Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 19.–21. ágúst 2014 Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 B reski sjáandinn og miðillinn Timothy Abbott er á leið til landsins og mun hann koma fram á námskeiði hjá Sálar­ rannsóknarfélagi Íslands í september sem og á „fræðslu­ og kynningarkvöldi“ hjá Kærleikssetrinu nú í ágúst. Sviku út bætur í 16 ár Timothy, sem segist vera miðill og sjáandi, var ásamt eiginkonu sinni, Janette Abbott, nýlega dæmdur fyrir stórfelld bóta­ og skattsvik. Í ljós hef­ ur komið að þau hjónin þáðu bæði bætur frá breska ríkinu yfir 16 ára tímabil vegna líkamlegrar fötlunar sem þau héldu fram að þau væru með. Timothy sagðist sjálfur vera svo illa haldinn líkamlega að hann gæti vart gengið. Janette gekk um með hækjur, en í ljós hefur komið að þau eru bæði við góða heilsu og gerðu sér upp veikindin. Á þessu tímabili þáðu þau sjúkrabætur, húsnæðisbætur og greiddu lægri skatta. Samtals nam upphæðin sem þau sviku út úr breska ríkinu 80.000 pundum, eða sem sam­ svarar rúmlega 15 milljónum króna. Þá var honum einnig gefið að sök að hafa sleppt því að telja fram 10.000 pund í tekjuskatt. Bæði Timothy og Janette játuðu brot sín skýlaust fyrir dómi. Náðust á falda myndavél Það voru rannsóknaraðilar sem komu upp um hjónin, en efasemdir höfðu vaknað um hvort þau væru í raun líkamlega skert. Rannsóknarteymið fylgdi hjónunum eftir um nokkurt skeið árið 2012 og komst að því að grunsemdirnar voru á rökum reist­ ar. Timothy var gripinn glóðvolgur á myndskeiði sem falin myndavél náði af honum, þar sem hann tekur ræki­ lega á því í ræktinni, lyftir lóðum og tekur vel á því í róðrartækinu. Mynd­ skeið náðist einnig af Janette þar sem hún er í verslunarleiðangri án hækj­ anna, þar sem hún kraup vandræð­ alaust, stóð upp og gekk um með þunga innkaupapoka. „Ég kem alveg af fjöllum“ „Já, þú segir mér fréttir,“ sagði Magn­ ús Már Harðarson, formaður Sálar­ rannsóknarfélags Íslands þegar blaðamaður spurðist fyrir um hvort hann hafi heyrt af fréttum um Timothy. Hann hafði ekki heyrt af málinu og kannaðist ekkert við það. Magnús segir að Timothy hafi nokkrum sinnum komið til landsins og haldið námskeið, í það minnsta tvisvar sinnum. „Ég kem alveg af fjöll­ um. Ég er ekkert að rengja þig, ég þarf bara að kynna mér þetta mál,“ seg­ ir Magnús en hann segir að það verði skoðað í framhaldinu hvort nám­ skeiðið verði haldið eða ekki. „Ég get eiginlega ekki svarað þessu, ég þarf að kynna mér málið en þetta eru náttúr­ lega ekki góðar fréttir,“ segir Magnús. Námskeiðið kostar 28.000 krónur á mann og þarf fólk að greiða 10.000 krónur í staðfestingargjald. Magnús segir að Timothy geri félaginu tilboð um námskeið og félagið innheimti svo samkvæmt því. Aðspurður hvort fólk geti fengið staðfestingargjaldið endurgreitt í ljósi þessara frétta seg­ ir Magnús svo vera. Magnús gat ekki svarað því hvort námskeiðið yrði blás­ ið af. Hann sagðist þurfa að ráðfæra sig við stjórn félagsins og ákvörðun verði tekin í framhaldi af því. Auk þess að halda námskeið hjá Sálarrannsóknarfélaginu mun Timothy halda „fræðslu­ og kynn­ ingarkvöld“ hjá Kærleikssetrinu. Á vef Kærleikssetursins má sjá auglýs­ ingu um kvöldin. Þar segir að Timothy hafi orðið þekktur sem „einn af bestu sönnunarmiðlum Bretlands“ og að mikil eftirspurn sé bæði eftir vinnu hans sem miðils og kennara. Þar segir einnig að aðgangseyrir sé 2.000 krón­ ur á hvert kvöld. „Auðvitað misstígur fólk sig í lífinu“ Friðbjörg Óskarsdóttir, eigandi Kær­ leikssetursins, hafði heldur ekki heyrt af máli Timothys í Bretlandi þegar blaðamaður hafði samband við hana. „Ég bara á svo erfitt með að trúa þessu, ég þekki hann persónulega og þetta er svo yndislegur maður,“ sagði hún um fregnirnar. „Ég ætla ekki að loka dyrunum fyrr en ég hitti hann sjálfan,“ sagði Frið­ björg og sagðist ekki vilja segja til um hvort þetta hefði áhrif á kvöldin sem Timothy á að koma fram á. „Ég ætla að skoða þetta. Ég er voðalega lítið fyrir að dæma fólk. Ókei, það eiga sér allir einhverjar málsbætur þótt þeir hafi misstigið sig. Auðvitað misstígur fólk sig í lífinu, en kærleikurinn geng­ ur út á það að gefa öllum tækifæri aft­ ur,“ segir Friðbjörg. Friðbjörg segir að þessar fréttir dragi ekki úr trúverðugleika Timothys og þeim hæfileikum sem hann seg­ ist búa yfir. „Hann er með hæfileika. Það tek ég ekkert frá honum. Hann er búinn að sýna mér margt mjög fal­ legt í fari sínu, þarna sé ég hins vegar misbrest. En ég ætla að eiga samtal við hann og ætla ekki að dæma neitt fyrirfram,“ segir hún. n Dæmdur svikari heldur miðilsnámskeið á Íslandi n Segist vera sjáandi og spámiðill n Var dæmdur fyrir bótasvik yfir 16 ára tímabil Jón Steinar Sandholt jonsteinar@dv.is Timothy Abbott Timothy mun halda námskeið og fræðslu- kvöld á landinu í ágúst og september. Hann hlaut dóm nú í byrjun ágúst fyrir bóta- og skattsvik yfir langt tímabil. Gengur án hækja Rannsakendur náðu myndskeiði af Janette á göngu án hækjanna sem hún hefur gengið með um árabil. Í ræktinni Upptaka náðist af Timothy þar sem hann tók á því í ræktinni, en hann hafði haldið því fram að hann væri svo illa haldinn líkamlega að hann gæti vart gengið. Með hækjurnar Janette mætti í dómsal með hækjurnar, en rannsakendur segja hana ekki hafa þurft á þeim að halda. Aukið afhendingar- öryggi Kjalnesingar munu framvegis búa við aukið öryggi í orkumál­ um. Þetta kemur fram í tilkynn­ ingu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Í sumar hefur Orkuveitan unnið að því að koma hluta af Kjal­ arneslínu í jörð og endurnýja heitavatnsæðar. Langstærstur hluti rafdreifi­ kerfis Orkuveitunnar er í jörðu, eða 96 prósent. Samanlögð lengd allra rafstrengjanna er tæpir 3.400 kílómetrar. Um síð­ ustu áramót voru loftlínurn­ ar um 130 kílómetrar og eru flestar í dreifðari byggðum höf­ uðborgarsvæðisins , til dæmis Lögbergslína, sem liggur upp í Bláfjöll. Byrjað var í fyrra að vinna skipulega að því að koma hluta af loftlínum í jörð á Kjalarnesi. Þar verður stundum ansi hvasst og rokið getur slegið út loftlín­ um eða hreinlega brotið staura með tilheyrandi rafmagnsleysi. Stærsti áfangi þessa umbóta­ verks hefur verið unninn í sum­ ar og samhliða hefur heita­ vatnslögn til Kjalnesinga verið endurnýjuð. Með þessu er af­ hendingaröryggi orku til fólks og fyrirtækja á Kjalarnesi aukið. Á árinu 2013 voru straum­ leysismínútur á notanda vegna ófyrirséðra atvika 7,3. Það þýðir að afhendingaröryggi rafveitu Orkuveitunnar var 99,999 pró­ sent þetta ár. Ef taldar eru með þær sex straumleysismínútur sem viðhalds­ og tengivinna ollu hverjum notanda, þá reikn­ ast afhendingaröryggið 99,998 prósent. „Ég ætla ekki að loka dyr- unum fyrr en ég hitti hann sjálfan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.