Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 55
föstudagur 22. október 2010 umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is sport 55
Heitasta liðið í ensku úrvalsdeild-
inni er Manchester City en það hef-
ur unnið fjóra af síðustu fimm leikj-
um sínum og halað inn þrettán stig
af fimmtán mögulegum í síðustu
fimm leikjum. City er nú þegar búið
að leggja tvö lið af hinum fjórum
stóru þó annað þeirra, Liverpool, sé
reyndar í fallbaráttu eins og staðan
er í dag. City valtaði yfir Liverpool,
3–0, í byrjun tímabils og varð svo
fyrsta liðið til þess að vinna Chelsea.
Arsenal er þriðja liðið af hinum fjór-
um stóru sem City-menn mæta en
liðin takast á á Borgarleikvanginum
í Manchester á sunnudagskvöldið.
Arsenal-menn eru þó komnir aftur
með fyrirliða sinn, Cesc Fabregas, og
það munar um minna.
mikið sjálfstraust í City
Manchester City lenti í kröppum
dansi um síðustu helgi þegar liðið
rétt marði nýliða Blackpool sem voru
töluvert betri í leiknum en dýrasta
lið deildarinnar. Það er þó góðs viti
fyrir City-menn að þeir eru farnir að
klára þannig leiki líka auk þess sem
þeir geta unnið góða sigra á stórum
liðum. Spánverjinn David Silva er
meira að segja að vakna til lífsins en
hann skoraði gott mark gegn Black-
pool.
„Það var gott að skora og fá smá
sjálfstraust því það er mikið sjálfs-
traust í liðinu. Blackpool kom mér á
óvart en mér fannst við samt eiga sig-
urinn skilinn,“ segir David Silva sem
hlakkar til leiksins gegn Arsenal. „Ég
hef alltaf hrifist af Arsenal því það
spilar frábæran fótbolta. Við erum
samt búnir að leggja bæði Chelsea
og Liverpool á heimavelli og ætlum
okkur það sama gegn Arsenal,“ seg-
ir Silva.
Fabregas kominn aftur
Arsenal átti laufléttan leik gegn
Shaktar Donetsk í Meistaradeild-
inni í vikunni sem liðið fór létt með
að vinna, 5–1. Einhver bestu tíðind-
in þar voru að Cesc Fabregas, fyrirliði
liðsins, spilaði og skoraði mark úr ör-
uggri vítaspyrnu. Arsenal er þrem-
ur stigum á eftir City, með jafnmörg
stig og Manchester United og Totten-
ham. Er sigur í Manchester því mik-
ilvægur upp á framhaldið og munar
heldur betur um minna að vera kom-
inn með hinn magnaða Fabregas aft-
ur.
„City er búið að sýna hversu sterkt
það er á tímabilinu. Sigrar gegn
Chelsea og Liverpool sanna það. Við
vitum að þetta verður gífurlega erfið-
ur leikur en það eru þessir leikir sem
við verðum að vinna ætlum við okk-
ur titilinn. Í fyrra töpuðum við öllum
leikjunum gegn Chelsea, United og
Liverpool. Í ár verðum við að líta á
City sem eitt af þessum stóru liðum.
Sama hvort það er stórt eða ekki ætl-
um við okkur samt sigur gegn City
eins og gegn öllum liðum,“ segir Al-
exandre Song, miðjumaður Arsenal.
Enginn rooney
Manchester United verður án Roon-
eys þegar liðið sækir Stoke heim á
sunnudaginn en því þarf liðið svo
sem að fara að venjast. Tilkynnt var
formlega í vikunni að Rooney vildi
losna frá Manchester United og
verður hann væntanlega horfinn á
braut í byrjun janúar. Hann verður
ekki með gegn Stoke vegna meiðsla
sem hann hlaut þegar Paul Scholes
straujaði hann hressilega á æfingu.
United er eina taplausa liðið í deild-
inni en fimm jafntefli í átta leikjum
telja lítið í baráttunni um Englands-
meistaratitilinn.
Everton reynir einnig að halda
áfram sigurgöngu sinni en eftir erf-
iða byrjun hefur liðið nú unnið tvo
leiki í röð, þann síðasta um liðna
helgi þar sem liðið lagði nágrann-
ana úr Liverpool örugglega. Evert-
on-menn halda á White Hart Lane
og mæta Tottenham sem er í topp-
baráttunni en Everton getur virki-
lega þokast upp töfluna með sigri í
Lundúnum.
ríkisbubbarnir í Manchester City eru loks farnir að uppskera
eftir að hafa fjárfest í miklum mannskap. City-liðið er það
heitasta í deildinni og nú þegar búið að leggja tvö lið af hinum
fjórum stóru. arsenal kemur í heimsókn á Borgarleikvanginn í
Manchester á sunnudagskvöldið. sýnir City endanlega að það
ætlar sér í titilbaráttu?
Laugardagur 23. október
11:45 Tottenham - Everton
14:00 Birmingham - Blackpool
14:00 Chelsea - Úlfarnir
14:00 sunderland - Aston Villa
14:00 WBA - Fulham
16:30 West Ham - newcastle
sunnudagur 24. október
12:30 stoke - man. united
14:00 Liverpool - Blackburn
15:00 man. City - Arsenal
leikirnir
Lið L U J t m st
1. Chelsea 8 6 1 1 23:2 19
2. Man. City 8 5 2 1 12:5 17
3. Arsenal 8 4 2 2 18:10 14
4. Man. Utd 8 3 5 0 18:11 14
5. Tottenham 8 4 2 2 10:7 14
6. WBA 8 3 3 2 11:14 12
7. Bolton 8 2 5 1 12:12 11
8. Aston Villa 8 3 2 3 9:12 11
9. Stoke City 8 3 1 4 9:11 10
10. Blackpool 8 3 1 4 13:18 10
11. Everton 8 2 3 3 8:7 9
12. Fulham 8 1 6 1 9:9 9
13. Wigan 8 2 3 3 6:15 9
14. Newcastle 8 2 2 4 12:12 8
15. Sunderland 7 1 5 1 7:7 8
16. Blackburn 7 2 2 3 7:8 8
17. Birmingham 8 1 4 3 8:12 7
18. Wolves 8 1 3 4 8:13 6
19. Liverpool 8 1 3 4 7:13 6
20. West Ham 8 1 3 4 6:15 6
staðan
Sjóðheitir City-menn
sJóðhEitir strákarnir
í manchester City hafa
unnið fjóra leiki í röð og
meira að segja David
silva er byrjaður að skora.
mynd rEUtErs
mUnar Um FabrEgas spænski snillingurinn er kominn aftur í lið Arsenal og
munar um minna því liðið á leik gegn manchester City. mynd rEUtErs
spiLað í skUgga roonEys scholes afgreiddi Rooney á æfingu sem er kannski
best fyrir hann. mynd rEUtErs
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is