Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Page 50
Á miðvikudaginn kynnti Apple, með
framkvæmdastjórann Steve Jobs í
fararbroddi, ýmsar nýjungar frá fyr-
irtækinu, meðal annars endurhann-
aðar Macbook Air-fartölvur. Þessar
örþunnu tölvur komu fyrst á markað
árið 2008 en viðtökur hafa frá upp-
hafi verið dræmar. Fyrirtækið von-
ast hins vegar nú eftir viðsnúningi
af hálfu almennings, bæði vegna
breyttrar hönnunar, afls og verðs en
nú er hægt að fá ódýrustu útgáfu Air
á 999 Bandaríkjadali vestanhafs og
verðið því lækkað um 500 dollara frá
því 2008.
Jobs líkti á kynningunni hinni
nýju Air sem samruna MacBook
og iPad en í stað þess að vera búin
snertiskjá hefur snertiflötur (track-
pad) lyklaborðins verið virkjaður til
að framkvæma ýmsar aðgerðir með
sérstökum handarhreyfingum eins
og á iPad.
ILife-forritapakkinn var einnig
kynntur og hefur nú verið uppfærð-
ur í útgáfu 2011 og hafa nú flest ef
ekki öll forritin aukna samhæfni við
Facebook auk ýmissa annarra nýj-
unga. Jobs kynnti einnig fyrirhugað-
ar breytingar á forritaverslun Apple
(App Store) en stuttu eftir næstu ára-
mót verða þar einnig seld forrit fyrir
Apple-tölvur. Verslunin hefur hing-
að til eingöngu selt forrit og vörur
tengdar iPad og iPhone.
Síðast en ekki síst greindi Jobs
frá næsta stýrikerfi fyrir Apple-tölv-
ur sem áætlað er að komi á markað
um mitt næsta ár. Ýmislegt bitastætt
úr iOS-stýrikerfinu fyrir iPhone, iPad
Touch og iPad verður nú innleitt í
OSX-stýrikerfið.
50 tækni umsjón: páll svansson palli@dv.is 22. október 2010 föstudagur
Samsung
Galaxy Tab
samsung Galaxy-snjallsímarnir sem
keyra á Android hafa átt miklum
vinsældum að fagna um heim allan, ekki
síst vegna verðsins. samsung hefur nú
tilkynnt að í nóvember komi snertitölva
á markað frá fyrirtækinu sem byggi
einnig á Android-stýrikerfinu. snertitölv-
an sem kallast Galaxy Tab keyrir á 1GHz
örgjörva og Android 2.2. Hún skartar 7
tommu snertiskjá og er búin myndavél-
um á fram- og bakhlið. Tölvan mun kosta
599 Bandaríkjadali (án samnings við
fjarskiptafyrirtæki) og virðist við fyrstu
sýn raunhæfur keppinautur við iPad frá
Apple.
apple og Steve Jobs voru með kynningu í vikunni:
Air, iLife og OSX Lion
Chrome 7
uppfærsla
ný uppfærsla á Chrome-vafranum
frá Google leit dagsins ljós í vikunni
fyrir mac, Windows og Linux. Ekki
eru sjáanlegar neinar sérstakar
nýjungar í þessari uppfærslu enda
var áherslan fyrst og fremst lögð á
lagfæringar og endurbætur vafrans.
Helst má nefna bætta samhæfni við
HTmL5-veftungumálið en hundruð
annarra smágalla voru einnig lagaðir
fyrir þessa útgáfu. uppfærslan ætti
að koma sjálfvirkt fyrir þá sem þegar
nota vafrann en aðrir geta sótt þessa
útgáfu á vefsvæði Google Chrome.
Fyrsti HP/
Palm Pre-
síminn
Hewlett Packard kynnti í vikunni nýjan
Palm Pre-snjallsíma sem á að koma á
markað á næstunni. HP keypti Palm í
júlí, ekki síst til að komast yfir webOs-
stýrikerfið en nýi síminn mun keyra á
nýrri útgáfu kerfisins, webOs 2.0. Ýmsar
getgátur hafa verið um framtíð webOs,
meðal annars hvort það hafi burði til að
fylgja öðrum snjallsímakerfum eftir með
tækninýjungar. Það verður því fróðlegt
að sjá hvort nýi síminn uppfylli kröfur
almennings.
os 10.7 eða osX lion OsX-stýrikerfin eru öll nefnd eftir tegundum úr kattafjöl-
skyldunni.
Myndspjall nýtur sífellt meiri vinsælda meðal almennings, ekki síst ef ástvinir eru bú-
settir hinum megin á jarðarkringlunni. Skype-forritið býður upp á þessa þjónustu frítt
auk margra annarra möguleika, en ný útgáfa forritsins leit dagsins ljós fyrir stuttu.
Myndspjallsforritið Skype hefur not-
ið gífurlega vinsælda um heim allan
undanfarin ár en Skype er hvað þekkt-
ast og vinsælast meðal þeirra sem
nýta sér þessa tækni sem gefur meðal
annars kost á að hringja frí myndsím-
töl milli landa frá tölvu til tölvu eða
hringja ódýrt frá tölvu í síma.
Skype 5, nýjasta útgáfa forritsins,
var kynnt á dögunum en þar líta dags-
ins ljós ýmsar áhugaverðar nýjungar,
til að mynda samhæfni við Facebook
og möguleiki á myndspjallsfundum
fyrir allt að tíu manns. Í nýju útgáf-
unni er einnig lögð sérstök áhersla á
ýmsa möguleika forritsins sem not-
endum hafa til þessa verið lítt kunnir.
Þar má nefna SMS-sendingar og skjá-
og skráardeilingu milli notenda.
Facebook og skype
Líklega er Facebook-samhæfingin sú
nýjung sem hvað mesta athygli hef-
ur vakið. Skype hefur innleitt svokall-
aðar stöðuuppfærslur (status updat-
es) líkt og við þekkjum frá Facebook
og einnig er hægt að skoða sérstak-
lega stöðuuppfærslur þeirra sem eru
á vinalista notandans. Það er þó ekki
fyrr en notandinn tengir Skype sér-
staklega við Facebook-aðgang sinn að
samhæfingin kemur að fullu í ljós. Þá
er hægt að hringja í þau símanúmer
sem Facebook-vinir hafa gert sjáanleg
fyrir vinalista sinn og einnig er hægt
að senda stöðuuppfærsluna úr Skype
beint yfir á Facebook.
Myndspjallsfundir
Skype nýtur sívaxandi vinsælda inn-
an fyrirtækjageirans en forritið ger-
ir kleift að setja frítt upp svokallaða
myndspjallsfundi. Í þessari útgáfu
geta allt að tíu manns tekið þátt í
slíkum fundi samtímis og hægt er að
stilla hvort einn myndgluggi sé stærri
en aðrir á skjánum. Þessi þjónusta er
algjörlega frí eins og er en í framtíð-
inni er gert ráð fyrir að einstaklingar
og fyrirtæki geti skráð sig í einhvers
konar áskriftarþjónustu til að nýta sér
þennan möguleika forritsins. Skype 5
er hægt að sækja af vefsíðu fyrirtæk-
isins í sérstakri fyrirtækjaútgáfu en í
henni geta kerfisstjórar fyrirtækja tak-
markað hvað notendur forritsins inn-
an fyrirtækisins geta gert.
skype í sjónvarpið
Svokölluð netsjónvörp eru nú að
ryðja sér til rúms og Skype hóf fyr-
ir nokkru samstarf við Panasonic og
Samsung um að innleiða sérstaka
útgáfu af Skype í slík sjónvörp. Bæði
fyrirtækin hafa nú sett slík sjónvörp
á markað og má kynna þau sér nán-
ar á vefsíðu fyrirtækisins eða jafnvel
panta þau á vefverslun síðunnar.
Ótrúlegar vinsældir
Til að gera sér grein fyrir umfangi
Skype á heimsvísu má geta þess að
skráðir notendur í þessari vinsælu
þjónustu eru nú um 560 milljónir en
að meðaltali nýta 120 milljónir manna
sér þjónustuna í hverjum mánuði, þar
af rúmlega 8 milljónir sem greiða fyrir
þann möguleika að geta hringt beint
í símanúmer. Um 40 prósent notenda
Skype nýta sér myndspjallsmöguleika
forritsins að jafnaði.
Skype 5 er nú hægt að sækja frítt
fyrir Windows af vefsíðu fyrirtækisins
en útgáfa fyrir Macintosh og Linux er
að vænta á næstu mánuðum. Á sama
tíma verður að öllum líkindum hægt
að sækja útgáfu 5 fyrir hinar ýmsu teg-
undir snjallsíma.
Hringdu í vini
á facebook Í þessari útgáfu geta allt að tíu manns tekið þátt í slíkum fundi samtímis.
net og háskerpa frá panasonic netsjónvörp frá Panasonic
og samsung með innbyggðu skype-forriti eru nú komin á markað.
Fagnaðarfundir skype
er góð lausn fyrir þá sem
ekki geta hist að jafnaði
augliti til auglitis.
skype fyrir android-síma nú er
hægt að sækja skype-forritið á Android
market.