Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Page 46
Helgarblað 4.–7. apríl 201446 Menning
Vegabréf
Sigmundar
Á stundum getur maður ekki
sofnað sakir minnstu tilþrifa
hugans; einhvers innra ónæð-
is sem í lengdina skiptir engu
máli en nagar núið eins og
soltinn rakki beinið sitt.
Í þetta sinn var ég stadd-
ur í Nata, afrísku þorpi í efri
miðjunni á Botsvana, sem
illu heilli er þekkt af öllu sínu
harmþrungna alnæmi. Raun-
ar er hvergi í gervöllum heimi
að finna hærri tíðni af þessum
greypilega sjúkdómi; meira en
þriðjungur allra íbúa lands-
ins á aldrinum 15 til 50 ára er
smitaður af HIV-veirunni. Það
er á við alla utan Elliðaánna á
Íslandi. Og þætti frétt í vestri.
Og þarna vorum við komn-
ir, tveir íslenskir sjónvarps-
menn, eins og það mætti
einhverju býtta í öllu þessu
mengi; en staðráðnir engu að
síður að gera nokkurt gagn.
Og heimildamyndin skyldi
fjalla um helstu vopn og verj-
ur gegn þessum skæða ógn-
valdi álfunnar.
Við fórum víða, hvítir
spyrlar í harla óvanalegum
aðstæðum sem voru okkur
meira og minna ofviða; alls-
endis óviðbúnir því að al-
næmi í álfunni heimtaði fleiri
mannslíf en nokkur annar
dauði, að fjórðungur lækna á
svæðinu væri þegar látinn úr
alnæmi, að vændi kvenna og
karla væri oftast eina leiðin
út úr fátæktinni, að almennt
atvinnuleysi ræki smitað fólk
á vergang, að staðbundn-
ir hjúskaparsiðir eins og þeir
að ekkjur eigi að giftast mági
sínum auki útbreiðsluna, að
margir trúarhópar í löndun-
um í kring leggist ein dregið
gegn allri kynfræðslu fyrir
börn – og þess þá heldur að
útbreitt ólæsið setti fræðslu og
upplýsingu skorður.
Eftir hitaþrunginn dag
komum við að skýli sem var
svefnstaður okkar vestrænu
erindrekanna. Þarna gengum
við þreyttir innum þröngar og
lúnar dyr að þurfalitlum nátt-
stað. Hann geymdi bedda tvo
af tæpri breidd, en á gaflin-
um gegnt hurðinni stóð lítið
tyrðilsnáttborð sem í fyrst-
unni virtist á að giska tómt. En
svo var þó ekki þegar að var
gáð. Þar lágu í ávalri röð, eins
og þeim væri vandlega niður
raðað, átta óhreyfðir smokk-
ar í óumdeildum umbúðum
sínum.
Sem snöggvast litum við
hvor á annan, tveir örþreytt-
ir karlpungar – og ekki alls
kostar ótruflaðir af þessari
óvæntu sýn, eða kannski
öllu frekar hugsuninni, pæl-
ingunni; hvers vegna átta, af
hverju ekki sjö eða níu – og ef
til vill var enn stærri spurn-
ing sú arna hver hefði ráðið
þessari tölu, haft þetta for-
ræði, tekið sér þetta vald; já,
átta smokkar, nákvæmlega,
ekkert minna eða meira – og
hvaða reynsla lægi þar að
baki.
Ekki man ég til annars en
við hvítu mennirnir hefðum
sofnað nokkuð hraustlega
þetta kvöld undir afrískum
himni, en í minningunni er
samt þetta grufl og krafs og
fálm í huganum – og það lengi
vel; átta, já af hverju átta …
Átta smokka nóttin í Nata
5 bestu Hollywood-
myndir hérlendis
n Ísland í fjölbreyttum hlutverkum n Útkoman er upp og ofan
R
ussell Crowe heillaði lands-
menn með lyftingum sín-
um í Mjölni og með því að
syngja með Patti Smith víðs
vegar um bæinn á Menn-
ingarnótt, en myndin Noah hefur við
fyrstu sýn fengið vægast sagt dræm
viðbrögð landsmanna. Það gerist
stöðugt algengara að bandarískar
stórmyndir séu teknar hérlendis og
hefur Ísland verið í hlutverki hinna
ýmsu landa, tímabila og pláneta.
Útkoman er upp og ofan og margir
stórleikarar hafa átt sínar mestu
niðurlægingarstundir hérlendis, en
hverjar eru bestu Hollywood-mynd-
irnar sem teknar hafa verið upp hér
á landi? n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
3 Flags of Our Fathers
Ár: 2006 Ísland er í hlutverki: Eyjunnar Iwo Jima í seinni heimsstyrjöld
n Segja má að Clint Eastwood hafi hafið Íslandsæðið í Hollywood,
enda einn helsti leikstjóri þar og talaði mjög vel um land og þjóð
í kjölfarið. Rétt eins og þurfti að leita til hinnar niðurníddu en þó
glæsilegu Pétursborgar til að fanga útlit Berlínar á lokadögum
stríðsins í Der Untergang var ekki hægt að taka mynd sem gerist á
eyju sem hafði verið sprengd sundur og saman annars staðar en á
Íslandi. Clint segir söguna af Ira Hayes, indíána sem gerður er að
þjóðhetju eftir að hafa átt þátt í að draga fánann að húni í frægri
ljósmynd og drekkur sig í kjölfarið hel. Efniviðurinn er áhugaverður
en líður fyrir að sífellt er hoppað fram og aftur í sögunni. Lag Johnny
Cash um Hayes lýsti þessu betur og systurmyndin Letters From Iwo
Jima sögð frá sjónarhól Japana er mun betri, en saman eru mynd-
irnar tvær ágætis innlegg í stríðsmyndageirann.
1 Batman Begins
Ár: 2005 Ísland er í hlutverki: Tíbet
n Eftir að Joel Schumacher hafði tímabundið geng-
ið af persónunni dauðri með geirvörtubúningi Ge-
orge Clooney í Batman and Robin voru fáir sem
bjuggust við miklu af nýrri Batman-mynd. Öllum
að óvörum kom út úr krafsinu verk sem minnti
meira á Serpico en Schumacher. Batman er eini
heiðarlegi maðurinn í borg sem hefur orðið spill-
ingu að bráð og keyrir skriðdreka sem virðist ætl-
aður fyrir Íraksstríðið. Hin nýstárlega sýn leikstjór-
ans Christophers Nolan breytti ofurhetjugeiranum
með því að færa hann nær raunveruleikanum.
Myndin hefur haft áhrif á allar ofurhetjumyndir
síðan og er mögulega sú besta í sínum geira. Bæði
Christian Bale og Liam Neeson komu til lands-
ins við gerð myndarinnar, en það er einmitt á hinu
hrjóstruga Íslandi, hér í gervi Tíbet, sem Bruce
Wayne finnur sinn innri Batman.
2 Oblivion
Ár: 2013 Ísland er í hlutverki: Plánetu
jarðar eftir allsherjar kjarnorkustríð
n Tom Cruise er í hópi fárra
stjarna sem tókst ekki að heilla
landann þar sem hann sat í sloti
sínu með útsýni yfir Eyjafjörð og
deildi við sauðfjárbændur. Rétt
eins og Russell Crowe stóð hann
í skilnaðarmáli meðan á dvölinni
stóð, Ísland virðist vera staðurinn
þar sem hjónabönd stórstjarna
deyja. Myndin sem út úr þessu
öllu kom er þó hin ágætasta. Eftir
heimsendi lítur öll pláneta okkar
út eins og Ísland. Þó er til lítil vin
þar sem okkar maður getur farið
og spilað körfubolta og hlustað
á Led Zeppelin, og að sjálfsögðu
eru þau atriði tekin upp annars
staðar. Oblivion vísar ótt og títt í
aðrar framtíðarmyndir, en tekst
þó, ólíkt flestum slíkum, að koma
á óvart.
4 Thor: The Dark World
Ár: 2013 Ísland er í hlutverki: Heimilis Svartálfanna
n Myndirnar um Þór eru ekki sóttar til Snorra-Eddu, né heldur til hinna af-
bragðsgóðu dönsku teiknimyndaseríu um Goðheima. Þess í stað eru þær
byggðar á ofurhetjusögum Marvel, sem aftur eru lauslega byggðar á norrænni
goðafræði. Þór kom fyrst fram í eigin mynd árið 2011 og aftur ári síðar í fé-
lagi við Hulk, Kaftein Ameríku og fleiri í The Avengers. Shakespeare-leikarinn
Kenneth Branagh leikstýrði fyrri myndinni, en hér hefur sjónvarpsleikstjórinn
Alan Taylor, sem gerði Sex and the City og Sopranos, tekið við. Ísland sómir
sér vel sem Svartálfaheimurinn og myndin er í flesta staði afbragðs ævintýra-
mynd, þó Tom Hiddleston sem Loki skyggi mjög á hinn þumbaralega Þór.
5 A View to a Kill
Ár: 1985 Ísland er í hlutverki: Sovétríkjanna í Kalda stríðinu
n A View to a Kill á sér sess í hjörtum landsmanna fyrir að vera fyrsta
ein fyrsta stórmyndin tekin hérlendis í seinni tíð. Jafnframt skartar hún
einu besta Bond laginu í flutningi Duran Duran (sem síðar myndu hafa
áhrif á íslenska stjórnmálasögu) og er síðasta Bond-mynd Roger Moore.
Moore sjálfur kom aldrei hingað til lands, enda þá orðinn 58 ára og sá
„stöntmaður“ um að skíða yfir Jökulsárlón. Eins og títt er um síðustu
myndir Bond-leikara er allt hér komið út í öfgar, Christopher Walken fer
á kostum sem hinn teiknimyndalegi skúrkur og Grace Jones sem Bond-
gella. Myndin er eigi að síður ágætis skemmtun og mun betri en síðasta
Bond-mynd Pierce Brosnan, Die Another Day, sem einnig var tekin upp
hérlendis (Ísland virðist vera koss dauðans fyrir Bond-leikara).