Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Síða 58
Helgarblað 4.–7. apríl 20142 Brúðkaup
5 leiðir til að komast í
form fyrir brúðkaupið
M
arkmið eru góð og margir
vilja vera upp á sitt besta
á brúðkaupsdaginn, svo
þeir geti minnst gamalla
dýrðardaga á efri árum á
meðan þeir horfa löngunaraugum á
brúðkaupsmyndirnar. Það geta all-
ir komið sér í form hafi þeir tíma og
viljann til þess, en mestu máli skiptir
að halda sig við efnið og sýna vilja-
styrk. Það eru engar töfralausnir en
DV tók saman fimm leiðir sem koma
þér í form.
1 Rútínan skiptir öllu Megrunarkúrar eru ekki rétta
leiðin til þess að koma þér í form.
Það eru einungis tvær gullnar
reglur; hollt mataræði og regluleg
líkamsrækt. Byrjaðu rólega í líkams-
rækt sem þér finnst skemmtileg, með
góðum fyrirvara fyrir brúðkaupið,
og gættu þess að halda þig við efnið.
Ekki gefa þér frí, heldur haltu fastri
dagskrá og gættu þess að halda í
rútínuna.
Vendu þig á að borða hollt og
njóta þess. Hvað sem gerist, ekki
bregða út af rútínunni! Leti getur af
sér meiri leti; láttu endilega líða úr
þér á sunnudegi en gættu þess að
mæta í ræktina á mánudegi. Gefir
þú þér frí „einn dag í viðbót“, er það
einungis ávísun á enn meiri leti.
Sértu í tímaþröng skaltu frekar stytta
tímann í ræktinni en mæta samt.
2 Minnkaðu skammta Margt smátt gerir eitt stórt.
Það þarf enginn að lifa meinlætalífi
til þess að komast í form og ómögu-
legar kröfur varða veginn til fallsins!
Þú mátt alveg fá þér bakarísmat, pít-
su eða hamborgara endrum og sinn-
um en gæta þarf meðalhófs. En rusl-
fæði á að vera algjör undantekning
og fylgja þarf stífum reglum í þeim
efnum. Hægt er að hafa vikulegan
„nammidag“ en þá þarf að gæta þess
að halda skammtastærðum í hófi.
Það á við um allan mat en sérstak-
lega óhollan mat.
Góð regla – sem nefnd hefur
verið „japanska reglan“ – er að borða
sig 80 prósent saddan. Þannig heldur
þú magastærðinni jafnri – minnkar
hann ef hann er of stór – sem veldur
því að seddu gætir fyrr.
3 Byggðu upp vöðva Konur eru sérstaklega gjarnar
á að hundsa lyftingar eða aðrar leið-
ir til þess að byggja upp vöðva. En
vöðvar auka grunnbrennslu líkam-
ans, enda þurfa þeir orku, og því
meiri vöðvamassa sem þú hefur því
meiri er brennslan. Sértu hrædd/ur
við að verða of sterkbyggð/ur er hægt
að fara út í æfingar með mörgum
endurtekningum og léttum þyngd-
um. Það mun byggja upp þéttari
vöðva, auka styrk og brennslu.
4 Breyttu til Rannsóknir hafa sýnt fram á að rólegar og
stöðugar æfingar eru ekki góðar leið-
ir til þess að auka brennslu. Þvert á
móti eru æfingar með átakamiklum
syrpum – þar sem tekið er nokkrum
sinnum verulega á í stuttan tíma –
besta leiðin til að auka brennslu og
raunar er brennslan þá meiri og var-
ir lengi eftir að æfingunni er lokið.
Þá eru slíkar æfingar einnig vel til
þess fallnar að auka úthald og styrk
enda reyna þær á ystu þolmörk. Góð
þumalputtaregla hér er að ef þér líð-
ur of þægilega meðan á æfingunni
stendur þá ertu ekki að æfa rétt. Æf-
ingin á alltaf að taka á og þá ertu að
brenna sem mest, og eykur vöðva-
styrk hraðar.
5 Sofðu nóg Það er ekkert verra fyrir heilsuna en að
sofa of lítið. Svefnleysi er eitt helsta
heilsufarsvandamálið á Vestur-
löndum. Það hefur margvísleg
áhrif, sljóvgar heilann til að mynda,
og langvarandi svefnleysi drepur
heilafrumur samkvæmt nýrri rann-
sókn. Þar að auki virðist það auka
matarlyst en fylgni hefur mælst á
milli offitu og svefnleysis í banda-
rískum rannsóknum: Sofir þú
ekki nóg er hætta á að þú borðir of
mikið. Þar að auki veldur svefn-
leysi því að þú verður orkuminni
sem letur þig frá líkamsrækt. Ofan
á þetta allt hægir svefnleysi svo á
grunnbrennslu líkamans. Því er
gífurlega mikilvægt að sofa nóg – í
átta tíma á sólarhring – til að halda
sér í góðu formi. n
Engin töfralausn, en þessi fimm ráð koma þér langt
Komdu þér í form
fyrir stóra daginn
Það er enginn töfralausn
í boði en gullnu reglurnar
eru hollur matur og
regluleg hreyfing.
mynd shutterstocK
E
itt af því sem huga þarf að
fyrir brúðkaup er hvort
brúðhjónin vilji fara í
myndatöku að athöfn lok-
inni. Brúðkaupsmyndatök-
ur eru mjög vinsælar og margir
ljósmyndarar sérhæfa sig í þeim
og þjónustu tengdri þeim. Undir-
búa þarf slíkt með góðum fyrirvara
líkt og allt annað fyrir brúðkaup-
ið, enda leiðinlegt að klúðra því að
eiga ljósmynd frá jafn mikilvægum
degi. Vanda þarf valið vel, því ljós-
myndarar hafa sinn stíl og vilja ekki
allir gera hlutina eins. Mjög vin-
sælt hefur verið á undanförnum
árum að taka myndirnar utandyra
og hafa þær jafnvel fremur hefð-
bundnar. Lystigarðurinn í Reykja-
vík nýtur alltaf vinsælda á sumrin
og sömuleiðis göngustígurinn sem
liggur meðfram Húsdýragarðin-
um í átt að Fjölskyldugarðinum,
sem er jafnan fallegastur á haustin
þegar laufin breyta um lit.
Því þarf að velja ljósmyndara
eftir því hvort óskað er eftir úti-
eða innitöku, og jafnvel kynna sér
hvaða úrræði ljósmyndarinn hefur
ef búið er að ákveða útimyndatöku
en veðrið er síðan ekki nógu gott.
Einnig þarf að skoða hvort kaupa
eigi myndir sem eiga að fara í bók,
í ramma eða jafnvel á striga upp á
vegg. Sumir ljósmyndarar bjóða
einnig upp á að athöfnin sjálf sé
mynduð og því þarf að hafa þá
með í ráðum þegar hún er skipu-
lögð, svo allir séu með á nótunum.
Ljósmyndarinn þarf sjálfur
að vera vel undirbúinn og sumir
hafa með sér aðstoðarmenn sem
sjá um að halda utan um búnað-
inn. Þótt sumir freistist til þess að
velja ódýrari áhugaljósmyndara
þarf að hafa í huga að reynsluleysi
þeirra endurspeglast í verðinu.
Margt getur komið upp á í brúð-
kaupi sem þarf að undirbúa sig vel
fyrir, til dæmis að myndavélin bili.
Þá þarf að hafa aðra vél til vara og
svo mætti lengi telja. Vanda þarf
valið og velja ljósmyndara sem
hlustar á óskir brúðhjónanna og
gerir það sem þau vilja, fremur en
að reyna að búa til myndir sem
bara honum þykir fallegar. n
rognvaldur@dv.is
Veldu rétta ljósmyndarann
Skipulag skiptir öllu máli fyrir brúðkaupsmyndatöku
segðu sís! Brúðkaupsljósmyndun snýst um óskir brúðhjónanna. Þessi hafa til dæmis þurft
að finna hugrakkan ljósmyndara. mynd reuters