Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2014, Side 19
Vikublað 8.–10. júlí 2014 Skrýtið 19
Netið er eins og
rafrænt heróín
n 400 meðferðarstofnanir opnaðar í Kína á 10 árum n Líkjast einna helst herbúðum
N
etfíkn er gríðarlegt vanda-
mál í Kína og var landið
eitt af þeim fyrstu sem skil-
greindu tölvuleikja- og
internetfíkn sem geðrösk-
un. Á undanförnum árum hefur
vandamálið farið sífellt vaxandi og
frá því árið 2004 hafa kínversk stjórn-
völd opnað yfir 400 meðferðarstofn-
anir til að berjast gegn vandamálinu.
Meðferðarstofnanirnar eru þó með
fremur sérstöku sniði, en þær minna
meira á herbúðir heldur en hefð-
bundna meðferðarstofnun.
Lokaúrræði
Krakkarnir eru sendir þangað af for-
eldrum sínum sem lokaúrræði. Flest
þau ungmenni sem þar dvelja eru
þar vegna þess að tölvu- og netfíkn-
in hefur tekið yfir líf þeirra. Þeir eyða
mestum tíma fyrir framan tölvuskjá-
inn og hafa brennt margar brýr að
baki sér vegna þessa, til dæmis hafa
þau misst vinnuna eða verið rekin úr
námi.
Sá tími sem krakkarnir eyða í
tölvuleiki er gríðarlegur. Einn þeirra
segir til að mynda frá því að hann
hafi spilað tölvuleikinn World of
Warcraft í 300 klukkutíma nánast
stanslaust og tók sér einungis stutt-
ar pásur á milli til að blunda. Annar
drengur segist hafa eytt því sem
nemur tæpri einni milljón íslenskra
króna í tölvuleikinn Dream to the
West.
Sýndarheimurinn betri en sá
raunverulegi
„Þeim finnst sýndarheimurinn betri
en raunheimurinn,“ segir prófessor
Tao Ran, sem starfar við eina með-
ferðarstofnunina. „Sum þeirra eru
svo háð þessum leikjum að þau
halda að ef þau fara á klósettið muni
það koma niður á frammistöðu
þeirra í leiknum, þess vegna nota
mörg þeirra bleiur.
Það er enginn munur á þessum
krökkum og heróínfíklum. Heróín-
fíklar þrá og sækjast í heróín á
hverjum degi. Þessir krakkar þrá og
sækja í tölvuleiki. Þess vegna köll-
um við þetta rafrænt heróín,“ sagði
Ran í samtali við fjölmiðilinn Daily
Beast. n jonsteinar@dv.is
Í tölvuleik á netkaffi Dæmi eru um að ungmenni dvelji dögum saman á netkaffihúsum til að spila tölvuleiki. Foreldrar
eru oft ráðalausir og grípa því til þess að senda þau í meðferð.
„Þeim finnst
sýndarheimurinn
betri en raunheimurinn.
Finna önnur áhugamál Reynt er að finna krökkunum sem dvelja á
stofnuninni önnur áhugamál en tölvuleiki og internetráp. Til dæmis að spila tónlist.
Kveðja félaga Ungmennin dvelja allt upp í sex
mánuði í einu í meðferðinni áður en þau fá að hitta fjölskyldu og
vini aftur. Hér kveður hópur ungmenna félaga sem útskrifaðist úr
meðferðinni.
Erfiðar æfingar Æfingar sem ungmennin þurfa að
gera í búðunum minna mest á æfingabúðir fyrir hermenn. Sem er
kannski ekki skrýtið þar sem flestir starfsmannanna eru fyrrverandi
hermenn. Líkamlegt ástand margra sem skráðir eru í meðferð er oft
mjög lélegt sökum fíkninnar, sem hvetur til mikillar setu og lítillar
hreyfingar.
Heilaskönnun Vísindamenn við netfíknarmeðferðar-
stofnunina í Daxing skanna heila drengs sem var háður netinu.
Standa hnarreist Ungmenni standa fyrir framan kínverska fánann er þau
taka þátt í æfingum í hermannastíl.
Fá sálfræðimeðferð Þó að líkamlegar æfingar
séu mikið notaðar á stofnununum er sálræn meðferð einnig stór
hluti af meðferðinni.