Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 65

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Blaðsíða 65
Helgarblað 4.–7. apríl 2014 Brúðkaup 9 Förðun Aldísar Vörur: L‘Oréal Förðunarpenslar: Real Techniques Farðargrunnur/primer: Studio Secret Farði/meik: True Match foundation. Hann er olíulaus og hentar því öllum. Litur: W3. Púður: BB powder. Hyljari og Hightligther: Lumie Magique Concealer. Notaður undir augun og á þau svæði sem á að lýsa upp. Litur: medium. Sólarpúður: Glam Bronze LA terra 03. Kinnalitur: True Match Blush nr. 235. Apricot toast. Augnskuggi: Color Riche Quad, fjórir litir saman í einni pallettu. Litur nr: E4 Marron Glace. Infallible Eyeshadow nr. 16 Coconut (borið á allt lokið, grunnur) nr: 02 Hour beige, 05 purlpe obsession: Augabrúnablýantur: Color Riche Le Sourcil nr 302 golden brown. Eyeliner: Super Liner Gel. Maskari: Million Lashes Water Proof. Varalitur/gloss : Color Rich Sensual Rose nr 397 og Glam shine Forever Nude 103. Góð förðun skiptir höfuðmáli Förðunarfræðingur gefur góð ráð fyrir stóra daginn Glæsileg Hér er svo útkoman. Aldís gifti sig síðasta sumar og Elín sá um að farða hana. www.tvolif.is /barnshafandi opið virka daga 11-18 laugardaga 12-17 Lukkuleikur og léttar veitingar. Komdu og fagnaðu með okkur. Föstudag og Laugardag ( í Hjartarverndarhúsinu ) 9.ára afmæli 20% afsláttur af meðgöngu- og brjóstagjafafatnaði 10% afsláttur af öllum öðrum vörum fyrir móður og barn. E lín Ösp Rósudóttir er förðunar- fræðingur hjá L'Oréal. Hún sér oft um að farða brúðir á stóra deginum og segir að mörgu sé að hyggja. Aldís Arna Tryggva- dóttir gifti sig í fyrrasumar og Elín sá um að farða hana. Hér segir Elín frá því hvernig hún farðaði Aldísi og deilir góð- um ráðum fyrir stóra daginn: n Brúðkaupsdagurinn er sá dagur í þínu lífi sem þú átt að vera prinsessa, og öll athygli beinist að þér. Ef farið er í förðun munið að fara ávallt í prufu áður svo þið séuð fullkomlega ánægðar. n Brúðarförðun er mjög mismunandi eftir hvað hentar hverri konu. En mark- miðið er ávallt að draga fram það fal- legasta í hverri konu og gefa henni aukið sjálfsöryggi fyrir þennan stóra og mikilvæga dag. n Hafðu förðunina í samræmi við útlit þitt og hvernig þér finnst þú vera falleg- ust svo þér líði sem allra best. Förðunin má vera frekar sterk, jafnt í dag- sem og kvöldbrúðkaupi, myndirnar draga alltaf úr förðuninni. Í þeim tilfellum sem um brúðkaupið er seinnipartinn og veislu- hald um kvöld, þá er ráðlagt að vera að- eins meira farðaðar en í dagveislum. n Munið að vanda valið á förðunarvör- um, notið farðagrunn áður en farðinn er borinn á. Hann má einnig nota í kring- um augnsvæðið. Brúðurin þarf ávallt að geta treyst því að hún sé eins og hún var, þegar hún stóð upp úr förðunarstólum. n Andlitið á ekki að vera í öðrum lit en húðin á hálsi og bringu. Passið ávallt að velja farða sem samlagast vel húðinni og veitir henni ekki grímu. Veljið mis- munandi farða eftir því hvernig húðgerð brúðarinnar er. n Mótið andlitið með sólarpúðri eða dekkri farða. Dragið fram kinnbeinin og veljið fallegan kinnalit á þau – bleik- an ef þú hefur ljósa húð, ferskju ef hún er dökk. Mjög flott að setja highlight/glans ofan á kinnbeinin. n Þetta er tilvalið tækifæri til að ramma inn augun til að draga að þeim athygli. En ekki hafa bæði augun og varirnar í lykilhlutverki, heldur velja annað hvort. n Notaðu vatnsheldan maskara á þess- um degi, það er líklegt að þið tárist við athöfnina eða í myndatökunni ef hún er úti. Vatnsheldur maskari helst fullkom- lega á og smyrst ekki út. n Þegar þið farðið augun notið hvítan augnskugga á ljóspunkt (high light) und- ir augabrún ef þú ert ljós; hlýjan, ljósan ferskju- eða vanillulit ef húðin er dökk. n Taupe-brúnn, grár er fullkominn sem skyggingarlitur með ljósum eða kampa- vínslit. n Dekkið línuna við augnhárin með augnskugga. Ljóst litarhaft með mild- um litum, en með dekkra litar haft þarf að nota dekkri liti. Notið síðan eyeliner, ýmsar tegundir til. Auðvelt að búa til hvort sem er þunna línu eða breiða, og „smudgað“ hann til áður en hann þorn- ar allt eftir hvernig eyeliner þú vilt fá. Það fylgir pensill með þessum eyeliner. n Skerpið aðeins á augabrúnum en alls ekki gera þær of þungar eða dökkar. n Varaliturinn er oft lykilatriði en margar konur vilja ekki mikinn varalit og þá til- valið að velja ljósa varaliti og hafa gloss með sem endist lengi á. En fyrir þær sem vilja hafa varirnar í lykilhlutverki þá er ráðlagt að nota bjartari liti til dæmis bleikan eða ferskjutón. Fallegur varalitur getur verið dásamlegur og fallegur á öll- um myndatökum en kannski ekki alveg eins hentugur ef á kyssa brúðgumann mikið meðan á veisluhöldum stendur. En munið að varalitur endist lengur en gloss. n Hafið í veskinu einn varalit/gloss og gott matt púður til að púðra yfir T-svæð- ið. Vonandi hafið þið fengið fróðleik fyr- ir fallega brúðarförðun og getið tileink- að ykkur einhver leyndarmál förðunar- fræðingsins. Elín og Aldís Hér eru þær Elín og Aldís saman á stóra deginum. Elín segir að það sé mikilvægt að fara í prufuförðun fyrir stóra daginn og vera búinn að finna út hvernig förðun maður vilji.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.