Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 19.–21. ágúst 2014 Sport 31
Frá götum El Salvador til San Siro
n „Þetta er draumur í dós“ n Lék við hlið Romario í Brasilíu n Ótrúlegt afrek Stjörnunnar
Ósvikinn fögnuður
Liðsfélagar Pablo fagna
marki hans sem hann skor-
aði með ótrúlegum hætti á
lokasekúndunni gegn Þór
fyrir rúmri viku síðan.
Mynd Eva Björk ÆgisdÓttir
Evrópuleikir Stjörnunnar
Stjarnan er að spila í fyrsta sinn í Evrópukeppni en aldrei hefur íslenskum nýliðum gengið jafn vel. Liðið er taplaust og hefur aðeins fengið
fjögur mörk á sig en skorað þrettán.
Stjarnan-Bangor City: 4-0 sigur
Ólafur Karl Finsen skoraði tvö og Veigar Páll Gunnarsson og Arnar Már Björgvinsson hin tvö.
Bangor City – Stjarnan: 0-4 sigur
Arnar Már skoraði tvö og þeir Martin Rauschenberg og Atli Jóhannesson hvor sitt markið.
Motherwell – Stjarnan: 2-2 jafntefli
Ólafur Karl Finsen skoraði tvö mörk úr vítum eftir að liðið lenti 2-0 undir.
Stjarnan – Motherwell: 3-2 sigur
Ólafur Karl Finsen og Rolf Toft skoruðu í venjulegum leiktíma en Atli Jóhannesson tryggði sigurinn með marki í uppbótartíma.
Stjarnan – Lech Poznan: 1-0 sigur
Rolft Toft skoraði eina mark leiksins og markmaðurinn Ingvar Jónsson lokaði markinu.
Lech Poznan – Stjarnan: 0-0 jafntefli
Stjarnan skellti í lás og Ingvar var á við tvo í markinu. 22 þúsund manns sáu leikinn.
legt þar sem liðið er í harðri bar-
áttu um Íslandsmeistaratitil. Rúna
Sif, kærasta Pablo, varð einmitt
Íslandsmeistari með kvennaliði
Stjörnunnar en hún hefur spil-
að með liðinu síðustu tvö tímabil.
„Það hjálpaði óneitanlega að hafa
hana hér í klúbbnum og hún gat
sagt mér frá liðinu áður en ég kom
hingað, hvernig starfið fer fram
hérna og hvernig tilfinningin er að
vera hér,” segir Pablo sem væri til í
að reyna fyrir sér í öðrum Evrópu-
löndum og það sama gildir um
Rúnu. Parið gæti því flust erlendis
í framtíðinni til að spila fótbolta, ef
tækifæri gefst.
tónlistarmaðurinn Pablo
Pablo er þó ekki aðeins góður með
boltann heldur er honum margt til
lista lagt. Tungumálin sem hann
talar eru fjögur talsins; enska,
spænska, ítalska og franska. Auk
þess skilur hann katalónsku og ís-
lensku, og segir nokkurð orð við
blaðamann á fínni íslensku. Hún
er öll að koma til hjá honum. Sem
fyrr segir er hann með gráðu í ensk-
um og ítölskum bókmenntum, en
móðir hans er frá Ítalíu og þang-
að hefur hann farið nokkrum sinn-
um. „Það mun kannski koma sér
vel í leiknum, kannski get ég skil-
ið það sem leikmenn segja sín á
milli,” segir Pablo hlæjandi. Hann
er einnig góður á píanóið en í há-
skólanum tók hann nokkur nám-
skeið í tónlistarnámi. „Píanóið mitt
er heima í Miami svo ég spila ekki
mjög mikið og er ekki í mikilli æf-
ingu. Pabbi spilaði á píanó og gít-
ar og hann sagði alltaf að það að
læra á hljóðfæri væri ómissandi
hluti af uppvextinum. Hann lagði
því mikla áherslu á að ég lærði að
spila á hljóðfæri þegar ég var yngri.
Þetta hjálpaði mér í fótboltanum
og það er jafnvægi þarna á milli.
Ef mér gengur illa í fótboltanum
get ég farið heim og einbeitt mér
að tónlistinni og gleymt mér þar,”
segir Pablo sem segist þó lítið geta
sungið og spilar að mestu fyrir sjálf-
an sig, en þó grípur hann stundum
í hljóðfæri með vinum sínum.
gæsahúð í Poznan
Sem fyrr segir voru fagnaðarlætin
mikil þegar Pablo skoraði sigur-
markið gegn Þór fyrir rúmri viku
síðan en nokkrum dögum áður
upplifðu leikmenn Stjörnunnar
sjaldgæfan atburð. Stuðningsmenn
pólska liðsins Lech Poznan klöpp-
uðu fyrir Stjörnumönnum, eftir að
þeir höfðu sigrað Pólverjana. Alls
voru 22 þúsund manns á vellin-
um, allir frá Poznan. „Tilfinningin
var ótrúleg og við fengum allir
gæsahúð. Við vissum hversu mikið
við höfðum lagt í einvígið og vorum
ánægðir með að stuðningsmenn
andstæðinganna gerðu sér grein
fyrir því. Ég hefði getað verið á leik-
vanginum langt fram eftir kvöldi,”
segir Pablo og getur ekki annað en
brosað sínu breiðasta.
nýtur stundarinnar
sem er að líða
Fram undan er eitt stærsta Evrópu-
einvígi sem íslenskt félagslið hef-
ur spilað í og mikið er í húfi. Liðið
sem vinnur fer áfram í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar. Greinilegt er á
þessu viðtali að Pablo horfir mik-
ið upp til föður síns og hefur ráð-
leggingar hans í huga. Hann gleym-
ir því ekki að vera þakklátur fyrir
það sem á daga hans hefur drifið
og hefur komið honum í þá stöðu
sem hann er í. „Pabbi sagði mér
alltaf að njóta þess hvar maður er
hverju sinni. Ekki endilega að horfa
til baka eða til framtíðar en að hafa
alltaf í huga hvaðan maður kem-
ur og hvert maður vill fara. Þannig
kemst maður þangað á endanum,
sama hvaða leið maður fer þá er
hún sú rétta þótt hún sé endilega
ekki sú heppilegasta. Ég met það
mikils hve langt ég hef komist en
ég held að það sé margt fleira sem
bíður mín. Draumurinn er að spila
í Evrópu í einhverri sterkri deild,”
segir hinn geðþekki Pablo Punyed.
Leikurinn við Inter Milan fer fram
á miðvikudagskvöld á Laugardals-
velli en miðar á leikinn seldust upp
á skömmum tíma. Þar verður Pablo
í eldlínunni og hver veit nema hann
laumi inn einu marki með sínum
ameríska-ítalska hætti. n
„Allt í einu erum
við að fara að
spila þar og ekki í ein-
hverjum vináttu- eða
góðgerðarleik