Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 48
48 LÍFSSTÍLL UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR indiana@dv.is 22. október 2010 FÖSTUDAGUR
6 atriði sem konur
standast ekki
Sjálfstraust
Yfirvegaður og öruggur karlmaður sem
minnir helst á James Dean getur gert
hverja konu brjálaða.
Hreysti
Karlmaður sem hugsar vel um líkama
sinn er aðlaðandi, burtséð frá hæð og
þyngd. Það er eitthvað heillandi við
karlmann sem setur heilsuna í forgang.
Ef hann hugsar vel um sig eru líkurnar
meiri á að hann hugsi vel um makann.
Stíll
Sjálfur stíllinn skiptir ekki máli. Hann
getur verið eins og nýklipptur út úr
tískublaði, nýstiginn af Wall Street eða
skreyttur húðflúri. Að hafa stíl skiptir
máli. Það er ekkert æsandi við mann sem
klæðist sömu gallabuxunum við sama
slitna bolinn alla daga.
Lyktin
Enginn karlmaður getur stjórnað sinni
náttúrulegu lykt en með smá hjálp
rakspíra geta allir karlmenn lyktað vel.
Passaðu samt að sprauta ekki of miklu
á þig.
Ástúðlegur
Leggðu handlegginn yfir axlirnar á henni
þegar þið gangið saman. Segðu henni
líka reglulega hvers virði hún er þér.
Hlátur
Kímnigáfa er tælandi en líka mismun-
andi. Fæstum konum finnst niður-
lægjandi brandarar á kostnað annarra
fyndnir.
Einkaþjálfari Hollywood-stjarnanna segir mikilvægast að hreyfingin komist í rútínu:
Vertu eins og stjörnurnar
Hættu án
þess að
þyngjast
Samkvæmt prófessor Richard D.
Hurt geturðu hætt að reykja án þess
að þyngjast. Hurt segir mikilvægast
að huga að hreyfingu. „Regluleg
hreyfing brennir ekki aðeins kalóríum
heldur minnkar fráhvarfseinkennin,“
segir Hurt sem segir gáfulegt
fæðuval einnig mikilvægt. „Skipu-
leggðu matartímana svo þú fallir ekki
í freistni. Borðaðu mikið af ávöxtum
og grænmeti. Hafðu skammtana
minni og takmarkaðu sætindi og
áfengi. Veldu hollan millibita. Ef þú
finnur fyrir hungri milli mála eða á
kvöldin fáðu þér þá þurrkaða ávexti,
fitusnautt poppkorn og fitusnauða
jógúrt.“
Glápið
skaðar
Foreldrar ættu að fela fjarstýringuna ef
það er eina leiðin til að takmarka gláp
barnanna. Í rannsókn, sem framkvæmd
var af vísindamönnum við háskólann
í Bristol, kom í ljós að börn sem eyða
tveimur tímum eða lengri tíma fyrir
framan sjónvarp eða tölvu á hverjum
degi eiga við meiri félagsleg og andleg
vandamál að stríða en skólafélagar
þeirra. Öfugt við niðurstöður fyrri
rannsókna kom í
ljós að neikvæðum
áhrifum glápsins er
ekki hægt að snúa
við með aukinni
hreyfingu. Börn
sem hreyfðu sig
reglulega en
eyddu meira en
tveimur tímum á
dag fyrir framan
skjáinn áttu í
meiri vandræðum
en þau sem gláptu
minna og hreyfðu
sig minna.
Ef þú hefur hvorki tíma né peninga
til að kaupa þér kort í ræktinni hef-
ur stjörnueinkaþjálfarinn Ramona
Braganza lausnir handa þér. Ramona
er fræg í Hollywood og hefur hjálp-
að mörgum stærstu stjörnunum í
form eins og leikkonunum Jessicu
Alba, Halle Berry og Anne Hatha-
way. „Hreyfingin verður að komast
inn í daglegu rútínuna og sjálf yrði ég
brjáluð ef ég þyrfti að fara inn á lík-
amsræktarstöð á hverjum degi,“ segir
Ramona sem mælir með að fólk hreyfi
sig sem mest úti í náttúrunni. Ramona
mælir með því að fólk skelli sér á
skauta en samkvæmt hennar mæling-
um eyðum við 425 hitaeiningum með
því að skauta í hálftíma. „Með því að
hlaupa eyðum við 374 hitaeiningum á
hálftíma og 300 fara ef við leikum okk-
ur með húlahring í 30 mínútur,“ segir
einkaþjálfarinn sem segir bæði Bey-
oncé og leikkonuna Marisu Tomei
elska æfingar með húlahringi.
Samkvæmt Ramonu eyðum við
272 hitaeiningum í hálftíma tennis-
leik, 221 með hálftíma dansæfingu og
170 með rösklegum hálftíma göngu-
túr. „Lykillinn er að stunda þessar
æfingar hraustlega. Taktu vel á því!
Letilegt rölt með vinkonunni brennir
nákvæmlega engum kaloríum,“ segir
Ramona og bætir við: „Ef þú hefur ekki
hreyft þig í langan tíma skaltu byrja
á því að heimsækja lækninn þinn.
Byrjaðu svo rólega. Farðu í göngutúra
og færðu þig svo upp á skaftið.“
Flottar Leikkonurnar Halle Berry og
Jessica Alba eru á meðal viðskiptavina
Ramonu Braganza.
Í risastórri rannsókn um kynlíf, þeirri
viðamestu af sinni gerð í Bandaríkj-
unum, kom margt forvitnilegt í ljós.
Vísindamenn við háskólann í Indí-
ana-ríki spurðu fjöldann allan af fólki
á aldrinum 14 til 94 ára um allt frá
smokkanotkun og samkynhneigð til
fullnæginga en rannsóknin var fram-
kvæmd fyrir National Survey of Sexu-
al Health and Behavior. Þetta er fyrsta
stóra kynlífsrannsóknin sem fram-
kvæmd er í Ameríku í tvo áratugi og sú
fyrsta sem tekur kynhegðun unglinga
með í reikninginn. „Fólk er oft forvitið
um kynlíf annarra,“ segir Debby Her-
benick, einn af þeim vísindamönnum
sem stóð að rannsókninni. „Okkar
niðurstöður gefa okkur svör við ýms-
um algengum spurningum og sýna
hvernig kynhegðun hefur breyst á
þessum 20 árum síðan síðasta rann-
sókn var framkvæmd.“ Hægt er að
lesa niðurstöðurnar í heild sinni í nýj-
asta tölublaði The Journal of Sexual
Medicine en hér eru topp fimm at-
riði sem komu fræðimönnum mest á
óvart í niðurstöðunum.
1. Mega taka unglingana sér
til fyrirmyndar
Í rannsókninni kom fram að ein-
hleypir nota smokk í einu af hverj-
um þremur skiptum. Smokkanotk-
un mældist mest hjá unglingum: 14
til 17 ára drengir nota smokka í 80%
tilfella og stúlkur á sama aldri í 58%
tilfella. Enn fremur kom í ljós að
svartir (33%) og spænskir (37%) full-
orðnir karlmenn nota frekar smokka
en hvítir (22%) fullorðnir karlmenn.
Hvað varðar konur nota svartar am-
erískar konur helst smokkinn, eða
36% á móti 20% hvítra kvenna.
2. Margir prófað hitt liðið
Um 8% aðspurðra karlmanna og
7% kvenna skilgreindu sig sem
samkynhneigð. Mun fleiri sögð-
ust þó hafa átt í kynferðislegu
sambandi við einstakling af sama
kyni einhvern tímann á lífsleið-
inni. Þar áttu karlmenn vinning-
inn sem flestir sögðust hafa þegið
munnmök frá öðrum karlmanni.
Þær tölur fóru hækkandi með
aldrinum upp að sextugu. Svipað-
ar tölur voru yfir konurnar en þær
prófa sig fekar áfram á sínum yngri
árum. Um 11% karlmanna á aldr-
inum 20 til 24 ára sögðust hafa átt
samfarir við annan karlmann en
9% karlmanna á aldrinum 40 til 50
ára.
3. Karlmenn vilja stöðug-
leika, konur fjölbreytni
Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á
rótgrónar hugmyndir um að karl-
menn vilji nýbreytni í kynlífið en
konur það gagnstæða. Í ljós kom að á
meðan karlmenn eru líklegri til að ná
fullnægingu og ólíklegri til að upplifa
einhvers konar vandamál í kynlíf-
inu eru fullnægingar kvenna frekar
tengdar fjölbreyttum stellingum og
mismunandi framferði á meðan á
ástarleiknum stóð.
4. Kynlíf unglinga
í ljós kom að stór hluti unglinga eru
kynferðislega virkir. Á meðal 14 og
15 ára drengja sögðust 68% stunda
sjálfsfróun en 79% drengja á aldrin-
um 16 og 17 ára. Um 43% stúlkna á
aldrinum 14 og 15 ára sögðust ein-
hvern tímann hafa fróað sér og 54%
stúlkna á aldrinum 16 og 17 ára. Um
32% stúlkna á þeim aldri höfðu haft
samfarir og 30% drengja.
5. The big „O“
Langflestir karlmenn fá fullnægingu í
samförum. Ekki er hægt að segja það
sama um konur, samkvæmt rann-
sókninni. Flestar þeirra sögðust frekar
fá fullnægingu með öðrum aðferðum
en samförum og helst ef fjölbreytn-
in er til staðar. Þær konur sem lifðu
miklu og fjölbreyttu kynlífi eru líkleg-
astar til að upplifa raðfullnægingu.
Fullorðið fólk stundar ekki jafn
öruggt kynlíf og unglingar,
samkvæmt nýrri banda-
rískri rannsókn á kyn-
hegðun. Rannsóknin var
framkvæmd fyrir National
Survey of Sexual Health
and Behavior og er sú
stærsta sinnar teg-
undar í tvo áratugi.
Hér eru fimm
atriði sem komu
fræðimönnum
einna mest á
óvart við nið-
urstöðurnar.
Þær konur sem lifðu miklu og fjölbreyttu kynlífi reyndust lík-
legri til að upplifa raðfullnægingu.
Stöðugleiki
eða fjölbreytni
Öruggt kynlíf? Í
rannsókninni kom
fram að einhleypir
nota smokk í einu
af hverjum þremur
skiptum. Unglingspiltar
eru duglegastir við að
nota smokkinn.