009. 3 Mateja KezmanKeyptur: 2004 Verð: 5 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 25 Mörk: 4 Mínútur milli marka: 184,5 n Það eru eflaust margir búnir að gleyma Mateja Kezman sem slegið hafði í gegn með PSV í Hollandi, rétt eins og Ruud van Nistelrooy sem gekk til liðs við Manchester United árið 2001. 105 mörk í 122 leikjum var frábær árangur hjá Kezman. En hann stóð aldrei undir væntingum hjá Chelsea eins og 4 mörk hans bera vott um. Eftir eitt tímabil á Englandi var hann seldur til Atletico Madrid. 2 Hernan CrespoKeyptur: 2003 Verð: 16,8 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 49 Mörk: 20 Mínútur milli marka: 140,7 n Crespo sló í gegn í ítalska boltanum þar sem hann skoraði nánast að vild. Þessi magnaði Argentínumaður bjó yfir augljósum hæfileikum og hann sýndi hvað í honum bjó með Chelsea – á köflum allavega. Þó að 20 mörk í 49 leikjum sé þokkalegur árangur tókst honum aldrei að aðlagast lífinu á Englandi og var lánaður aftur til Ítalíu árið 2004. 1 Adrian MutuKeyptur: 2003 Verð: 15,8 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 27 Mörk: 6 Mínútur milli marka: 301 n Rúmeninn byrjaði ágætlega hjá Chelsea áður en fór að síga á ógæfuhliðina. Að lok- um fór það svo að Mutu féll á lyfjaprófi og í ljós kom að hann hafði neytt kókaíns. Hann var rekinn frá félaginu og höfðaði Chelsea mál á hendur framherjanum. Eins og sakir standa skuldar Mutu Chelsea stórfé vegna samningsbrots. 10 Demba BaKeyptur: 2013 Verð: 7 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 29 Mörk: 5 Mínútur milli marka: 174 n Demba Ba var flottur hjá bæði West Ham og Newcastle áður en hann var keyptur til Chelsea í janúarglugganum 2013. Síðan þá hefur hann verið í hálfgerðu aukahlutverki en þó fengið tækifæri til að láta ljós sitt skína. Á þessu tímabili hefur hann leikið 387 mínútur og skorað 3 mörk. 9 Fernando TorresKeyptur: 2011 Verð: 50 milljónir punda Úrvalsdeildarleikir: 105 Mörk: 19 Mínútur milli marka: 307 n Forsvarsmenn Chelsea hafa verið þolinmóðir gagnvart Torres þótt honum hafi gengið afleitlega að skora fyrir félagið. Hann hefur komið við sögu í 24 leikjum í deildinni á tímabilinu en aðeins skorað fjögur mörk. Chelsea er sagt vilja kaupa Diego Costa frá Atletico Madrid í sumar og er fullyrt að jafnvel komi til greina að senda Torres aftur til uppeldisfélags síns sem hluta af kaupverðinu fyrir Costa. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.