Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 22. október 2010 föstudagur Gagnrýnir sinnuleysi vegna Menntaskólans Hraðbrautar: „Boðvald að ofan“ „Ég er hjartanlega sammála niður- stöðum Ríkisendurskoðunar sem telur að ráðuneytið hafi farið út fyrir heimildir sínar,“ segir Kolbrún Hall- dórsdóttir, varaþingmaður Vinstri- grænna í menntamálanefnd, aðspurð um álit á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Menntaskólann Hraðbraut. DV hefur fjallað um málefni Hrað- brautar undanfarna mánuði en at- hugun á ársreikningum skólans, sem að mestu er rekinn fyrir almannafé, sýndi að Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, tók arð upp á tugi millj- óna króna út úr skólanum og fast- eignafélagi hans á liðnum árum; arð sem á uppruna sinn í styrkjum frá rík- inu. Í kjölfarið tók Ríkisendurskoð- un málefni skólans til athugunar og í skýrslu um málið var starfsemi skól- ans gagnrýnd harðlega; skólinn hefði fengið tæpum 200 milljónum of mik- ið frá ríkinu á sama tími og Ólafur greiddi sér 82 milljónir í arð. Tengdir aðilar fengu á sama tíma 50 milljón- ir að láni frá skólanum. Var það mat Ríkisendurskoðunar að lánveiting- arnar væru óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Kolbrún segir að hún hafi lagt fram spurningar til menntamálaráðuneyt- isins um hvers vegna þessar ofgreiðsl- ur hefðu verið látnar viðgangast. Menn hafi borið fyrir sig samkomulag sem gert var á milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Árna Mathiesen. „Það var eins og ráðuneytið hefði áttað sig á að þarna hefði ekki ver- ið staðið faglega að málum og var boðvald að ofan látið stýra því að ekki voru gerðar athugasemdir,“ segir hún og bætir við að sér finnist þetta mjög ámælisverð framkvæmd. Kolbrún vill taka fram að henni finnist til fyrirmyndar að loksins sé farið að taka skýrslur Ríksiendurskoð- unar fyrir í nefndum. „Áður fyrr var undir hælinn lagt hvort þingmenn lásu þær yfir höfuð.“ gunnhildur@dv.is Gagnrýnin Kolbrún segir að boðvald að ofan hafi stjórnað því að ekki voru gerðar athugasemdir. Laugardalshrotti ófundinn Maður sem réðst á 16 ára gamla stúlku í Laugardalnum um hábjart- an dag er enn ófundinn. Árásin var fólskuleg og virðist hafa verið algjör- lega tilefnislaus. Stúlkan hlaut tölu- verða áverka á höfði og fingurbrot en hún er nú á batavegi. Lögreglan telur að árásarmaðurinn hafi notað barefli úr hörðum málmi, einhvers konar lurk eða stöng. Lýst var eftir árásarmanninum, sem var talinn vera á aldrinum 20 til 25 ára, um 170 til175 cm á hæð, skolhærður, klædd- ur í svarta yfirhöfn og hvíta og rauða skó. Engar nothæfar ábendingar hafa þó borist lögreglu við rann- sóknina og telst málið því óupplýst. Dapurleg brotlending „Tillaga Vigdísar Hauksdóttur og fleiri þingmanna um að draga aðild- arumsóknina til baka var dapur- leg brotlending hjá þingmönnum Heimssýnar sem stangast í þrem- ur efnum á við nýsamþykkt lög um þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um tillögu Vigdísar Hauksdóttur og sex annarra þingmanna um að hætt verði við aðildarumsókn að ESB. Össur segir það dapurlegt að hlusta á Vigdísi skýra mistök sín með því að „ráðast að starfsmönnum þingsins,“ en Vigdís sagði á Rás 2 að þeir hefðu átt að benda sér á mistökin. Krónan mun ekki styrkjast Krónan er veik í sögulegu samhengi og mun lítið styrkjast næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í haust- skýrslu hagdeildar ASÍ en ársfundur sambandsins hófst á fimmtudag. Spá hagdeildar, sem er gerð fyrir árin 2010 til 2013, gerir ráð fyrir því að með vaxandi trausti á íslensku atvinnulífi og stjórn efnahagsmála muni skapast forsendur til að létta á gjaldeyrishöftum sem verður gert í áföngum. Meingallað frumvarp „Frumvarpið eins og það liggur fyrir er meingallað og í raun ónýtt þar sem það mun ekki ná tilgangi sínum,“ segja þingmenn Hreyf- ingarinnar í yfirlýsingu sem send er í tilefni þess að þinghópurinn hefur fengið til umsagnar frum- varp ríkisstjórnarinnar til breyt- inga á lögum um gjaldþrotaskipti – fyrningarfrumvarpið svokall- aða. Þingmennirnir telja frum- varpið gallað og að það þjóni ekki þeim tilgangi sínum að koma gjaldþrota fólki í skjól frá endur- upptöku krafna eftir tvö ár. LÍTUR Á FINN SEM KUNNINGJA SINN Vinirnir og viðskiptafélagarn- ir Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra og meðlimur í S-hópn- um, og Jafet Ólafsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri VBS, eru samtals með nærri 100 prósenta markaðshlutdeild á bif- reiðaskoðunarmarkaðnum. Finn- ur á bifreiðaskoðunina Frumherja á meðan Jafet á 75 prósent í Aðal- skoðun á móti 25 prósentum sem eru í eigu Eyjólfs Árna Rafnsson- ar. Þar til bifreiðaskoðunin Tékk- land, sem er í eigu sömu aðila og eiga N1, kom inn á markaðinn fyrir skömmu skiptu þessi tvö fyr- irtæki með sér bifreiðaskoðunar- markaðnum, Frumherji var með 60 prósent markaðshlutdeild og Aðal- skoðun 40 prósent. DV sagði frá því á miðvikudag- inn að Jafet sværi af sér að Finn- ur Ingólfsson, sem gerði tilraun til að kaupa Aðalskoðun árið 2007 og sameina hana og Frumherja áður en Samkeppniseftirlitið kom í veg fyrir það, væri raunverulegur eig- andi Aðalskoðunar þrátt fyrir að Jafet og Eyjólfur Árni væru skráðir sem eigendur stöðvarinnar. Svo vill reyndar til að áður en Samkeppnis- eftirlitið ógilti kaup Frumherja var búið að ákveða að Jafet yrði næsti stjórnarformaður fyrirtækis Finns, Frumherja. Af þessu varð þó ekki þar sem Jafet keypti Aðalskoðun eftir að Finni var bannað það. Aðspurður sagði Jafet þá um tengslin við Finn: „Ég þekki Finn bara á sama hátt og ég þekki ýmsa aðra menn í viðskiptalífinu. Að tengja hann við Aðalskoðun er út í hött... Það eru engin tengsl á milli Frumherja og Aðalskoðunar og við erum í hörku samkeppni við þá og höfum verið að taka af þeim mark- aðshlutdeild.“ Eiga saman jörð Eftir að þessi frétt birtist fékk blaðið ábendingu um að það væri ekki alls kostar rétt að Jafet og Finnur væru eingöngu tengdir með þessum hætti. Sannleikurinn væri sá að þeir væru vinir og ættu saman jörð í Helgafellssveit á Snæfellsnesi sem heitir Innri-Kóngsbakki. Eignarhaldsfélagið sem heldur utan um jörðina, Innri Kóngsbakki ehf., er meðal annars í eigu Finns, Jafets og einnig Eyjólfs Árna, hins eiganda Aðalskoðunar. Hver um sig á 17 prósent í félaginu. Jafet er jafnframt stjórnarformaður félags- ins og er eiginkona Finns, Kristín Vigfúsdóttir, stjórnarmaður í Innri- Kóngsbakka. Mennirnir þrír sem skipta með sér bifreiðaskoðunarmarkaðnum á Íslandi eru því viðskiptafélagar og vinir sem samt eru í „hörku sam- keppni“ eins og Jafet orðar það. „Kunningjar“ segir Jafet Aðspurður af hverju hann hafi lát- ið ógert að nefna það að þeir Finn- ur væru vinir og að þeir ættu saman jörð í Helgafellssveit segir Jafet að hann skilgreini Finn ekki sem vin sinn. „Þegar þú átt jörð með manni þá er ekki þar með sagt að hann sé vinur þinn. Nei, hann er ekkert í vinahóp mínum og ég lít bara á hann sem kunningja minn. Það er stór munur á því. Ég á jarðir með mörgum aðilum og það eru bara viðskipti. Það var tilviljun að ég lenti inni í þessari jörð og það var ekki út af Finni. Leiðir okkar Finns hafa aldrei legið saman, hvorki í pólitík né í skóla eða annað slíkt. Okkar leiðir liggja líka sáralítið saman á Kóngsbakka. Þetta er stór jörð og við eigum ekki einu sinni saman hús,“ segir Jafet. Jafet segir aðspurður að sam- keppnin væri ekki eins mikil og raun ber vitni á milli Frumherja og Aðalskoðunar ef það væru eigna- tengsl á milli fyrirtækjanna. Að- spurður hvort einhvers konar samráð sé á milli Frumherja og Að- alskoðunar segir Jafet að það sé af og frá. „Það er meira að segja önnur verðskrá hjá okkur,“ segir Jafet. inGi f. vilhJálmsson fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Leiðir okkar Finns hafa aldrei legið saman, hvorki í pólitík né í skóla eða annað slíkt. Jafet Ólafsson og Finnur Ingólfsson eiga saman jörð á Snæfellsnesi og eru sagðir vera miklir vinir. Hvor um sig á bifreiðaskoðunarfyrirtæki sem saman hafa drottnað yfir markaðnum frá árinu 2007. Jafet átti að verða stjórnarformaður Frumherja Finns áður en hann keypti Aðalskoðun. finnur ingólfsson Jafet lítur bara á hann sem kunningja. Jafet sagði ekki frá tengslunum Jafet Ólafsson sagði ekki allan sannleikann þegar hann sagðist þekkja Finn Ingólfsson eins og hvern annan í viðskiptalífinu. Sannleikurinn er sá að þeir Jafet og Finnur eru vinir og viðskiptafélagar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.