Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Síða 3
Fréttir 3Vikublað 19.–21. ágúst 2014
Lögreglumaðurinn
hefur áður verið kærður
n Saksóknari efaðist um lögmæti handtöku n Ákærður í LÖKE-máli
L
ögreglumaðurinn sem hef-
ur verið ákærður af ríkissak-
sóknara í hinu svokallaða
LÖKE-máli hefur áður verið
kærður vegna handtöku sem
hann stóð að samkvæmt heimild-
um DV. Lögreglumaðurinn, Gunn-
ar Scheving Thorsteinsson, var einn
þriggja lögreglumanna sem var kall-
aður á vettvang eftir að upp komu
deilur á milli farþega og leigubíl-
stjóra. Sá fyrrnefndi taldi að leigu-
bílstjórinn færi fram á að fá of mikið
greitt en sjálfur var hann ölvaður.
Samkvæmt heimildum DV varð
leigubílstjórinn ósáttur og skoraði
maðurinn á hann að hringja í lög-
regluna, sem bílstjórinn og gerði.
Lögreglumennirnir þrír voru þó sam-
mála leigubílstjóranum og hand-
tóku manninn. Í framhaldinu tóku
þeir veskið af farþeganum gegn hans
samþykki og greiddu fyrir farið með
greiðslukorti hans. Maðurinn kærði
málið þar sem hann taldi lögreglu-
mennina hafa brotið á rétti sínum en
málið fór þó ekki lengra en inn á borð
ríkissaksóknara þar sem upphæðin
þótti ekki réttlæta málarekstur fyrir
dómi. Saksóknari efaðist þó um lög-
mæti handtökunnar og fékk maður-
inn upphæðina endurgreidda.
Sendi upplýsingar um 13 ára
dreng
Nú er Gunnar sá eini sem hefur ver-
ið ákærður í LÖKE-málinu, en tveir
aðrir voru handteknir í tengslum við
málið. Annar var starfsmaður hjá fjar-
skiptafyrirtækinu Nova en hinn starf-
aði hjá lögfræðistofunni Lex. Báðir
lágu þeir undir grun í fyrstu en mál-
ið var hins vegar látið niður falla hvað
þá varðar. Báðir misstu þeir vinnuna
vegna málsins en þeir munu ætla að
leita réttar síns og fara fram á skaða-
bætur frá ríkinu.
Hvað Gunnar varðar er hann
ákærður fyrir óeðlilegar uppflettingar
í LÖKE-kerfinu annars vegar og hins
vegar er hann sakaður um að hafa sent
félaga sínum upplýsingar úr LÖKE-
kerfinu í gegnum Facebook. Alls fletti
Gunnar upp 45 konum á tímabilinu
7. október 2007 til 16. nóvember 2013
sem ríkissaksóknari segir að hafi ekki
tengst starfi hans sem lögregluþjóns
og hann hafi því misnotað stöðu sína
til að afla sér upplýsinga um konurn-
ar. Þá segir í ákærunni um Facebook-
samskiptin, að þar hafi hann sent
upplýsingar með nafni og lýsingu á
13 ára dreng sem hann hafði haft af-
skipti af í starfi sínu og upplýsingar
um ástæðu afskiptanna, en drengur-
inn mun hafa skallað Gunnar.
„Fjarstæðukenndar fullyrðingar“
Lögfræðingur Gunnars, Garðar St.
Ólafsson, segir að ákæran sé ekki í
neinu sambandi við þær fullyrðingar
sem fram komu í fjölmiðlum þegar
málið komst upp síðastliðinn vetur og
kallar þær fjarstæðukenndar. „Skjól-
stæðingur minn óskaði hins vegar eft-
ir því að það lægi fyrir í fjölmiðlum að
ákæra stendur ekki í neinu sambandi
við fjarstæðukenndar fullyrðingar
fjölmiðla um að hann og vinir hans
hefðu deilt upplýsingum um þolend-
ur afbrota á lokuðum Facebook-hóp,“
segir Garðar í tölvupósti sem hann
sendi til blaðamanns DV. Af ákærunni
má ráða að þar hafi heimildarmenn
sem fjölmiðlar voru í sambandi við
haft rangt fyrir sér, en fleiri en einn
fjölmiðill sögðu samskiptin hafa átt
sér stað í lokuðum hópi á Facebook.
Þess í stað fóru þau fram í gegnum
skilaboðakerfi Facebook.
Þingfesting málsins fer fram í
dag, þriðjudag, en Garðar fór fram á
að þinghaldið yrði lokað. Ekki lá fyr-
ir hvort dómari hafi orðið við þeirri
beiðni þegar blaðið fór prentun. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Ákærður og kærður Lögreglumað-
urinn Gunnar Scheving Thorsteinsson
hefur áður verið kærður vegna starfa
sinna í lögreglunni. Mynd SkjÁSkot aF Facebook
„Hefði átt að
gerast fyrir löngu“
Dagskrárliðum Rásar 1 fækkað úr um 30 í 4 til 5
Þ
essar breytingar eru tilkomnar
vegna niðurskurðar frá Al-
þingi svo við neyðumst, hvort
sem okkur líkar betur eða verr,
að breyta dagskránni,“ segir Magnús
R. Einarsson, dagskrárgerðarmaður
á Rás 1, um þær skipulagsbreytingar
sem nú standa þar yfir. Magnús starf-
aði tímabundið sem dagskrárstjóri
útvarpssviðs RÚV á síðasta ári og var
meðal umsækjenda um stöðu dag-
skrárstjóra, en fékk ekki ráðningu.
Vegna niðurskurðar þurfti að
draga árlegan rekstrarkostnað Ríkis-
útvarpsins saman um 500 milljónir
og var tugum starfsmanna sagt upp
vegna þess. Það var því viðbúið
að einhverjar breytingar yrðu á
skipulagi og uppbyggingu dagskrár.
breytir hlutverki þula
og tæknimanna
Magnús segir helstu breytingarnar
vera þær að dagskrárliðum fækkar úr
um 30 í 4 til 5. Smærri dagskrárbút-
ar falla þannig undir stærri dagskrár-
liði. „Þetta er aðallega einföldun og
hagræðing og hefði átt að gera fyrir
löngu.“ Hann segir þetta í raun ekki
breyta dagskránni að miklu leyti, að-
allega vinnulaginu á bak við hana.
Einhverjir dagskrárliðir verða þó
teknir út og aðrir taka breytingum.
„Það er auðvitað verið að segja
upp morgunbæn og kvöldbæn og
veðurfréttir breytast líka. Það var
löngu kominn tími á það. Þannig
það eru töluvert miklar breytingar.
Sumar af þeim neyðumst við til að
fara út í vegna fjárhagsstöðu, en aðr-
ar eru skipulagsbreytingar sem hefði
átt að gera fyrir löngu, nútímalegri
vinnubrögð.“ Magnús segir þetta
hálfgerða nútímavæðingu Rásar 1.
Sérhæfingin verði meiri og dagskrár-
gerðarmenn komi til með að taka á
sig meiri tæknivinnu. „Þetta breytir
hlutverki þula og tæknimanna. Þetta
er allt önnur aðferð við að búa til út-
varpsefni heldur var áður.“
„Þetta er bara fátækt“
Það skipulag sem nú er verið að taka
upp á Rás 1 er í raun módel sem
var fyrst sett upp árið 1989 og átti
að taka í gagnið á þeim tíma. „Þetta
er skipulag sem er notað á 90 pró-
sentum útvarpsstöðva í heiminum,
amerískt fyrirkomulag. Þetta er
spurning um rekstur, ekki efni. En
það hefur auðvitað einhver áhrif á
það,“ útskýrir Magnús.
Aðspurður hvers vegna módel-
ið virkaði ekki árið 1989 segir Magn-
ús ástæðuna frekar einfalda. „Það
var allt fullt af smákóngum á þeim
tíma, alls konar stjórum. Litlum
silkihúfum, allir með titla, skrifstofur
og aðeins hærri laun og þeir vildu
ekki breyta einu eða neinu. Þeir voru
alveg á móti.“ Magnús hefur hins
vegar fulla trú á að það gangi vel að
innleiða þessar breytingar nú.
„Þetta er óhjákvæmilegt. Þetta er
bara fátækt og það „meikar sens“ að
fara út í þessar breytingar. Það „meik-
ar sens“ rekstrarlega og skipulags-
lega og að öllu leyti,“ segir Magnús. n
solrun@dv.is
Miklar breytingar Magnús R. Einars-
son, dagskrárgerðarmaður á Rás 1, segir
breytingarnar óhjákvæmilegar. Þær komi
bæði til vegna niðurskurðar og nútímalegri
starfshátta.
Listskautaskóli Bjarnarins
í Egilshöll
NÁNARI UPPLÝSINGAR VARÐANDI NÁMSKEIÐIN VEITA:
Berglind Rós Einarsdóttir, yfirþjálfari s: 899-3058
Erlendína Kristjánsson, skautastjóri s: 697-3990
Kristrún Elva Jónsdóttir, gjaldkeri s: 849-6746
LIÐLEIKI, TÆKNI, ÞOL, STYRKUR, TÚLKUN OG SAMHÆFING
SKRÁNING: www.bjorninn.com/list eða gjaldkerilist@bjorninn.com
STUNDATAFLA
MÁNUDAGAR
Svell 17:20 – 17:55 og
leikfimi 18:10 – 18:55
LAUGARDAGAR
Svell 12:20 – 13:00
Dans yngri 13:20 - 14:00
Dans eldri 11:25 - 12:05
Kennt í litlum hópum og
skipt er eftir getu og aldri.
Námskeiðinu lýkur
með jólasýningu fyrir
alla fjölskylduna.
NÝ 8 EÐA 15 VIKNA NÁMSKEIÐ
HEFJAST 30. ÁGÚST
fyrir stráka og stelpur 5 - 11 ára
og 12 ára og eldri
Frír
prufutími!