Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Síða 52
52 SPORT texti og myndir: annas sigmundsson as@dv.is 22. október 2010 föstudagur Strákarnir okkar í Þýskalandi 1. hluti a ron Kristjánsson tók við þýska lið- inu Hannover-Burgdorf í sumar eft- ir að hafa þjálfað lið Hauka í þrjú ár og gert þá að Íslandsmeisturum öll árin. Auk þess þjálfaði Aron danska liðið Skjern á árunum 2004 til 2007 áður en hann tók við Haukum. Aron tók fjölskyldu sína með til Þýskalands en hann er í sambúð með Huldu Bjarnadóttur og eiga þau þrjá syni, Darra, Jakob og Frey. Hannes Jón Jónsson er að spila sitt þriðja tímabil með liðinu og gerði Aron Kristjánsson hann að fyrirliða liðsins í upphafi tímabils. Ás- geir Örn Hallgrímsson kom til liðsins eftir að Aron hafði samið við liðið en Ásgeir lék áður hjá danska liðinu GOG Svendborg sem fór á haus- inn. Aron fékk líka Vigni Svavarsson eftir að hann tók við liðinu en Vignir lék áður fyrir þýska liðið Lemgo. Íslendingar hafa verið áberandi í þýsku Bundesligunni í handbolta í vetur. Þýska deild- in hefur löngum þótt sú erfiðasta heimi. Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel sem vermir efsta sæti deildarinnar, Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins, þjálfar lið Rhein-Neckar Löwen sem er í þriðja sæti og Dagur Sigurðsson þjálfar lið Füsche Berlin sem er í fjórða sæti deildarinnar. Blaðamaður DV hitti Aron og þá Ásgeir, Hannes og Vigni á Dormero- hótelinu í Hannover á þriðjudaginn og spurði þá um atvinnumennskuna í Þýskalandi. Þjálfun í Þýskalandi alltaf draumurinn Hvernig kom það til að þú fékkst boð um að taka við liði Burgdorf? Varstu lengi að ákveða hvort þú myndir taka því? Aron: „Það var aðili frá Burgdorf sem hafði samband við mig. Það var tilkomið í gegnum Al- freð Gíslason. Hann hafði verið aðstoðarþjálf- ari þegar Alfreð þjálfaði lið Hameln á árunum 1997 til 1999. Honum var bent á mig frá öðrum stöðum líka. Ég skoðaði málið og hafði til dæm- is samband við Hannes Jón Jónsson sem spilaði með liðinu. Síðan ákvað ég bara að slá til.“ Var það erfið ákvörðun fyrir þig og fjölskyldu þína að flytja frá Íslandi til Þýskalands? Aron: „Vinnulega séð var það ekki erf- ið ákvörðun. Ég var tilbúinn að breyta til. Það var alltaf draumurinn að þjálfa í Þýskalandi. Ég hafði reyndar líka fengið boð frá liði í Dan- mörku. Mig langaði að prófa eitthvað annað en að fara aftur til Danmerkur. Fyrir fjölskylduna hefði líklega verið þægilegra að fara aftur þang- að. Fjölskyldunni hefur þó gengið ágætlega hér í Þýskalandi. Skólakerfið hér er töluvert öðru- vísi en á Íslandi. Í Þýskalandi byrja börn 10 ára í framhaldsskóla en elsti sonur okkar er ellefu ára. Byrjunin hjá honum hefur því verið svolít- ið þung. Hann hefur þó sýnt gríðarlega miklar framfarir í skólanum og við þýskuna. Sá næst- elsti er átta ára og er í grunnskóla. Það hefur verið aðeins auðveldara hjá honum að aðlagast aðstæðum.“ Kunni mjög litla þýsku Hvernig hefur þér sjálfum gengið að aðlagast aðstæðum. Kunnir þú einhverja þýsku áður en þú komst? Aron: „Það var nú eitthvað mjög lítið. Ég hafði lært einhverja þýsku í framhaldsskóla og var bú- inn að rifja hana aðeins upp áður en við komum út. Það reyndi þó ekkert á kunnáttu mína fyrr en ég kom til Hannover.“ Hvað segja leikmenn um þýskukunnáttu Ar- ons? Hannes: „Hann er mjög viljugur að læra þýsku. Hann byrjaði strax á fyrstu æfingu að tala þýsku. Það er gríðarlega mikilvægt að byrja sem fyrst. Ég beið sjálfur í eitt ár en Aron hefur staðið sig vel. Síðan er alltaf hægt að skipta yfir í ensku ef menn skilja ekki hvorn annan.“ Hvernig var undirbúningstímabilið hjá Aroni. Voru stífar æfingar alla daga? Ásgeir: „Það var mjög þétt en skemmtilegt líka. Við erum í toppformi og það er það sem skiptir máli.“ Hannes, nú tókst þú við fyrirliðastöðunni eftir að Aron tók við liðinu. Hvernig hefur það gengið? Hannes: „Það hefur gengið vel og lítið meira um það að segja.“ Aron: „Eru menn ekki alltaf fegnir aukinni ábyrgð?“ meiri vinna en fólk heldur Sumir atvinnumenn í handbolta hafa kvart- að undan því að atvinnumennskan sé erfið. Lít- ið þið svoleiðis á ykkar vinnu eða finnst ykkur það forréttindi að fá greitt fyrir að þjálfa og spila handbolta? Hannes: „Mér finnst það klárlega mikil for- réttindi að fá að vera atvinnumaður í hand- bolta. Ég held að það gildi um flesta leikmenn að þeir hafa dreymt um það síðan þeir voru litlir strákar að verða atvinnumenn í hand- bolta. Það koma auðvitað erfið tímabil og að- stæður sem eru erfiðar. Maður verður bara að vinna sig út úr því. Jákvæðu hlutirnir eru þó margfalt fleiri en þeir neikvæðu. Síðan er það í þessu eins og öðru að þú uppskerð bara eins og þú sáir.“ Vignir: „Það eru forréttindi að fá að spila handbolta. Þó þetta sé ekki átta til fimm vinna þá er þetta meira en fólk gerir sér grein fyrir. Öll ferðalög, horfa á upptökur af leikjum og æfing- ar. Miklu meira en fólk heldur. Þetta er hins veg- ar frábært líf og við erum að gera það sem okkur þykir skemmtilegast á hæsta plani sem þekkist í heiminum. Ásgeir: „Það eru allir að reyna að koma sér áfram og reyna sitt besta. Það á auðvitað líka við um fólk sem lifir venjulegu lífi og er að vinna. Það eru allir að reyna að standa sig vel. Fólk fær ekki alltaf allt sem það vill. Hver er sinnar gæfu smið- ur og fólk kemur fram við þig eins og þú kemur fram við það.“ Aron: „Það er draumur allra ungra leik- manna að verða atvinnumenn í greininni. Það er tvennt ólíkt að vera leikmaður og þjálfari. Þeg- ar þú ert þjálfari þá snýst þetta um að koma sem best undirbúinn fyrir æfingar og leiki. Hvíld er auðvitað gríðarlega mikilvæg líka. Sem þjálfari snýst þetta þó aðallega um að vinna leiki. Það fer gríðarlega mikill tími í þetta starf. Oft of mik- ill að mati fjölskyldunnar. En ef þú hefur metn- að þá verður þú að leggja mikla vinnu á þig til að ná árangri. Það má segja að það einkenni Íslend- inga að þeir eru tilbúnir að fórna miklu til að ná árangri.“ Finnur þú mikinn mun á vinnuálagi ef þú berð saman þjálfarastarf þitt hjá Haukum á Ís- landi og síðan hjá Burgdorf? Aron: „Já. Það er töluvert mikill munur. Hjá Haukum var ég á tímabili framkvæmdastjóri með þjálfun og líka markaðsstjóri. Hjá Hauk- um var maður mikið í því að ná í peninga líka. Hjá Burgdorf snýst starfið eingögnu um að þjálfa liðið. Kröfurnar hér til þjálfarans eru líka miklu meiri. Maður hefur áhuga og metnað fyrir þessu og það er það sem gerir þetta skemmtilegt.“ Enginn glamúr í handboltanum Hvernig mynduð þið lýsa lífi atvinnumanns- ins. Er þetta glamúrlíf eða eru flestir leikmenn ró- legir fjölskyldumenn? Vignir: „Ég held að það sé enginn glamúr í at- vinnumennsku hjá handboltamönnum.“ Hannes: „Við hristum alveg jafn mikið haus- inn yfir fréttum af stórstjörnum í knattspyrnu eins og flest annað fólk.“ Hvernig eru launin? Eru margir leikmenn með meira en 50 milljónir króna í árstekjur eða eru flestir með svipuð laun og bankastjóri á Ís- landi í dag? Aron: „Bankastjórar á Íslandi í dag. Það er stór munur á því og árið 2007. Ætli launin séu ekki svipuð og í ensku þriðju deildinni í knatt- spyrnu.“ Vignir: „Flestir leikmenn í þýsku deildinni eru bara á fínum launum en engir milljónamær- ingar. Menn verða að geta lifað á þessu og haft það ágætt. Leikmenn þurfa þó klárlega að finna sér aðra vinnu eftir að ferlinum lýkur. Stærstu nöfnin eru þó að hafa mjög góðar tekjur og eiga að geta lagt töluvert fyrir.“ Aron: „Þeir sem eru launahæstir eiga að geta átt góðan lífeyri þegar ferlinum lýkur.“ Ásgeir, verðandi barnapía Vignis Nú eruð þið allir fjölskyldumenn. Hannes og Aron með börn. Eitt á leiðinni hjá Vigni. Hvernig haldið þið að Vignir standi sig í föðurhlutverkinu og er ekki kominn pressa á Ásgeir um barneignir? Hannes: „Vignir á örugglega eftir að standa sig vel.“ Ásgeir: „Barnið kemur bara á réttum tíma.“ Aron: „Vignir er að stóla á að Ásgeir verði barnapía fyrir sig.“ Vignir: „Ásgeir er yngstur þannig að hann er kjörinn í hlutverkið.“ Aron: „Það er þroskandi að eignast barn og það er bara vonandi að Vignir haldi áfram að standa sig á vellinum eftir að hann er orðinn pabbi.“ Hvernig leggst það í þig að verða pabbi? Vignir: „Það leggst mjög vel í mig og ég er bara virkilega farinn að hlakka til.“ aldrei hafa fleiri íslenskir leikmenn spilað í þýsku Bundesligunni, erfiðustu handknattleiksdeild í heimi. Margir þeirra spila undir stjórn íslenskra þjálfara sem nú eru fjórir í deild þeirra bestu. Þrem- ur af fjórum efstu liðum deildarinnar er stjórnað af íslenskum þjálfurum. dV ákvað að skyggnast inn í heim strákanna okkar í Þýskalandi. fyrsta viðtalið er við Aron Kristjánsson, þjálfara hannover-Burg- dorf, og leikmennina Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannes Jón Jónsson og Vigni Svavarsson sem spila undir stjórn arons. Enginn glamúr í handboltanum Aron Kristjánsson Þjálfari Fyrri lið Haukar, Skjern, tvis Holstebro og Hannover-Burgdorf. Hæð og Þyngd of lítil hæð og of mikil þyngd. FjölsKylda giftur Huldu Bjarnadóttur, 3 drengir; darri, Jakob og Freyr. ÁHugamÁl golf og ferðalög með fjölskyldunni. TónlisT U2 , Bubbi og fleira. uppÁHaldsmynd Shawshank redemption. uppÁHaldsmaTur Humar og hangikjöt. Í HVaða sæTi lEndir Ísland Hm? 1. sæti. (nú verður gummi brjálaður)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.