Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Side 66
Helgarblað 4.–7. apríl 201410 Brúðkaup
Fágað og
frumlegt
Verslunarkeðjan Anthropologie
er þekkt fyrir að vilja skara fram
úr í bæði frumleika og fágun. Út-
stillingar versl-
ananna eru ávallt
forvitnilegar og
vörur til heimilis,
gjafavara og fatn-
aður handvalinn
í verslunina.
Hönnunarteymið
Vík Prjónsdóttir
hefur selt eitt
af teppum sín-
um í verslun-
inni og gæða-
bókaútgáfan
Crymogea hef-
ur fengið þar
inni með bækur
sínar.
Þjónusta
verslunarinn-
ar nær einnig til
verðandi brúða. Í verslunina
geta þær mætt og fengið ítarlega
ráðgjöf. Ekkert útibú verslunar-
innar er hér á landi en sem bet-
ur fer má notast við vefverslun-
ina, bæði til að kaupa vörur og til
að fá innblástur. Skraut, hringir,
brúðarkjólar, fylgihlutir, skór og
fallegir kjólar á brúðarmeyjar er
að finna í miklu úrvali.
A
ð gæsa eða steggja verð-
andi brúðhjón hefur fest
sig í sessi á Íslandi á síð-
ustu árum og eru fjölmargir
sem taka þátt í þessari hefð.
Oftast nær ganga þessir viðburðir út
á að skemmta sér í góðra vina hópi
en í mörgum tilvikum þarf brúður-
in eða brúðguminn að gera ýmis-
legt misjafnt, til að mynda að klæða
sig í skrýtin föt, drekka ótæpilega
eða gera aðrar kúnstir fyrir framan
almenning. Af nógu er að taka og
hægt er að fara í ýmsar ferðir víðs
vegar um landið. Til dæmis er hægt
að fara í sjóstangveiði, köfun, paint-
ball og margt annað sem margir hafa
kannski prufað áður.
Skemmtileg upplifun
En það er einnig hægt að prufa eitt-
hvað nýtt og þá er til dæmis hægt
að fara í „Bubble Football“ eða
bubble-bolta eins og það er nefnt
hérlendis. Bubble-bolti er skemmti-
leg og öðruvísi „íþrótt“ og er tiltölu-
lega nýtt fyrir bæri á Íslandi. Leik-
urinn er eins og venjulegur fótbolti
nema hér spila leikmenn inni í stór-
um uppblásnum kúlum. Fyrir þá
sem eru í höfuðborginni gæti einnig
verið skemmtilegt að fara í ferð um
borgina á Segway-hjóli. Fáir hafa
prufað Segway-hjól og er þetta því
kannski skemmtileg tilbreyting og ný
upplifun.
Sóttu stegginn í nokkra daga
Steggjunum og gæsunum fylgja oft
góðir hrekkir sem jafnan eru
festir á filmu og sýndir í
brúðkaupinu. Fjölmiðla-
maðurinn Logi Bergmann
gaf út bók fyrir nokkrum árum sem
hafði að geyma margar óborganlegar
sögur af hrekkjum í steggjunum. DV
sló á þráðinn til Loga og fékk hann til
að deila nokkrum eftirminnilegum
sögum. „Það er svona grunnpæl-
ingin í öllum svona hrekkjum að því
meira sem þú leggur á þig því betri
vinur ertu,“ segir Logi og rifjar upp
einn hrekk sem tók dá-
góðan tíma. „Þeir
sóttu hann
dag eftir
dag og tóku
alltaf ein-
hvern snún-
ing á honum.
Fyrst boðuðu
þeir hann í við-
tal sem var svo
grín og þegar það var búið
og hann hélt að steggjun-
in væri að byrja voru allir
farnir. Næsta dag sóttu þeir
hann og helltu hann fullan
og fóru með hann í brúnku-
sprei. Svo þegar það var búið
létu þeir sig hverfa aftur
og skildu
hann eft-
ir. Þeir
gerðu þetta svona
almennilega.“
Fátt hallærislegra
en búningar
Logi segir þó auðvelt að fara
yfir strikið í gríninu. „Steggjun
á bara að vera félagar að hitt-
ast og fá sér aðeins, en það
er voða auðvelt að fara
yfir strikið. Það er
rosaerfitt að mæta
með brúðgumann
í brúðkaupið með
glóðarauga eða á
hækjum. Reyna
hafa þetta svona
þannig að þetta
verði skemmtilegur
dagur,“ segir Logi og
bætir við að það sé
alveg dottið út að menn séu klædd-
ir upp í búninga eða kvenmannsföt:
„Það er fátt í heiminum hallærislegra
en það.“
Fáránlegt grín
Logi rifjar upp aðra góða sögu af
skemmtilegri steggjun. „Þeir fóru
með hann til tannlæknis og deyfðu
allt andlitið á honum, fóru með hann
að Vínbúð til að tala gegn áfengis-
bölinu,“ segir Logi og bætir við að
þótt þetta sé allt rosalega fyndið þá:
„… eftir á að hyggja var þetta eigin-
lega of fáránlegt. Þetta verður að vera
blanda af því að vera fyndið og innan
einhverra marka.“ n
„Voða auðvelt að
fara yfir strikið“
Margt skemmtilegt hægt að gera fyrir steggi og gæsir en passið að fara ekki yfir strikið
Bubble-bolti
Skemmtileg
hópskemmtun.
Logi Bergmann Logi er mikill
húmoristi og kann að meta góða hrekki.
Segway
Skemmtileg
tilbreyting.
Þetta á ekki að gera
Hrekkir og grín tengt steggjun-
um á það til að ganga dálítið of
langt. Það er því gott að hafa nokk-
ur atriði í huga sem tryggja að
steggjunin eða gæsunin verði sem
skemmtilegust fyrir þig og aðra
sem eiga í hlut.
Að missa sig daginn áður
Ekki fara út í einhverja vitleysu
daginn fyrir brúðkaupið. Það er
allt í lagi að halda steggjun eða
gæsun daginn áður, en ekki hafa
daginn þannig að viðkomandi er
settur í brúnkusprei, augabrún-
irnar rakaðar af og viðkomandi
svo látinn boxa í þrjár lotur við Ís-
landsmeistara í boxi. Það er allt
í lagi að sprella aðeins en ekki
þannig að brúðurin eða brúðgum-
inn séu lemstruð og súkkulaði-
brún, angandi af áfengislykt.
Blanda ókunnugum inn í
Það er öllum sama um að þú sért
að gifta þig. Það að þú sért klædd-
ur í sundbol og hárkollu, spilandi
á gítar í Kringlunni gefur þér ekki
leyfi til að angra næsta mann sem
vill bara fá að að versla á útsölunni
í friði. Farið frekar út á land eða
gerið eitthvað saman sem hópur.
Panta strippara
Ef þú ert að reyna að setja
heimsmet í klisjum máttu það
kannski. Eða nei, þú mátt það
ekki þar sem þú ert ekki að leika
í bandarískri unglingamynd. Auk
þess eru stripparar rándýrir og
peningunum er betur varið í að
gera eitthvað skemmtilegt eins og
að kaupa meiri bjór eða fara fínt
út að borða.
Vera of stillt
Það er líka bannað að gera ekki
eitthvað óvenjulegt eða „flippað.“
Steggjun eða gæsun er frábært
tækifæri til að skapa góðar minn-
ingar fyrir brúðina eða brúðgu-
mann, þannig að það er um að
gera að splæsa í fallhlífarstökk eða
fara á einhvern nýjan afskekkt-
an stað.
The Hangover Þessir gengu til dæmis
of langt í gleðinni.