Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 42
42 sakamál umsjón: kolbeinn þorsteinsson kolbeinn@dv.is 22. október 2010 FÖSTUDAGUR
m arie-Carmen Lor-ente var gjörsam-lega niðurbrotin eftir að sextugur
nágranni hennar nauðgaði þrett-
án ára dóttur hennar, Veronicu.
Mæðg urnar bjuggu í Benejuzar,
þorpi við Miðjarðarhafið um 65
kílómetra frá Alicante á Spáni. Við
réttarhöldin var því lýst hvernig
Velasco hafði gripið stúlkuna þeg-
ar hún kom við í bakaríi á leið sinni
heim úr skólanum 17. októ ber 1998,
lagði hníf við háls hennar, dró hana
inn í skóg og nauðgaði henni. Það
varð Marie-Carmen örlítil huggun
að nágranninn, Angelo Velasco, var
dæmdur til níu ára fangelsisvistar
fyrir glæp sinn en það var skamm-
góður vermir, því eftir sjö ár var Vel-
asco laus úr fangelsi vegna góðrar
hegðunar.
Reyndar voru þau sjö ár sem
hann sat inni verri en fangelsisvist
fyrir móður Veronicu því auk þess
áfalls sem dóttir hennar hafði orðið
fyrir þurfti Marie-Carmen að lifa við
daglegar svívirðingar af hálfu fjöl-
skyldu Velascos, sem virtist álíta að
Velasco hefði verið ranglæti beittur.
Hnífnum snúið í sárinu
Marie-Carmen tók þá ákvörðun rétt
áður en Velasco var sleppt úr fang-
elsi að flytja í annan hluta þorpsins
og reyna þannig að fjarlægjast upp-
sprettu slæmu minninganna sem
ásóttu hana daglega.
En dag einn, um miðjan júní
árið 2005, þegar hún gekk í mak-
indum eftir aðalgötunni, heyrði
hún hæðnislega rödd að baki sér:
„Og hvernig hefur dóttir þín það?“
Angelo Velasco var frjáls maður.
Marie-Carmen fannst sem hæðnis-
leg rödd Velascos fylgdi henn hvar
sem hún fór og það var ekki fjarri
lagi.
Þegar hún tyllti sér inn á eftirlæt-
iskaffihúsið sitt til að fá sér morgun-
kaffið sat hann við næsta borð: „Og
hvernig hefur dóttir þín það?“
Hefnd móðurinnar
Hugur Marie-Carmen fór á fleygi-
ferð; hún var þess fullviss að Velas-
co hygðist ráðast aftur á Veronicu.
Eðli málsins samkvæmt var Marie-
Carmen enn, þrátt fyrir allan þann
tíma sem liðinn var frá nauðgun-
inni, full ótta og viðbjóðs á mannin-
um sem hafði svívirt dóttur hennar
og fjölskylduna. Tilhugsunin um að
hann byggi jafn nærri og hann gerði
sendi hroll gegnum líkama hennar.
Skyndilega gerði hún upp hug
sinn. Hann kláraði úr kaffibollan-
um og skundaði út af kaffihúsinu.
Tæplega hundrað metrum neðar í
götunni var bensínstöð. Þar keypti
hún fimm lítra brúsa með bensíni,
fór aftur inn á kaffihúsið og gekk
ákveðnum skrefum að Angelo Vel-
asco.
„Þú vilt fá að vita hvernig dótt-
ir mín hefur það,“ sagði hún. Áður
en Velasco fékk ráðrúm til að svara
hellti hún innihaldi brúsans yfir
hann, tendraði eldspýtu og í sömu
andrá og hún færði sig fjær honum
kastaði hún logandi eldspýtunni í
hann.
brann eins og kyndill
Angelo Velasco varð alelda á auga-
bragði og gestir kaffihússins þyrpt-
ust að útidyrunum. Velasco reyndi
öskrandi að ná til Marie-Carmen
í gegnum logana en síðan hökti
hann að dyrunum líkt og kófdrukk-
inn maður.
Eigandi kaffihússins brást hrað-
ar við en nokkur annar og greip
slökkvitæki og tæmdi það yfir Vel-
asco, sem hann reyndar rétt gat séð
í eldhafinu. Aðgerðir vertsins báru
árangur og eldurinn var slökktur,
en eftir lá Velasco, veinandi ámát-
lega og skaðbrenndur á gólfinu.
Lyktin af brunnu holdi lá í loftinu á
kaffihúsinu löngu eftir að sjúkralið-
ar höfðu náð í Velasco.
Angelo Velasco náði sér aldrei
og dó kvalafullum dauðdaga á
sjúkrahúsi tíu dögum síðar.
Í millitíðinni hafði Marie-Car-
men verið lögð í stuttan tíma inn á
geðdeild og verið útskrifuð nokkr-
um dögum síðar.
klofið þorp
Þegar hún kom aftur heim til Bene-
juzar var þorpið í uppnámi. Íbúar
þess höfðu skipast í tvo hópa – þá
sem studdu hana og þá sem gerðu
það ekki.
Þeir sem studdu Velasco-fjöl-
skylduna fullyrtu að Veronica bæri
sjálf ábyrgð á því sem gerðist 1998;
hún hefði hvatt Angelo til samræð-
is.
Stuðningsfólki Marie-Carmen
fannst sú fullyrðing með ólíkind-
um, ekki síst í ljósi þess að Veronica
hafði verið þrettán ára á þeim tíma
og Angelo Velasco sextugur. Stuðn-
ingsmenn Marie-Carmen töldu að
Angelo Velasco hefði fengið makleg
málagjöld.
Af ótta við að nauðgari dóttur hennar endurtæki ódæðið
ákvað Marie-Carmen að grípa til sinna ráða. Þegar nauðg-
arinn, Angelo Velasco, varð frjáls maður hóf hann að ögra
móðurinni og hún afréð að jafna metin.
Móðurhefndin
Marie-Carmen Ákvað að
hefna fyrir dóttur sína.
Angelo Velasco nauðgaði
sextugur þrettán ára stúlku.