Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Side 2
Vikublað 8.–10. júlí 20142 Fréttir
Á
stuttum ráðherraferli hefur
Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, margsinnis ver-
ið gagnrýndur fyrir að stíga
út fyrir valdsvið sitt og ganga gegn
vönduðum stjórnsýsluháttum.
Áform ráðherrans um að flytja
Fiskistofu til Akureyrar hafa fallið í
grýttan jarðveg, en þar virðist sem
tekin hafi verið afdrifarík ákvörðun
án þess að fyrir henni væri skýr
lagaheimild. Flutningur stofnunar-
innar mun hafa afgerandi áhrif á líf
og kjör fjölmargra einstaklinga en
ákvörðunin er rökstudd sem liður í
byggðastefnu ríkisstjórnarinnar.
Hér á eftir verður rýnt í ýmis mál
sem komið hafa upp í ráðherratíð
Sigurðar Inga og þau skoðuð með til-
liti til laga, venja og viðtekinna hug-
mynda um góða stjórnsýslu.
Hætti skyndilega við
Á hveitibrauðsdögum nýrrar ríkis-
stjórnar varpaði Sigurður Ingi sinni
fyrstu sprengju. Í samtali við Bænda-
blaðið sagði hann að ef til vill væri
heppilegt að leggja niður umhverfis-
ráðuneytið. Róttækar hugmyndir
hans urðu ekki að veruleika, enda er
enn þá til umhverfis- og auðlinda-
ráðuneyti. Ummælin settu þó tón-
inn fyrir atburði sem áttu sér stað
seinna í sama mánuði.
Föstudagurinn
21. júní árið 2013
var stormasamur
dagur fyrir hinn
nýbakaða ráð-
herra. Lengi
hafði staðið
til að friðlýs-
ingaskilmálar
Þjórsárvera yrðu
undirritaðir þenn-
an dag og höfðu um-
hverfisráðuneytið og Um-
hverfisstofnun sent út boðskort til
ýmissa aðila. Að morgni dags ákvað
hins vegar Sigurður Ingi að hætta
við undirritunina, enda væri friðlýs-
ingin Ragnheiði Elínu Árnadóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ekki
að skapi auk þess sem Landsvirkjun
hefði gert athugasemdir við ferlið.
Ákvörðunin var gagnrýnd harðlega,
meðal annars af Náttúruverndar-
samtökum Íslands og þingmönnum
stjórnarandstöðunnar.
Rangar skýringar
Morgunútvarp Rásar 2 ræddi við
Sigurð Inga sem fullyrti að
Rangárþing ytra og Skaga-
fjörður hefðu gert alvar-
legar athugasemd-
ir við friðlýsinguna.
Þetta reyndist ekki
rétt, enda var haft eft-
ir Guðmundi Inga
Gunnlaugssyni, odd-
vita fyrrnefnds sveitar-
félags, að sveitarstjóri
hefði aðeins sent örlitlar
ábendingar en legðist ekki gegn
friðun. Auk þess kom fram í fundar-
gerð sveitarstjórnar Skagafjarðar
að stækkun Þjórsárvera og friðlýs-
ingarskilmálarnir hefðu verið sam-
þykktir þar með níu atkvæðum.
Fljótlega varð því ljóst að í friðlýs-
ingarmálinu hafði ekki aðeins ver-
ið hætt við stjórnvaldsákvörðun á
síðustu stundu heldur almenningi
einnig verið gefnar misvísandi skýr-
ingar á því hvað lá að baki.
Klúður aðstoðarmanns
Síðar sama dag varð uppi fótur og fit
vegna vinnubragða Helgu Sigurrósar
Valgeirsdóttur, aðstoðarmanns ráð-
herra. Þegar ráðherra hafði ákveðið
að boða Agnar Kristján Þorsteins-
son, starfsmann Háskóla Íslands,
á fund vegna undirskriftasöfnun-
ar gegn lækkun veiðigjalda var yfir-
manni Agnars sent sérstakt afrit af
fundarboðinu.
„Hvernig á að skilja þetta öðru-
vísi en sem beina hótun um at-
vinnumissi?“ spurði
Helga Vala
Helga-
dóttir, lögmaður Agnars,
sem mætti með honum
á fundinn og kvartaði.
Helga Sigurrós út-
skýrði vinnubrögð-
in sem mistök en
svaraði aldrei ít-
rekuðum fyrir-
spurnum DV um
það með hvaða hætti
mistökin hefðu átt sér
stað.
Á ábyrgð ráðherra
Þess ber að geta að pólitískir að-
stoðarmenn á borð við Helgu Sigur-
rós eru skipaðir af ráðherra sjálfum
samkvæmt 22. grein laga um Stjórn-
arráð Íslands. Þeir starfa alfarið á
ábyrgð og í umboði ráðherra.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
stjórnsýslufræðingur ræddi við DV
um ábyrgð aðstoðarmanna á dögun-
um og lýsti á þessa leið: „Störfum
aðstoðarmanna fylgir því pólitísk
ábyrgð en ekki stjórnunarleg eins og
í tilviki embættismanna og annarra
skipaðra eða ráðinna starfsmanna
ráðuneyta. Þessari pólitísku ábyrgð
eru aðstoðarmenn ráðherra í störf-
um sínum að fylgja eftir í umboði
síns ráðherra.“ Ljóst er því að Sigurð-
ur sem ráðherra ber ábyrgð á þeim
vinnubrögðum sem áttu sér stað
þennan dag.
Afturkall
Talsverða furðu
vakti þegar til-
kynning birt-
ist á vef um-
hverfis- og
auðlinda-
ráðuneytis-
ins hinn 24.
september
þar sem fram
kom að Sigurður
Ingi hefði „ákveðið að afturkalla“
lög um náttúruvernd sem samþykkt
voru í fyrra og var ætlað að taka gildi
1. apríl í ár.
400 dagar með Sigurði
n Ráðherraferill byrjar skrautlega n Geðþóttastjórnsýsla, þarmainnihald, afturkall og klaufaskapur
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
„Umhverfis- og
auðlindaráð-
herra hefur ákveðið
að afturkalla lög um
náttúruvernd
Svaf í
sameigninni
Aðfaranótt mánudagsins var
tiltölulega róleg í umdæmi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Á sunnudagskvöld hafði
lögregla þó í nógu að snúast
vegna brunans í Skeifunni. Í
dagbók lögreglu kemur fram að
snemma á mánudagsmorgun
hafi verið tilkynnt um ölvaðan
mann sem var sofandi í and-
dyri í sameign. Var maðurinn
vakinn og hélt hann sína leið.
Skömmu áður var tilkynnt um
þjófnað á rafgeymi úr vörubif-
reið. Málið er í rannsókn.
Sektaður um
90 þúsund
Í liðinni viku voru 33 ökumenn
kærðir í umdæmi lögreglunn-
ar á Selfossi fyrir að aka of hratt.
Sá sem hraðast ók mældist á 139
kílómetra hraða þar sem leyfður
hámarkshraði er 90 kílómetrar á
klukkustund. Í dagbók lögreglu
kemur fram að sá hinn sami hafi
átt einn punkt fyrir í ökuferils-
skrá. Þetta brot hafi kostað hann
3 punkta til viðbótar auk sekt-
arinnar sem í þessu tilfelli er
90.000 krónur. Þar sem ökumað-
urinn var á bráðabirgðaskírteini
voru ökuréttindi hans afturköll-
uð á staðnum og fær hann þau
ekki aftur fyrr en hann hefur
setið sérstakt námskeið. Tve-
ir voru stöðvaðir grunaðir um
ölvun við akstur í liðinni viku og
þrír aðrir vegna gruns um akstur
undir áhrifum fíkniefna. Tveir
þeirra eru taldir hafa verið und-
ir áhrifum kannabisefna en sá
þriðji er talinn hafa neytt fleiri
efna. Hann var auk þess án öku-
réttinda, hafði tapað þeim vegna
fyrri brota.