Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 53
föstudagur 22. október 2010 sport 53 Strákarnir okkar í Þýskalandi 1. hluti Hvatti Loga til að skrifa bók Nú var félagi ykkar Logi Geirsson að gefa út bók 10. október. Hvaða skoðun hafi þið á bók Loga og því að leikmenn séu að gefa út svona bækur? Vignir: „Ég hef ekki lesið bókina en mér finnst þetta gott hjá honum. Ég hvatti hann til þess að gera þetta á sínum tíma og sagði hon- um að vera heiðarlegur og segja frá sem flestu. Það er fullt af fólki sem vill fá innsýn í handbolta- heiminn. Logi er náttúrulega ekki eins og fólk er flest og það er gaman að fá innsýn í hans heim.“ Ásgeir: „Mér finnst þetta fínt mál. Ef hann hefur gaman af þessu þá er það hið besta mál.“ Aron: „Það hefur verið töluvert í tísku und- anfarið að gefa út svona bækur og þá sérstaklega í Danmörku með mismunandi sölutölum. Ég held að það sé mikilvægt að það séu ekki margir að gefa út bók um sama landsliðsferilinn og svo framvegis. Ég held hins vegar að það séu margir tilbúnir til þess að lesa bókina hans Loga. Hann er skemmtilegur persónuleiki og er tilbúinn að segja hlutina á skemmtilegan hátt.“ Enginn árangur ef menn eru í vitleysu Logi minntist á agabrot í bók sinni. Eru aga- brot algeng hjá atvinnumönnum í handbolta? Aron: „Hjá mínu liði er sem dæmi lítið um agabrot, sem betur fer. Í handboltanum eru þó alltaf einhver agabrot. Það er mikilvægt að það sé tekið á þeim. Það hefur þó orðið viss þróun í íþróttaheiminum á undanförnum árum. Menn eru farnir að horfa á þroska og hlusta á rök leik- manna en ekki bara vera með eintómar regl- ur. Leikmenn verða þó að þekkja sín takmörk. Enginn glamúr í handboltanum Vignir Svavarsson Línumaður Fæðingardagur 20.06. 1980. Fyrri Lið Haukar, Skjern, Lemgo. Hæð og þyngd 196 cm, 106 kg. FjöLskyLdustaða Í sambandi með Berglindi Höllu Elfudóttur. MEnntun Sjálfmenntaður garðyrkjufræðingur. ÁHugaMÁL Bílar, felgur og krómuð púströr. uppÁHaLdstónList Kántrískotin lyftutónlist. uppÁHaLdsMynd Swingers. uppÁHaLdsMatur Lambalæri. Í Hvaða sæti LEndir ÍsLand Á HM? Vonandi góðu sæti. Ásgeir Örn Hallgrímsson Hægri skytta Fæðingardagur 17.02.1984. Fyrri Lið Haukar, Lemgo, GOG Svendborg. Hæð og þyngd 194 cm, 93 kg. FjöLskyLdustaða Í sambandi með Hönnu Borg Jónsdóttur. MEnntun Er að ljúka BS-prófi í viðskiptafræði frá Bifröst. ÁHugaMÁL Íþróttir almennt, bækur og tónlist. uppÁHaLdstónList Allt frá Hannesi. uppÁHaLdsMynd Forrest Gump, Any Given Sunday og Shawshank Redemption. uppÁHaLdsMatur Lambalæri og saltfiskur. Í Hvaða sæti LEndir ÍsLand Á HM? Vonandi ofarlega. Hannes Jón Jónsson Vinstri skytta Fæðingardagur 23.02.1980. Fyrri Lið Valur, ÍR, Ajax København, Elverum, Fredericia. Hæð og þyngd 186 cm, 89 kg. FjöLskyLdustaða Gifur Hörpu Jóhannsdóttur, eiga dótturina Sólveigu Birtu. MEnntun Doktorsgráða í skóla lífsins. ÁHugaMÁL Fjölskyldan mín og útivera í íslenskri náttúru. uppÁHaLdstónList B. Sig og Bubbi. uppÁHaLdsMynd Hrafninn flýgur. uppÁHaLdsMatur Lambakjötið frá Óspaksstöðum. Í Hvaða sæti LEndir ÍsLand Á HM? 1.–3. sæti. framhald á næstu síðu þýskaland var draumurinn Leikmennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson, Vignir Svavarsson og Hannes Jón Jónsson ásamt þjálfaranum Aroni Kristjánssyni. Með þeim á mynd- inni eru synir Arons þeir Darri, Jakob og Freyr. Aron segir að það hafi alltaf verið draumur hjá sér að þjálfa í Þýskalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.