Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 4.–7. apríl 20146 Brúðkaup
EyeSlices augnpúðar
Ferskari augu á 5 mínútum
Púðana má nota í 10 skipti
facebook.com/Eyeslices/IcelandUpplýsingar um sölustaði:
R
agnar Már Skúlason og
Ester Ósk Hilmarsdóttir
hafa verið saman í „7 ár
af ást og gleði“ eins og
þau orða það. Þau ætla
að ganga í það heilaga í sumar og
fer athöfnin fram í sveitakirkjunni
Neskirkju í Aðaldal þar sem brúð
urin er fædd og uppalin. „Það kom
ekki annað til greina en að þetta
yrði sveitabrúðkaup,“ segir Ester.
Alvöru sveitapartí
„Veislan verðu svo haldin í Ýdöl
um. Það þarf varla að kynna þann
veislustað fyrir neinum enda eru
örugglega fáir sem hafa ekki kíkt
þar á sveitaball á unglingsárunum.
Við ætlum að sjá til þess að það
verði ekkert minna fjör í kofanum
7. júní 2014 en það var á Sálinni
'93,“ segir hún hlæjandi. „Veislan
verður með hefðbundnu sniði, for
drykkur, fjör, myndatökur, matur,
eftirréttur, söngur, hlátursköst,
dans og vitleysa fram á nótt.“
Fór á skeljarnar í San Diego
Eins og áður sagði hafa þau ver
ið saman í sjö ár en Ragnar fór á
skeljarnar 4. september 2012 og
bað um hönd sinnar heittelsk
uðu. „Það var á uppáhaldsstaðn
um okkar, Sunset Cliffs í San Diego
í Kaliforníu, þar sem hann bað mig
að giftast sér. Staðurinn er okk
ar uppáhalds þar sem við fórum
reglulega þangað, settumst á klett
ana, borðuðum avókadósamlok
ur og horfðum á sólarlagið þegar
við bjuggum í San Diego fyrir
nokkrum árum,“ segir hún.
Margt sem þarf að huga að
Þau viðurkenna að undirbún
ingurinn fyrir brúðkaupið sé meiri
en þau höfðu gert sér í hugar
lund. „Það er svo ótrúlega margt
sem þarf að hugsa út í. Ég held að
hvorugt okkar hafi gert sér grein
fyrir umstanginu sem fylgir einum
degi, og við pælum oft í því hvort
við séum klikkuð að eyða svona
miklum tíma og peningum í eitt
partí. En á móti kemur að þetta
verður fallegur og skemmtilegur
dagur með öllu því fólki sem okkur
þykir vænt um og þeim degi viljum
við alls ekki missa af,“ segir Ester.
Erfiðast að gera gestalistann
Þau bjóða 167 gestum í brúðkaup
ið. „Okkur fannst erfiðast af öllu að
gera gestalistann. Auðvitað langar
mann að bjóða öllum en einhvers
staðar verður að setja stopp og
maður verður að vera búinn undir
að heyra að einhver hafi orðið sár
að fá ekki boðskort. En við höfum
komist að því að það er ómögulegt
að halda brúðkaup án þess að ein
hver verði svolítið súr.“
Hressilegur kokteill
Þau Ester og Ragnar eru búsett í
Hong Kong og þema veislunnar
tekur mið af því. Þau ákváðu að
blanda saman nokkrum ólíkum
þemum og eru spennt að sjá út
komuna. „Við ákváðum að hafa
þetta í rómantískum „rustic“
sveitastíl með dassi af karnival og
kínversku ívafi þar sem við búum
í Hong Kong. Það er kannski ekki
neitt ákveðið þema heldur hressi
legur kokteill af ólíkum stefnum.
Við reynum samt að koma í veg
fyrir allan glundroða í stíl með því
að hafa allt einfalt, hvítt og elegant.
Við sjáum svo til hvernig það á eftir
að koma út. Kannski verður þetta
hræðilegt, en við höfum ákveðið
að það skipti þá bara engu máli svo
lengi sem allir skemmti sér vel.“
Alls kyns kræsingar
Boðið verður upp á alls kyns kræs
ingar í veislunni, bæði heitan mat
og kökur. „Snilldarkokkurinn Dan
íel Ingi Jóhannsson sér um að allir
verði saddir og sælir og svo verð
ur eftirréttahlaðborð að hætti
brúðarinnar (með hjálp frá góðum
konum úr sveitinni) með alls kon
ar skemmtilegu, sætu og góðu,“
segir Ester sem er mikil áhugakona
um bakstur.
Eftir brúðkaupið ætla hjónin í
brúðkaupsferð. „Heldur betur! Þar
sem við búum í Hong Kong er stutt
að stökkva á rómantíska eyju með
hvítri strönd, tærum sjó og kókos
hnetum,“ segir Ester að lokum. n
V
ið erum að vísu búin að
gifta okkur, gerðum það
21. maí 2013 þegar við vor
um búin að vera saman í
átta ár, en ætlum að vera
með stórt brúðkaup og veislu í sum
ar,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, en
hún og eiginmaður hennar, Róbert
Benedikt Róbertsson, ætla að halda
brúðkaup og brúðkaupsveislu í sum
ar. Þau giftu sig í Seljakirkju í fyrra
sumar en þá voru bara viðstödd þau
tvö og vottar. Nú ætla þau að gera
þetta með stæl og bjóða 140 manns
til veislu. „Þetta verður nokkuð stór
veisla, þetta er fljótt að tínast til,
Robbi á til dæmis átta systkini,“ segir
hún hlæjandi.
Bónorð í Washington
„Ég fékk rosa rómantískt bónorð í
Washington, kom alveg af fjöllum,“
segir Diljá aðspurð hvenær þau hafi
ákveðið að láta pússa sig saman en
þau hafa verið saman í níu ár.
Brúðkaupið í ár verður haldið 12.
júlí. „Séra Ólafur Jóhann Borgþórs
son vinur okkar gefur okkur saman
í Kópavogskirkju og veislan verður
síðan í veislusal Þróttar í Laugar
dalnum.“
Fórnuðu brúðkaupsferðinni
fyrir hús
Diljá segir að það þurfi að huga að
ótrúlega mörgu við brúðkaupsundir
búninginn. „Við vorum að vísu að
kaupa okkur hús nýlega og duttum
smá út úr brúðkaupsundirbúningi
en erum að komast aftur í gang núna.
Við fáum mikla hjálp frá fyrirtækinu
stordagur.is og svo ég er heppin að
þekkja góða fjölskyldu sem er mik
ið í þessum bransa, og þau sjá um
matinn og blómin fyrir mig auk þess
sem mamma mín er með þetta allt á
hreinu,“ segir hún. Þau ætla ekki að
hafa neitt ákveðið þema í veislunni.
Þau ætla að bjóða upp á heitan mat í
veislunni og brúðartertu. Það er líka
búið að ákveða föt brúðhjónanna.
„Ég verð í hvítum kjól sem er kominn
í hús og Robbi verður væntanlega í
fallegum jakkafötum.“
Þau Diljá og Róbert ætla ekki í
sérstaka brúðkaupsferð eftir brúð
kaupið. „Við keyptum okkur hús og
fórnuðum ferðinni í staðinn.“ n
Slá upp alvöru sveitaballi
Ester og Ragnar gifta sig í Aðaldal í sumar
Fórnuðu brúðkaups-
ferðinni fyrir hús
Diljá og Róbert gifta sig í annað sinn
S
tóri dagurinn verður 27.
desember,“ segir Regína
Ásdís Sverrisdóttir en
hún og unnusti henn
ar, Baldvin Gunnarsson,
munu ganga í það heilaga milli
jóla og nýárs.
Regina segir desembermánuð
hafa orðið fyrir valinu af ýmsum
ástæðum. „Þegar við vorum 16
og 17 ára höfðum við ákveðið að
gifta okkur 21. febrúar 2015 en þá
verðum við búin að vera saman í
níu ár. Þessi dagsetning er nálægt
því og flestir okkar ættingjar verða
á svæðinu um jólin. Það er líka
svo fallegt svona að vetri til og því
ættum við að geta fengið fallegar
brúðkaupsmyndir auk þess sem
við erum að safna fyrir þessu og
það ætti að vera komið um jólin.
Dóttir okkar, Gyða Marín, á af
mæli annan í jólum og við vildum
ekki stela hennar degi. Þess vegna
varð þessi dagur fyrir valinu.“
Regína og Baldvin eru aðeins
23 og 24 ára en hafa verið saman
í átta ár. Hún segist hafa feng
ið rómantískt bónorð. „Að mínu
mati var það mjög rómantískt.
Við vorum búin að vera trúlofuð
síðan ég var 19 ára en ég var búin
að segja honum að ef hann vildi
brúðkaup yrði hann að biðja mín.
Einn daginn kom hann mér á
óvart og fór niður á hnén.“
Unga parið býr fyrir norðan
en athöfnin verður haldin í Akur
eyrarkirkju. „Þetta verður vegleg
80 manna veisla,“ segir Regína og
bætir við að kjólinn verði pantað
ur að utan. „Þetta verður fallegur
prinsessukjóll. Dóttir okkar mun
svo fá að taka þátt í athöfninni,
ætli hún verði ekki blómastelpa.“
Regína verður sú fyrsta í vin
kvennahópnum til að ganga í það
heilaga. „Við erum nokkrar bún
ar að eignast börn en ég verð sú
fyrsta til að gifta mig,“ segir hún
en bætir aðspurð við að hún hafi
ekki gengið með brúðkaups
daginn í maganum síðan hún var
lítil. „Ég vil gifta mig. Bæði til að
geta kallað manninn minn eig
inmanninn minn og svo líka upp
á fjárhagslegt öryggi ef eitthvað
kemur fyrir. Annars vildi ég alltaf
halda lítið og kósí brúðkaup. Það
er miklu frekar maðurinn minn
sem „vill“ stórt og veglegt. Þetta er
pínu öfugsnúið,“ segir hún bros
andi að lokum. n
Gifta sig um jólin
Regína og Baldvin eru að safna fyrir brúðkaupinu
Diljá og
Róbert
Ætla gifta sig
í Kópavogs-
kirkju í júlí.
Ester og Ragnar
Þau hafa verið saman
í sjö ár og ætla að
gifta sig í júní.
Fjölskyldan Unga parið á eina dóttur,
Gyðu Marín.