Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Síða 4
4 Fréttir Vikublað 8.–10. júlí 2014
Rýmdu deild eftir að
fangi var „kitlaður“
n Öryggisálma rýmd undir Stefán Blackburn n Dæmdir í Stokkseyrarmálinu
Þ
riggja manna deild á Litla-
Hrauni var rýmd nýlega
vegna uppákomu sem kom
upp á milli Stefáns Black-
burn og Stefáns Loga Sí-
varssonar annars vegar og eins
samfanga þeirra hins vegar, á með-
ferðargangi Litla-Hrauns. Heimildir
DV herma að fangelsismálayfirvöld
líti á uppákomuna sem slagsmál og
að málið sé talið alvarlegt.
Fangaverðir á Litla-Hrauni sáu
ástæðu til að taka Stefán Loga og
Stefán af meðferðarganginum, en
öryggisdeild fangelsisins var rýmd
og Stefán Blackburn vistaður á
henni. Stefán Logi var samkvæmt
heimildum DV vistaður í annarri
byggingu en síðar færður aftur inn
á meðferðarganginn.
Ætluð fyrir erfiða fanga
Stefán og Stefán Logi fengu báð-
ir sex ára dóm í Stokkseyrarmál-
inu, en þeir höfðu sig mest frammi í
því. Í málinu voru tveir menn svipt-
ir frelsi og annar þeirra pyntaður í
heilan sólarhring í fyrrasumar.
Öryggisdeildin er ætluð fyrir
„erfiða fanga“. Þó er ekki algengt að
deildin sé notuð í því skyni, heldur
sitja þar venjulega fangar sem hafa
ekki verið vistaðir þar af öryggisá-
stæðum. Það er gert til að nýta plás-
sið enda bíður mikill fjöldi fanga af-
plánunar, alls biðu 463 afplánunar í
lok ágúst í fyrra.
„Geðþóttaákvörðun“
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson,
formaður Stoða, hagsmunasam-
taka fanga, segir í samtali við DV
að „geðþóttaákvörðun“ Tryggva
Ágústssonar deildarstjóra hafi ráðið
því að Stefán var vistaður í öryggis-
álmunni. Hann og Stefán Logi hafi
verið að „kitla“ samfanga. Sá hafi
ekki verið að kvarta undan þeim
og að atvikið hafi náðst á öryggis-
myndavél. Viðbrögð fangavarða
hafi verið harkalegri en tilefni hafi
verið til.
„Það var þarna félagi þeirra sem
var að fara í opið úrræði, og það er
hefð fyrir því að fangar séu svona
kitlaðir og eitthvað smá pústað-
ir áður en þeir fara í slíkt. Og þeir
voru eitthvað að leika sér þarna í
sófanum niðri á meðferðardeild og
Tryggvi ákvað bara að þarna hafi
farið fram misþyrming og slags-
mál,“ segir Þórhallur.
„Þetta er svolítið skrýtið dæmi.
Maðurinn sem átti að hafa orðið
fyrir barðinu á Stefáni Blackburn
var ekkert að kvarta undan mann-
inum. Þetta geðþóttavald sem ríkir
í reglum og lögum fangelsanna er
orðið svolítið mikið. Þeir geta túlk-
að hlutina eftir eigin geðþótta.“
„Hafa rétt til að kæra allar
ákvarðanir“
„Við erum með svokallaða öryggis-
deild. Ef allt er í lagi þá er hún
bara notuð undir menn enda
er mikill þrýstingur á kerfið,“
segir Tryggvi Ágústsson,
deildarstjóri og staðgeng-
ill Margrétar Frímanns-
dóttur, forstöðumanns
Litla-Hrauns, sem
er um þessar mund-
ir í sumarfríi. Komi hins
vegar upp atvik sem
nauðsynlegt sé að bregðast
við er viðkomandi vistaður
á öryggisdeildina – réttindi
hans skert – og þá þarf að
sögn Tryggva að færa
þá fanga sem fyrir
eru og hafa full
réttindi.
Að
vista
menn
á ör-
yggisdeild er vægara
úrræði en að setja
þá í einangr-
un. „Eingangr-
unarvistanir
eru agaviðurlög
sem byggjast á
lögum. Svo er
þessi öryggis-
deild, það eru sér
reglur um hana.
Ef menn hafa
kannski hag-
að sér
þannig
þá
höfum við notað hana, stundum,“
segir Tryggvi. Menn geti verið í eitt
og hálft ár samfellt á öryggisdeild,
samkvæmt gildandi reglum Fang-
elsismálastofnunar, en samkvæmt
lögum má aðeins vista menn í ein-
angrun í fimmtán daga samfleytt.
„Svo hafa þeir náttúrlega sinn rétt
til að kæra allar okkar ákvarðanir.“
Enginn í álmunni
Tryggvi sagði í samtali við DV á
mánudag að enginn væri í öryggis-
álmunni. Hann vildi ekki tilgreina
hver hafi verið vistaður þar eða
hvenær einhver hafi verið vistað-
ur, enda sé fangavörðum óheimilt
að gefa slíkt upp vegna persónu-
verndar. Spurður um hvort deild
hafi verið rýmd vegna hegðunar
ótilgreinds fanga segir Tryggvi: „Ég
myndi nú ekki nota orðið „rýma“
í þessu skyni, en fangar hafa ver-
ið færðir á milli deilda.“ Forstöðu-
manni fangelsisins er heimilt í
„öryggisskyni“ eða „vegna sér-
stakra aðstæðna“ að flytja fanga á
milli deilda. n
Sex ára dómur
Stefán Blackburn (t.v.)
og Stefán Logi Sívars-
son við þingfestingu
Stokkseyrarmálsins.
Mynd SiGtryGGur Ari
Geðþóttaákvörðun Þórhallur Ölver
Gunnlaugsson er formaður Stoða,
hagsmunasamtaka fanga, en hann er
einnig í Afstöðu, trúnaðarráði fanga.
Löng brotasaga
Höfuðkúpubraut leigubílstjóra 15 ára gamall
Stefán Blackburn á að baki langa brota-
sögu þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gam-
all. Hefur hann verið vistaður í fangelsi
stóran hluta unglingsáranna. Stefán hefur
brotið fíkniefnalög, umferðarlög, hann
hefur beitt fólk ofbeldi og hótað því.
Stefán var dæmdur fyrir að berja leigu-
bílstjóra í höfuðið með hamri árið 2007.
Stefán var þá fimmtán ára gamall en hann
höfuðkúpubraut bílstjórann.
Árið 2012 var hann dæmdur fyrir að
hafa brotist inn í kjallaraíbúð árið 2010, í
félagi við tvo aðra, þar sem fyrir voru fimm
drengir að spila tölvuleiki. Stefán mundaði
hafnaboltakylfu, hótaði að drepa þá eða
berja, og komust hann og félagar hans
undan með tölvubúnað, töskur, hátalara-
kerfi og farsíma. Fyrir þetta fékk Stefán tíu
mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm.
Hinn 21. júní í fyrra fékk Stefán 14
mánaða dóm fyrir að hafa ekið ítrekað
undir áhrifum fíkniefna.
Hann fékk svo sex ára dóm fyrir mis-
þyrmingar og ofbeldi í Stokkseyrarmálinu
í febrúar.
Símon Örn reynisson
simon@dv.is
„Tryggvi ákvað
bara að þarna hafi
farið fram misþyrming og
slagsmál.
Runnu á lyktina
Lögreglumenn á ferð um Stokks-
eyri töldu sig finna lykt af kanna-
bisræktun á ferð sinni um þorpið
síðastliðinn föstudag. Í dagbók
lögreglunnar á Selfossi kemur
fram að fíkniefnaleitarhundurinn
Buster hafi verið sóttur og leiddi
hann lögreglumenn að tilteknu
húsi í þorpinu þar sem knúið var
dyra og heimilaði húsráðandi leit
þar. Við leitina fundust kannabis-
plöntur á ýmsum stigum rækt-
unar, allt frá því að vera um 5
sentímetrar á hæð og upp í 1,5
metra háar. Plönturnar reyndust
í heild á annað hundraðið en af
þeim voru 48 um 70 sentímetrar
eða stærri.
Hannes skrifar
um hrunið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
hefur gert samning við Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
um að meta „erlenda áhrifaþætti
á bankahrunið“. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson mun hafa
umsjón með verkefninu.
„Innlendir og erlendir aðilar
verða fengnir til aðstoðar, rætt við
þá eða gagna aflað hjá þeim, eftir
því sem kostur er. Þar má nefna
hagfræðinga, fyrrum fjármála- og
forsætisráðherra í Bretlandi, fyrr-
um seðlabankastjóra Bretlands,
fyrrum bankastjóra seðlabanka
New-York ríkis o.fl,“ segir í til-
kynningu frá ráðuneytinu.
„Hvað íslenska banka og fyr-
irtæki snertir, má nefna að rætt
verður við, eða aflað gagna hjá
fyrrum forsvarsmönnum ís-
lenskra banka og forsvarsmönn-
um slitastjórna bankanna.“ Verk-
ið verður unnið á tímabilinu júlí
2014 til júlí 2015, en undirbún-
ingur hófst haustið 2013.
Af með skítinn
á með
Aktu inn í sumarið áhreinum bíl!
Kíktu inn á www.lodur.is og kynntu þér
glænýjar staðsetningar Löðurs!
www.lodur.is - Sími 544 4540
12
STAÐIR
Nú er Löður
á 12 stöðum
+ 1 á Akureyri
+1