Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Blaðsíða 21
föstudagur 22. október 2010 erlent 21 Hundaræktunarverksmiðjur, eða „puppy mills“, hafa verið starfræktar í Bandaríkjunum síðan skömmu eft- ir seinni heimsstyrjöld. Verksmiðj- urnar eru mjög umdeildar en í þeim eru hvolpar ræktaðir á svipaðan hátt og kjúklingar. Búa þeir við slæm skil- yrði svo vægt sé til orða tekið og eru geymdir í örsmáum búrum uns þeir eru annað hvort seldir á þar til gerð- um netsíðum eða til gæludýrabúða í gegnum ósvífna milliliði. Fæðing- argallar eru algengir en skyldleiki hvolpanna er ætíð mikill. Vegna hinna slæmu skilyrða eiga þeir oft erfitt með gang og vegna þess hve skamman tíma þeir eru á spena eru þeir iðulega veikbyggðir og lifa mun skemur en eðlilegt getur talist. Mik- il umræða skapaðist um hundarækt- unarverksmiðjur árið 2008 þegar málið var tekið fyrir í spjallþætti Op- ruh Winfrey. Síðan hefur lítið borið á málinu en það komst nýverið aftur í sviðsljósið í Bandaríkjunum þegar frambjóðendur Teboðshreyfingar- innar í væntanlegum þingkosning- um lýstu því yfir að þeir vildu vernda verksmiðjurnar frá frekari ágangi, enda væri ágætar tekjur að hafa af starfseminni. Skipta þúsundum Heimildum ber ekki saman um hve margar hundaræktunarverksmiðjur sé að finna í Bandaríkjunum, en tal- ið er að þær séu á bilinu 4 til 10 þús- und talsins. Þar sem bændur geta skilgreint hundarækt sem aukabú- grein þarf ekki alltaf að gera grein fyrir starfseminni, jafnvel þó við- komandi aðilar fái jafnvel einungis tekjur af hundarækt. Í Missouri-ríki er talsvert um verksmiðjurnar og fyrr á árinu ætluðu yfirvöld sér að festa í lög ákvæði sem allir hundaræktend- ur þyrftu að fara eftir. Var þar með- al annars að finna ákvæði um stærð athafnasvæðis, hvolparnir þurfa að geta teygt úr sér og snúið sér við og fá reglulega þjálfun undir beru lofti. Reglulegar skoðanir dýralækna var- einnig að finna í ákvæðunum sem og fullnægjandi magn og gæði fæðu og drykkjarvatns. Þá eiga tíkur að fá reglulega hvíld eftir að þær gjóta, en hingað til eru þær látnar eiga hvolpa í hvert skipti sem mögulegt er. Ofstækisfull dýraverndunarlög Fulltrúar Teboðshreyfingarinnar í Missouri hafa reynt að koma í veg fyr- ir að þessi ákvæði verði fest í lög. Ekki vegna þess að þau séu of væg, held- ur telja þeir lögin vera ofstækisfullar kvaðir sem dýraverndunar sinnar vilji setja á – til að koma í veg fyrir frum- kvæði í atvinnurekstri. Telja fulltrúar Teboðshreyfingarinnar þessi ákvæði aðeins hækka kostnað hundarækt- enda, sem muni að lokum leiða til þess að venjulegar miðstéttarfjöl- skyldur eigi ekki eftir að hafa efni á að eignast gæludýr. Dýraverndun- arsinnar í Bandaríkjunum klóra sér í höfðinu en ráðleggja þó tilvonandi hundaeigendum að kynna sér vel þá hvolpa sem þeir hyggjast kaupa. Að baki hundaræktunarverksmiðj- um liggi aðeins gróðavonin, ekkert sé skeytt um heilsu hundanna sjálfra. Hundaræktunarverksmiðjur í Bandaríkjunum skipta þúsundum. Hvolpar eru ræktaðir við hræðilegar aðstæður. Teboðshreyfingin vill koma í veg fyrir mannúðlegri meðferð. Ömurlegar aðstæður í hvolpar kt Að baki hundaræktunarverksmiðja liggi aðeins gróðavonin, ekkert sé skeytt um heilsu hundanna sjálfra. björn teitSSOn blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Oprah Spjallþáttadrottninginvakti athygliáslæmumaðbúnaðihvolpafyrir tveimurárum. Alinn upp í búri Hvolparnir eigaerfittmeðgangenda vaxaþeirúrgrasiinnanrimla. Tvítug stúlka, Marisol Valles að nafni, hefur verið ráðin til starfa sem lögreglustjóri í smábænum Gua- dalupe í Mexíkó en hann er rétt við landamæri Bandaríkjanna. Ástæðan mun vera sú að enginn annar sóttist eftir starfinu. Valles hefur um tveggja ára skeið stundað nám í glæpasál- fræði í háskólanum í Ciudad Juar- ez, sem mun vera glæpahöfuðborg Mexíkó um þessar mundir. Hafa þar 6.500 saklausir borgarar látið lífið á undanförnum þremur árum í blóð- ugu stríði glæpagengja sem stunda aðallega eiturlyfjaviðskipti. Þyk- ir Valles sýna mikið hugrekki með því að taka að sér lögreglustjóra- embættið en Guadalupe er þekkt- ur sem síðasti viðkomustaður eitur- lyfjasmyglara áður en þeir reyna að koma vörum sínum yfir landamærin til Bandaríkjanna. Í síðustu viku voru til að mynda framin átta morð í smábænum, sem telur þó ekki nema 10 þúsund íbúa. Í júní var bæjarstjóri Guadalupe einnig myrtur, sem og öryggisverðir og lögreglumenn. Hafa margir ver- ið myrtir á hrottalegan hátt, með- al annars hafa mörg fórnarlömb verið afhöfðuð. Ríkisstjórn Mexíkó hefur lýst yfir stríði gegn eiturlyfja- barónum en eiturlyfjastríðin hafa kostað hátt í 30 þúsund líf síðan í desember 2006 þar í landi. Hafa 50 þúsund hermenn verið kallaðir til verksins og munu einhverjir þeirra hugsanlega aðstoða hinn unga lög- reglustjóra Guadalupe, en þar er að- eins einn lögreglubíl að finna. Alvarlegt eiturlyfjastríð geisar í Mexíkó: Tvítugogorðinlögreglustjóri Lögreglustjórinn HinungaMarisol Vallesaðstörfum. Clinton týndi kjarnorkukóðunum Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sakaður um að hafa týnt spjaldi sem hafði að geyma leynilega kóða, sem nauð- synlegir eru til að fyrirskipa kjarn- orkuárás. Þetta segir Hugh Shelton, fyrrverandi yfirmaður herforingja- ráðs Bandaríkjanna. Spjaldið er jafnan kallað „kexið“ (biscuit) og hefur annar hershöfðingi, Robert Patterson, einnig sakað Clinton um sama klaufaskap. Sagði Patterson að Clinton hafi viðurkennt að hafa týnt kexinu, morguninn eftir að Monicu Lewinsky-hneykslið komst í hámæli. klámkóngur látinn Bob Guccione, stofnandi fullorð- instímaritsins Penthouse, fannst látinn á miðvikudag en hann var 79 ára að aldri. Guccione byggði upp Pent house-veldið með smáu fyrir- tækjaláni á 7. áratug síðustu aldar og varð vellauðugur fyrir vikið. Slæmar fjárfestingar, ritskoðun á Reagan- tímabilinu og loks samkeppni frá klámsíðum á netinu urðu til þess að Guccione tapaði öllum auðævum sínum, en hús hans var selt á upp- boði árið 2006. Guccione hafði lengi barist við krabbamein. toyota innkallar bíla Stærsti bílaframleiðandi í heimi, Toyota, hefur ákveðið að innkalla rúmlega eina og hálfa milljón ein- taka af lúxusbifreiðunum Lexus og Avalon. Flestir þessara bíla eru nú þegar komnir á götuna í Japan og í Bandaríkjunum. Ástæðan mun vera mögulegur galli í bremsuvökvakerfi bifreiðanna en einnig er hugsanlegt að bensínleiðslur séu ekki fullkomn- ar. Í fyrra þurfti Toyota að innkalla meira en 10 milljónir bifreiða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.