Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2014, Síða 68
Helgarblað 4.–7. apríl 201412 Brúðkaup
Leiðarvísir að
góðu hjónabandi
1 Hafðu hemil á öðrum samböndum Ef þér er
umhugað um að varðveita eigin
hjónaband ættirðu að fara varlega
í öllum samskiptum við hitt kynið.
Ekki daðra um of við vinnufélaga
eða vini. Ef þú hefur ekki hemil á
þér getur það, án þess að þú ætlir
þér það, leitt til þess að þú farir að
horfa út fyrir hjónabandið þegar
eitthvað bjátar á heima. Grasið get
ur virst grænna hinum megin ár
innar.
2 Hlustaðu með athygli Hlustaðu á makann þegar
hann talar við þig og veittu honum
óskipta athygli. Með því sýnirðu
honum tilhlýðilega virðingu. Kink
aðu kolli af og til og sýndu að þú
sért að hlusta. Ef makinn reyn
ir að hefja samræður þegar
þú ert á kafi í einhverju
öðru, segðu þá frá því og
stingtu upp á að þið talið
saman að því loknu.
3 Gerið skemmtilega hluti Það er
mikil vægt í hjónabandi, eða
samböndum yfirhöfuð, að upp
lifa saman skemmtilegar stundir.
Æfið saman, farið á skíði eða stund
ið aðra skemmtilega útivist saman.
Slíkar samverustundir eru til þess
fallnar að styrkja sambandið og
fleyta ykkur yfir erfiðar hindranir
síðar meir.
4 Lærið af reynslunni Það er mikilvægt að þekkja sjálfan
sig. Ef þú veist að þú ert illa fyrir
kallaður þegar þú ert nývaknaður,
þreyttur eða svangur, reyndu þá að
takmarka samtöl við makann við
þær kringumstæður. Ekki stofna til
samtals um erfiða hluti þegar þú ert
illa upplagður. Ef þú veist að mak
inn kemst í uppnám við að ræða
tiltekinn ættingja, vin eða atvik,
reyndu þá að forðast slíka umræðu.
Lærðu af reynslunni.
5 Vertu kurteis
Sýndu kurteisi í
öllum samskipt
um við maka
þinn. Þakkaðu
honum fyrir þegar
hann réttir þér eitt
hvað, biddu fallega
þegar þú þarft að biðja
og notaðu setningar orðfæri
eins og „ekkert mál“ eða „það var
ekkert“ þegar maki þinn þakkar þér
fyrir. Ekki nota þessi orðasambönd í
kaldhæðni. Segðu frekar hvað er að
ef eitthvað angrar þig.
6 „Sko, hvað sagði ég?“ Forðastu að núa makanum
um nasir, ef hann hefur rangt fyr
ir sér á einn hátt eða annan. Það er
aðeins til þess fallið að særa. Ekki
segja „Hvað sagði ég?“ eða „Þetta
vissi ég“ þegar hann hleypur á sig.
Fólk segir þetta stundum til að sýna
fram á að það hafi haft rétt fyrir sér
og til þess að makinn fari frekar að
þeirra leiðbeiningum í framtíðinni.
Á hinn bóginn ber þetta vott um
ákveðið yfir læti og þú gefur til kynna
að makinn sé vitlaus. Þegar makinn
reynist hafa rangt fyrir sér er hann
fullfær um að komast að því sjálfur –
og læra af því.
7 Ekki tína allt til Ágreiningur um húsverk er oft fyrir
ferðarmikill í samböndum. Reyndu
að forðast að venja þig á að líta á
skipan húsverka sem einhvers konar
baráttu eða keppni. Auðvitað á hlut
verkaskiptingin á heimilinu að vera
sanngjörn en það getur verið ótrú
lega lýjandi að vera alltaf að fylgj
ast með því hvort makinn geri nóg.
Ekki gera það nema svo vilji til að
makinn sé sífellt að reyna að svíkjast
undan eða sé húðlatur að eðlisfari
og nauðsynlegt sé að halda honum
stíft við efnið.
8 Passaðu þig á smáatriðunum
Léttvægir hlutir
geta orðið að
stórum ágrein
ingsefnum í
samböndum.
Klassískir hlut
ir eins og að
klósettsetan sé
skilin eftir uppi,
óhrein tuska sett í
vaskinn, ágreiningur
um næturljós eða hitastig í herbergi
getur valdið leiðinlegum núningi
árum saman – svo ekki sé talað um
óhreina sokka á gólfum eða annan
óþrifnað. Freistið þess að komast að
samkomulagi um þessa litlu hluti,
svo hægt sé að einbeita sér að mik
ilvægari málefnum. Reyndu frekar
að nota léttvægt atriði til að byggja
upp sambandið. Það getur til dæm
is verið að færa makanum sælgæti
eða góða bók þegar hann á síst von
á. Ofurlítil gjöf á sambandsafmælis
daginn er til þess fallin að slá í gegn
og treysta böndin.
9 Heilsaðu innilega Brostu eða sýndu á annan
hátt ástúð þegar þú hittir makann
eftir langan vinnudag. Taktu utan
um hann og segðu eitthvað fal
legt. Þetta getur haft þau áhrif að
makanum líður betur – og verður
þannig betri maki. Bros getur
dimmu í dagsljós breytt – það er
engin lygi.
10 Virtu einkalífið Það er mikilvægt hverri
manneskju að geta verið í
einrúmi endrum og eins. Það
gildir jafnvel þótt fólk sé í hjóna
bandi og eigi heilan skara af börn
um. Gefðu makanum reglulega
kost á því. Það ber vott um traust
að laumast ekki í síma makans
og lesa ekki tölvupóstinn hans.
Sýndu makanum þá virðingu að
leyfa honum að hafa suma hluti út
af fyrir sig. Að sama skapi ættirðu
alltaf að halda trúnað við makann.
Ekki segja öðrum frá einkasamtöl
um ykkar um persónuleg málefni,
nema fyrir liggi samþykki. Sýndu
makanum þá virðingu.
Lauslega byggt á grein á vefsíð-
unni advancedlifeskills.com.
Hafið gaman Gerið reglulega
eitthvað skemmtilegt saman
– eitthvað sem inniheldur hreyf-
ingu eða útivist, svo dæmi séu
tekin. Að eiga reglulega ánægju-
legar stundir hjálpar ykkur að
komast í gegnum erfiðleika
síðar meir. Mynd SHutterStock
Lærðu af reynslunni og ekki núa makanum um nasir ef þú reynist hafa rétt fyrir þér