Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Qupperneq 4
4 Fréttir Vikublað 8.–10. apríl 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Ekkja Árna varð af
fimm milljörðum
Kristján Loftsson og viðskiptafélagar hagnast vel á kaupum á hlutabréfum Árna Vilhjálmssonar
E
ftirlifandi eiginkona Árna Vil
hjálmssonar, Ingibjörg Björns
dóttir, og systir hans, Krist
ín Vilhjálmsdóttir, urðu af um
fimm milljörðum króna þegar
hún seldi Kristjáni Loftssyni hluta
bréf í Fiskveiðihlutafélaginu Venusi í
fyrra. Venus er stór hluthafi í útgerðar
félaginu HB Granda, á samtals um 20
prósent. Kaupendur hlutabréfa fjöl
skyldu Árna í Venusi voru viðskiptafé
lagi hans til margra ára, Kristján Lofts
son, eiginkona hans, Birna Loftsdóttir,
og Sigríður Vilhjálmsdóttir.
Í síðustu viku fór fram útboð á
27 prósentum af í HB Granda og var
hluturinn seldur á bilinu 26,6 til 32,5
króna. Seljendur hlutabréfanna voru
Venus, Vogun hf., sem einnig var í
eigu þeirra Kristjáns og Árna heitins,
og Arion banki. Arion banki átti
stærsta hlutinn sem seldur var. Miðað
við verðmat á útgerðarfélaginu er það
tæplega 49 til 59 milljarða króna virði.
Miðað við þetta verðmat er undirliggj
andi verðmæti hlutarins í HB Granda
sem Ingibjörg seldi til Kristjáns og
viðskiptafélaga hans rúmir sex millj
arðar króna. Söluverðmæti hlutabréf
anna í HB Granda sem Ingibjörg seldi
í viðskiptunum á sínum tíma var hins
vegar einungis tæplega 1,3 milljarðar.
Margföldun kaupendanna á hagnaði
sínum í viðskiptum er því nokkur.
2,6 milljarða viðskipti
Líkt og DV greindi frá síðla árs í fyrra
greiddu Kristján og viðskiptafélagar
hans um 2,6 milljarða króna fyrir
31,44 prósenta hlut fjölskyldu Árna í
HB Granda í Venusi. Venus á ekki bara
hlutabréf í HB Granda heldur einnig í
hinu arðbæra fyrirtæki Hampiðjunni.
Greint var frá þessum viðskiptum í lok
ágúst síðastliðinn en kaupverðið hafði
ekki áður komið fram. Tekið skal fram
að Kristján átti forkaupsrétt að bréf
unum.
Núna liggur ljóst fyrir að Kristján,
Birna og Sigríður fengu hlutabréf Ingi
bjargar á afar hagstæðu verði. Bara
verðmæti hlutabréfanna sem Ingi
björg átti í HB Granda er um tvöfalt
meira en söluverð hlutarins í Venusi
en þá á eftir að reikna inn í þá tölu
verðmæti annarra hlutabréfa sem
seld voru, meðal annars í Hamp
iðjunni og Hval hf. Þó að Kristján og
viðskiptafélagar hans ekki selt öll
hlutabréfin sem þeir keyptu af Ingi
björgu og systur Árna þá liggur fyrir
að verðmæti þeirra er miklu meira en
það verð sem þeir greiddu fyrir þau.
Þreifingar um hlutabréf
Þegar Árni féll frá í fyrra lá fyrir að
annaðhvort myndi Ingibjörg eiga
áfram hlutabréfin í þeim fyrirtækjum
sem Árni átti eða selja þau. Ingibjörg
ákvað að selja bréfin og átti Kristján
forkaupsrétt að þeim. Ingibjörg gerði
Kristjáni tilboð um söluverð sem
hann hafnaði á þeim forsendum að
það væri of hátt. Kristján gerði þeim
svo Ingibjörgu og Kristínu gagntilboð
sem þær gengu að.
Athygli vekur að Kristján ætlaði
sér upphaflega ekki að kaupa hluta
bréfin og neitaði hann því í sam
tali við DV í júní í fyrra að það stæði
til. „Það stendur ekkert svoleiðis til,“
sagði Kristján þegar hann var inntur
eftir því hvort hann ætlaði að gera til
boð í bréfin. Hvatinn að viðskiptun
um kom hins vegar frá Ingibjörgu þar
sem hún virðist ekki hafa vilja eiga
þau áfram eftir fráfall eiginmanns
síns.
Nú liggur enn ljósar fyrir en það
gerði þá hversu góð viðskiptin voru
fyrir Árna og viðskiptafélaga hans.
Kristján sér því varla eftir þessum við
skiptum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Árni Vilhjálmsson lést á síðasta
ári, líkt og greint var frá á þeim
tíma. Hann átti langan feril
sem prófessor í Háskóla Íslands
og kaupsýslumaður. Hann og
Kristján Loftsson höfðu unnið
saman þegar hann lést. Þeir voru
stærstu hluthafar HB Granda,
stærsta útgerðarfélags landsins,
og stunduðu hvalveiðar í gegnum
Hval hf.
Kristján var alltaf andlit hvalveiðanna
út á við en Árni var ekki eins áhugasamur
um veiðarnar. Faðir Árna hafði stofnað Hval
hf. árið 1947. Félagið er því fjölskyldufyrir-
tæki hans. Saman keyptu þeir
Árni og Kristján svo Granda af
Reykjavíkurborg árið 1988 og
áttu félagið síðan að hluta og
voru ráðandi hluthafar.
Meðal þess sem Árna og
fjölskyldu hans greindi á um við
Kristján voru hvalveiðar Hvals
hf. og gagnrýndi dóttir Árna
þessar veiðar opinberlega. Ljóst
er að ekkja Árna hafði ekki mikinn áhuga á
áframhaldandi samvinnu við Kristján eftir
að maður hennar féll frá og er það meðal
annars ein af ástæðunum fyrir sölu hennar á
hlutabréfunum til Kristjáns í fyrra.
Fjölskyldufyrirtæki Árna
Áratuga samvinna
Þú getur kosið núna
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er hafin fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
A
tkvæðagreiðsla utan kjör
fundar hjá sýslumönnum
vegna sveitarstjórnarkosn
inga 31. maí 2014 hófst
laugardaginn 5. apríl 2014.
Þeir sem ekki geta greitt atkvæði
á kjördag geta því kosið utan kjör
fundar á skrifstofum og útibúum
allra sýslumanna og víðar. Þeir sem
eru staddir erlendis eða búa erlendis
en eru kjörgengir á Íslandi geta greitt
atkvæði á vegum utanríkisráðuneyt
isins frá og með mánudeginum 7.
apríl. Sveitarstjórnarkosningarnar
fara fram í maí og verður kosið til
sveitarstjórna í 74 sveitarfélögum.
Á næstu dögum og vikum ættu
endanlegir framboðslistar að liggja
fyrir í öllum sveitarfélögum, sem og
listabókstafir. Framboðsfresturinn
rennur út þann 10. maí næstkom
andi og þann 13. maí munu yfirkjör
stjórnir sveitarfélaganna auglýsa
framkomin framboð.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
hefst áður en framboðslistar liggja
frammi og hafa verið staðfestir og
geta kjósendur því aðeins valið
listabókstaf, en ekki strikað út ein
staka nöfn eða raðað á lista. Þeir
sem kjósa á kjörstöðum erlendis
þurfa að koma atkvæði sínu sjálfir
heim og kosta það. Viðkomandi þarf
að senda atkvæði sitt til sýslumanns
eða kjörstjórnar þar sem hann er á
kjörskrá. n
astasigrun@dv.is
Margföld ávöxtun Kristján Loftsson
hagnast vel á viðskiptum sínum við ekkju
Árna Vilhjálmssonar.
Ingibjörg Björnsdóttir
Tók gagntilboði Kristjáns Lofts-
sonar í hlutabréf í Venusi.
Fleiri gista
á hótelum
Gistinætur á hótelum í febrúar
voru 160.400, en það er þrettán
prósenta aukning miðað við febr
úar 2013. Þetta kemur fram í töl
um sem Hagstofa Íslands birti
á föstudag. Gistinætur erlendra
gesta voru 84 prósent af heildar
fjölda gistinátta en þeim fjölg
aði um 25 prósent frá sama tíma
í fyrra. Gistinóttum Íslendinga
fækkaði hins vegar lítillega, eða
um eitt prósent.
Hlutfallslega fjölgaði gisti
nóttum mest á Suðurnesjum,
eða um 39 prósent. Gistinóttum
á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði
um 16 prósent og 12 prósent á
Norðurlandi. Gistinóttum fækk
aði í tveimur landshlutum; sam
eiginlegu svæði Vesturlands
og Vestfjarða og á Austurlandi.
Tölurnar taka eingöngu til hótela
sem opin eru allt árið.
Atkvæðagreiðsla Þeir sem þegar vita hvað þær ætla að kjósa í komandi kosningum
geta gert það. Mynd SIgtryggur ArI
Farþegar munu
ekki komast
inn í fríhöfnina
Flugáætlun verði komin í rétt
horf á miðvikudag
„Þetta er náttúrlega búið að
ganga alveg rosalega hægt og við
verðum að halda áfram að fikra
okkur áfram. Á endanum náum
við að semja, ég er alveg viss um
það,“ segir Kristján Jóhannsson,
formaður og framkvæmdastjóri
Félags flugmálastarfsmanna
ríkisins, við DV. Þegar þetta var
skrifað stefndi allt í verkfall hjá
starfsfólki Isavia. Til stóð að
leggja niður störf frá klukkan 4.00
til 9.00 á þriðjudagsmorgun.
Flugstöðin á Keflavíkurflug
velli verður opin og farþegar
Icelandair geta notað sjálfsinn
ritunarstöðvar fyrir klukkan
níu. Hefðbundin innritun, far
angursafhending og vopnaleit
hefst ekki fyrr en eftir klukkan
níu. Farþegar komast því ekki inn
á fríhafnarsvæði eða að brott
fararhliðum fyrr en eftir þann
tíma. Takist ekki að semja fyrir 23.
apríl mun starfsfólk aftur leggja
niður störf á sama tíma þann dag.