Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Síða 6
6 fréttir 22. október 2010 föstudagur Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Nýtt teppi á stigaganginn – nú er tækifærið !!!! Eitt verð - niðurkomið kr. 6.130 m2 Verðdæmi: 70 fermetra stigahús með 8 íbúðum Heildarverð kr. 429.100 Endurgr. VSK og meðal skattaafsl (68.460) Raunverð kr. 360.640 pr. íbúð aðeins 45.080 Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðar lausu „Þetta er alveg skelfilegt. Ég þarf að segja upp mönnum sem hafa verið hjá mér í 15 og jafnvel 20 ár – þar á meðal eru synir mínir sem hafa verið í 13 og 20 ár. Þetta er hundfúlt,“ segir Hólmgrímur Sigvaldason, útgerðar- maður í Grindavík. Hann hefur verið í útgerð í 25 ár en þarf nú líklega að segja öllum upp, bæði á sjó og í landi. Hann hefur þegar sagt upp öllum sínum 25 sjó- mönnum en á bilinu 50 til 55 manns eru í vinnu hjá honum þegar allt er talið. „Þetta er ekkert grín,“ segir Hólmgrímur, sem rekur útgerðarfyr- irtækin Grímsnes og HSS. Veiðiskyldan vond Hólmgrímur segir að ástæðu þess að hann þurfi að segja upp fólki megi rekja til skorts á leigukvóta en fyrir- tæki hans hafi undanfarin fjögur ár leigt, veitt og unnið um 11 þúsund tonn af fiski. Í fyrra var ákveðið að auka veiði- skyldu kvótaeigenda. Nú er miðað við að 50 prósent af aflamarki skips séu nýtt með veiðum á hverju fisk- veiðiári en ekki annað hvert ár, eins og áður var. Hólmgrímur segir að þetta þýði að minni kvóti sé til skipt- anna fyrir leiguliða. Umtalið um fyrningu aflaheimilda hafi gert það að verkum að kvótaeigendur leigi síður frá sér kvóta. Það sem standi til boða sé á svo háu verði að ekki svari kostnaði að leigja og vinna það. Hólmgrími hugnast ekki sú hug- mynd sjávarútvegsráðherra að við- bótaraflaheimildir fari í pott til út- leigu. Það yrðu svo fá tonn á hvern bát ef þau myndu dreifast á alla 1.500 bátana. Mikilvægasta aðgerðin svo leiguliðar geti lifað af sé að afnema veiðiskylduna og auka aflaheimild- ir til þeirra sem eigi nýtingarréttinn. Þá myndi losna um kvóta til útleigu. Eins og staðan sé núna gæti svo far- ið að fimm til sjö hundruð sjómenn gætu misst vinnuna. Spurður hvort þeir sjómenn yrðu ekki ráðnir til þeirra útgerða sem eigi kvótann og veiði hann segir Hólm- grímur að einhver hluti þeirra fái eflaust vinnu – þeir bestu. Stórút- gerðirnar muni hins vegar bara haga veiðum sínum öðruvísi og auka af- köst þeirra báta og þeirra manna sem þegar rói. Aldrei sátt um kvótakerfið Hólmgrímur segir það markmið stjórnvalda óraunhæft að ætla að ná sátt um kvótakerfið. Það verði aldrei. „Það verður að festa kvóta- kerfið í sessi. Það skiptir engu máli hvað verður gert, það verða aldrei allir sáttir,“ segir hann og bætir við að óvissan sé afar slæm fyrir alla. „Þeir verða að átta sig á því að þetta snýst um að fólk hafi vinnu og geti skrimt,“ segir Hólmgrímur sem gerir ráð fyr- ir því að þurfa að hætta allri vinnslu um áramótin. Hann tekur þó fram að hann sé ekki að biðja um neitt ókeyp- is. Hann vilji aðeins að svigrúm sé til að leigja kvóta þannig að útgerðir lifi og fólkið haldi vinnunni. Skuldar ekkert Hólmgrímur segir að útgerð sín sé skuldlítil en hátt leiguverð og lít- ið framboð af leigukvóta sé að sliga hana. Hann segir að á sama tíma og hann neyðist til að leggja upp laup- ana sé sárt að horfa á bankana af- skrifa skuldir kvótaeigenda án þess að það bitni á þeim. „Þeir fá bara af- skrifað, jafnvel milljarða, og halda áfram,“ segir hann og bætir við að honum hafi aldrei gefist tækifæri til að sökkva sér í skuldir. Það þýði hins vegar lítið fyrir sig að ætla að kaupa kvóta fyrir einn eða tvo milljarða. „Það yrði hlegið að mér í bankanum,“ segir hann og bætir við að þeir sem hafi skuldsett sig upp í rjáfur hljóti að þurfa að gjalda fyrir það. Annað sé ekki réttlátt. Hólmgrímur segir það þyngra en tárum taki að þurfa að segja upp öllu sínu fólki. Hann taki það mjög nærri sér enda hafi hann alla tíð unnið mjög náið með því góða fólki sem hjá honum vinni, sumt í meira en tíu ár. „Það versta er ekki uppsagnirnar í sjálfu sér heldur rótleysið sem mynd- ast hjá fólki í kjölfar atvinnumissis. Þetta er fólk sem hefur unnið saman lengi. Þetta eru bara vinir mínir,“ seg- ir hann að lokum. Hólmgrímur Sigvaldason, útgerðarmaður í Grindavík til 25 ára, stendur frammi fyrir því að þurfa jafnvel að hætta útgerð og segja öllum starfsmönnum sínum upp. Hann hefur þegar sagt 25 sjómönnum upp störfum og óttast að þurfa að segja öllum sem vinna í landi upp líka. Samtals eru það um 50 manns. „Það yrði hlegið að mér í bankanum“ bAldur guðmundSSon blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Þetta eru bara vinir mínir. Snýst um að skrimta HólmgrímurSigvalda- sonhefursagtupp25mannsogþarflíklegaað segjajafnmörgumupptilviðbótar. mynd Sigtryggur Orkuveitan segir upp 65 starfsmönnum 65 fastráðnum starfsmönnum Orku- veitu Reykjavíkur var sagt upp störf- um á fimmtudag, 45 körlum og 20 konum. Uppsagnirnar ná til allrar starfseminnar og þau sem sagt var upp eru skrifstofufólk, stjórnend- ur, sérfræðingar, iðnaðarmenn og verkamenn. Fastráðnir starfsmenn á launaskrá OR eru alls 566 og þeim fækkar því um 11 prósent. Meðalald- ur þeirra sem sagt var upp er tæp 49 ár og meðalstarfsaldur er tæp tólf ár. Helgi Þór Ingason, sem tók við for- stjórastarfi OR í ágúst síðastliðnum, segir að það sé bæði sárt og erfitt að sjá á bak fólki sem hefur starfað vel og lengi hjá fyrirtækinu. Telur sig vera fórnarlamb „Ég lít á mig sem fórnarlamb mark- aðsmisnotkunar stjórnenda Lands- bankans og ég bar af þeim við- skiptum stórkostlegan skaða,“ segir Magnús Kristinsson, útgerðarmað- ur í Vestmannaeyjum. Fjármálaeft- irlitið hefur framsent til embætt- is sérstaks saksóknara athugun á meintri markaðsmisnotkun stjórn- enda Landsbanka Íslands. „Nafn mitt hefur í fréttum verið tengt þessu máli og a.m.k. á einum stað þannig að ég sé grunaður um að hafa verið þátttakandi í ólögmætu framferði stjórnenda bankans,“ segir Magnús í tilkynningu og bætir við að hann líti á sjálfan sig sem fórnarlamb. Hefur hann óskað eftir því við embætti sérstaks saksóknara að gera ítarlega grein fyrir viðskiptum sínum við Landsbanka Íslands. Fólk beitir ýmsum aðferðum til að losna við ketti: Kettlingarístrigapoka „Fólk gerir sér ekki grein fyrir að Katt- holt er troðfullt,“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir, áhugamanneskja um ketti og sjálfboðaliði í Kattholti. Hún segir ástandið hræðilegt og það hafi færst gífurlega í aukana að fólk losi sig við kettina á hvaða hátt sem er. DV hefur fengið mikil viðbrögð frá kattavinum í kjölfar frétta um hrottlega meðferð á tveimur læðum í Njörvasundi og leitaði álits Ragnheið- ar. Hún segir að sem betur fer hafi hún ekki heyrt margar slíkar sögur. Þó hafi læða með tvo kettlinga fund- ist í strigapoka í skúr en það var tilvilj- un að maður einn fann pokann og gat því komið köttunum í Kattholt. Annar köttur kom inn sama dag og hafði efni verið hellt yfir hann og var feldurinn ónýtur vegna þess. Ragnheiður segir að það hafi færst í aukana að fólk losi sig við dýrin með því að skilja þau eftir úti. Hún segir það dýrt að halda gæludýr en það sé líka dýrt að láta svæfa þau. „Sumir hafa það bara ekki í sér að láta svæfa dýrin og skilja kettina frek- ar eftir fyrir utan Kattholt eða troða þeim jafnvel inn um gluggann,“ segir hún og bætir við að fólk geri sér lík- lega ekki grein fyrir því að Kattholt er fullt. Á tímabili í sumar voru 180 kett- ir í Kattholti sem er meira en starfs- fólkið ræður við. Það sem einkenn- ir ástandið eftir hrun er að fólk sækir ekki kettina sína í Kattholt. Þó er reynt að halda þeim eins lengi og mögulegt er áður en þeir eru svæfðir. Ragnheiður segist gera sér grein fyrir því að það sé dýrt að láta gelda ketti en hún hvetur fólk til að gera það eins fljótt og hægt er. „Þeir fjölga sér eins og gengur og gerist og fólk get- ur komið í veg fyrir það,“ segir hún að lokum. gunnhildur@dv.is ill meðferð Læðameðtvokettlinga fannstístrigapokaískúr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.