Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Síða 3
Fréttir 3Vikublað 8.–10. júlí 2014
400 dagar með Sigurði
n Ráðherraferill byrjar skrautlega n Geðþóttastjórnsýsla, þarmainnihald, afturkall og klaufaskapur
Sem kunnugt er geta ráðherrar
ekki einir og sér afturkallað lög, enda
fer Alþingi með löggjafarvaldið á Ís-
landi. Fram kom síðar í sömu frétta-
tilkynningu að Sigurður ætlaði að
leggja fram frumvarp um að nátt-
úruverndarlögin yrðu felld úr gildi.
Engu að síður vakti orðalagið athygli
og þótti til marks um valdhroka.
Alþingi sem afgreiðslustofnun
Röksemdir Sigurðar Inga varðandi
Fiskistofu hafa að nokkru
leyti verið í takt við
þetta. Í kvöldfréttum
RÚV í síðustu viku
var haft eftir hon-
um að hann hygð-
ist spyrja forsætis-
ráðuneytið hvort
tiltekin klausa væri
enn þá í lögum um
Stjórnarráðið. Mál-
flutningur ráðherra og
framsetning fréttarinnar
gaf til kynna að um einhvers
konar álitamál væri að ræða.
Þegar DV hringdi í ráðuneytið
og óskaði eftir skýringum á um-
mælum Sigurðar bárust þau svör að
hann hefði meint að líklega yrði lög-
um breytt, annaðhvort lögunum
um Fiskistofu eða lögum
um Stjórnarráðið. Það
virtist ekki hvarfla
að ráðherranum,
né þeim sem útskýrði orð
hans, að hugsanlega yrði slíkum
lagabreytingum hafnað í meðförum
þingsins.
Svo virðist einfaldlega sem ráð-
herra telji málið útrætt og ákvörðun-
ina tekna, jafnvel þótt löggjafarsam-
kundan hafi ekki átt neina aðild að
henni. Þessi þankagangur minnir á
gagnrýni sem mikið bar á í kringum
hrunið og búsáhaldabyltinguna, en
þá var því iðulega haldið fram að Al-
þingi hefði glatað sínu rétta hlutverki
og breyst í afgreiðslustofnun fram-
kvæmdarvaldsins.
Leyfði kúkabjór
Eitt furðulegasta mál
Sigurðar Inga kom
upp í janúar á
þessu ári eftir að
heilbrigðiseftirlit
Vesturlands gaf út
fyrirmæli um sölu-
stöðvun og inn-
köllun hvalabjórs frá
Brugghúsinu Steðja.
Bæði heilbrigðiseftirlitið og
Matvælastofnun töldu framleiðslu
hvalamjölsins sem notað var í bjór-
inn ekki uppfylla skilyrði matvæla-
laga. Sigurður Ingi kaus að virða álit
heilbrigðiseftirlitsins að vettugi og
heimilaði sölu og dreifingu bjórsins.
Ekki var tilkynnt um ákvörðun ráð-
herra með hefðbundnum hætti
heldur upplýst um hana í héraðs-
fréttamiðlinum Skessuhorni.
Hvalveiðar Íslendinga eru væg-
ast sagt umdeildar og hefur Ísland
þurft að gjalda fyrir þær á alþjóða-
vettvangi. Með því að leyfa hvalabjór
þótti mörgum Sigurður Ingi ganga
vasklega fram og sýna karlmennsku.
Ljóminn fór samt dálítið af fram-
göngu ráðherrans þegar í ljós kom
að mjölið í bjórnum var unnið úr
svokölluðu þarmainnihaldi. DV
innti eiganda brugghússins Steðja
eftir því þann 2. febrúar hvort
þarmainnihald væri ekki það sama
og kúkur. Hann vísaði því á bug. „Það
er hægt að mála upp alls kyns mynd-
ir af þessu en þetta er auðvitað ekki
svona,“ sagði hann aðspurður hvort
um hvalakúk væri að ræða.
Góður við Hrafnhildi
Rúmlega mánuði eftir að
hvalakúksmálið komst í há-
mæli greindi DV frá því að
Sigurður Ingi Jóhanns-
son hefði afturkallað
áminningu sem Stef-
án Thors, þáverandi
ráðuneytisstjóri í um-
hverfisráðuneytinu,
veitti Hrafnhildi Ástu
Þorvaldsdóttur í starfi
vegna samstarfsörð-
ugleika. Hrafnhildur, sem er
náfrænka Davíðs Oddssonar, hafði
á þessum tíma sótt um stöðu fram-
kvæmdastjóra LÍN og dró áminn-
ingin óneitanlega úr möguleika
Hrafnhildar á því að fá starfið.
Sigurður dró áminninguna til
baka eftir að Illugi hafði rætt sérstak-
lega við hann, og í kjölfarið réði Illugi
Hrafnhildi þvert á hæfnismat stjórn-
ar LÍN. Stefán Thors átti erfitt með
að skilja ákvörðun Sigurðar Inga og
umrædda atburðarás. „Ég hugsaði
minn gang eftir þetta, hvort ég ætti
að hætta og fara að gera eitthvað
annað,“ sagði hann í samtali við DV
þann 7. mars, en þá hafði hann látið
af störfum, farið í námsleyfi og
hafnað boði Sigurðar Inga
um að taka að sér sér-
verkefni í stað þess að vera ráðu-
neytisstjóri.
Ráðherra útskýrði aldrei hvers
vegna áminningin var dregin til baka
en Hrafnhildur hafði fengið hana eft-
ir að vinnusálfræðingurinn Mart-
einn Steinar Jónsson komst að þeirri
niðurstöðu að hún hefði „margsinnis
með óásættanlegu viðmóti sínu og
framkomu stuðlað að samskiptavanda
innan ráðuneytisins“. Afar óvenjulegt
er að ráðherrar snúi áminningum
við með þessum hætti, en í því
tilviki sem hér um ræðir höfðu
afskipti Sigurðar Inga ekki að-
eins áhrif á ráðningarferli hjá
ríkisstofnun heldur einnig á
stöðu embættismanns í um-
hverfisráðuneytinu.
Þrjú ár eftir
Enn eru að minnsta kosti tæplega
þrjú ár eftir af ráðherraferli Sigurðar
Inga. Hann er varaformaður Fram-
sóknarflokksins og virðist njóta þar
breiðs stuðnings. n
„Umhverfis-
og auð-
lindaráðherra
hefur ákveðið að
afturkalla lög um
náttúruvernd
154 fylgt til og frá Íslandi
Verkefnum alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra fjölgar
D
aglegum verkefnum alþjóða-
deildar ríkislögreglustjóra
fjölgar sífellt. Á árinu 2013
sáu starfsmenn alþjóða-
deildar 72 sinnum um lögreglufylgd
þar sem 154 einstaklingum var fylgt
til og frá Íslandi, þar af voru þrett-
án skipti vegna framsals eða af-
hendingar sakamanna. Þetta kemur
fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra
fyrir árið 2013.
Í maímánuði vísaði alþjóða-
deild í fyrsta skipti hópi einstak-
linga frá landinu með því að leigja
til þess flugvél. DV fjallaði ítarlega
um málið á sínum tíma en um var
að ræða fimmtíu Króata sem synj-
að var um hæli hér á landi. Í des-
ember bar alþjóðadeild síðan í
fyrsta skipti ábyrgð á framkvæmd
á sameiginlegri endursendingu
(JRO) til þriggja landa undir merkj-
um Frontex, Landamærastofnunar
Evrópu.
Í skýrslu ríkislögreglustjóra
kemur jafnframt fram að um mitt
síðasta ár hafi lokið útfærslu á
gagnvirkum upplýsingabrunni al-
þjóðadeildar sem deildin kemur til
með að starfrækja á innri vef lög-
reglunnar. Upplýsingabrunnurinn
nefnist Alþjóðawiki og er ætlaður
starfsmönnum deildarinnar, sem
og lögreglumönnum og samstarfs-
aðilum. Með tilkomu Alþjóðawikis
verða upplýsingar um starfsemi og
þjónustu alþjóðadeildarinnar og
um alþjóðlegt samstarf lögreglu
og samstarfsaðila hennar gerð-
ar aðgengilegri en áður hefur ver-
ið. Jafnframt verður ferli beiðna
um þjónustu og aðstoð deildarinn-
ar markvissara og einfaldara. Stefnt
er að því Alþjóðawiki verði opnað á
þessu ári. n aslaug@dv.is
Travel John
ferðaklósett
leysa málið