Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 8.–10. júlí 201414 Fréttir Viðskipti
S
kúli Mogensen, fjárfestir og
eigandi flugfélagsins Wow
air, veðsetti eignarhaldsfélag
sitt Kotasælu ehf. fyrir 150
milljóna króna láni í ágúst í
fyrra. Lánið er frá Arion banka. Þetta
kemur fram í tryggingabréfi sem gef-
ið var út í fyrra vegna þessara við-
skipta. Kotasæla á meðal annars
eignir eins og húsið á Fjölnisvegi
11, sem félagið keypti af útgerðar-
manninum Guðmundi Kristjánssyni
í Brim, og jarðir og sumarhús í Kjós-
arhreppi. Skúli hefur síðustu árin
sett mikla fjármuni inn í Wow air og
hefur sannarlega verið eftir því tekið
hversu myndarlega hann hefur viljað
koma flugfélaginu á koppinn. Í nóv-
ember í fyrra setti Skúli 500 milljónir
króna inn í Wow air og hafði þá sett
alls 1.500 milljónir króna inn í flug-
félagið frá stofnun þess. Félag Skúla,
Títan fjárfestingafélag, hefur sett
fjármunina inn í fyrirtækið.
Eignakaup Skúla
Kotasæla ehf. tengist rekstri Wow
ekki með beinum hætti þótt félag-
ið sé skráð í höfuðstöðvum flugfé-
lagsins að Höfðatúni 2. Skúli hefur
notað félagið til að kaupa upp fast-
eignir á Íslandi eftir hrunið 2008.
Kotasæla keypti jarðirnar Hvamm
og Hvammsvík í Kjós af Orkuveitu
Reykjavíkur eftir útboð árið 2011en
þá seldi fyrirtækið talsvert magn
eigna til að reyna að grynnka á skuld-
um sínum.
Sagðist tilbúinn
með þrjá milljarða
Eftir hrunið árið 2008 flutti Skúli
til Íslands eftir að hafa stundað
ábatasöm viðskipti með fyrirtæk-
ið OZ Communications í Kanada.
Það fyrirtæki var stofnað á grunni ís-
lenska fyrirtækisins OZ sem fór illa
út úrnetbólunni í byrjun aldarinn-
ar eftir að hafa safnað miklu hluta-
fé hjá fjárfestum á Íslandi. Í blaða-
viðtali eftir hrunið 2008 sagðist hann
vera tilbúnn með þrjá milljarða til
fjárfestinga á Íslandi. Spurningin er
hversu mikla fjármuni Skúli á eftir til
að koma Wow betur á koppinn. Afar
kostnaðarsamt, sem og áhættusamt,
er að stofna flugfélag og hefur Skúli
nú þegar dælt umtalsverðum fjár-
munum inn í fyrirtækið.
Þolinmóður sölumaður
Skúli eignaðist leifarnar af OZ út úr
Landsbankanum eftir einkavæð-
ingu bankans árið 2002 og fór
með félagið til Kanada og vann
áfram með eignir þess og þróaði
þær áfram. Í byrjun efnahags-
hrunsins um haustið 2008 seldu
Skúli og meðfjárfestar hans OZ
Communications svo til finnska
farsímarisans Nokia fyrir verð sem
aldrei hefur verið gefið upp. Í um-
fjöllun um Skúla í DV árið 2011 var
sagt að hann væri þolinmóður fjár-
festir og var vísað til þess að á end-
anum hagnaðist hann sannarlega á
OZ. „Hann er búinn að vera mjög
þolinmóður sölumaður. Það er
kannski besta lýsingin á honum. Ég
held að hann hafi keypt sig þrisvar
inn í Oz. Á endanum græddi hann
fullt af peningum á þessu. Þannig
að það er ákveðin þolinmæði. Þetta
er eitt af einkennum Skúla: Hann
hefur úthald.“
Eignaðist húsið aftur
Kaup Skúla á húsinu á Fjölnisvegi
11 vöktu talsverða athygli árið 2013
þar sem hann hafði áður átt hús-
ið. Það var á árunum 1998 til 2002
þegar vegur OZ var sem mestur á
Íslandi. Fjárfestirinn Bogi Pálsson,
sem yfirleitt er kenndur við Toyota-
umboðið, keypti húsið svo af Skúla
og bjó þar til 2005 þegar Guðmund-
ur Kristjánsson í Brim keypti húsið
af honum. Hannes Smárason keypti
húsið svo af Guðmundi árið 2007 og
svo eignaðist Guðmundur það aft-
ur eftir hrun. Loks keypti Kotasæla
húsið svo 2013. Þeir Guðmundur og
Skúli hafa því báðir átt húsið tvisvar
sinnum á liðnum árum. n
Skúli veðsetti Kotasælu
fyrir 150 milljónir króna
n Skúli Mogensen tók lán út á fasteignir sínar n Keypti Fjölnisveg 11 aftur
Í annað sinn Skúli eignaðist Fjölnisveg 11 í annað sinn í fyrra. Húsið er meðal þess sem
veðsett er í félaginu Kotasælu. Mynd Sigtryggur Ari
ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Fasteignafélagið veðsett
Skúli veðsetti fasteignafélag
sitt í fyrra en félagið hefur hann
meðal annars notað til að kaupa
Fjölnisveg 11 og jarðir í Kjós.
Mynd Sigtryggur Ari
„Hann er búinn að
vera mjög þolin-
móður sölumaður
Telja styrkingu ólíklega
Seðlabankinn mun hefja aftur kaup á gjaldeyrismarkaði
K
rónan stóð næstum óbreytt
á milli mánaða í júní. Í lok
mánaðarins kostaði ein evra
154,5 krónur í samanburði
við 154 krónur í lok maí. Á móti
Bandaríkjadal stóð hún nokkurn
veginn óbreytt í 113 krónum. Þetta
kemur fram í nýrri Hagsjá Lands-
bankans sem birt var á mánudag.
Hagfræðideild Landsbankans tel-
ur ólíklegt að krónan eigi eftir að
styrkjast næstu mánuði.
Í umfjöllun Hagsjár kemur fram
að 85 milljónir evra, 13,1 milljarð-
ur króna, hafi skipt um hendur í
mánuðinum, sem er nokkuð ná-
lægt meðalveltu síðustu mánaða.
„Markaðurinn var mjög rólegur
megnið af mánuðinum, en lifnaði
við undir lokin. Vel yfir helmingur
af veltu mánaðarins átti sér stað á
seinustu þremur viðskiptadögum.
Þar af átti þriðjungur af allri veltu
mánaðarins sér stað á mánudegin-
um 30. júní,“ segir í Hagsjá.
Þá er tekið fram að peninga-
stefnunefnd Seðlabankans hafi
sérstaklega tilkynnt þann 11. júní
síðastliðinn að hann muni hefja
aftur regluleg kaup á gjaldeyris-
markaði, en bankinn gerði hlé á
þeim kaupum í árslok 2012. Hyggst
Seðlabankinn kaupa þrjár milljón-
ir evra á gjaldeyrismarkði hvern
þriðjudag út september.
Í umfjöllun Hagsjár kemur
fram að raungengi krónunnar hafi
hækkað nokkuð síðan það var sem
lægst um mitt ár 2009, hvort sem
litið sé á raungengi miðað við verð-
lag eða launakostnað. „Alls var
raungengið 23% hærra á öðrum
ársfjórðungi 2014 en sama tímabil
2009 ef miðað er við verðlag og
39% hærra ef miðað er við launa-
kostnað. Í seinustu fundargerð
peningastefnunefndar kom fram
að nefndin telur að raungengið sé
nú ekki fjarri því sem telja mætti
ásættanlegt næstu misserin.“ n
Krónan Raungengi krónunnar
hefur hækkað nokkuð síðan
það var sem lægst árið 2009.
Kostnaður VÍS
250 milljónir
Kostnaður tryggingafélagsins
VÍS af brunanum í Skeifunni á
sunnudag verður að hámarki 250
milljónir króna. Þetta kemur til
vegna samninga félagsins við er-
lenda endurtryggjendur. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
tryggingafélaginu. Þar segir enn
fremur að til samanburðar nemi
sú hámarksfjárhæð um tveimur
prósentum af tjónakostnaði VÍS á
árinu 2013. „Starfsfólk VÍS leggur
nú kapp á að veita viðskiptavin-
um sem lentu í tjóninu skjóta og
góða þjónustu svo þeir geti haf-
ið starfsemi sína aftur sem fyrst,“
segir í tilkynningunni.
Krafnir um
10 milljarða
Þrotabú Kaupþings krefur þrjá
fyrrverandi stjórnendur bank-
ans og stærsta lántakanda hans
í Lúxemborg um tæplega 10
milljarða króna í skaðabætur í
máli sérstaks saksóknara gegn
þeim. Upphæðin myndi duga til
að reka Háskóla Íslands í tæp-
lega tvö ár.
Sérstakur saksóknari hefur
ákært Hreiðar Má Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóra Kaupþings,
Magnús Guð-
mundsson,
fyrrverandi
bankastjóra
Kaupþings í
Lúxemborg
og Guð-
nýju Örnu
Sveinsdóttur,
fyrrverandi fjár-
málastjóra Kaupþings, fyrir stór-
felldan fjárdrátt en til vara fyrir
umboðssvik.
Skúli Þorvaldsson var stærsti
lántakandi Kaupþings í Lúxem-
borg en hann er ákærður fyrir
hylmingu, en til vara fyrir pen-
ingaþvætti, fyrir að hafa tek-
ið við téðum millifærslum og
hagnast á því að valda Kaup-
þingi tjóni.
Kjarninn hefur birt ákæruna
á vefsíðu sinni en ákæruefnið
eru tæplega 10 milljarða króna
millifærslur frá Kaupþingi til
Kaupthing Bank í Luxemborg –
sem þaðan runnu inn á reikn-
inga Marple Holding SA, sem
var í eigu Skúla – á tímabili frá
árslokum 2007 fram í júlí 2008.
Sérstakur saksóknari fer
fram á að fjórmenningunum
verði refsað fyrir athæfið, en þar
að auki krefst þrotabú Kaup-
þings þess að fjármunirnir verði
endurgreiddir.