Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 23
föstudagur 22. október 2010 erlent 23
sinna. Þannig var mál með vexti að
skammt frá toppnum hafði hann
þurft að skilja við félaga sína eftir að
hafa fengið háloftasýki sem orsakaði
ofskynjanir og ringlun.
Sjerpar reyndu að bjarga Lincoln í
margar klukkustundir en þegar nátt-
aði og súrefnisbirgðir þeirra voru á
þrotum var þeim fyrirskipað að láta
gott heita, enda talið að Lincoln væri
allur. Morguninn eftir var send út yf-
irlýsing þess efnis að Lincoln Hall
væri dáinn.
Að morgni næsta dags gekk hóp-
ur manna sem hugðist reyna við fjall-
ið fram á Lincoln Hall, á lífi. Leiðtogi
hópsins, Daniel Mazur, lýsti aðkom-
unni svo: „Okkur á vinstri hönd, í
rúmlega hálfs metra fjarlægð frá
þriggja kílómetra þverhnípi, sat
maður. Ekki dauður, ekki sofandi,
hann sat með krosslagða fætur og
var að skipta um skyrtu. Hann hafði
rennt gallanum niður að mitti, klætt
handleggina úr ermunum, hann
var húfulaus, hanskalaus, sólgler-
augnalaus, án súrefnisgrímu […] „Ég
ímynda mér að þið séuð hissa á að
sjá mig hér,“ sagði hann.
Lincoln Hall hafði lifað af nóttina
í 8.600 metra hæð án nauðsynlegra
tækja og illa klæddur. Dan Mazur
og félagar hans hættu við gönguna
á toppinn og ákváðu þess í stað að
vera hjá Lincoln þar til lið tólf sjérpa
kom að og sá um að koma Lincoln
niður fjallið.
Örfáum dögum áður hafði bresk-
ur fjallgöngumaður, David Sharp,
dáið skammt frá þeim stað sem Lin-
coln fannst á. Engin björgun hafði
verið reynd í því tilfelli þrátt fyrir
að ljóst hefði verið að David var á
lífi, en meðvitundarlaus, þegar aðr-
ir fjallgöngumenn gengu fram hjá
honum og héldu áfram göngu sinni
á toppinn.
Daniel Mazur sá ekki eftir að hafa
hætt við gönguna á toppinn og hlúð
að Lincoln þess í stað: „Toppurinn
er þarna ennþá og við getum farið
síðar. Lincoln á bara eitt líf.“
Kraftaverk á Hudson-ánni
„Búið ykkur undir brotlendingu,“
var það eina sem flugstjóri Airbus
320-flugvélar US Airways-flugfélags-
ins, flugs 1549, sagði við farþega vélar-
innar 15. janúar 2009, skömmu áður
en hann nauðlenti vélinni á Hudson-
ánni á milli New York og New Jersey
í Bandaríkjunum. Sex mínútum áður
hafði vélin tekið á loft frá LaGuar-
dia-flugvellinum, en þremur mínút-
um eftir flugtak varð á vegi vélarinnar
gæsager sem orsakaði bilun í báðum
hreyflum vélarinnar.
Áhöfn vélarinnar var ljóst að ekki
yrði mögulegt að ná að lenda á flug-
velli og voru góð ráð dýr. Flugstjór-
inn, Chesley „Sully“ Sullenberger, brá
á það ráð að sveigja vélinni til suðurs
yfir Hudson-ána og að lokum, þrem-
ur mínútum eftir að vélin missti afl,
nauðlenda henni á ánni.
Áhöfn og farþegar vélarinnar, alls
155 manns, komust heilu og höldnu
úr vélinni sem var nánast óskemmd
en að hluta til undir vatnsborðinu og
byrjuð að sökkva. Þegar upp var stað-
ið tókst að bjarga öllum af vélinni og
slysið var kallað kraftaverkið á Hud-
son-ánni.
Öll áhöfn vélarinnar var síðar
heiðruð og sæmd Guild of Air Pilots
and Air Navigators-orðunni og hef-
ur verið sagt um nauðlendinguna að
hún hafi verið „best heppnaða nauð-
lending flugsögunnar“.
Hetjan frá Harlem
Þann 2. janúar 2007 beið bygginga-
verkamaðurinn og uppgjafahermað-
urinn Wesley Autrey eftir lest á braut-
arstöð á Manhattan ásamt tveimur
dætrum sínum. Skömmu eftir hádegi
varð hann vitni að því þegar ung-
ur maður, Cameron Hellopeter, fékk
flog. Autrey fékk lánaðan penna til að
halda munni Hellopeters opnum, en
einhvern veginn slysaðist Hellopeter
til að falla af brautarpallinum og nið-
ur á brautarteinana.
Þar sem Hellopeter lá á brautar-
teinunum sá Autrey ljós lestarinn-
ar sem nálgaðist óðfluga. Á meðan
nærstödd kona hélt dætrum Autreys
frá pallbrúninni stökk Autrey án hiks
niður á teinana og taldi sig hafa tíma
til að taka hann á bakið og koma hon-
um upp á pallinn. Honum varð þó
fljótt ljóst að tíminn yrði of naumur til
þess og fleygði sér því yfir Hellopeter
og skýldi honum þar sem þeir lágu á
milli teinanna.
Þrátt fyrir að lestarstjórinn brygð-
ist skjótt við og nauðhemlaði fóru
allir lestarvagnarnir nema tveir yfir
Autrey og Hellopeter og plássið und-
ir lestinni var ekki meira en svo að
smurfeiti smurðist í húfu Autreys.
Í kjölfarið fékk Autrey hin ýmsu
viðurnefni – Samverjinn á lestar-
stöðinni, Lestarstöðvarofurmenn-
ið, Hetjan frá Harlem og fleiri. Hann
varð þess heiðurs aðnjótandi að vera
á lista Time-tímaritsins yfir hundrað
áhrifamestu einstaklinga 2007.
Þann 4. janúar 2007 sæmdi
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York, Autrey æðstu orðu borg-
arinnar sem veitt er þeim sem hafa
afrekað eitthvað stórkostlegt; Brons-
medalíunni.
Sjálfur gerði Wesley Autrey lítið
úr afreki sínu: „Mér finnst ég ekki
hafa gert neitt stórkostlegt; ég sá bara
mann í nauðum. Ég gerði það sem ég
taldi rétt.“
Ótrúleg björgunarafrek
Fjölmiðlaáhuginn náði hámarki þegar þáverandi forseti Bandaríkjanna, Ronald Reag-
an, hafði á orði að „…allir í Ameríku hefðu orðið guð-
feður og guðmæður Jessicu á meðan á þessu stóð.“
Hógvær hetja Wesley Autrey fannst hann ekki hafa afrekað nokkuð sérstakt.
Kraftaverk á Hudson-ánni Áhöfn og farþegar flugvélarinnar sluppu heilu og
höldnu úr slysinu.