Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Síða 46
46 útlit umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 22. október 2010 föstudagur
Fyrirsætan, leikkonan og söngkonan
Grace Jones var líklega ein af
þeim fyrstu sem sýndi og sannaði að
krúnurakað höfuð getur verið fallegt
útlit fyrir konu.
amber rose
endurvakti
útlitið og gerði
það vinsælt aftur
á meðal ungra
stelpna. Fyrirsætan
og fyrrverandi
kærasta tónlistar-
mannsins Kanyes
West hefur reynt
að apa fleira upp
eftir átrúnaðargoðinu sínu en myndir af
henni í frægri uppstillingu jones vöktu
litla kátínu hjá aðdáendum jones.
erykah badu er
þekkt fyrir stór og
mikil höfuðföt en
er alltaf fallegust
með beran
skallann.
Leikkonan
natalie
Portman væri
falleg þótt hún
sleppti að greiða
sér.
Hö f ð ato rg i , B o rg a r t ú n i 1 6 Reykjavík 5 6 2 2 4 2 2 , Fu ru ve l l i r 7 Akureyri 4 6 1 2 7 6 0 , w w w. l i t a l a n d. i s
Ný verð!
11.990 kr.10lítrar
Ný málning
6.990 kr.10lítrar
100 Akrýl innimálning
Harris málningarsett,
rúlla og bakki kr. 990
LITALAND
Veggfóður í úrvali
Myndlistarvörur
Veggjaskraut
Viðarlökk
Gólfmálning
Innimálning gljástig 7
Krúnurakaðar
og fallegar
Stjörnurnar skinu skært
Leikkonur, leikstjórar og aðrar áhrifamiklar konur í Hollywood skörtuðu sínu
fegursta á Woman in Hollywood tribute-galakvöldinu sem haldið var í vikunni.
t
ímaritið Elle hélt sitt árlega Woman in
Hollywood Tribute-galakvöld á Four
Seasons-hótelinu í Beverly Hills fyrr í
vikunni, þar sem margar af helstu stjörn-
um geirans voru saman komnar. Leik-
konurnar Gwyneth Paltrow, Kate Hudson, Hillary
Swank, Diane Keaton, Jodie Foster, Sofia Coppola,
Diane Kruger og Kerry Washington voru þar heiðr-
aðar fyrir störf sín fyrir kvikmyndabransann. Þrjár
þeirra, Paltrow, Hudson og Swank birtust saman á
forsíðu nóvemberblaðs Elle en blaðsins hefur ver-
ið beðið með mikilli eftirvæntingu. Leikkonurnar
skörtuðu sínu fegursta á hátíðinni og athygli vakti
hversu margar höfðu valið að klæðast Calvin Klein.
Þetta var í 17. skiptið sem Woman in Hollywood-
galakvöld hefur verið haldið, en á hátíðinni eru
þær leikkonur, kvenkyns leikstjórar og aðrar konur
í geiranum, sem eru hvað áhrifamestar og þykja
skara fram úr, heiðraðar fyrir störf sín.
Heiðruð
Hilary swank þykir ein sú
áhrifamesta í Hollywood og
var á meðal heiðursgesta.
Leikkonan var glæsileg í
Calvin Klein og með David
Yurman-skartgripi.
úr ballett í kvikmyndir
Þýska leikkonan Diane Kruger klæddist
Calvin Klein á hátíðinni. Leikkonan
byrjaði sinn feril í ballett en varð svo fræg
fyrirsæta í heimalandi sínu áður en hún
fluttist til Frakklands til að reyna fyrir sér
í leiklistinni.
ung-
stirnið
Anna Kendrick
klæddist Reem
Acra, en Anna er
líklega þekktust
fyrir hlutverk sitt
í Twilight-þrí-
leiknum.
glæsileg Gwyneth Paltrow mætti í
Calvin Klein, en hún var ein af heiðurs-
gestum kvöldsins.
kát Kate Hudson var stórglæsileg á
Four seasons-hótelinu í svörtum kjól
úr vorlínu Prabal Gurung, með David
Yurman-eyrnalokka og á Brian Atwood-
hælum. Frjálsleg hárgreiðslan passar vel
við persónuleikann.
leikstjórinn sofia Coppola flott
í Celine.
klassískt Leikkonan jodie
Foster fékk viðurkenningu fyrir störf sín í
Hollywood. Foster klæddist svörtum kjól
frá narciso Rodriguez.
alltaf ung Leikkonan Goldie Hawn
var ein af þeim sem kynnti heiðursgestina.
Leikkonan var ungleg að vanda í kjól frá
Gianfranco Ferrè .