Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Blaðsíða 27
Lífsstíll 27Vikublað 19.–21. ágúst 2014 Rita Ora hannar fyrir Adidas Djörf og töffaraleg lína B reska söngkonan Rita Ora hef- ur bæst í hóp þeirra stjarna sem hannað hafa fyrir þýska íþróttavörurisann Adidas en lína hennar kom á markað á dögun- um. „Samstarfið kom til vegna sam- eiginlegrar ástar og þakklætis. Ég hef alltaf verið aðdáandi Adidas Orig- inals og virði það sem þeir standa fyrir í óttaleysi sínu og frumleika,“ sagði Ora í tilkynningu á dögunum. „Ég vann mjög náið með Adidas Originals til að setja persónulegt ein- kenni á hverja flík með tengingu við tónlistina mína, feril minn og líf mitt. Ég er mjög stolt af línunni og yfir mig spennt fyrir hönd aðdáenda minna að komast yfir hana.“ Í línu Ora kennir ýmissa grasa. Hún þykir bæði djörf og töffaraleg en um leið fjölbreytt því alls skiptist línan í fimm flokka eftir þema lita og mynstra. Þannig er einn flokkur sér- staklega tileinkaður svörtum fatnaði, annar pastellituðum fötum og enn annar fötum með blómamynstri. Þetta eru síður en svo fyrstu skref söngkonunnar í tískuheiminum, en hún var til að mynda andlit síð- ustu línu DKNY auk þess sem hún sýndi föt merkisins á tískusýningu. Þá er Ora ein besta vinkona ofurfyr- irsætunnar Cöru Delevingne og fata- hönnuðarins Jeremy Scott. Þetta er heldur ekki í fyrsta sinn sem Adidas fær frægt fólk í samstarf með sér, en meðal þeirra sem hannað hafa fyrir fyrirtækið eru rapparinn Kanye West og söngkonan Selena Gomez. n Blómamynstur Í línu Ora má finna ýmsan, fjölbreyttan fatnað. Mynd dALiM Töff Fötin í línu Ora eru ansi töffaraleg.  Lausir liðir Náttúrulegir liðir eru alltaf falleg lausn fyrir hárið. Hægt er að ná fram slíkum liðum með ýmsum hárefnum eða einfaldlega með því að flétta blautt hár og láta það þorna í fléttu. Liðir fara líka vel við hárskraut og höfuðföt af ýmsu tagi og því fullkomnir fyrir haust- og vetrartískuna. Hárhugmyndir fyrir haustið n Fjölbreytt hártíska í vetur n Fléttur, snúðar og liðir Þ egar hausta tekur er ekki úr vegi að skoða hvað hefur verið áberandi á tískupöll- unum þegar kemur að hár- tísku fyrir haustið. n  Snúðar Snúðar eru alltaf klassískir í hárið enda bæði falleg og þægileg lausn. Hvort sem þeir eru stífir og glansandi ballerínusnúðar hátt á höfðinu eða lausir og afslappaðir snúðar neðarlega er þessi sívinsæla greiðsla klárlega málið í haust.  Fléttur og snúningar Fléttaðar greiðslur og snúningar fara seint úr tísku, enda eru möguleikarnir endalausir. Ýmiss konar uppsettar greiðslur með fléttum gefa rómantískt og fallegt útlit sem passar vel á haustin.  Miðjuskipting Að skipta hárinu fyrir miðju höfði hefur verið áberandi undanfarin misseri og virðist ætla að verða þannig áfram. Ekki er heldur verra ef hárið er tekið frá andlitinu en það svo rammað inn með nokkrum lausum lokkum. App fyrir bestu kúnnana Hátískumerkið Carolina Herrera hefur nú látið útbúa snjallsímafor- rit fyrir sína bestu viðskiptavini. Um er að ræða sérhannað app sem aðeins útvöldum viðskipta- vinum er boðið að nota en með því gefst notendum kostur á að vera í beinum samskiptum við sölufulltrúa á vegum tískuvöru- framleiðandans. Þannig geta not- endur fengið útlitsráðgjöf og boð í einkasamkvæmi á vegum Herrera auk þess sem hægt er að kaupa nýjar flíkur áður en þær koma í verslanir. Með þessu getur tísku- merkið einnig fylgst með árangri sölufulltrúa á þess vegum; séð við hverja það á í samskiptum og hvernig gengur að selja flíkur. Ljóst er að snjallsímaforrit af þessu tagi eykur þægindi mikilvægra við- skiptavina hjá Herrera og spurning hvort um sé að ræða framtíðina hjá stórum tískumerkjum. Jolie hannar með Louboutin Bandaríska leikkonan Angelina Jolie vakti mikla athygli fyrir skó- búnað sinn á blaðamannafund- um er hún kynnti nýjustu mynd sína, Maleficent. Skórnir voru hannaðir af Christian Louboutin en það sem færri vita er að Jolie tók sjálf stóran þátt í hönnuninni. Um er að ræða heila línu af skóm sem innblásnir eru af persónu Jolie í myndinni en hællinn lítur út eins og reykur. Skólínan kall- ast Malangeli og fæst aðeins í takmörkuðu magni. Þeir kosta þó skildinginn því eitt par kostar rúmar 170 þúsund íslenskar krónur en hluti af ágóða sölunnar rennur til SOS Barnaþorpanna. Barbie-föt á markað Brátt geta aðdáendur Barbie klætt sig eins og hún því bandarísku tískumerkin Lord & Taylor, Wild- fox og Forever 21 hafa gert samn- ing við fyrirtækið Mattel Inc. um framleiðslu á fatalínum sem sækja innblástur í fataskáp dúkkunnar. Línurnar munu taka mið af fata- skáp Barbie frá sjötta, níunda og tíunda áratug síðustu aldar. „Að- dáendur Barbie eru á öllum aldri og margar stelpur sem léku sér einu sinni með hana eru vaxn- ar úr grasi,“ segir Jessica Dunne, framkvæmdastjóri Mattel í viðtali við tímaritið Women‘s Wear Daily. „Við vildum ganga úr skugga um að við settum saman vöru sem næði til allra aldurshópa.“ Barbie- línurnar hafa verið í vinnslu um nokkurt skeið og koma í verslanir í Bandaríkjunum þann 6. septem- ber næstkomandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.