Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 22. október 2010 föstudagur
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
ÞÆGILEGIR & LÉTTIR
www.gabor.is
Sérverslun með
Stærðir 35-42
Verð kr. 16.495.-
N1 í bókaútgáfu:
„Ein með öllu
og Jónína Ben“
„Ætli menn biðji ekki bara um eina
með öllu og Jónínu Ben,“ segir at-
hafnakonan Jónína benediktsdótt-
ir. Ný bók hennar
verður til sölu á
sölustöðum N1
en olíufélagið
hefur keypt dreif-
ingarréttinn að
bókinni.
„Jú, þetta er
vissulega nýjung
hjá okkur, við
höfum aldrei
áður tekið þátt í
jólabókaflóðinu,“ segir Hermann
guðmundsson, forstjóri N1, en auk
bókar Jónínu mun fyrirtækið annast
dreifingu og sölu á bók björgvins g.
Sigurðssonar, fyrrverandi viðskipta-
ráðherra.
Hermann segir að vegna sam-
dráttar í öllu hagkerfinu hafi N1
ákveðið að nýta útsölustaði sína enn
betur. „Okkur vantar fleiri verkefni
fyrir okkar fólk og við teljum okkur
hafa eitthvað til málanna að leggja,“
bætir hann við.
Hann bendir jafnframt á að með
þessu verði komnar 70 bókaverslanir
um allt land og N1 sé að færa mikla
þjónustu út í hinar dreifðu byggðir
þar sem ekki eru bókabúðir í dag.
Beðið hefur verið eftir bók Jónínu
með mikilli eftirvæntingu en Jónína
hefur átt litríka ævi og vakið athygli
áratugum saman.
Dularfull ljós í
kirkjugarði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fékk tilkynningu um dularfullan
ljósagang í Gufuneskirkjugarði
aðfaranótt fimmtudags. Sam-
kvæmt lögreglu áttu einhverjir
að vera á ferli í garðinum en ekki
var vitað hvort þeir væru lífs eða
liðnir. Tveir lögreglumenn voru
sendir á staðinn og þar mætti
þeim strax sterkt ljós.
Við frekari eftirgrennslan
reyndist birtan koma frá ljóskast-
ara sem framhaldsskólapiltar
burðuðust með og því voru engir
draugar á ferð. Strákarnir voru
einnig með upptökuvél í fórum
sínum en þeir voru að vinna að
skólaverkefni. Piltunum var leyft
að klára verkefnið en lögregla
tekur þó fram að tímasetningin
hefði mátt vera betri.
Hermann
guðmundsson
Rekstrartekjur Árvakurs, útgáfufé-
lags Morgunblaðsins, lækkuðu um
milljarð króna á milli ára 2008 og
2009. Rekstrartekjur Árvakurs námu
um 2,6 milljörðum króna í fyrra sam-
anborið við 3,6 milljarða króna árið
2008. Þetta kemur fram í ársreikningi
Árvakurs sem skilað var til ársreikn-
ingaskrár í vikunni. Tekjur Árvak-
urs eru meðal annars þeir fjármunir
sem félagið fær fyrir sölu auglýsinga
í Morgunblaðið og sölu áskrifta –
Mogginn hefur sögulega séð ekki
verið mikið lausasölublað heldur
reitt sig mikið á áskriftir.
Annað áhugavert við ársreikn-
inginn er að rekstrartap Árvakurs
nam 667 milljónum króna á árinu og
lán félagsins voru færð niður um 4,6
milljarða króna þegar eignarhaldsfé-
lagið Þórsmörk keypti útgáfufélagið
af Íslandsbanka á árinu. Skuldir Ár-
vakurs voru tæplega 5,9 milljarð-
ar í lok árs 2008 en voru tæplega 2,3
milljarðar í lok árs 2009.
Skuldastaða Árvakurs er því
margfalt viðráðanlegri um þessar
mundir en fyrir eigendaskiptin á fé-
laginu auk þess sem afar fjársterkir
aðilar keyptu félagið, meðal annars
Guðbjörg Matthíasdóttir, Þorsteinn
M. Baldvinsson og Gunnar Dungal.
Ljóst er að þessi hluthafahópur á
nægilega fjármuni til að geta leyft sér
að reka blaðið með tapi um tíma en
spurningin er hversu lengi hann sé
reiðubúinn til þess.
Blaðið skipti um eigendur árið
2009eftir langt og erfitt söluferli og
nokkrum mánuðum síðar var Davíð
Oddsson ráðinn ritstjóri blaðsins í
staðinn fyrir Ólaf Stephensen. Í kjöl-
farið sögðu á milli 10 og 13 þúsund
áskrifendur blaðinu upp. ingi@dv.is
Ársreikningur Árvakurs sýnir mikinn tekjumissi á árinu 2009:
Lækkuðu um milljarð
Styr um Davíð Á einu ári hafa tekjur
útgáfufélags blaðsins minnkað um einn
milljarð króna og áskrifendum hefur
fækkað um þriðjung.
„Hún var glaðvær og hugrökk og
leit heiminn björtum augum,“ seg-
ir Reynir Torfason, fjölskylduvinur
Dagbjartar Þóru Tryggvadóttur
sem lést í umferðarslysi í borginni
Mugla í Tyrklandi á miðvikudag.
Eiginmaður Dagbjartar, Jóhann
Árnason, lést einnig í slysinu. Þau
láta eftir sig sex mánaða son en
hann var einnig í bifreiðinni þeg-
ar slysið varð. Þótt ótrúlegt megi
virðast slapp hann án meiðsla og
er kallaður „kraftaverkabarnið“
í tyrkneskum fjölmiðlum. Dag-
björtu er lýst sem glaðværri og
hugrakkri ungri konu sem var
sannur vinur vina sinna.
„Var góð manneskja“
Slysið varð um hádegisbil að stað-
artíma á miðvikudag í borginni
Mugla sem er í suðvesturhluta
Tyrklands. Talið er að ökumaður
bílsins hafi misst stjórn á honum
með þeim afleiðingum að hann
skall framan á sendiferðabíl sem
kom á móti. Fólk sem var í sendi-
ferðabílnum var flutt á sjúkrahús
með töluverð meiðsli. Mikil rign-
ing var á svæðinu þegar slysið varð
en lögreglan á svæðinu vinnur að
rannsókn málsins.
„Hún var góð manneskja,“ seg-
ir móðir Dagbjartar, Rósa Haralds-
dóttir Kjeld, þegar hún er beðin
um að lýsa dóttur sinni.
aðstandendur til tyrklands
Utanríkisráðuneytið og ræðis-
maður Íslands í Tyrklandi hafa
aðstoðað fjölskyldur Dagbjartar
og Jóhanns við að fá barnið heim
en aðstandendur hjónanna héldu
til Tyrklands á fimmtudag til þess
að sækja drenginn. Dagbjört og
Jóhann bjuggu í Horsens í Dan-
mörku þar sem þau voru við nám.
Þau voru á ferðalagi í Marmaris á
Tyrklandi þegar hið hörmulega
slys átti sér stað. Dagbjört var
fædd árið 1976 og Jóhann 1985.
Það þykir ganga kraftaverki
næst að sonur þeirra hafi slopp-
ið nánast ómeiddur frá slysinu.
Hann er nú í umsjá ræðismanns
Íslands í Tyrklandi en afi hans
og fleiri ættingjar eru nú á leið
til Tyrklands til að koma honum
heim til Íslands.
afar hugrökk
Reynir Torfason þekkti vel til
Dagbjartar og er náinn vinur fjöl-
skyldunnar. Hann segir það ekki
fara á milli mála að það hafi allt
verið gott í fari Dagbjartar. „Hún
var glaðvær og það geislaði af
henni hvert sem hún fór,“ seg-
ir Reynir sem þekkti Dagbjörtu
alla hennar ævi. „Í návist hennar
leið manni ósjálfrátt betur,“ seg-
ir Reynir. Dagbjört hafði glímt
við erfið veikindi og segir Reyn-
ir hana hafa verið afar hugrakka.
„Hún var mjög hugrökk og leit
heiminn björtum augum,“ segir
Reynir og tekur fram að sinn hug-
ur sé allur hjá foreldrum hennar.
„GEISLAÐI AF HENNI
HVERT SEM HÚN FÓR“
Hjónin Dagbjört Þóra tryggvadóttir og Jóhann árnason létust í bílslysi á mið-
vikudag í Tyrklandi. Hjónin láta eftir sig sex mánaða son sem var með í bílnum
en hann slapp ómeiddur. Aðstandendur Dagbjartar lýsa henni sem glaðværri og
hugrakkri manneskju. Dagbjört var 34 ára og Jóhann 25 ára.
birgir olgeirSSoN og
guNNHilDur SteiNarSD.
blaðamenn skrifa: birgir@dv.is og gunnhildur@dv.is
Í návist henn-ar leið manni
ósjálfrátt betur
Mikill harmur Jóhann
Árnason og Dagbjört Þóra
Tryggvadóttir. Hjónin ungu
láta eftir sig sex mánaða
gamlan son.
Dagbjört Þóra Tryggvadóttir
F. 20. janúar 1976 – D. 20. október 2010
Jóhann Árnason
F. 23. janúar 1985 – D. 20. október 2010