Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Side 52
Helgarblað 4.–7. apríl 201452 Fólk
Gefur út
æviminningar
Leikarinn John Cryer, sem flest-
ir þekkja sem Alan Harper úr
þáttunum Two and a Half Men,
hyggst gefa út bók með æviminn-
ingum sínum á næstunni. Bók-
in mun fjalla um feril Cryers allt
frá því hann var ungur leikari í
Hollywood á níunda áratugn-
um til dagsins í dag og mun hann
meðal annars fjalla ítarlega um
samskipti sín við Charlie Sheen,
mótleikara sinn í Two and a Half
Men, sem rekinn var úr þáttunum
eins og frægt var á sínum tíma.
Neitar að árita nektarmyndir af sér
Kate Winslet þarf sífellt að neita aðdáendum um að árita myndina
Þ
að eru rétt tæp sautján ár
liðin frá því að leikkonan
Kate Winslet lék eftir-
minnilega á móti Leonardo
DiCaprio í Titanic, en hún var til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir
frammistöðu sína. En nektarat-
riðið sem hún lék í fyrir myndina
hefur dregið dilk á eftir sér fyrir
leikkonuna.
Leikkonan sagði í viðtali á
dögunum að atriðið í myndinni, þar
sem DiCaprio teiknar hana nakta,
„ásæki hana enn.“ Teikningin af
Winslet naktri hefur notið vinsælda
meðal aðdáenda myndarinnar og
segir Winslet aðdáendur sína gagn-
tekna af myndinni.
„Ég árita ekki þessa mynd. Mér
finnst það mjög óþægilegt. Af hverju
er fólk svona? Ég er sífellt beðin
um að árita hana,“ segir Winslet
og bætir við að hún hafi ekki búist
við að myndin yrði svona lífseig.
„Ég vildi ekki að þetta yrði gert að
ljósmynd!“ sagði Winslet um teikn-
inguna, sem bregður fyrir stuttlega í
kvikmyndinni. „Ég bjóst ekki við að
þurfa sífellt að sjá þessa mynd, heil-
um sautján árum síðar.“ n
Miley syrgir
hvutta
„Þetta er annar versti dagur lífs
míns,“ tilkynnti söngkonan Miley
Cyrus fylgjendum sínum á Twitt-
er í vikunni en tilefnið var að
husky-hundurinn hennar, Floyd,
drapst. „Ég vil ekki segja það því
ég vil ekki trúa að það sé satt,
en Floyd minn er dáinn. Ég er
niðurbrotin,“ skrifar hún í færsl-
unni. Söngkonan bætir við að
hún biðjist afsökunar fyrirfram ef
hún verði ekki upp á sitt besta á
tónleikum á næstunni en segist
lofa að gera sitt besta. Ekki fylgir
sögunni hvernig Floyd drapst.
Trúlofaður
Depp
Hinn fimmtugi leikari Johnny
Depp er ekki mikið að deila
einkalífi sínu með fjölmiðlum en
nýlega játaði hann að hann væri
loks búinn að trúlofast kærustu
sinni, leikkonunni Amber Heard.
„Það að ég sé með kvenmanns-
hring á fingrinum hlýtur að vera
nokkuð augljóst merki,“ svaraði
Depp þegar hann var spurður út
í trúlofunina. „Hann var of stór
fyrir hana þannig að ég byrjaði að
ganga með hann,“ bætti hann við,
en hringurinn er gylltur og skart-
ar stórum demanti. Parið var á
dögunum statt í Peking í Kína í
tengslum við frumsýningu nýju-
stu myndar Depp, vísindatryllis-
ins Transcendence.
Leiðin Langa
TiL frægðar
Fimm frægir sem áttu erfitt uppdráttar í upphafi ferilsins
M
argir þekktir einstaklingar
hafa þurft að hafa mikið
fyrir ferli sínum og hafa
oft klúðrað hlutunum eða
verið hafnað áður en þeir
urðu frægir. Hér verður fjallað um
nokkra einstaklinga sem misstigu
sig á ferlinum áður en hlutirnir fóru
að ganga upp.
Steven Spielberg
Steven Spielberg er einn þekktasti
leikstjóri heims og er þekktur fyrir
stórmyndir á borð við Schindler's
List, E.T., Indiana Jones og margar
aðrar. Hann er líka margverðlaun-
aður og hefur til að mynda unnið til
þrennra Óskarsverðlauna. En áður en
hann öðlaðist frægð reyndi hann að
komast í nám í leikstjórn. Hann sótti
um nám í kvikmynda- og leiklistar-
skóla í Kaliforníu þrisvar sinnum en
var alltaf hafnað. Spielberg lauk ekki
BA-námi sínu fyrr en árið 2002.
Michael Jordan
Þegar Michael Jordan var í miðskóla
var hann rekinn úr körfuboltaliðinu
en þráaðist við og hélt áfram að spila.
Í dag er Jordan af mörgum talinn
einn besti körfuknattleiksmaður
allra tíma en hann átti glæstan feril
hjá Chicago Bulls á tíunda áratugn-
um. „Mér hefur mistekist margoft
í lífinu. Það er ástæða velgengni
minnar,“ segir Jordan um feril sinn.
Walt Disney
Það er nokkuð víst að nánast hvert
mannsbarn þekki einhverjar persónur
sem teiknimyndahöfundurinn Walt
Disney skapaði. Áður en Disney setti á
fót framleiðslufyrirtæki sitt vann hann
fyrir sér sem blaðamaður á blaðinu
Kansas City Star. Það gekk þó ekki bet-
ur en svo að Disney var rekinn eftir
stuttan feril fyrir „hugmyndaleysi og
skort á ímyndunarafli.“ Disney reyndi
síðar að selja MGM hugmyndina að
Mikka mús en fékk þau svör að risa-
stór mús á kvikmyndatjaldinu myndi
aldrei ganga upp heldur myndi hún
„hræða kvenfólkið.“
Marilyn Monroe
Monroe er í dag þekkt fyrir far-
sælan kvikmyndaferil sinn á sjötta
og sjöunda áratugnum og var talin
eitt helsta kyntákn þess tíma. Þegar
Monroe var hins vegar að byrja að
koma sér á framfæri fór hún í viðtal
á módel skrifstofu þar sem henni var
bent á að hún ætti heldur að sækjast
eftir starfi sem ritari einhvers staðar.
Oprah Winfrey
Þáttastjórnandinn Oprah Winfrey
var í upphafi ferils síns rekin úr starfi
sem fréttaritari og sagt að hún væri
„óhæf í sjónvarp.“ Seinna fékk hún
starf sem fréttaþulur á sjónvarps-
stöð í Flórída en var rekin stuttu síð-
ar eftir að þáttur hennar kom illa út í
áhorfskönnunum. Loks fann Winfrey
sig í morgunsjónvarpi sem spjall-
þáttastjórnandi, sem varð upphaf-
ið að ferli hennar sem einn þekktasti
þáttastjórnandi heims.
Stephen King
Áður en Stephen King hóf feril sinn
sem rithöfundur vann hann sem
kennari og skrifaði smásögur í frí-
tíma sínum og seldi sem smá bú-
bót. Síðar skrifaði King handritið af
fyrstu bók sinni í fullri lengd, Carrie,
en gafst upp á að reyna að fá hana
gefna út eftir að hafa fengið neitun
þrjátíu sinnum. Eiginkona King
hvatti hann þó áfram og á endanum
fékk hann hana útgefna. Í dag hafa
bækur hans selst í yfir 300 milljón-
um eintaka og hefur Carrie tvisvar
sinnum verið kvikmynduð. n
Stephen King Fékk þrjátíu neitanir áður
en hann fékk loks jákvætt svar þegar hann
gaf út sína fyrstu skáldsögu.
Marilyn Monroe Var ráðlagt að fá sér
starf sem ritari frekar en að eltast við feril
sem módel.
Michael Jordan Var rekinn úr skólaliðinu
í körfubolta.
Walt Disney Disney var rekinn sem
blaðamaður fyrir hugmyndaleysi og skort á
ímyndunarafli.
Oprah Winfrey Fékk að heyra að hún
væri óhæf í sjónvarp.
Steven Spielberg Var þrisvar sinnum
synjað um skólavist í kvikmyndaskóla í
Kaliforníu.
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Aðdáendur Hér má sjá aðdáendur reyna
að fá áritun á myndina frægu.
Kate Winslet
Leikkonan er
sífellt beðin um að
árita myndina.