Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2014, Síða 36
36 Fólk
É
g er borgartýpan,“ segir Alma
Dögg Torfadóttir, kærasta
knattspyrnumannsins og fyrr-
um herra Ísland, Garðars
Gunnlaugssonar, en parið er
flutt frá Akranesi í höfuðborgina.
„Við ákváðum að taka þetta skref
saman og fengum fína íbúð í Skugga-
hverfinu. Auðvitað er þægilegt að
vera í litlum bæ upp á börnin að gera
en þetta var alltaf draumurinn. Ég
hef búið í borginni áður og í Noregi
líka og hef alltaf verið meiri borgar-
barn.“
Saknar ekki djammsins
Alma Dögg, sem er að verða 22 ára,
segir lítið mál að vera í sambandi
við jafn ráðsettan föður og Garðar
en hann á tvö börn með ísdrottn-
ingunni Ásdísi Rán og einn eldri
son, Daníel, sem nú býr á Siglufirði.
„Ég hef alltaf þurft að bera ábyrgð
og finnst það lítið mál. Ég er bara
heppin að eiga þau að og get ekki
ímyndað mér annað en að vera með
börnin,“ segir hún og bætir aðspurð
við að hún sakni ekki djammsins.
„Annars eru börnin orðin það göm-
ul að við getum alveg kíkt út ef við
viljum en við veljum að vera frekar
heima með börnin. Þar líður okkur
best. Þau eru svo stór partur af þessu
hjá okkur. Við smullum saman um
leið og við Garðar fórum að vera
saman. Það var eins og þetta hefði
átt að gerast,“ segir Alma Dögg, sem
var einnig stjúpmamma í sínu fyrra
sambandi.
Tæklað með þroska
Alma Dögg segir sambandið við
barnsmóður og fyrrverandi eigin-
konu Garðars, Ásdísi Rán, mjög gott.
„Þetta gengi allt frekar brösuglega
ef við værum ekki í góðu sambandi.
Grunnurinn er að halda samskipt-
um góðum – fyrir börnin. Þetta hefur
aldrei verið neitt vesen og allt tæklað
með þroska og út frá því sem er best
fyrir börnin,“ segir hún og þvertek-
ur fyrir að það sé ógnandi að hafa ís-
drottninguna sjálfa á kantinum. „Við
Garðar höfum gengið í gegnum ým-
islegt síðan við byrjuðum saman og
alltaf hefur Ásdís staðið við bakið á
okkur. Hún er alltaf jafn yndisleg.
Mér stafar engin ógn af henni.“
Athyglin erfið
Alma Dögg starfar sem verslunar-
stjóri undirfataverslunarinnar Mary
Carmen en Ásdís Rán hefur setið
fyrir á auglýsingum fyrirtækisins.
„Eigandinn er sameiginlegur vin-
ur okkar Ásdísar og það var í gegn-
um hana og systur hennar sem ég
kynntist honum. Ég vissi því alltaf að
hún myndi auglýsa fyrir okkur. Við
erum bara fáránlega heppin að fá
hana í þetta verkefni.“
Alma Dögg viðurkennir að það
hafi verið erfitt að venjast athyglinni
sem fylgir sambandinu við Garðar.
„Ég er ekki mikið fyrir utanaðkom-
andi athygli og fannst þetta mjög
erfitt í fyrstu. Ég er nefnilega feim-
in týpa. En þetta er víst eitt af því
sem fylgir honum og þessu sam-
bandi okkar. Ég þurfti að venjast því
og finnst þetta allt orðið mun auð-
veldara núna. Þetta er vont en það
venst,“ segir hún brosandi.
Djörf undirföt
Varðandi tískuna í undirfatnaði seg-
ir Alma Dögg íslenskar konur orðnar
djarfari í vali. „Íslenskar konur hafa
ekki alltaf verið opnar og hafa hing-
að til viljað fela sig á bak við svart,
hvítt og þetta beisik en með svona
búð, þar sem úrvalið er mikið og
verðið gott, þá eru þær að sleppa sér
meira. Tískan í dag er djörf og það
eru litir í gangi. Eins hafa korsilett
verið að koma sterk inn sem og
djarfir kjólar.“
Aðspurð segist hún aldrei myndi
láta sjá sig í ósamsettum undirföt-
um. „Aldrei. Kannski hef ég ein-
hvern tímann verið þannig und-
ir fötunum en ég myndi aldrei láta
neinn sjá mig þannig. Garðar er
heppinn. Hans kona er alltaf í flott-
um nærfötum. Og það sama á við
um eiginmenn þeirra sem ég hef
aðstoðað í versluninni,“ segir Alma
brosandi að lokum. n
Vikublað 19.–21. ágúst 2014
Fagnaði með
kótelettum
„Fátt er betra en íslenska lamba-
kjötið. Læri eða hryggur með Ora
grænum, kartöflum og rabarbara-
sultu er með því besta sem hægt
er að bjóða upp á.“ Einhvern veg-
inn svona hefst iðulega ein spurn-
ing í spurningaþætti Vilhelms
Antons Jónssonar, Nei hættu nú
alveg, á Rás 2. Því þótti við hæfi
að Villi skyldi fagna með kótel-
ettum í raspi, Ora grænum, rauð-
káli, kartöflum, feiti og rabarbara-
sultu þegar tökum lauk á fjórðu
myndinni með þeim Sveppa
og Villa – Algjör Sveppi og Gói
bjarga málunum. Að því tilefni
deildi Villi meðfylgjandi mynd á
Instagram. Áætlað er að frumsýna
myndina í október á þessu ári.
M
yndin er æðisleg og fangar
karaktera okkar mjög vel
og hvað þá líkama okkar,“
segir Björk Eiðsdóttir, rit-
stjóri MAN, hlæjandi sem
fagnaði fertugsafmæli sínu ásamt
vinkonu sinni, söng- og leikkonunni
Selmu Björnsdóttur, um síðustu
helgi en þær stöllur fengu málaða
mynd af þeim í gjöf. Listamaður-
inn er fyrrverandi sjónvarpskonan
og listakonan Bergrún Íris. „Bergrún
er algjör snillingur. Þetta er svo flott
mynd og við höfum skemmt okkur
mikið yfir henni. Hún nær meira að
segja hrukkunum á nefinu á mér.“
Björk segist svífa um á bleiku
skýi eftir afmælisfögnuðinn. „Við
erum svo þakklát fyrir alla þessa
vini. Gleðin var ótrúleg og stemn-
ingin frábær. Ég fékk bara móral í
gær þegar við fórum að sækja gjaf-
irnar enda voru þær óþarfar. Það var
alveg nóg að allir kæmu og skemmtu
sér með okkur.“
Þær Selma hafa verið vinkonur
frá 13 ára aldri. „Við héldum líka upp
á þrítugsafmæli okkar saman. Þá
vorum við eins klæddar líkt og núna
þótt þá hafi sést í aðeins meira hold.
Þá héldum við stelpupartí en fað-
ir Selmu kvartaði í vísuformi svo við
ákváðum að leyfa karlpeningnum að
vera með í þetta skiptið.“
Björk segist fagna því að nálgast
fimmtugsaldurinn en hún verður
fertug í næsta mánuði. „Mér finnst
það bara ótrúlega gaman. Það vant-
ar alla aldurskomplexa í mig. Líkt og
Selma segir; það er betra að vera fer-
tugur en að verða ekki fertugur. Við
fórum yfir mikið af myndum af þessu
tilefni og ég er ekki frá því að við lít-
um betur út í dag en þegar við vorum
13 ára. Tískan var ekkert að fara of vel
með mann þá.“
Aðspurð segir hún þær ekki vera
farnar að skipuleggja fimmtugsaf-
mælið. „En ég er farin að hlakka til.
Það verður sjúklega gaman.“ n
Laus við aldurskomplexa
Björk og Selma fengu mynd af sér í afmælisgjöf
Æskuvinkonur Selma og Björk héldu
einnig upp á þrítugsafmæli sitt saman og
voru þá einnig í eins fötum.
Afmælisgjöfin Listakonan Bergrún Íris
málaði og gaf þeim þessa mynd af þeim.
MynD BergruniriS.coM
„Mér stafar engin
ógn af henni“
n Alma Dögg er kærasta Garðars Gunnlaugssonar
Ísdrottningin Ásdís Rán auglýsir
fyrir Mary Carmen en Alma Dögg er
verslunarstjóri verslunarinnar.
Sæt saman Alma segir
þau frekar velja að eyða
helgunum með börnunum
en úti á djamminu.
„Garðar er heppinn.
Hans kona er alltaf
í flottum nærfötum.
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Ástfangin Alma og Garðar eru flutt
saman til Reykjavíkur.
Stjúpmamma Alma Dögg er alsæl í stjúp-
mömmuhlutverkinu.
Fallegar Alma og krakkarnir smullu saman
strax í byrjun.
„Dásamlegt
ef allir væru
eins og ég“
Grínistinn Þorsteinn Guðmunds-
son birti á dögunum svokallaðan
vídeóminnismiða á myndbanda-
vefnum YouTube. Í honum talar
hann aðallega, á afar kómískan
hátt, um hversu dásamlegt lífið
væri ef allir væru eins og hann.
„Væri heimurinn ekki betri ef að
fólk væri eins og ég?“ spyr hann.
„Jú, ég komst að þeirri niður-
stöðu að svo væri.“ Þá talar Þor-
steinn einnig um hversu ófor-
skammaður hundurinn hans er,
milli þess sem hann sýnir hund-
inn hlaupa um í bakgrunninum.
Hugleikur
heiðrar Williams
Hugleikur Dagsson, listamaður og
grínisti, heiðrar minningu Robins
Williams með því að selja eftir-
prent í takmörkuðu upplagi til
styrktar Barna- og unglingageð-
deild Landspítala (BUGL). Á
heimasíðu Hugleiks segir að með
sölu á þessu verki vilji hann sér-
staklega vekja athygli á sjálfsvíg-
um. Hlutverk BUGL sé þríþætt;
að veita meðferð í formi bráða- og
sérfræðiþjónustu, verða leiðandi
í kennslu og ráðgjöf til annarra
þjónustuaðila um geðheilbrigð-
ismál barna og unglinga og að
stunda rannsóknir. Myndin er
af niðurlútum Anda úr kvik-
myndinni Aladdin frá árinu 1992
en Robin ljáði honum rödd sína
með eftirminnilegum hætti.