Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Side 30
Vikublað 19.–21. ágúst 201430 Sport
S
túkan við Samsung-völl-
inn í Garðabæ, heimavöll
Stjörnunnar í knattspyrnu,
lék á reiðiskjálfi rétt fyrir tíu
mánudagskvöldið 11. ágúst.
Stjarnan atti kappi við Þór, neðsta
liðið í Pepsi-deildinni, og hafði
klúðrað fjölmörgum dauðafærum til
að gera út um leikinn og tryggja sér
stigin þrjú sem í boði voru. Það var á
93. mínútu sem Stjarnan fékk auka-
spyrnu rétt fyrir utan vítateig Þórs
og miðjumaðurinn frá El Salvador,
Pablo Punyed, gerði sig líklegan til
þess að taka spyrnuna. Hann spyrnti
boltanum efst í nærhornið, gjörsam-
lega óverjandi fyrir markmann Þórs,
og fagnaðarlætin í stúkunni voru
ósvikin. Blaðamaður DV settist niður
með þessum geðþekka knattspyrn-
umanni, sem talar fimm tungumál,
er með háskólagráðu í enskum og
ítölskum bókmenntum, spilar á pí-
anó og lék eitt sinn við hlið Brasilíu-
mannsins magnaða Romario, sem
varð heimsmeistari árið 1994. Nú er
fram undan hans stærsta áskorun á
fótboltaferlinum en lið Stjörnunn-
ar mætir ítalska stórliðinu Intern-
azionale frá Mílanó, einu sigur-
sælasta félagi heims.
Spilaði fótbolta á götunni
Pablo er fæddur árið 1990 í Miami
í Bandaríkjunum, þar sem foreldr-
ar hans bjuggu. Hann var þó ekki
orðinn hár í loftinu þegar fjölskyld-
an fluttist til El Salvador, heimalands
föður hans, og þar var hann allt fram
á unglingsaldur þegar hann flutti aft-
ur til Miami til að fara í gagnfræða-
skóla. „Pabbi fékk vinnu í El Salvador
þegar ég var þriggja ára og við flutt-
um öll, bræður mínir og foreldrar.
Nánast öll mín fjölskylda býr þar,
frænkur, frændur og amma og afi.
Þar fór ég mikið í fótbolta og spilaði
mest á götunni með öðrum krökk-
um. Þar eru félög ekki með barna-
starf en skólarnir sjá um það í stað-
inn. Við vinirnir vorum alltaf úti í
fótbolta og lékum okkur með bolta
sem við fengum í afmælisgjöf.
Venjulega entist einn bolti þangað til
sá næsti átti afmæli og þannig gekk
þetta,“ segir Pablo hlæjandi og seg-
ir að þeir hafi sjaldan þurft að búa
sér til bolta sjálfir. „Stundum spiluð-
um við á malbiki, stundum á grasi og
stundum á möl. Boltarnir gátu orðið
alveg loftlausir en við spiluðum samt
með þá og ég held að það hafi bara
hjálpað til við tæknina.“
Elstir en langbestir
Sem fyrr segir flutti Pablo aftur til Mi-
ami á táningsaldri til að fara í gagn-
fræðaskóla og til að spila fótbolta.
Þar komst hann að hjá góðu liði, sem
heitir í dag Fort Lauderdale Strikers
en hét þá Miami FC. Liðið spilaði
í næstefstu deild í Bandaríkjunum
og með liðinu spilaði enginn annar
en Romario, sem lyfti heimsmeist-
arabikarnum árið 1994 með brasil-
íska landsliðinu. Þá spilaði Zinho
einnig með Miami, en hann var liðs-
félagi Romario í brasilíska lands-
liðinu árið 1994. „Það var ótrúlegt að
fylgjast með þessum tveimur spila.
Þeir voru fertugir og hreyfðu sig varla
en voru samt langbestir og misstu
aldrei boltann. Stundum fékk ég að
æfa með aðalliðinu og það var ótrú-
legt að æfa með þeim. Í framhaldinu
af því að ég spilaði með Miami var ég
kallaður inn í landsliðshóp Banda-
ríkjanna, skipuðu leikmönnum
yngri en 20 ára. Með liðinu fór ég til
Mexíkó og spilaði á æfingamóti og
gekk vel. Meiðsli komu hins vegar
í veg fyrir að ég kæmist aftur í liðið
seinna,“ segir Pablo sem virðist eiga
afar jarðbundinn föður og það hefur
smitast til hans.
Hann ákvað að nýta sér fótbolt-
ann til að fá styrk fyrir háskólanámi,
en pabbi hans lagði áherslu á mikil-
vægi þess að ná sér í háskólagráðu.
„Hann sagði mér að klára það og síð-
ar mætti ég hafa áhyggjur af fótbolta.
Skólinn sem varð fyrir valinu er í
New York og þar fékk ég fullan skóla-
styrk. Á síðasta árinu var ég jafnframt
fyrirliði liðsins og ég lærði margt á
þessum tíma,“ segir Pablo.
Vinkonan varð kærasta
Allt virtist vera á réttri leið og Pablo
hafði augun á MLS-atvinnumanna-
deildinni í Bandaríkjunum. Hann
hafði landsliðsreynslu, hafði spilað
með Romario og verið fyrirliði. Að
loknu háskólanámi var hann ekki
kominn í samband við neitt MLS-
lið og hann þurfti að finna sér önnur
tækifæri. Þar kom Ísland til sögunn-
ar. „Ég varð að taka ákvörðun um að
bíða lengur eftir því að liðin myndu
hafa samband við mig eða þá að ég
varð sjálfur að finna mér eitthvað.
Á þessum tíma voru ég og kærastan
mín, Rúna Sif Stefánsdóttir, bara
vinir og vorum saman í háskóla.
Hún benti mér á að koma hingað
og reyna fyrir mér, sem varð niður-
staðan. Í framhaldinu urðum við svo
kærustupar,“ segir Pablo. Þau bjuggu
saman í Grafarvogi fyrst um sinn
og því lá beinast við að Pablo færi á
reynslu hjá Fjölni. „Ég vissi ekki mik-
ið um Ísland þá og ákvað að prófa að
mæta hjá þeim. Rúna Sif kom mér í
samband við liðið. Þar reyndust all-
ir mér frábærlega, þjálfarinn, stjórn-
in og leikmenn. Þar var ég sumar-
ið 2012 og átti mjög gott tímabil, en
liðinu gekk svona sæmilega. Árið eft-
ir fór ég til Fylkis en þar hafði ég æft
áður en ég gekk til liðs við Fjölni. Ég
vildi spila í efstu deild og Fylkir bauð
mér samning,“ segir Pablo. Samn-
ingurinn var til eins árs en meiðsli
komu í veg fyrir að Pablo næði sér
almennilega á strik með Fylki. Um
haustið reyndi hann fyrir sér í Sví-
þjóð, á Englandi og tók þátt í æfinga-
tímabili MLS-liðsins Kansas City.
Þjálfarinn þar vildi halda Pablo en
vildi lána hann í lið í neðri deildun-
um fyrst. Pablo leist ekki vel á þau
áform og ákvað að koma aftur til Ís-
lands.
Stórleikur á San Siro
„Ég vildi frekar spila heilt tímabil hér
á Íslandi og þroskast sem leikmað-
ur. FH sýndi mér áhuga, ég fékk að
æfa með þeim og svo hringdi þjálf-
ari Stjörnunnar í mig, Rúnar Páll
Sigmundsson. Hann vildi ólmur
fá mig hingað því þeir höfðu misst
leikmann sem er svipaður mér. Allt
við klúbbinn er frábært og þegar ég
hafði prófað nokkrar æfingar var
enginn efi um framhaldið. Samn-
ingurinn er til tveggja ára svo von-
andi verður aðeins meiri stöðugleiki
núna,“ segir Pablo. Á meðan við sitj-
um rétt við anddyri Stjörnuheimil-
isins ganga margir leikmenn, fyrr-
verandi og núverandi, þar í gegn.
Þeir heilsa Pablo og eru áhugasamir
um viðtalið sem er í gangi. Ekki skal
undrast, því Pablo hefur verið lykil-
maður í frábæru gengi Stjörnunnar
á þessu tímabili og þá sérstaklega í
Evrópudeildinni. Fram undan eru
leikir við stórliðið Internazionale frá
Mílanó á Ítalíu. Liðið vann Meist-
aradeildina árið 2010 og er marg-
faldur ítalskur meistari. Heimavöllur
þeirra, San Siro, sem stuðningsmenn
Inter kalla Guiseppe Meazza, tek-
ur 80 þúsund manns í sæti og fáir
leikmanna Stjörnunnar hafa spil-
að á slíkum leikvangi áður. Þetta er
eitthvað sem Pablo gerði ekki ráð
fyrir þegar hann kom til Íslands að
spila, þar sem áhorfendur eru taldir í
hundruðum, ekki þúsundum.
Vill vinna titla með Stjörnunni
„Þetta er draumur í dós. Ungir
knattspyrnumenn horfa á stærstu
keppnir heims og hugsa með sér
hvað það væri frábært að fá að spila
á stærstu leikvöngunum í stærstu
keppnunum. San Siro er í flokki
með Wembley, Nou Camp, Berna-
beu, Allianz Arena og fleirum stór-
kostlegum leikvöngum. Allt í einu
erum við að fara að spila þar og ekki
í einhverjum vináttu- eða góðgerðar-
leik. Þetta er umspilsleikur um sæti
í riðlakeppni Evrópudeildarinn-
ar. Þetta er algjörlega frábært,“ segir
Pablo, en hann segir að það hafi ver-
ið markmið sitt að spila með liði sem
er í Evrópukeppni. Nú sé markmiðið
hins vegar að gera eins vel og mögu-
legt er með Stjörnunni og vonandi
skila titlum í hús. Það er vel mögu-
Frá götum El Salvador til San Siro
n Pablo Punyed hefur komið víða við á stuttum ferli n Stærstu leikir ferilsins fram undan
Pablo Punyed Knattspyrnumanninum
frá El Salvador er margt til lista lagt og er
fjöltyngdur. Hann talar meðal annars ítölsku,
sem mun koma sér vel þegar Stjarnan mætir
stórliðinu Inter Milano. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Tilfinningin
var ótrúleg
og við fengum allir
gæsahúð