Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2010, Page 64
n Egill Einarsson, einnig þekktur
sem Gillz, fer hörðum orðum um
hinn 76 ára gamla Hafstein Snæ-
land, sem upplýsti í DV á miðviku-
dag að hann vildi láta taka nafn sitt
úr símaskránni vegna þess að Egill
er titlaður meðhöfundur hennar.
Hafsteinn sagði Egil meðal annars
vera ofvaxið kjötstykki og sagði hann
vera óþolandi.
„Hafsteinn segir í greininni
að hann sé búinn að
láta taka sig út úr síma-
skránni. Það er reyndar
bjartsýni hjá honum að
halda að ég hafi hann
ekki þar. Hann verður
að sjálfsögðu í henni,“
segir Egill og bætir við að
hann velti nú fyrir sér
hvort hann eigi að setja
nafnið hans á tíu mis-
munandi staði og feit-
letra að auki.
Jónína BeN1?
EGILL HJÓLAÐI
Í HAFSTEIN
VITA - ferðaskrifstofa á traustum grunni
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
V
IT
5
20
36
1
0/
10
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Fararstjórar:
Einar og Anna.
Fararstjórar:
Örn og Evert.
Flugáætlun:
22. janúar UPPSELT
29. janúar AUKAFLUG
5. febrúar AUKAFLUG
12. og 19. febrúar. UPPSELT
26. febrúar.
Lilja Jónsdóttir er einn af
ferðaráðgjöfum VITA og
hefur áralanga reynslu
af sölu skíðaferða.
Lj
ós
m
yn
da
ri:
R
an
dy
L
in
ck
s
Beint morgunflug með Icelandair.
Ekki láta þetta tækifæri
renna frá þér!
Hótel Des Alpes 29. janúar - 5. febrúar
Selva Val Gardena - Stærsta skíðasvæði í Evrópu.
Náttúrufegurð, nægur snjór og brekkur fyrir alla. Það er Selva!
Verð frá 133.200 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli á hótel Des Alpes, sem er lítið og snoturt 3ja stjörnu
hótel í miðbæ Selva. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með
morgunverði og íslensk fararstjórn. * Verð án Vildarpunkta 143.200 kr.
ÍtalíaSelva
Hótel Shandrani 29. janúar - 5. febrúar
Val di Fiemme - Skíðasvæði með löngum, flottum brekkum
sem kemur þér skemmtilega á óvart.
Verð frá 158.950 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli á hótel Shandrani, sem er glæsilegt 4ra stjörnu hótel
með öllum þægindum. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting, hálft
fæði og íslensk fararstjórn. * Verð án Vildarpunkta 168.950 kr.
Ítalía
Val di Fiemme
VITA svarar kallinu!
Viðtökur við skíðaferðum
VITA til Ítalíu hafa verið
frábærar og því verður boðið
upp á aukaflug í vetur.
n Knattspyrnumaðurinn Pape
Mamadou Faye var rekinn frá Fylki
í lok sumars en ástæðan var aldrei
gefin upp. Fréttist fljótt að það hefði
verið vegna skóbeiðni sem hann
leysti út í leyfisleysi og voru gróu-
sögur um að hann hefði stolið úr
búningsklefanum. Í viðtali á Fót-
bolti.net útskýrir hann málið en
hann sagðist ekki hafa stolið beiðn-
inni af liðsfélaga sínum sem geymdi
hana niðri í Fylkisheimili heldur
hefði hann ætlað að geyma hana
fyrir hann. Besti vinur
Pape fékk svo skó-
beiðnina og fjárfesti
í 70 þúsund króna
skóm í Jóa útherja á
kostnað Fylkis. Segist
Pape ekki hafa getað
neitað besta vini
sínum því hann
hafi alltaf verið
að gera honum
greiða. Hann sjái
þó eftir þessu í
dag.
VINURINN
FÉKK SKÓNA
n Það kom mörgum á óvart að
olíufélagið N1 skyldi tryggja sér út-
gáfuréttinn að ævisögu athafnakon-
unnar Jónínu Benediktsdóttur. Sem
kunnugt er hefur andað köldu á
milli Jónínu og Baugsfjölskyldunnar
um langt skeið en líklegt verður að
teljast að Baugur, og flest sem fyrir-
tækinu tengist, fái á baukinn í vænt-
anlegri ævisögu Jónínu. Aðrir fjand-
menn Baugs eru hinir svokölluðu
Engeyingar sem hafa ráðið lögum
og lofum í N1. Náfrænd-
ur Björns Bjarnasonar
eiga fyrirtækið og var
Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæð-
isflokksins, stjórnar-
formaður um tíma. Er
um það rætt að það
sé engin til-
viljun að N1
hafi viljað
tryggja sér
útgáfurétt-
inn á bók-
inni.
JÓNÍNA
VANDAÐI VALIÐ
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
SÓLARUPPRÁS
08:39
SÓLSETUR
17:44
„Velgengnin beinir athyglinni líka að
öðrum íslenskum höfundum sem
gefa út verk sín hér í Frakklandi og því
að þótt efnahagur Íslands hafi hrunið
ríki ekki bókmenntakreppa í landinu,“
segir Auður Ava Ólafsdóttir.
Afleggjarinn, bók eftir Auði sem
nefnist á frönsku Rosa Candida, hlýt-
ur Prix de Page-bókmenntaverðlaun-
in sem besta evrópska skáldsagan
2010. Einnig hefur bók Auðar verið til-
nefnd til þriggja annarra bókmennta-
verðlauna í Frakklandi, þar af til hinna
virtu Femina-verðlauna.
Bók Auðar var gefin út í Frakk-
landi fyrir aðeins tveimur mánuð-
um og á þeim stutta tíma hefur hún
hlotið mikla og góða umfjöllun í öll-
um helstu fjölmiðlum landsins. Með-
al annars í tvígang í stórblaðinu Le
Monde. Bókin hefur af gagnrýnend-
um verið kölluð „21. aldar svar við
Birtíngi Voltaires“ og „bókmennta-
uppgötvun ársins“.
Auður Ava segir verðlaunin og vel-
gengnina í Frakklandi hafa töluverða
þýðingu. „Umfjöllun um Ísland hefur
verið mikil í fjölmiðlum og mikið rætt
um hversu blómlegt bókmenntalíf-
ið sé hér á landi,“ segir Auður sem er
á leið til Frakklands til að fylgja bók-
inni eftir. Hún lærði í París svo hún
segist kannast við franskt menningar-
líf og segist ekki geta annað en hlakk-
að til ferðarinnar. Auður Ava vinnur
að nýrri skáldsögu sem á að koma út
næsta haust og hefur franskt útgáfufé-
lag þegar tryggt sér útgáfuréttinn.
kristjana@dv.is
Auður Ava Ólafsdóttir verðlaunuð fyrir bestu evrópsku skáldsöguna:
FRÆG OG VINSÆL Í FRAKKLANDI
Flottir dómar Bók Auðar hefur verið
sögð „bókmenntauppgötvun ársins“.