Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Page 8
8 Fréttir Vikublað 8.–10. júlí 2014
Þ
etta er eiginlega bara
óskiljan legt vegna þess að
við erum ekki fyrir neinum,“
segir götusalinn Erna Arnar-
dóttir en hún hefur fengist
við götusölu í miðbænum síðustu
sumur. Lögreglan hefur ítrekað haft
afskipti af götusölum í Austurstræti
í sumar en samkvæmt nýlegri sam-
þykkt Reykjavíkurborgar um götu- og
torgsölu mega götusalar ekki leng-
ur selja vörur sínar í Austurstræti og
á Lækjartorgi. Þá verður götusala hér
eftir einungis heimiluð á svokallaðri
Bernhöftstorfu, Ingólfstorgi sem og á
bílastæði á landi Faxaflóahafna.
Jakob Frímann Magnússon er
framkvæmdastjóri Miðborgarinnar
okkar, hagsmunasamtaka rekstrar-
aðila í miðborginni. Hann hefur lengi
talað fyrir því að færa götusölu frá
verslunaræðum borgarinnar og inn
á afmörkuð svæði. Fyrir fjórum árum
talaði hann um samkeppnishalla í
þessu sambandi, götusalar greiddu
hvorki leigu né fasteignagjöld og
gætu því mögulega selt vörur sínar
á lægra verði en hinar hefðbundnu
verslanir. Nú segir hann „einhvern
draslarablæ“ yfir götusölunni á Aust-
urstræti, sem sé ekki við hæfi á þess-
um stað. „Ég held að það finnist það
engum sérlega smart að Austur-
strætið einkennist af dulum hang-
andi utan á rimlum Héraðsdóms og
strigaskóm úr bílskúr flæðandi þar
um götur og torg.“
Þeir götusalar sem DV hefur rætt
við eru afar óánægðir með þetta nýja
fyrirkomulag og segja lítið sem ekk-
ert samráð hafa verið haft við þá. Þá
segja þeir borgaryfirvöld ganga er-
inda verslunareigenda. Ingi B. Poul-
sen, umboðsmaður borgarbúa, stað-
festir að götusalar hafi leitað til hans
vegna málsins. Það sé nú í ferli og
bíði ákvörðunar borgarráðs. „Þetta
er í endurskoðun
og verður tekið fyr-
ir í borgarráði í vik-
unni,“ segir Guðjóna
Björk Sigurðardóttir,
skrifstofustjóri hjá fram-
kvæmda- og eignasviði
Reykjavíkurborgar.
Stigamenn og
glæpafólk
Elísabet Bettý Sigurðardótt-
ir grunnskólakennari hefur
stundað götusölu í mið-
bænum síðustu sum-
ur. Hún segist í fyrstu
hafa reynt að fara
eftir nýjum regl-
um borgarinn-
ar og selja vörur
sínar í Bernhöft-
storfunni en nú
sé hún hætt
því. „Það er
ekkert að ger-
ast þarna.
Þetta er ofan
í holu og
inni í rjóðri.
Við stóðum
þarna eins
og illa gerð-
ir hlutir og
horfðum á
traffíkina niður Bankastrætið.“
Þrátt fyrir að götusalar hafi marg-
sinnis lýst yfir óánægju með þetta fyr-
irkomulag, standi borgaryfirvöld föst
við sinn keip. Þegar Elísabet og fleiri
götusalar hafi síðan ákveðið að snið-
ganga þessar nýju reglur borgaryfir-
valda hafi lögreglunni verið sigað á
þá. „Það var bara „zero tolerance“ og
okkur sagt að við fengjum hálftíma til
að pakka og fara. Það er einhver sem
lætur vita og lögreglan kem-
ur og rekur okkur burt
„med det samme“.
Það er bara eins
og við séum
einhverjir
stigamenn og
glæpafólk.“
Erna Arnar-
dóttir er ein
þeirra götu-
sala sem
hafa lýst yfir
mikilli óá-
nægju með
nýja fyrir-
komulagið.
„Þetta [Aust-
urstræti]
er besti
stað-
urinn fyrir okkur og það eru allir svo
ánægðir sem ganga þarna fram hjá.
Við höfum aldrei hitt neinn sem er að
setja út á að við séum þarna. Það bara
skilur þetta enginn.“
Bílskúrsbragur
Eins og fyrr segir hefur Jakob Frímann
Magnússon, framkvæmdastjóri Mið-
borgarinnar okkar, lengi verið tals-
maður þess að götusala fari fram á
afmörkuðum svæðum. Spurður um
það hverjir það séu sem séu ósátt-
ir við að götusalar selji vörur sínar í
Austurstræti og Lækjartorgi segir Jak-
ob að þeir séu mjög margir sem hafi
haft þetta á orði.
„Það eru bæði almennir borgarar
og þeir sem hafa látið sig varða ásýnd
miðborgarinnar. Við erum að reyna
að halda reisn yfir miðborginni og
þá held ég að menn séu að setja það
fyrir sig að það sé ekki einhver bíl-
skúrsbragur á helstu verslunargötum
og torgum borgarinnar,“ segir Jakob
Frímann og bætir við að með þessu
sé verið að reyna að gera þetta and-
lit Íslands ásjálegt. „Gagnrýnin lýtur
að því að menn þurfi aðeins að gæta
smekkvísi og tillitssemi í því hvern-
ig þeir teygja sig upp eftir veggjum
og götum og torgum. Þeir sem vilja
stunda viðskipti með þessum hætti
þurfa bara að skynja þá grundvallar-
kröfu.“
Þá segir Jakob Frímann rekstr-
araðila í kring óánægða með að
götusalar geti stillt sér upp við
hlið verslana þeirra og selt
vörur á lægra verði en þeir.
„Götusalinn kemur kannski
með ferðatöskuna, stillir upp
borði, og fer að selja sam-
bærilegan varning á mjög
lækkuðu verði þar sem hann
þarf ekki að standa straum
að sambærilegum aðstöðu-
gjöldum og tilkostnaði sem
húsaleiga eða fasteigna-
gjöld fela í sér og annað
slíkt.“
Endurtekið efni
Svipaðar hugmyndir voru uppi sum-
arið 2010 en þá ákváðu borgaryfir-
völd að heimila einungis götu- og
torgsölu í Hjartagarðinum. DV fjallaði
um málið en þá sagði Jakob Frímann
ákvörðunina spegla vilja borgaryfir-
valda til þess að hafa alla götusala á
einum tilteknum stað. Hann viður-
kenndi að þrýstingur frá verslunar-
eigendum vegna þessa máls hefði
verið til staðar enda væri óeðlilegt að
þeir sem greiddu hæstu aðstöðugjöld
á Íslandi við aðalverslunargötu borg-
arinnar þyrftu að keppa við götusala.
Málið vakti nokkra athygli og borgar-
yfirvöld drógu ákvörðun sína síðar til
baka.
Sabrina Cassadei var einn þeirra
götusala sem átti að færa í Hjarta-
garðinn á sínum tíma. „Ég skil ekki
hvers vegna fólk með peninga hef-
ur öll völdin,“ sagði Sabrina aðspurð
um málið. Þá gagnrýndi Þórar-
inn Einarsson, barnsfaðir hennar,
borgaryfirvöld harkalega: „Ég held
bara að þau átti sig ekki á því hvaða
skemmdarverk eru í gangi.“ Sabr-
ina og Þórarinn eru langt í frá ánægð
með nýjustu vendingar og hafa þau
sent bréf á Reykjavíkurborg þar sem
óskað er eftir endurgreiðslu á gjaldi
fyrir götusöluleyfi.
DV hefur bréfið undir höndum
en þar segir meðal annars: „Leyfið
er algjörlega gagnslaust miðað við
núverandi skipulag þar sem úthlut-
uð svæði henta engan veginn fyr-
ir götu- og torgsölu. Borgaryfirvöld-
um er hér með gert ljóst að þau hafa
í raun bannað götu- og torgsölu með
því að leyfa hana einungis á dauðum
reitum þar sem lítið er um streymi
fólks. Nýtt skipulag er greinilega afar
vanhugsað eða gert í þágu verslun-
areigenda sem vilja losna við götu-
sala.“ Þá segir að með nýju skipulagi
hafi borgaryfirvöld látið undan
þrýstingi verslunareigenda og eyði-
lagt þá götusölumenningu sem var
að byggjast upp. n
Götusölum bolað burt
n Götusala bönnuð í Austurstræti n Jakob Frímann segir draslarablæ yfir götusölu
Ósáttar Elísabet Bettý Sigurðardóttir
grunnskólakennari, Erna Arnardóttir
og Sabrina Cassadei hafa stundað
götusölu í miðbænum síðustu sumur.
Þær eru ósáttar við að fá ekki að selja
vörur sínar í Austurstræti.
Mynd Sigtryggur Ari
draslarablær Jakob Frímann Magnússon,
framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar,
segir „einhvern draslarablæ“ yfir götu-
sölunni á Austurstræti, sem sé ekki við hæfi
á þessum stað. Mynd Sigtryggur Ari JÓhAnnSSon
„Ég held að það
finnist það engum
sérlega smart að Aust-
urstrætið einkennist af
dulum hangandi utan
á rimlum Héraðsdóms
og strigaskóm úr bílskúr
flæðandi þar um
götur og torg
„Það er bara eins
og við séum
einhverjir stigamenn
og glæpafólk
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is