Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 34
34 Viðtal 22. október 2010 föstudagur vera karlmaður þar. Hann yrði aldrei spurður út í þessa hluti. Hann væri aftur á móti að tala um kvikmyndir.“ Hún segir að það eigi þó að vera rúm fyr- ir hvort tveggja. „Mér finnst óþægilegt að skilja tilfinningar út undan í því sem ég geri. Mér finnst að tilfinningar eigi að fá að vera með.“ AsnAleg viðtöl „Stundum finnst mér samt asnalegt að sjá viðtöl við fræg- ar konur sem eru bara að tala um börn og tilfinningar. Eins og starf þeirra sé ekki byggt á solid verklagni og vinnusemi. Það sé ekki aðalatriðið í þeirra lífi heldur börnin þeirra og tilfinningarnar. Ég myndi vilja að við værum meira í miðjunni með þetta. Það væri frábært að sjá karlmenn tala um tilfinningar og börn og eins mætti leyfa kon- um að tala oftar um sitt starf á faglegum nótum við sérfræðinga á því sviði. En ég meina, það er pláss fyrir allt. Ég hef líka gaman af því að veita bara einhverjum fréttamanni viðtal. En þarna finnst mér halla á konur. Það er eins og þær geti ekki verið í fjölmiðlum án þess að leggja einka- lífið undir.“ þyngri refsingAr Launamuninn vill hún einnig uppræta. „Þetta er náttúrulega ekki í lagi. Konur eiga að fá sömu laun fyrir sömu störf. Það er einfalt. Eins mætti gera meira til þess að spyrna gegn kynferðis- legu ofbeldi. Refsingarnar mættu vera þyngri. Fram til þessa hefur verið þagað um svona mál en mér finnst þetta vera að breytast. Það er já- kvætt.“ Annars dáist hún að íslenskum konum. „Ég á margar sterkar og góðar vinkonur sem væri illmögulegt að lifa án. Mér finnst íslenskar kon- ur svo ótrúlega flottar. Ég var að horfa á þær á Iceland Airwaves, horfði eiginlega meira á þær en hljómsveitirnar. Þær eru sterkar, ástríðufull- ar, jarðtengdar og glaðar.“ AmmA, Joni mitchell og KAte Bush Fyrirmyndirnar eru líka sterkar. „Ég leit mikið upp til Hallfríðar ömmu minnar þegar ég var krakki. Mér fannst henni takast að sameina það með miklum þokka að mála myndir og vera fjölskyldukona. Hún er líka aðdáunarverð fyr- ir nægjusemi sína, alltaf ánægð með það sem hún hafði og átti eflaust gott samband við nátt- úruna. Sem unglingur leit ég mjög upp til Joni Mitchell og Kate Bush. Þá sérstaklega fyrir það að þeim hafði tekist að skapa sinn eigin heim en voru ekki bara gestir í annarra manna hljóð- heimi, eins og oft vill verða með söngkonur.“ Hún gefur lítið út á það að hún sé sjálf fyrir- mynd og brautryðjandi. Þegar hún er spurð að því hvernig tilfinning það sé að árangur hennar hafi rutt braut- ina fyrir aðra og að kraftur henn- ar sé til fyrirmyndar fyrir þá sem vilja láta til sín taka segir hún að það sé erfitt að átta sig á þessu. „Þetta er eitthvað sem flestir gætu talað um nema ég.“ sAfnAr undirsKriftum Fólk kemur þó reglulega til hennar og þakkar henni fyrir náttúrubaráttuna. „Stundum finnst mér að fólk haldi að fyrst ég sé í þessu, að fyrst það beri mikið á mér í fjölmiðl- um, sé það nóg. En það er ekki nóg. Í könnun kom fram að yfir 80% þjóðarinnar vilja ekki láta einkavæða aðgang að orkuauðlindunum okk- ar. Til að koma því til skila til stjórnvalda þarf fólk að skrifa undir á orkuaudlindir.is. Nú var í fréttum að það verði jafnvel þjóðaratkvæða- greiðsla um Evrópubandalagið í nóvember. Ef við höfum safnað 35.000 undirskriftum þá gætu stjórnvöld ekki látið það fram hjá sér fara. Við fengjum þá vonandi að kjósa líka um það hvernig farið verður með orkuna okkar. Það kostar að hætta við Magma en það mun kosta þúsundfalt meira ef við gerum það ekki. Ég hugsa að á endanum muni þessi bar- átta skila þeim árangri sem ég vænti. Lokanið- urstaðan er ekki enn komin fram. Fjölmiðlar hafa brenglað niðurstöðu Magma-nefndarinn- ar, sem sagði ekki að skúffan væri lögleg. Hún sagði að lögin væru svo illa skrifuð að salan til Magma væri bæði bönnuð og ekki. Nefndin lagði því til að sett yrðu ný lög. Nú vona ég bara að ráðamenn hlusti.“ gJöf evu Joly Alls ekki allir taka henni þó fagnandi þegar hún tjáir skoðanir sínar. Stundum hefur hún þurft að sitja undir ruddalegum skrifum manna sem gera lítið úr henni og því sem hún hefur fram að færa. Það er ekki alltaf auðvelt. Ekki einu sinni fyrir Björk. „Mér finnst það hrikalega leiðinlegt. Stundum tekur það úr mér allan mátt. Ég átta mig á því að ég hef aðgang að fjölmiðlum sem fáir Íslendingar hafa. Það hefur oft komið mér vel í gegnum tíðina, svo ég er tilbúin til að taka slæmu hliðinni á því líka. Standa upp sem mál- svari 80% þjóðarinnar jafnvel þótt ég verði skot- in niður. Það er þess virði. Stuðningur Evu Joly í síðustu viku var ótrúleg gjöf. Ég fann hvernig okkar amatör barátta varð pró á einu augnabliki. Í hjarta sínu vita jú flestir að þetta er ekki rétt, ég finn það. Sömu menn og rændu bankana eru að ræna okkur auðlindun- um. Við erum nú þegar komin upp í leyfileg mengunarmörk og ef við höldum áfram að bæta við förum við langt yfir þau mörk. Hvernig eiga samskipti okkar við aðrar þjóðir að vera ef við virðum ekki slíkt samkomulag?“ gróðurhús úr álveri Staðan á Suðurnesjunum er erf- ið og hún hefur fullan skilning á því. „Ég skil líka að ef ekki verður af byggingu þessara álvera þurfa Suðurnesjamenn að finna aðrar lausnir. En ef álverið rís, hvað ætla þeir þá að gera eftir fjögur ár? Fá herinn aftur? Þá munu þeir vakna upp við það að þeir hafa grafið sig í enn dýpri holu en þeir eru í núna. Atvinnuleysið er ekki til staðar af því að þeir fengu ekki álver. Það kom til af því að þeir gerðu óraunhæfar áætlanir og eyddu um efni fram. Þeir hefðu betur, þarna fyrir nokkrum árum, fjárfest í ótal sprotafyrirtækjum. Þá væru þeir í mun betri stöðu eftir fjögur ár, með sprota sem væru að verða tíu ára gamlir og byrjaðir að spíra. Eins væru skuldirnar miklu minni og Reykjanesið enn ómengað. Ég hef heyrt marga tala um það hversu stórkostlegt það væri ef þeir myndu nota álversgrunninn til þess að byggja gróðurhús með það að marki að rækta allt það grænmeti sem Íslendingar þurfa. Það er kannski ekki nógu „macho“?“ nett þráhyggJA Baráttan er henni mikilvæg og hún mun halda henni áfram sama hvað tautar og raular. „Flest verkefni sem ég hef tek- ist á við hafa virst mér ofviða á einhverjum tímapunkti. Ég lít á það sem heilbrigðan hluta af þessu ferli. Ég myndi fyrst fá áhyggjur ef allt gengi snurðu- laust fyrir sig. Ætli ég sé ekki haldin einhverri áráttu fyrir því að klára verk- efni? Þetta er svona nett þráhyggja. Ef ég byrja á einhverju verð ég að klára það.“ sKilAr AlltAf Auðu Með allar hugsjónirnar að vopni gæti Björk auðveldlega tekið þátt í stjórnmálum. Það heill- ar hana hins vegar ekki og hefur aldrei gert. Ekki einu sinni að stofna nýtt stjórnmálaafl. „Ég held að ég muni aldrei tilheyra stjórnmála- flokki. Hingað til hef ég skilað auðu og ég mun halda því áfram. Ég gæti aldrei hugsað mér að stofna nýtt stjórnmálaafl.“ Hún er komin út á flugvöll og þarf að tékka sig inn. Ég heyri hvar hún kveður samstarfs- fólkið með hlýju: „Thank you.“ Snýr sér síðan að mér og kveður: „Ég ætla að skjótast hérna inn. Takk aftur fyrir heiðurinn. Bæ.“ ingibjorg@dv.is Sömu menn og rændu bankana eru að ræna okkur auðlindunum. Þannig að þegar börnin koma heim úr skólanum er ég heima. Það hefur virkað vel og er mér mikilvægt. lifir tvöföldu lífi Hálft árið býr Björk í Bandaríkjunum en hinum helmingi ársins ver hún á Íslandi. Því gengur Ísadóra í skóla á báðum stöðum. mynd verA pálsdóttir „lífið gerist bara“ Björk segir að það sé ekki hægt að gera plan fyrir lífið. Hún reynir að gera það besta úr aðstæðunum hverju sinni. mynd verA pálsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.