Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 15
föstudagur 22. október 2010 nærmynd 15
maður. Hann er mjög góður að tala
og sannfæra fólk. Hann getur tal-
að gríðarlega hátt, hratt og skýrt og
verið gríðarlega mælskur. Þetta kom
sér mjög vel fyrir hann þegar hann
starfaði sem verðbréfamiðlari. Góð-
ir miðlarar eru oft þeir sem eru mjög
góðir í kjaftinum.“
Meðal þess sem sagt er um Heið-
ar er að Björgólfur Thor hafi gjarnan
sent hann á fjölmenna fundi þar sem
talsmaður Björgólfs þurfti að koma
vel fyrir. „Þetta er maður sem getur
staðið upp í þúsund mann sal innan
um fullt af fjármálamönnum og tjáð
sig, rifið kjaft og komið vel fyrir. Hann
er bæði mjög rökfastur og mjög góð-
ur í ensku. Og þegar hann verður
æstur þá stendur bunann bara út úr
honum. Hann er eins og vélbyssu-
kjaftur. Það er ótrúlegt að sjá þetta,“
segir viðmælandi blaðsins.
Annar heimildarmaður blaðs-
ins, sem er fyrrverandi skólafélagi
Heiðars, segir einnig að hann sé
mjög vel gefinn „Þetta er bráðgáfað
kvikindi með mikla þekkingu á fjár-
málaheiminum. Ég veit hins vegar
ekkert hvernig rekstrarmaður hann
er. Hann var dúx eða semidúx þeg-
ar hann var í Versló og tvíburabróð-
ir hans var á svipuðum slóðum. Þeir
hafa báðir alltaf skarað fram úr í því
námi sem þeir hafa verið í. Hann
þurfti samt ekkert að hafa mikið fyr-
ir því og tók mikinn þátt í skemmt-
analífinu samhliða náminu og fannst
gaman að fá sér í glas.“
Heiðar fór í hagfræði í Háskóla Ís-
lands eftir Verslunarskólann. Hann
er giftur Sigríði Sól Björnsdóttur, sem
er dóttir Björns Bjarnasonar, fyrrver-
andi þingmanns og ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins, og eiga þau saman
tvo drengi.
Auk þess að hafa mikla þekkingu
á fjármálaheiminum bendir einn
heimildarmaður DV á að Heiðar
Már sé dýpri en margir aðrir verð-
bréfamiðlarar og hafi yfir meiri þekk-
ingu að ráða. „Þetta er gaur sem er
til dæmis vel lesinn í bókmenntum.
Hann er svo miklu dýpri en marg-
ir af þessum verðbréfamiðlurum
sem hafa bara vit og þekkingu á ein-
hverjum bissnesmálum. Hann er
með ansi mikla þekkingu á breiðum
grunni og getur kvótað í bókmenntir
og annað slíkt án þess að blikna.“
Ákafur og hrokafullur
Heiðar Már hefur það orðspor að
„HEIÐAR ER GAMBLER“
n Vogunarsjóðurinn, sem stundum var nefndur Gír-sjóðurinn meðal manna í fjár-
málalífinu, var skrásettur á Caymaneyju í Karíbahafinu. Heiðar Már stýrði sjóðnum
þegar hann var starfsmaður útibús Kaupþings í New York ásamt Hreiðari Má
Sigurðssyni og fleirum. Hann fékkst meðal annars við að kaupa íslensk skuldabréf
og koma þeim í verð í Bandaríkjunum. Þetta er það sem Heiðar Már var snemma á
starfsferli sínum hvað frægastur fyrir: Að ná að selja íslensk skuldabréf til erlendra
aðila. Heiðar Már náði meiri árangri í þessu en aðrir íslenskir fjármálamenn.
GIR-sjóðurinn komst í fréttirnar eftir hrunið 2008 í tengslum við upplýsingar sem
Ari Matthíasson hagfræðingur lagði fram hjá skattayfirvöldum um einkennilega
kynningu á starfsemi sjóðsins á Hótel Holti fyrir um áratug. Gert var ráð fyrir að
sjóðurinn færi aldrei niður fyrir 2 milljarða króna. Lofað var 40 til 50 prósenta
árlegri ávöxtun og að hann yrði greiddur út tvisvar ári. Ari sat þennan kynning-
arfund ásamt þekktum og ríkum íslenskum fjárfestum. Hann segist hafa undrast
það mest að forsvarsmenn sjóðsins hafi fullyrt að fjárfestar gætu fengið arð sinn
greiddan inn á reikninga hvar sem er í heiminum. Hann lét skattayfirvöld vita um
þessar yfirlýsingar eftir bankahrunið þegar umræða hófst um undanskot íslenskra
útrásarvíkinga og háar upphæðir í skattaskjólum. Skattayfirvöld hófu rannsókn á
málinu í kjölfarið.
n Heiðar Már er tengdasonur Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra. Þeir
virðast vera sammála um að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópu-
sambandið en höfðu mjög ólíkar skoðanir á því árið 2006
hvort Ísland ætti að kasta krónunni eða ekki og taka upp
evru. Heiðar Már var byrjaður að tjá sig um það á mjög
afdráttarlausan hátt árið 2006, þegar Björn skrifaði eftir
færslu inn á heimasíðuna sína, að Ísland þyrfti að taka
upp evru. Sömuleiðis hafði hann gert alls kyns ráðstaf-
anir til að verja sig og tengda aðila fyrir gengislækkun
krónunnar.
„Það verður spennandi að sjá, hvernig Björgólfi Thor og
samstarfsmönnum hans tekst að nýta sér tækifærin á heims-
vísu á komandi árum. Við Íslendingar þurfum allir og
sameiginlega sem þjóð að átta okkur á þessum
tækifærum og leggja á ráðin um þau.
Það er augljóst á öllum samanburði við
önnur lönd, að á undanförnum árum
hefur tekist frábærlega vel við að
styrkja efnahag og stöðu þjóðarbús-
ins, innviði þess og styrk til að takast
á við ný og krefjandi verkefni. Þetta
hefur tekist með íslenska
krónu að vopni og með því að
standa utan Evrópusambandsins,
svo að tvö álitamál líðandi
stundar séu nefnd. Leiðir
Stýrði GIR-sjóðnum
Heiðar og Björn ósammála
Þetta er bráðgáfað kvikindi með mikla
þekkingu á fjármálaheiminum.
vera mjög ákafur og hrokafullur
maður. „Hann segir það bara beint
framan í þig að þú sért fífl ef honum
finnst það. Hann er ansi hrokafullur,“
segir innanbúðarmaðurinn. Fyrrver-
andi samstarfsmaður Heiðars Más í
Kaupþingi segir jafnframt að Heiðari
Má finnist hann vera yfir allt og alla
hafinn og láti vita af því.
Þeir undirstrika þó að sjálfsöryggi
sé mjög mikilvægt hjá verðbréfa-
miðlurum og mönnum í fjármálalíf-
inu. Innanbúðarmaðurinn segir: „Ef
þú ert ekki öruggur með sjálfan þig
hvernig ætlar þú þá að fara að því að
sannfæra aðra? Hann er gríðarlega
ákafur. Ef hann fær hugmynd þá talar
hann fyrir henni alveg eins og pred-
ikari og segir mönnum til syndanna.“
Heiðar Már þykir afar góður í þessu.
Annar heimildarmaður blaðs-
ins segir að Heiðar Már hafi ákveð-
ið að hætta hjá Novator skömmu eft-
ir hrun vegna þess að hann vilji vera
sinn eigin herra. „Hann auðvitað
gekk út úr þessu Novator-dæmi til-
tölulega skömmu eftir hrun. Hann
er ekki „follower“, hann vill vera
sinn eigin herra og sá ekki ástæðu
til að vera þarna lengur eftir hrunið.
Ég held að hann hafi farið í góðu og
veit ekki til þess að hann sé tengdur
Novator í dag. Hann hefur alveg þá
þekkingu og þá hæfileika sem til þarf
að vera óháður öðrum.“
Hann segir að ákefð og sann-
færing Heiðars Más kristallist með-
al annars í baráttu hans fyrir því að
Ísland taki upp evru í stað krón-
unnar. „Hann virðist mjög snemma
hafa áttað sig á því að gengi krón-
unnar hafi verið ofmetið og virðist
hafa haft efasemdir um að við gæt-
um haldið þessu [íslenska efna-
hagsundrinu, innskot blaðamanns]
áfram með krónuna. Hann vissi að
þetta gengi ekki upp sem við vorum
að gera. Það má gefa honum kredit
fyrir þetta,“ segir viðmælandi blaðs-
ins.
Þó alveg ljóst sé að þetta sé rétt
mat hjá heimildarmanni blaðsins
þá var skarpskyggni Heiðars Más
þó ekki það mikil að hann teldi að
fjármálakerfið myndi hrynja nokkr-
um mánuðum síðar þegar hann var
spurður um skoðun sína á stöðunni
sumarið 2008. Þetta sýnir kannski
hversu fáir voru á þessari skoðun rétt
fyrir hrun fyrst ekki einu sinni Heið-
ar Már, einn helsti ráðgjafi Björgólfs
Thors og mjög klókur fjármálamað-
ur, taldi bankana að hruni komna þá
um sumarið.
Þrátt fyrir þennan ákafa og þenn-
an hroka, sem allir viðmælendur
benda á, segja þeir líka að Heiðar
Már sé almennt séð vel liðinn innan
fjármálageirans og hafi gott orðspor.
„Það tala nefnilega allir frekar vel um
hann. Hann er vel liðinn, skemmti-
legur og vel lesinn.“
Hefur efnast vel
Heiðar Már hefur efnast vel eftir
að hafa starfað lengi á fjármála-
markaðnum. Fjármálamenn sem
eru eins hátt skrifaðir og Heiðar
Már eru yfirleitt á árangurstengd-
um launum og bónusum og geta
auðvitað sjálfir verið í fjárfesting-
um samhliða störfum sínum hjá
þeim fyrirtækjum sem þeir vinna
hjá hverju sinni. Einhver orðróm-
ur er um að Heiðar sitji á milljörð-
um króna sem hann geymi í Sviss
og ætli meðal annars að nota hluta
þessara fjármuna til að kaupa Sjó-
vá. Þetta hefur vitanlega ekki feng-
ist staðfest.
Skiptar skoðanir eru hins veg-
ar uppi um hvort Heiðar Már sé
rétti maðurinn til að eiga og reka
Sjóva, meðal annars vegna þess að
hann sé í eðli sínu ákafur og nokk-
uð áhættusækinn og vilji mjög háa
ávöxtun af fjárfestingum sínum, en
það er einmitt eitt einkenni vog-
unarsjóða. Einn heimildarmað-
ur DV segir: „Ég er ekkert viss um
að hann sé rétta týpan inn í Sjóvá.
Það þarf ekki svona „flashy“ mann
eins og Heiðar Má til að koma inn í
tryggingafélag, einhvern fjármála-
snilling. Tryggingastærðfræðin er
þess eðlis að þú þarft ekki þannig
mann til að hafa yfirumsjón með
henni. Heiðar er „gambler“ og ég
hugsa með hrolli til þess að hann
eignist tryggingafélagið. Hann er
af sömu kynslóð og þeir sem skildu
Sjóvá eftir í sárum, Milestone.“
Þykir eldklár Heiðar Már þykir
eldklár maður og segja fyrrverandi
samstarfsmenn hans og skólafélagar
að hann búi yfir mikilli þekkingu á
fjármálakerfinu. Einhverjir efast þó um
að hann sé rétti maðurinn til að eignast
tryggingafélagið Sjóvá.