Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 28
Ljóðahátíð NýhiLs Sjötta alþjóðlega
ljóðahátíð Nýhils hófst á fimmtudag og stendur fram
á laugardag. Hátíðin var sett í Norræna húsinu en á
dagskrá hátíðarinnar er meðal annars að finna upplestr-
arkvöld með íslenskum og erlendum skáldum. Einnig
verða tónlistaratriði á Venue á föstudags- og laugardags-
kvöld. Þá verða haldnar pallborðsumræður um ljóðlist
undir stjórn Benedikts Hjartarsonar bókmenntafræðings
í Norræna húsinu klukkan 14.00.
Ríó í saLNum Ríó tríóið, þeir Ágúst Atlason, Helgi Pétursson
og Ólafur Þórðarson, halda ferna tónleika í Salnum í Kópavogi dagana
28. til 31. október. Tónleikaröðin kallast Brot af því besta en þar flytja
þeir nokkur af sínum elstu og vinsælustu lögum. Þeim til halds og
trauts verða Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson. Að undanförnu
hafa þeir félagar verið á tónleikaferð um landið og meðal annars
sótt heim hirðskáldið sitt á Raufarhöfn, Jónas Friðrik Guðnason, sem
samið hefur nánast alla texta sem þeir hafa sungið undanfarin 35 ár.
Tónleikarnir hefjast alla dagana kukkan 20.00.
Óskar handa Eisenberg
Af öllum hlutum til að gera kvikmynd
um er Facebook ekki beinlínis mest
spennandi kosturinn. Hugmyndin
hljómar raunar ömurlega í fyrstu. Dav-
id Fincher og Aaron Sorkin tekst þó að
gera virkilega áhugaverða kvikmynd
úr efninu og styðjast þar við bókina
The Accidental Billionaires sem segir
frá stofnun samskiptasíðunnar.
Þeir Mark Zuckerberg (Eisenberg)
og Eduardo Saverin (Garfield) stofn-
uðu Facebook ásamt herbergisfélög-
um sínum í Harvard í byrjun árs 2004.
Saverin lagði til stofnfjármagn og vef-
síðan fór á flug. Þegar á leið leitaði
Zuckerberg á náðir glaumgosans og
Napster-mannsins Seans Parker (Tim-
berlake) og fjarlægðist Saverin þá fyr-
irtækið og var á endanum bolað burt.
Myndin gerist á tveimur tímabilum,
annars vegar þegar Facebook er að
fæðast og hins vegar nokkrum árum
síðar þegar Zuckerberg glímir við tvær
lögsóknir.
Handbragð Aarons Sorkins (West
Wing) leynir sér ekki í handritinu, en
hröð og hyttin samtöl ásamt þægi-
legri uppbyggingu og vel skilgreind-
um og áhugaverðum persónum gera
það að verkum að myndin líður ljúf-
lega áfram. Leikstjórinn David Fincher
(Seven, Fight Club) sér sömuleiðis til
þess að fókusinn er skýr allan tímann
og heldur manni vel við efnið.
Frammistaða leikaranna er fram-
úrskarandi og á Jesse Eisenberg
(Zombieland) sannkallaðan stórleik í
hlutverki Zuckerbergs. Hann er hroka-
fullur og félagslega vanþroskaður en
um leið bráðsnjall og heillandi. Þrátt
fyrir miskunnarlausa framkomu hans
gagnvart besta vini sínum finnur mað-
ur til með honum um leið og mað-
ur fyrirlítur hann. Andrew Garfield
(Lions for Lambs) á framtíðina fyrir sér
og er mjög góður í sínu hlutverki sem
hinn barnalegi en metnaðarfulli Save-
rin. Justin Timberlake er skemmtilegur
sem hinn ómerkilegi og gráðugi Sean
Parker og sannar sig endanlega sem
kvikmyndaleikari.
Tónlist Trents Reznors (Nine Inch
Nails) og Atticus Ross skapar hárrétt
andrúmsloft og hjálpar til við þægilega
uppbyggingu myndarinnar.
The Social Network er stórmerkileg
kvikmynd og líklega ein besta mynd
ársins, ef ekki sú besta. Fastlega má
búast við því að hún sópi að sér til-
nefningum á verðlaunavertíðinni sem
brátt fer í hönd og þar eru Jesse Eisen-
berg, David Fincher og Aaron Sorkin
líklegastir.
Jón Ingi Stefánsson
28 fókus 22. október 2010 föstudagur
FaLL RúNaRs
Rúnar Þórisson, tónlistarmaður og
gítarleikari hljómsveitarinnar Gra-
fík, hefur gefið út nýjan sólódisk sem
ber nafnið Fall. Hann kom út 5. okt-
óber en Rúnar hefur unnið að plöt-
unni síðastliðin þrjú ár. Rúnar semur
öll lög og texta á plötunni auk þess
að sjá um upptökustjórn og útsetn-
ingar. Diskurinn er tileinkaður móð-
ur Rúnars, Guðmundu Jóhanns-
dóttur, auk þess sem einstök lög og
textar eru að vissu marki tenging við
nánustu fjölskyldu og vini en text-
arnir taka á einstaklingsbundinni
og samfélagslegri upplifun, kreppu,
eftirsjá, von, ást, náttúru, spillingu
og valdi. Á plötunni nýtur Rúnar
aðstoðar reyndra hljóðfæraleikara
og ber að nefna Arnar Þór Gíslason
trommuleikara, Jakob Magnússon
bassaleikara og söngvarana Hjörv-
ar Hjörleifson, Gísla Kristjánsson,
Láru og Margréti Rúnarsdætur, Elízu
Newman og Hrólf Sæmundsson.
Þá leikur strengjasveit í allmörgum
lögum og Skólakór Kársness syngur
einnig. Útgáfutónleikar verða að öllu
óbreyttu 9. nóvember í Tjarnarbíói.
kvikmynd
the town
Eftir miður farsæl-
an feril sem leikari
er Ben Affleck
virkilega að sanna
sig sem leikstjóra
en hann gerir Town
alveg snilldarlega.
Virkilega góð og
flott spennumynd.
Tölvuleikur / ps3
FIFA 11
Leikurinn bætir í sjálfu sér ekki miklu við
FIFA 10 ef aðeins er horft til möguleik-
anna til spilunar.
FIFA 11 er samt
virkilega eigulegur
gripur. Hann byggir
á góðum grunni
FIFA 10 en með
ágætlega heppn-
uðum nýjungum.
leikriT
FólkIð í
kjAllArAnum
Ólafur Egill Egilsson hefur farið um
söguna fimum höndum og búið til gott
leikhúsverk sem nýtur sín vel í fallegri
og vel hugsaðri sviðsetningu Kristínar
Eysteinsdóttur. Allir leikarar standa sig
með prýði.
mælir með...
mælir ekki með...
leikriT
þöglI þjónnInn
Atli Þór Albertsson og Guðmundur
Ólafsson leika morðingjana. Þeir
gera það mjög þokkalega. Stutt og
snaggaraleg tilsvörin áttu að vísu
til að hljóma eilítið eintóna í munni
Atla Þórs, og Guðmundi hætti til að
ofgera, einkum þegar á leið; þögul
svipbrigðin, hinn stirnaði og kaldi
andlitssvipur illvirkjans, var það sem
hann skilaði einna best.
kvikmyndir the social
network
leikstjórn: David Fincher.
Handrit: Aaron Sorkin eftir bók Ben
Mezrich.
leikarar: Jesse Eisenberg, Andrew
Garfield, Justin Timberlake, Armie
Hammer, Max Minghella, Rooney Mara,
Joseph Mazzello, Patrick Mapel.
120 mínútur
Frábær Jesse Eisenberg á stórleik sem
stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg.
Jú, ég var nú dálítið stressað-ur, þetta virðist ekkert eldast af manni,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormákur um forsýn-
ingu á myndinni Inhale sem
valdir einstaklingar fengu að berja
augum síðastliðið sunnudagskvöld.
Myndin verður frumsýnd í bíóhúsum
um helgina en hún er án efa stærsta
verkefni sem nokkur íslenskur leik-
stjóri hefur stýrt. Það er þó stutt stórra
högga á milli hjá Baltasar því hann
hefur nú fengið grænt ljós á að gera
alvöru Hollywood-mynd, endurgerð
á Reykjavík - Rotterdam eftir Óskar
Jónasson. Flytur Baltasar brátt út til
að vinna við Contraband eins og hún
mun heita en með aðalhlutverk fara
þau Mark Wahlberg og Kate Beckin-
sale.
Gaman að koma inn í svona heim
„Ég upplifði forsýninguna nokkuð
sterkt og ég held að fólk hafi almennt
verið ánægt,“ segir Baltasar. Dómar
um myndina fara ekki að birtast fyrr
en í kringum helgina en fésbókin log-
aði af jákvæðum skilaboðum á sunnu-
dagskvöldið. „Ætli Inhale sé ekki
stærsta verkefni sem ég hef ráðist í,
hvað varðar fjárhagslegu hliðina alla-
vega,“ segir Baltasar sem tók myndina
upp í Santa Fe og Las Vegas í Mexíkó.
„Það var alveg frábært að vinna
í þessu umhverfi. Það var líka gam-
an að koma inn í svona heim sem er
svona hrár og reyna að takast á við
það. Svo er ég náttúrulega spænskætt-
aður og bjó í Mexíkó þegar ég var ell-
efu ára. Þetta var því svona aðeins eins
og að koma heim,“ segir Balti léttur en
hann þurfti þó að taka á ýmsu við gerð
myndarinnar.
„Það eru náttúrulega ýmsir þarna
sem þarf að semja við. Til dæmis
verkalýðsfélögin og umboðsmenn. Á
endanum ertu samt bara að gera bíó-
mynd og þó þetta hafi verið flókið þá
er stúdíó-heimurinn miklu flóknari,“
segir Baltasar en við gerð myndar-
innar hafði hann ekki kvikmyndaver
á bak við sig og flokkast hún því undir
svokallaðar indí-myndir.
Góður leikari er góður leikari
Inhale fjallar um örvinglaðan föð-
ur veikrar stúlku sem bráðvantar nýtt
lunga og fer hann til Mexíkó til að
reyna að bjarga dóttur sinni. Endinn
vildu peningamenn myndarinnar
gera sykursætan en Baltasar barðist
fyrir sínu. „Ég þurfti að berjast fyrir því
að fá hann eins og ég vildi hafa hann.
Það var skotið eitthvert framhald á
honum sem var síðan hætt við að
nota. Þeir vildu eitthvað bæta við
hann til að skýra endinn betur út en á
endanum ákváðum við bara að standa
við þetta.“ En hvernig var að vinna
með heimsfrægum leikurum á borð
við Sam Shepard og Diane Kruger?
„Það var alveg frábært. Góður leik-
ari er góður leikari sama hversu mik-
ið hann fær borgað eða hvaða tungu-
mál hann talar. Það var alveg virkilega
gott að vinna með Sam og Diane. Hún
er mikill fagmaður og Sam er gam-
all nagli. Við fórum á hestbak saman
þarna sem var mjög gaman. Þessir
leikarar skoða myndir hjá manni áður
en þeir ráða sig til starfa. Þau komu því
öll með jákvæðu hugarfari og á með-
an það er ekkert tómt rugl í gangi eru
menn bara að vinna saman. Þetta eru
náttúrulega engar pissudúkkur samt
sem gera allt sem þeim er sagt. Þetta
er fólk sem hefur skoðanir. Á endan-
um hefur leikstjórinn samt mikið að
segja. Í rauninni er samt enginn mun-
ur á þessum leikurum og öðrum. Það
er kannski bara aðeins meiri glamúr,
einhver hjólhýsi og meiri skipulagn-
ing,“ segir Baltasar.
Grænt ljós á Contraband
Fram kom í Fréttablaðinu í vikunni
að Baltasar hefði gert risasamning
við Hollywood-risann Universal sem
hefur ætlað að gera myndina Contra-
band, endurgerð á Reykjavík - Rotter-
dam, í nokkuð langan tíma. Tvísýnt
var þó um hvort Universal gæti gert
myndina og voru farnar af stað samn-
ingaviðræður við önnur kvikmynda-
ver. „Á tímabili var Universal mjög
illa statt og það var meira að segja
hætt við sextíu milljóna dollara mynd
sem hafði þegar verið eytt í fimmtán
milljónum dollara. Karl Júlíusson var
tengdur við þá mynd. Því gat Univer-
sal ekki sagt já strax enda þarf þetta
fólk að gera fjárhagsáætlanir og fleira
Leikstjórinn Baltasar Kormákur frumsýnir um helgina
kvikmyndina Inhale sem skartar mörgum þekktum leikurum.
Baltasar segir myndina þá stærstu sem hann hafi gert en nú er
hann endanlega búinn að fá grænt ljós á enn stærra verkefni.
ráðist verður í endurgerð á myndinni reykjavík - rotterdam
sem mun heita Contraband úti en hún skartar stórstjörnum á
borð við Mark Wahlberg og Kate Beckinsale.
stutt stóRRa
högga á miLLi
Ég upplifði for-sýninguna nokk-
uð sterkt og ég held að
fólk hafi almennt verið
ánægt.
mark WaHlberG Hörkunagli sem fer
með aðalhlutverkið í Contraband.
möGnuð Hin gullfallega Kate
Beckinsale leikur á móti Mark Wahlberg í
Contraband.