Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Qupperneq 11
Vikublað 8.–10. júlí 2014 Fréttir 11
Fjölskyldufyrirtæki urðu eldinum að bráð
n „Sama lykt og sjötíuogfimm“ n Sagan endurtekur sig í Skeifunni n Verslunareigendur staðráðnir í að halda áfram n „Meðan allir eru heilir er hægt að bæta allt“
Föt eldri borgara brunnu
„Setur smá strik í reikninginn“
Eldsvoðinn í Skeifunni hafði áhrif víða í
samfélaginu, meðal annar á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Hrafnistu. Allur fatnaður
vistmanna, ásamt sængurfatnaði og
líni, fór í þvott hjá Fönn og ljóst er að sú
sending sem fór út á föstudag er mest-
megnis farin forgörðum. „Þetta setur smá
strik í reikninginn hjá okkur og við höfum
verið að vinna úr þessu með dyggri aðstoð
starfsmanna og stjórnenda Fannar. Við
erum ekki komin með neinar staðfestingar
á því enn þá hvað
er glatað en það má
gera ráð fyrir að það sé
eitthvað,“ segir Harpa Gunnarsdótt-
ir, fjármálastjóri og staðgengill forstjóra
Hrafnistu, í samtali við DV. Hún segir að
það hafi verið lán í óláni að eldurinn hafi
ekki komið upp á mánudegi því föt séu
send í Fönn á öllum virkum dögum og því
hafi hlutfallslega lítið verið af fatnaði hjá
Fönn um helgina.
Erfiðustu eldsvoðarnir
DV ræddi við Martein Geirsson, deildar-
stjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins, um erfiðustu eldsvoðana í seinni tíð.
Hann nefnir helst fimm eldsvoða í manna
minnum sem voru sérlega erfiðir.
Hringrás
„Hringrásarbrunarnir
tveir voru sérstaklega
erfiðir, það var nánast
almannavarnará-
stand. Þetta var mjög
alvarlegur eldur. Áttin
var þannig að það lá undir elliheimili og
blokkirnar í Kleppsholti. Lognið í gær
hjálpaði okkur mikið.“
Réttarháls
„Réttarhálsinn var
eftirminnilegur. Þetta
var dekkjaverkstæði og
eldurinn byrjaði vænt-
anlega þar. Við vorum
lengi í að vinna við þann
eld. Sá var svipaður og þessi núna að því
leyti að það voru mörg fyrirtæki sem urðu
fyrir eldinum.“
Lækjargata
„Lækjargötubruninn
fyrir nokkrum árum
var ansi kröftugur og
mikill eldur. Þar voru
nokkur fyrirtæki og
minjar, gömul hús.“
Málning
„Í Málningu í Kópa-
vogi var sömuleiðis
mikill eldur. Það var
löng vinnutörn.“
Kópavogshæli
„Það var kannski
ekki mikill eldur, en
Kópavogshæli var
mjög krítískur eldur.
Við misstum fólk. Eftir
það varð bylting í kerfum, allir spítalar og
stofnanir settu upp reykskynjara.“
Engin áhrif á skólahald
Tölvubúnaði borgið
„Mér sýnist þrjú, fjögur fyrirtæki vera bara
horfin. Við virðumst hafa sloppið ótrúlega
vel. Það eru einhverjar kennslustofur
skemmdar og tölvur í einhverjum stofum
virðast hafa skemmst en við erum að
vona að allur miðlægur búnaður hafi
sloppið,“ segir Guðmundur Pálmason,
framkvæmdastjóri og annar eigandi
Promennt, í samtali við DV. Promennt,
sem býður upp á námskeið í viðskipta-
greinum, tölvu- og upplýsingatækni,
er til húsa í Skeifunni 11, beint fyrir ofan
Rekstrarland sem brann til kaldra kola
á sunnudag. Hann bauð blaðamanni og
ljósmyndara DV að skoða rýmið á mánu-
dag. Aðeins í einni kennslustofu mátti sjá
miklar skemmdir en gluggi þar sneri út
að verkstæði Stillingar. Í þeirri stofu var
allt þakið sóti og höfðu gluggar sprungið.
Fyrir utan blautt gólf sást varla á öðrum
kennslustofum.
Guðmundur segir að Promennt í
núverandi mynd hafi orðið til á árinu 2008
þegar fyrirtækin Isoft og Tölvuskólinn
Þekking sameinuðust. „Þá kaupum við
þetta, ég og meðeigandi minn, John
Yeoman, og við erum búnir að vera að
byggja þetta upp síðan. Það er búið að
vera mikil vinna frá 2008 en þetta er að
sama skapi búið að stækka mikið síðan
þá.
Guðmundur segist sjálfur hafa séð
reykinn koma upp úr húsnæðinu þegar
hann var að keyra inn í Reykjavík utan af
landi. „Ég var að keyra inn í bæinn og þá sá
ég reykinn og dreif mig beint niður í Skeifu.
Þá var þetta á frumstigi en það var ekkert
annað að gera en að drífa sig á staðinn.
Það var vissulega óþægileg tilfinning að
sjá reykinn en það var ekkert hægt að
gera,“ segir Guðmundur.
Hann segir allar líkur á því að skólahald
hefjist um mánaðamót ágúst og sept-
ember líkt og venjan er. Hann segir það
ákveðið lán í óláni að síðasti kennsludagur
hjá Promennt hafi verið klukkan eitt sama
dag og eldsvoðinn átti sér stað. „Það er
klárlega tjón upp á einhverjar milljónir
en þetta er mikið betra en manni sýndist
fyrst. Við förum á fullt aftur í haust, sé ég.
Það er ekkert því til fyrirstöðu. Þetta mun
ekki stöðva reksturinn, en þetta er skóli
svo starfsemin liggur niðri að mestu leyti
núna. Ég sé ekki fram á annað en allt verði
komið á fullt í haust.“
Kraftaverk að ekki fór verr
„Óvenjumikill straumur af fólki“ í Víði
„Sem betur fer sluppum við. Þetta var bara
kraftaverk, ekkert annað. Þetta er eitt frí-
merki hérna sem slapp, allt annað er farið.
Þetta hús stendur eitt eftir,“ segir Eiríkur
Sigurðsson, eigandi verslunarinnar Víðis, í
samtali við DV. Búðin er ein fárra fyrirtækja
á svæðinu sem slapp með skrekkinn frá
eldsvoðanum í Skeifunni. Hann segir að
sín fyrstu viðbrögð hafi verið að mæta
rakleiðis á staðinn. „Þetta leit mjög illa út
þá. Ég get ekki lýst tilfinningunni. Maður
horfir bara á að það er allt að fara,“ segir
Eiríkur. Hann bendir á að þótt allt sé tryggt
hjá versluninni hefði bruninn getað haft
gífurleg áhrif á lítið fyrirtæki eins og Víði.
„Ég get alveg sagt þér það að í gær-
kvöldi þegar ég horfði hérna yfir þá gat
ég ekki séð neitt annað en að þetta færi
allt saman. Það er stórkostlegt hvernig
slökkviliðsmönnum tókst að verja húsið.
Þetta var eins og eldsprunga allt í kring
nema hjá okkur. Það var stutt yfir í þakið,
fáeinir sentímetrar á milli,“ segir hann.
Eiríkur vildi sérstaklega koma á framfæri
þökkum til slökkviliðsins og lögreglunnar
er DV ræddi við hann. „Það er með ólíkind-
um hvernig slökkviliðið og lögreglan vann
hérna í nótt. Ég hef aldrei upplifað annað
eins. Maður er ekkert annað en hamingju-
samur með það að þetta skuli ekki hafa
farið verr. Þá hefði þetta allt saman farið,
en þeim tókst þetta, þessum snillingum,“
segir hann.
Eina alvarlega truflunin sem varð á
starfsemi Víðis var að ljósleiðari í húsið
skemmdist og því netlaust með öllu. Þrátt
fyrir allt sem gekk á var opnað í Víði,
líkt og vanalega, klukkan tíu. Að sögn
Eiríks mættu starfsmenn klukkan sex
um morgun til að gera verslunina til. „Við
þurftum að leita nýrra leiða til að geta
opnað búðina út af tölvu- og kassakerfinu.
Það tókst allt saman og við opnuðum
klukkan tíu. Það er búið að vera óvenjumik-
ill straumur af fólki, góðir kúnnar að koma
við með gleði og samkennd.“
„Dapurlegt að horfa á þetta“
Sólargluggatjöld sluppu vel
„Við erum enn að átta okkur á því hvernig
staðan er. Við sluppum svona þokkalega,
það brann ekkert og vatnsskaði virðist
vera lítill en það er reyklykt. Einhver vinnu-
stöðvun verður en á þessu stigi vitum við
ekki hve lengi,“ segir Hjörtur Hoffmann,
deildar- og sölustjóri Sólargluggatjalda,
í samtali við DV. Fyrirtækið var stofnað
fyrir hartnær sjötíu árum. Verslun og
verksmiðja er til húsa að Skeifunni 11,
hinum megin við ganginn við Rekstrar-
land þar sem allt brann sem brunnið gat.
Hjörtur segir ótrúlegt hve vel húsnæðið
slapp en verkstæðið nær yfir nærri allan
kjallara hússins. „Þetta er undir yfirborði
sjávar svo það var ákveðin hætta á því
að kjallarinn fylltist af vatni. Það virðist
hafa sloppið. Við erum samt með timbur
og annað efni þarna sem gæti verið
skemmt,“ segir Hjörtur.
Hjörtur segist hafa fyrst frétt af elds-
voðanum þegar lögreglan hringdi í hann.
„Þá fór ég niður eftir með því sama upp
á það ef maður gæti leiðbeint einhverj-
um eða opnað rými. Það var náttúrlega
dapurlegt að horfa á þetta en maður
áttaði sig ekki á þessu fyrr en í morgun
þegar maður fór að skoða þetta betur.
Það er samt ákveðinn léttir að þetta hafi
ekki verið meira en leit út fyrir í upphafi,“
segir Hjörtur.
Hann segir öruggt að Sólargluggatjöld
hefji starfsemi á ný en óvíst hvort það
verði í sama húsnæði. „Það þarf að yfir-
fara þetta, en við höfum ekki tekið neina
ákvörðun. Eins og húsið snýr að okkur þá
gætum við opnað innan skamms, en allar
leiðslur og rafmagn, taugar að húsinu,
virðast hafa brunnið. Sú staða gæti komið
upp að við færum okkur um set.“
ekkert hafi brunnið nema milliloft-
ið. „Það lak inn á það tjara og vatn en
búðin er bara full af sóti, rafmagns-
laus og vatnslaus, svo það þarf að
rífa allt út úr húsnæðinu, þvo, mála
og gera það upp.“ Hann fagnar því
að enginn hafi slasast og bendir á að
tjónið sé einungis fjárhagslegt. „Tjón-
ið var miklu meira hjá nágrönnum
okkar, svo við getum varla kvartað.“
Sama lyktin og sjötíuogfimm
Júlíus segir að atburðir ársins 1975
hafi öðlast nýtt líf í hugskotssjón-
um hans á sunnudagskvöld. „Ég var
19 ára á þessum tíma. Var í námi og
vann hjá pabba á sumrin,“ segir Júl-
íus þegar DV biður hann um að lýsa
minningum sínum. „Eftir brunann
féll burðarbiti úr loftinu svo það
myndaðist gat á þakið. Þetta gerð-
ist þegar við vorum varla komnir út
húsinu, pabbi, Stebbi, ég og nokkr-
ir slökkviliðsmenn. Rétt áður höfð-
um við staðið undir bitanum og ver-
ið að skoða hann. Þarna hefði orðið
mikið slys ef við hefðum ekki verið á
leiðinni út, og við áttum reyndar fót-
um okkar fjör að launa.“
Næstu nætur stóðu þeir Stefán,
bróðir Júlíusar, vaktina meðan enn
átti eftir að gera við þakið. „Við not-
uðum tímann til að læra og sátum
þarna á gömlu skrifstofunni hans
pabba.“ Júlíus segir að þetta hafi ekki
verið sérlega skemmtilegt, en einhver
hafi orðið að taka það að sér.
„Þetta rifjaðist allt upp fyrir mér
þegar ég kom að húsinu í ljósum log-
um í gær, allt það sem gerðist árið
1975. Þegar ég mætti í Skeifuna á
mánudagsmorgun kom á móti mér
sama lyktin og árið 1975. Ég kann-
aðist við þessa brunalykt. Maður sat
þarna á kvöldin og alltaf var sama
lyktin í húsinu þegar maður stóð
þessa vakt.“
Stilling sigraðist á þeim hindrun-
um sem urðu í vegi fyrirtækisins árið
1975. „Það er mjög sérstakt að upp-
lifa þetta aftur,“ segir Júlíus sem telur
einsýnt að fyrirtækið spjari sig. Hann,
líkt og aðrir viðmælendur DV, er stað-
ráðinn í því að láta ekki deigan síga. n
Ófremdarástand
í Skeifunni Lítið
um að vera á KFC.
Mynd Sigtryggur Ari
Framhald á næstu síðu